DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Purple Dawn Jacket

Hekluð peysa með laskalínu úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er heklað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-14
DROPS Design: Mynstur z-860
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 9020, ljós perlugrár
250-300-300-350-400-400 g litur 6347, gráfjólublár
150-200-200-200-250-250 g litur 8903, svartur

HEKLFESTA:
16 tvíbrugðnir stuðlar á breidd og 6 umferðir á hæðina með 2 þráðum Alpaca = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (perlugrár) NR 614: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

--------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull.

RENDUR:
Allar rendur eru heklaðar með 2 þráðum!
RÖND 1: 25-27-27-29-29-31 cm með 2 þráðum ljós perlugrár.
RÖND 2: 8-8-8½-8½-9-9 cm með 1 þræði ljós perlugrár + 1 þræði gráfjólublár.
RÖND 3: 8-8-8½-8½-9-9 cm með 2 þráðum gráfjólublár.
RÖND 4: 8-8-8½-8½-9-9 cm með 1 þræði gráfjólublár + 1 þræði svartur.
RÖND 5: Heklið síðan með 2 þráðum svartur til loka (= 8-8-8½-8½-9-9 cm).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur (koma ekki í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) mínus 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki (= 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 16,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur til skiptis í 16. og 17. hverja lykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
A.4 og A.5 á ekki við um stærð M.
ATH: Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar frá réttu og allar umferðir með fastalykkjum eru heklaðar frá röngu.

RENDUR ERMI:
Allar rendur eru heklaðar með 2 þráðum!
Haldið áfram með RÖND 1 þar til heklaðir hafa verið 25-27-27-29-29-31 cm með rönd 1.
RÖND 2: 10 cm með 1 þræði ljós perlugrár + 1 þráður gráfjólublár.
RÖND 3: 10 cm með 2 þráðum gráfjólublár.
RÖND 4: 10 cm með 1 þræði gráfjólublár + 1 þráður svartur.
RÖND 5: Heklið síðan með 2 þráðum svartur til loka (= 15-13-14-12-12-11 cm).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju í byrjun á umferð (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót við fyrstu lykkju), endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð áður en snúið er við og heklað áfram.
Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 4 loftlykkjur í byrjun á umferð (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur eru heklaðar sem viðbót við fyrstu lykkju), endið umferð með 1 keðjulykkju í 4. fastalykkju í umferð áður en snúið er við og heklað áfram.

ÚRTAKA-1 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig:
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður.
Ermar eru heklaðar fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og frá röngu) og heklaðar saman í lok hverrar umferðar, ofan frá og niður.
ATH: Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar frá réttu og allar umferðir með fastalykkjum eru heklaðar frá röngu þegar mynstrið er heklað.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 76-80-84-92-92-96 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með 2 þráðum ljós perlugrár. Heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og heklið þannig: Snúið með 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 76-80-84-92-92-96 loftlykkjum = 76-80-84-92-92-96 fastalykkjur. Heklið 1 umferð til viðbótar með fastalykkjum og aukið jafnframt út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 80-84-88-96-96-100 fastalykkjur.

BERUSTYKKI:
Heklið nú þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 15-16-17-19-19-20 lykkjurnar, heklið A.2 yfir næstu 2 lykkjurnar, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykki og ermi), A.3 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), A.3 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 20-22-24-28-28-30 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), A.3 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), A.3 yfir næstu 2 lykkjur og heklið A.1 yfir 15-16-17-19-19-20 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

STÆRÐ S-M:
Haldið svona áfram fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hverja og eina af fyrstu 3 umferðum í A.2 og A.3 (þ.e.a.s. aukið út alls 8 lykkjur í hverri umferð), en í síðustu umferð er aukið út um 2 lykkjur (þ.e.a.s. aukið út alls 16 lykkjur í síðustu umferð).

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Haldið svona áfram fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hverri stuðlaumferð (þ.e.a.s. aukið út alls 8 lykkjur í hverri umferð með stuðlum) í A.2 og A.3, en aukið út um 2 lykkjur í hverri fastalykkju umferð (þ.e.a.s. aukið út alls 16 lykkjur í hverri umferð með fastalykkjum).

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, eru 120-124-136-144-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 og endurtakið umferð 1 til 4 í A.2 og A.3 hvoru megin við prjónamerki þar til A.1 til A.3 hefur verið heklað alls 4-5-4-4-5-5 sinnum á hæðina (í hvert skipti sem A.2/A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið útauknar lykkjur í A.1) = 240-284-280-288-336-340 lykkjur.
Heklið nú A.4 í stað A.2 og heklið A.5 í stað A.3 (á ekki við um stærð M, þar er útaukningum lokið) hvoru megin við prjónamerkin, þær lykkjur sem eftir eru, eru heklaðar í A.1 eins og áður.
Þegar A.4 og A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 256-284-304-328-344-372 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.1 (án útaukninga) þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm frá byrjun á kanti í hálsi og niður meðfram kanti að framan – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig (skipting á milli fram- og bakstykki og ermar er ekki endilega við prjónamerkin):
Heklið A.1 yfir fyrstu 45-48-50-54-58-63 lykkjur (= hægra framstykki), heklið 8-8-10-10-12-12 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 43-51-57-61-61-65 lykkjur (= ermi), heklið A.1 yfir næstu 80-86-90-98-106-116 lykkjur (= framstykki), heklið 8-8-10-10-12-12 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 43-51-57-61-61-65 lykkjur (= ermi), heklið A.1 yfir 45-48-50-54-58-63 lykkjur sem eftir eru í umferð (= vinstra framstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 186-198-210-226-246-266 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður. Þegar allar rendur hafa verið gerðar til loka á hæðina – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum, mælist stykkið ca 32-32-33-33-33-33 cm. Öll peysan mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Byrjið í 4. loftlykkju sem var hekluð undir ermi með 1 keðjulykkju, haldið áfram fram og til baka með A.1 og 1 lykkju í hverja lykkju í kringum ermi – sjá RENDUR ERMI og munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 51-59-67-71-73-77 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi).
Þegar ermin mælist ca 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (á ekki við um stærð S) – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með ca 2 cm millibili alls 0-2-5-5-4-5 sinnum = 51-55-57-61-65-67 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-41-41-39-37-36 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum, heklið 1 umferð með fastalykkjum þar sem fækkað er um 2-3-5-7-8-7 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 49-52-52-54-57-60 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 1-0-0-2-1-0 lykkjum, * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum, heklið næstu 2 fastalykkjur saman (= 1 fastalykkja færri) *, heklið frá *-* umferðina út = 37-39-39-41-43-45 fastalykkjur. Heklið 2 umferðir með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). Saumið tölur niður í 3. lykkju frá kanti.
Fyrsta talan er saumuð í ca 1½-2 cm frá kanti í hálsmáli, síðan 5-5-5-5-6-6 næstu með ca 7½-8-8½-8½-7½-8 cm millibili. Tölum er hneppt í gegnum tvíbrugðnu stuðlana í hægri kanti að framan.

Mynstur

symbols = það á ekki að hekla þessa umferð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð í lykkjurnar
symbols = byrjið á þessari umferð (= 1. umferð í mynsturteikningu)

symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju

diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Maria Alice Cardoso wrote:

Na explicação TODOS OS TAMANHOS, : diz " Continuar A.1 e repetir as carreiras 1 a 4 de A.2 e A.3 de cada lado do fio marcadores" Pergunto: A.2 ficado de um lado do marcador e A.3 do outro lado do marcador?

20.04.2022 - 16:14

DROPS Design answered:

Bom dia, Sim, A.2 fica de um lado e A.3 do outro lado do marcador. Bom Croché!

22.04.2022 - 08:41

country flag Argentina Tomarchio wrote:

Buongiorno non capisco il passaggio da 136 maglie a 280 maglie taglia M. A me viene 328 maglie se faccio 4 volte i diagrammi A2 ed A3. Mi verrebbe corretto ovvero 280 maglie se ripetessi 3 volte i due diagrammi. Non riesco davvero a capire dove sbaglio. Grazie mille!!

24.11.2020 - 08:58

DROPS Design answered:

Buongiorno Argentina, deve contare anche la prima ripetizione dei diagrammi. Buon lavoro!

24.11.2020 - 16:23

country flag Jenny De Jong wrote:

Weer een voorbeeld van magere meisjes in Plus-size kleding. Zo jamme! Waarom gebruikt u geen mollige dames? Zij zijn ook mooi.

02.07.2020 - 14:29

country flag Maartje wrote:

Hallo, ik wil dit patroon meteen enkele draad haken, welk wol kan ik daarvoor gebruiken en hoeveel voor een xl?

25.05.2020 - 00:10

DROPS Design answered:

Dag Maartje,

Hiervoor heb je wol nodig uit garencategorie C. Je kan ook 2 garens uit categorie A samenbreien zoals in het patroon gedaan wordt. Hier vind je een overzicht van de garengroepen. Om de hoeveelheid wol te berekenen is de totale looplengte die gebruikt wordt in dit voor jouw maat een goed uitgangspunt.

01.06.2020 - 10:51

country flag Elisa Bondente wrote:

Dove sono le istruzioni per realizzarlo?

21.02.2020 - 17:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Elisa. A questo link trova le spiegazioni in italiano. Buon lavoro!

24.02.2020 - 14:44

country flag Jane wrote:

I Hækleinformationen står der " afslut rækken med 1 kædemaske i første fastmaske på rækken før det vendes og hækles videre." Jeg forstår ikke hvor den kædemaske skal hækles og hvorfor hvis det er en åben trøje med knapper. Der er også 2 gange hækleinformationer i opskriften.

20.11.2019 - 20:27

DROPS Design answered:

Hei Jane! På rader med fastmasker skal kjedemasken hekles i den siste masken på raden. Husk at alle rader skal hekles frem og tilbake! Denne oppskriften har blitt oppdatert, vi har nå merket HÆKLEINFORMATION med 1 og 2. HEKLEINFORMATION 1 brukes på halskanten, mens HÆKLEINFORMATION 2 brukes på ermene. Lykke til!

21.11.2019 - 10:55

country flag Karin Hauswirth wrote:

Ich habe Konfektionsgrösse 42/44. Welche Grösse muss ich nehmen?

25.10.2019 - 14:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hauswirth, hier lesen Sie wie man die Größe wählt. Viel Spaß beim häkeln!

25.10.2019 - 16:33

country flag Lola Benítez Muñoz wrote:

En el patrón en español no vienen los diagramas ni el dibujo del patrón

21.10.2019 - 11:41

country flag Rosa wrote:

Imposible abrir las instrucciones!!!

26.08.2019 - 11:52

country flag Alice wrote:

No se me abren las instrucciones

09.08.2019 - 11:17