DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Story of Snow Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S -XXXL.

DROPS 207-23
DROPS Design: Mynstur z-866
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-125-150-175-175 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 242 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 24,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 24. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 23. og 24. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónameri, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar í sléttprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7-7-8-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist síðan fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 87-94-101-108-115-122 lykkjur á hringprjón 5,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar með 7 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 252-274-296-318-340-362 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT er fækkað um 10-4-2-0-6-4 lykkjur jafnt yfir = 242-270-294-318-334-358 lykkjur – SJÁ ÚRTAKA. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 35-39-42-46-50-54 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 46-52-58-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-78-84-92-100-108 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 46-52-58-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 35-39-42-46-50-54 lykkjur brugðið og endið með 5 lykkjum slétt (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-178-190-206-226-242 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur garðaprjón. Í síðustu umferð í A.2 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 161-171-191-201-231-241 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón eins og áður, A.3A (= 3 lykkjur), prjónið A.3B yfir næstu 140-150-170-180-210-220 lykkjur (= 14-15-17-18-21-22 mynstureiningar), A.3C (= 8 lykkjur), endið með 5 lykkjum garðaprjón eins og áður. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað frá réttu – þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.4 yfir allar lykkjur, 5 lykkjur garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 43-45-50-53-60-63 lykkjur inn frá hvorri hlið, bakstykki = 75-81-91-95-111-115 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – SJÁ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 181-191-211-221-251-261 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 39-41-43-40-42-44 cm. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 46-52-58-62-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjurnar. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og umferðin byrjar við prjónamerki. Prjónið A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm, byrjar úrtaka mitt undir ermi – SJÁ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 44-50-56-60-62-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferðir slétt, 1 umferð brugðið og 2 umferðir slétt. Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur. Haldið áfram með A.2 þar til ermin mælist 37-38-38-34-34-35 cm frá skiptingu (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 2 umferðir garðaprjón, síðan er fellt af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.03.2021
Mynsturteikning A.4 hefur verið uppfærð (bætt hefur verið við 1 uppslætti í umferð 4)

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið (sjá mynstur), það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið (sjá mynstur), það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eig slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Catherine Debons wrote:

Bonjour, Je réalise le modèle 207-23 et c'est la 1ere fois que je tricote en aller et retour avec aiguille circulaire. Je suis à cet endroit : 5m.endroit, 35m.envers, glisser 46m.sur un arrêt: mes questions : les 6m. à monter se font après les 46m.sur arrêt ? Est-ce que pour tricoter les 70m. suivantes, je garde le même fil ou je dois prendre une nouvelle pelote? Merci pour votre réponse Belle soirée Catherine

04.03.2024 - 20:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Debons, ce rang va effectivement se tricoter sans couper le fil, les mailles montées sous la manche vont la remplacer. Dans cette leçon, nous montrons, à partir de la photo 9 comment on va diviser les mailles à la fin de l'empiècement en mettant les mailles des manches en attente, et en montant les mailles sous la manche. Pour une veste, la technique est la même, à la fin de ce rang, vous tricotez simplement sur l'envers au lieu de continuer en rond comme pour le pull dans la leçon. Bon tricot!

05.03.2024 - 09:08

country flag Trine wrote:

Hei! A2 omgang 8: blir det to vrange sammen?

10.08.2023 - 09:24

DROPS Design answered:

Hei Trine, Nei, Skråstrek opp til høyre er 2 rett sammen, med en 1 kast i mellom hver gang du strikke 2 rett sammen. God fornøyelse!

11.08.2023 - 06:51

country flag Céline wrote:

Bonjour, J'ai tricoté ce beau gilet. Mais je trouve que l'encolure est trop large et j'aimerais remonter le col pour le rendre plus étroit. Je peux relever les mailles du col mais avez vous un modèle de point pour le rapetisser et que ce soit joli ? Merci.

26.09.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Bonjour Céline, vous pouvez tricoter au point mousse et diminuer le nombre de mailles nécessaire pour avoir la longueur souhaitée, ou bien tricoter en côtes en terminant par un bord picot (ex 1 ou bien ex. 2 ou bien autre chose en fonction de ce que vous souhaitez. Bon tricot!

26.09.2022 - 17:14

country flag Céline Rousseau wrote:

Bonjour, Est-ce normal que le 4e rang de la grille A.4 (avec jetés et 2 mailles ensemble) se tricote sur le rang de retour à l'envers ? Si oui, est-ce que je le tricote à l'endroit quand même ? Merci pour toutes vos réponses précédentes

16.02.2022 - 00:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousseau, on doit tricoter 2 mailles ensemble à l'endroit sur l'envers mais vous pouvez tricoter 2 mailles ensemble à l'envers si vous le préférez. Bonne continuation!

14.03.2022 - 14:10

country flag Céline Rousseau wrote:

Comment répartir les diminutions équilibrées après le A.1 de l'empiecement ? Pour une taille M? Merci.

04.02.2022 - 05:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousseau, consultez cette cette leçon, elle explique comment calculer où diminuer/augmenter à intervalles réguliers. Bon tricot!

04.02.2022 - 09:18

country flag Céline Rousseau wrote:

Pour le modèle gilet femme 207-23: 1)Je ne comprends pas le texte comment procéder à la partie Dos & devants avec le diagramme A.3 et pourquoi les subdivision A, B, C.? Pouvez-vous me donner les explications détaillées, maille par maille ? À l'aide svp. Pour la taille M. 2) Si je prend des aiguilles 1 point plus grosse, no 6,5 en suivant le patron taille S, est-ce que cela me donneras une taille M? Merci. Céline

30.01.2022 - 06:23

DROPS Design answered:

Bonjour Céline, le diagramme A.3 se décompose en 3 parties: A.3A sur les 3 mailles après la bordure devant, on va ensuite répéter A.3B et terminer par A.3C avant la bordure du devant. Pour mieux vous repérer, n'hésitez pas à ajouter un marqueur entre chaque diagramme pour mieux vérifier que vous avez toujours le bon nombre de mailles à chaque fois. Pour avoir les mesures du schéma, il vous faut avoir l'échantillon indiqué, soit 16 m x 20 rangs = 10 x 10 cm avec 2 fils tricotés en même temps - voir aussi ici. Bon tricot!

31.01.2022 - 09:36

country flag Kay Win wrote:

Is the jacket knitted with one strand each of alpaca and kid silk together?

28.01.2021 - 00:21

DROPS Design answered:

Hi Kay, Yes the whole garment is worked with 2 strands. Happy knitting!

28.01.2021 - 07:33

country flag Henriette wrote:

Hoeveel toeren zitten er tussen 2 overhalingen in de bovenpas?

30.12.2020 - 14:38

DROPS Design answered:

Dag Henriette,

Wat je met overhalingen bedoelt, begrijp ik niet helemaal, maar op de pas brei je telpatroon A.1 en in de telpatroon zijn alle naalden aangegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naald staat erin getekend.

02.01.2021 - 14:20

country flag Judith wrote:

Warum findet sich in der gedruckten Anleitung kein Diagramm?

03.11.2020 - 21:42

DROPS Design answered:

Liebe Judith, schauen Sie mal die Einstellungen von dem Drucker damit alle Seiten (und nicht nur die ersten) gedruckt werden. Viel Spaß beim stricken!

04.11.2020 - 09:29

country flag Lucia wrote:

Buongiorno, nella legenda del diagramma compaiono due simboli diversi con la stessa descrizione [()]= 1 gettato tra 2 maglie, sul ferro successivo lavorarlo a diritto o rovescio (vedere il motivo) per creare un buco [()]= 1 gettato tra 2 maglie, sul ferro successivo lavorarlo a diritto o rovescio ritorto (vedere il motivo) per creare un buco. Nel secondo dovrebbe esserci scritto per evitare che si formi un buco, giusto? Grazie.

26.05.2020 - 14:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

26.05.2020 - 16:01