DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 2.00 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12.00€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Rose

Prjónuð peysa úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-30
DROPS Design: Mynstur no-029
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og kaðla/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 2.00 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12.00€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 9,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við mynstuborða meðfram hverri laskalínu, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1B og A.2B (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-124-128-136-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með Nord.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 128-132-136-140-148-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt án útaukningar. Setjið 1 prjónamerki í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá vinstri laskalínu að aftan þegar stykkið er mátað):
Prjónið A.1A (= 20 lykkjur), prjónið 22-24-26-28-32-34 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), prjónið A.2A (= 20 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi), prjónið A.1A (= 20 lykkjur), prjónið 22-24-26-28-32-34 lykkjur sléttprjón (= framstykki), prjónið A.2A (= 20 lykkjur) og endið með 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi). Nú eru 152-156-160-164-172-176 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð eins og útskýrt er í mynsturteikningu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan mynstur eins og útskýrt er að neðan – JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Fyrsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið A.1B (= 26 lykkjur), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-24-26-28-32-34 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-24-26-28-32-34 (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi) og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-24-27-32-33-37 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 5-3-3-2-3-3 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar og í sléttprjóni).
Eftir síðustu útaukningu eru 328-372-400-436-460-496 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan án útaukninga þar til berustykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki í hálsi.
Í næstu umferð er fækkað um 24 lykkjur. Þetta er gert til að fækka lykkjum sem hafa verið bættar við sem viðbót þar sem kaðlarnir draga stykkið saman í laskalínu. Úrtakan skiptist þannig að fækkað er um 6 lykkjur í A.1B og A.2B (best er að fækka lykkjum með því að prjóna lykkjurnar yfir sjálfa kaðlana slétt saman 2 og 2) = 304-348-376-412-436-472 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 8-9-9-8-6-5 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 90-100-108-120-132-144 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 62-74-80-86-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 90-100-108-120-132-144 lykkjur (= framstykki) og setjið 54-65-71-78-80-87 lykkjur sem eftir eru á sama þráð og fyrri hluti á ermi í byrjun á umferð, fyrir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 5-5-6-6-7-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Umferðin byrjar nú hér. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í annarri hliðinni. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 27 cm frá skiptingu. Í næstu umferð er aukið út um 56-60-64-68-76-84 lykkjur jafnt yfir = 276-300-324-352-388-424 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 62-74-80-86-86-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-84-92-98-100-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-1½-2-2½-0-0 cm millibili alls 5-7-6-5-1-1 sinnum = 62-70-80-88-98-106 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1 cm millibili alls 24-23-20-18-16-14 sinnum = 110-116-120-124-130-134 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-12-8-12-10-6 lykkjur jafnt yfir = 104-104-112-112-120-128 lykkjur.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.10.2019
BERUSTYKKI:..prjónið A.2B (= 26 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi) og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu (= 8 lykkjur fleiri í umferð).

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn snúinn prjónaður slétt (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að lykkjan liggi utan um tvær síðustu lykkjurnar sem voru prjónaðar (= 1 lykkja færri)
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag France wrote:

Raglan: une fois le premier tour complété, si les grilles A.B comptent 20 rangs,comment arriver à 328 mailles? Pour les 17 mailles (2 tours= 17 x 20)et 5 mailles(4 tours=5 x 4), j'arrive à 358 mailles. Merci de m'indiquer où est mon erreur.

08.02.2024 - 18:44

DROPS Design answered:

Bonjour France, vous répétez les diagrammes B en hauteur tout du long, et en même temps, augmentez pour le raglan de chaque côté de chacun des A.1B/A.2B (8 augmentations par tour): 17 x 8 m + 5 x 8 m autrement dit, vous aurez 152 mailles (après le 1er tour de A.1A/A.2A) + 17x8 + 5x8 = 328 mailles. Bon tricot!

09.02.2024 - 07:44

country flag Sasha wrote:

Hello! I need help with this. I don't understand this part. 'On next round decrease 24 stitches. This is done to decrease the stitches added as compensation to make the cables contract the work in the raglan lines. Distribute the decrease so that 6 stitches are decreased in A.1B and A.2B (it is best to decrease by knitting the stitches over the cable together 2 by 2)' How do i decrease them? Is it the 8 stitches of the cable part need to be decreased? But how?

25.08.2023 - 20:36

DROPS Design answered:

Dear Sasha, knit together the stitches from the cable 2 by 2. So, work the first 2 stitches in the cable together, the next 2 stitches also together, e.t.c. Happy knitting!

28.08.2023 - 00:17

country flag Judy wrote:

I haven't started yet but would I get myself in trouble if I were to begin mid-back, with 11 of the 22 sts for the small size , instead of with the cable panel ? Thx

24.05.2023 - 00:54

DROPS Design answered:

Dear Judy, I guess you can, but just remember that the explanation of the rounds always start with the raglan stitches, so just remember to adapt on your own work. Happy knitting!

24.05.2023 - 08:28

country flag Marie Louise wrote:

Bonjour j avais mis mon tricot de côté, et maintenant je me remet à la tâche ma question est: est-ce que le diagramme fait partie de la manche qu on met à attente ou bien les diagrammes seulement pour le corsage dos et devant. Merci

19.05.2023 - 17:01

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Louise, les tours commencent par le diagramme A.2B, et, lors de la division, vous allez conserver les 8-9-9-8-6-5 premières mailles du tour (= de A.2B) pour la manche droite et montez les mailles sous la manche, le reste des mailles de A.2B appartient au dos. Bon tricot!

22.05.2023 - 08:12

country flag Marie wrote:

Is there any way I can knit this jumper bottom up plz?

04.02.2023 - 00:19

DROPS Design answered:

Dear Marie, we don't make custom patterns. You can start reading from the end of the body and work increases instead of decreases in the yoke. Also, the sleeves are joined as you start the yoke and both body and sleeves are worked together to finish the yoke. Happy knitting!

06.02.2023 - 00:00

country flag Emanuela Pierantognetti wrote:

Buongiorno per favore dove si inserisce la correzione dello sprone? Grazie

11.01.2023 - 12:22

DROPS Design answered:

Buonasera Emanuela, le spiegazioni sono già corrette. Buon lavoro!

12.01.2023 - 21:17

country flag Marie Louise wrote:

Si j ai bien compris l info, se sont les 9 premières mailles après le premier diagramme de A.1b que je dois placer en attente, est-ce exact? Merci infiniment de votre aide

10.11.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Louise, ce sont les 9 premières mailles du tour, donc ce sont les 9 premières mailles de A.1B au début du tour que vous allez mettre en attente (pas les 9 mailles après le 1er A.1B). Bon tricot!

10.11.2022 - 17:04

country flag Marie Louise wrote:

Tout défait pour mieux recommencer, je ne comprends pas trop de passer les 9 premières mailles sur aiguille aux pour la manche à partir du marqeur dos Merci pour l entraide

09.11.2022 - 17:06

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Louise, vous en êtes à la division, correct? les 9 premières mailles du début du tour appartiennent à la manche, mettez les en attente sur un fil et montez 12 mailles, tricotez les 108 mailles suivantes pour le dos, glissez les 80 m suivantes en attente pour la 2ème manche, montez 12 mailles, tricotez les 108 mailles du devant, il reste 71 mailles, glissez ces 71 mailles sur le même fil que les 9 premières m du tour = vous avez ainsi bien 80 mailles pour chaque manche. Bon tricot!

10.11.2022 - 10:50

country flag Marie Louise wrote:

Merci tellement pour votre aide,c est très apprécié. 👍😀

28.09.2022 - 02:10

country flag Marie Louise wrote:

Bonjour Je fais la taille L ,empiètement,27x et 3x ts les 4 tous je ne comprends pas pouvez vous expliquer. Merci

26.09.2022 - 10:48

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Louise, augmentez ainsi: (1 tour avec augmentations, 1 tour sans augmentations), tricotez ces 2 tours 26 fois au total, puis tricotez 1 tour avec augmentations (= vous avez augmenté 27 fois), puis tricotez ainsi (3 tours sans augmenter, 1 tour avec augmentations), tricotez 3 fois ces 4 tours = vous avez augmenté 3 fois supplémentaires. Bon tricot!

26.09.2022 - 11:50