Alison wrote:
I’m up to 158 stitches (increased once so far) and knitting the A3A section, onto the second row of holes in the pattern. Since I have 158 stitches, the repetition of 8 (excluding band) leaves me with 4 stitches unaccounted for. What do I do with those 4 stitches?
08.12.2021 - 17:57DROPS Design answered:
Dear Alison, when increasing on the sides of the jacket, work the new sts in stocking stitch and continue working the lace pattern as before (as these sts were not there) so that lace pattern is lined up as before. Happy knitting!
09.12.2021 - 07:16Alison wrote:
Hi I’m about the finish the yoke for 12/18 size I’m finishing off on 203 stitches. It says to adjust to 202 stitches so I just decrease one somewhere along the row, is that right?
25.11.2021 - 17:35DROPS Design answered:
Hi Alison, Yes, that is right. Happy knitting!
26.11.2021 - 07:01Winnie wrote:
Kan jeg få opskrift på dansk
25.08.2021 - 15:44Ché wrote:
Hallo, telpatroon A2 6/9 , omslag breien tusen 2 steken. dit 2x. wanneer ik terugbrei averechts dus. wat doe ik met de omslag. begrijp t niet. want dan heb ik 2 steken extra . rij 5 en 6. ché
22.07.2021 - 21:45DROPS Design answered:
Dag Ché,
In rij 5 van A.2 maak je niet alleen 2 omslagen waardoor er 2 steken bij komen, maar je mindert ook twee steken op die rij (schuine streepjes over 2 steken), waardoor het totaal aantal steken op de volgende rij nog hetzelfde is. De omslagen brei je op de volgende naald averecht zodat er gaatjes ontstaan.
20.08.2021 - 11:34Kamuttawan Schlomann wrote:
Hi! I’m a confuse with the buttons holes. The pattern says I should work from the right side and the hole should be on the right band. But if I work per the instruction, wouldn’t I end up with the hole on the left band? When we work from the right side...we start on the right side of the piece (when worn), right? So...to have a hole on the right side I need to knit 1, knit 2 together, yarn over then knit 2. Please help. Thank you!
11.07.2021 - 14:05DROPS Design answered:
Dear Mrs Schlomann, the jacket is worked top down, ie the left front piece is at the beg of the row from right side and the right rows will end with the right front front piece, so that the buttonholes will be worked at the end of row from right side = on the right front piece. Happy knitting!
12.07.2021 - 08:35Graziella wrote:
Buonasera, una domanda per cortesia: perché non c’è la taglia 3/6 mesi? Grazie
30.03.2021 - 22:43DROPS Design answered:
Buonasera Graziella, per trovare la taglia che le serve può utilizzare lo schema delle misure in fondo alla pagina. In caso le servano delle misure diverse può provare a riprogettare il lavoro, magari chiedendo assistenza al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
30.03.2021 - 23:51Moser Corinne wrote:
Bonsoir, comment fait-on pour trouver les corrections, Svp ? Merci
04.02.2021 - 23:29DROPS Design answered:
Bonjour Mme Moser, si vous avez imprimé les explications avant la date des corrections, il peut être sage de les imprimer à nouveau, autrement, le modèle en ligne est juste ainsi et déjà corrigé. Bon tricot!
05.02.2021 - 08:40Jeannette wrote:
Hvorfor får jeg ikke mønstret til at passe med billedet der står ikke noget I opskriften om hvor masker der er i mellem hver mønster
25.01.2021 - 11:27DROPS Design answered:
Hei Jeannette. Hva strikker du, jakke eller bukse og hvilken str.? Vanligvis vil det stå hvor mange rapporter du skal strikke av et mønster og da vises det i diagrammet hvor mange f.eks vrangmasker det er mellom f.eks et hullmønster. mvh DROPS design
27.01.2021 - 16:29Cindy wrote:
Hello Drops Team. I’m looking for an answer to my question about elastic length. Could you answer please? Many thanks.
10.12.2020 - 13:40DROPS Design answered:
Dear Cindy, you should probably wait and adjust the elastic length to the baby since it's very individual. Happy knitting!
10.12.2020 - 14:08
Pink Petals |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn og sokkabuxur úr DROPS BabyMerino. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með blaðamynstri, hringlaga berustykki og A- formi. Sokkabuxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 33-13 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 13) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð). Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki á peysu): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð. 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir A.1. Fellið síðan af fyrir (4) 4-5-5-6 (6) næstu hnappagötum með ca 5 cm millibili. ÚTAUKNING (á við um op mitt að framan og mitt að aftan á sokkabuxum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga að lokum upp aftur í mynstri. ÚRTAKA (á við um innan á skálm á sokkabuxum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HÆLÚRTAKA: Prjónið fram og til baka í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttra lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Takið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Takið fyrstu lykkjuna af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins þar til eftir eru (6) 7-8-8-7 (8) lykkjur mitt í umferð. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna. Haldið áfram með sléttprjón fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hvert skipti sem snúið er við. ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í snúningunum, lyftið þræðinum á undan lykkjunni sem prjónað er með og setjið snúinn á vinstri prjón. Prjónið snúnu lykkjuna saman við lykkjuna áður en stykkinu er snúið við. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á PEYSU HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp (68) 72-78-82-84 (86) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (15) 13-17-19-21 (21) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = (83) 83-95-101-107 (113) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= (12) 12-14-15-16 (17) mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með 1 lykkju garðaprjóni (til að mynstrið byrji og endi alveg eins við kanta að framan) og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör í A.2, jafnið lykkjufjöldann út til (150) 174-182-194-202 (214) lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett eftir fyrstu (26) 29-30-32-33 (35) lykkjur (= framstykki), 2. prjónamerki er sett eftir næstu (28) 34-36-38-40 (42) lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett eftir næstu (42) 48-50-54-56 (60) lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett eftir næstu (28) 34-36-38-40 (42) lykkjur (= ermi). Nú eru (26) 29-30-32-33 (35) lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð (rétta) er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (3) 3-3-4-4 (4) sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru (174) 198-206-226-234 (246) lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (10) 12-13-14-15 (16) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið (29) 32-33-36-37 (39) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (48) 54-56-62-64 (68) lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu (29) 32-33-36-37 (39) lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (114) 126-134-146-154 (162) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki (31) 34-36-39-41 (43) lykkjur inn frá hvorri hlið (= (52) 58-62-68-72 (76) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A þar til eftir eru (5) 9-9-5-5 (5) lykkjur í umferð (= (13) 14-15-17-18 (19) mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.3B yfir næstu (0) 4-4-0-0 (0) lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með (2) 2½-3-3½-4 (4½) cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = (134) 146-154-166-174 (182) lykkjur – ATH. Útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni þannig að það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni á milli gata í hvorri hlið á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (10) 11-13-15-17 (19) cm prjónið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (12) 13-15-17-19 (21) cm frá skiptingu. Prjónið 8 umferð garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með picot eins og útskýrt er að neðan. AFFELLING MEÐ PICOT: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og fellið af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, (* stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjóni, þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, þannig að það verða 3 nýjar lykkjur á vinstri prjóni. (** Prjónið fyrstu lykkjuna á vinstri prjóni slétt, lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð **), prjónið frá **-** alls 5 sinnum og endurtakið frá (-) meðfram öllum kantinum þar til 1 lykkja er eftir á vinstra prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (2) 2-1½-1½- 1½ (1½) cm millibili alls (2) 4-6-7-9 (9) sinnum = (34) 36-36-38-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist (5) 8-11-13-15 (18) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist (8) 11-14-16-18 (21) cm, fellið af með picot alveg eins og á fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kanti að framan. ------------------------------------------------------- SOKKABUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður þar til stykkið skiptist fyrir skálmar. Síðan er hvor skálm prjónuð í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. FALDUR Á BUXUM. Fitjið upp (88) 96-104-120-128 (136) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 2 cm sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT FRÁ UPPÁBROTI! Prjónið 2 cm sléttprjón. Til að flíkin passi betur er núna prjónuð upphækkun aftan á buxum eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN – ALLAR STÆRÐIR: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið 8 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. BUXUR: Prjónið A.4 hringinn yfir allar lykkjur (= (11) 12-13-15-16 (17) mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Í hverri umferð merktri með stjörnu í A.4 færist byrjunin á umferð um 1 lykkju til vinstri, þ.e.a.s. lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjón yfir prjóninn án þess að prjóna lykkjuna, prjónið A.4 hringinn. Lykkjan sem var lyft yfir á hægri prjón kemur nú til með að prjónast í síðustu endurtekningu með A.4. Næsta umferð byrjar eins og áður. Þegar stykkið mælist (9) 11-12-15-16 (17) cm frá uppábroti mitt að framan, setjið 1 prjónamerki mitt að framan þannig að það sitji 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan (= (44) 48-52-60-64 (68) lykkjur í hvorri hlið á milli prjónamerkja). Haldið áfram með A.4 hringinn. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = (120) 128-136-152-160 (168) lykkjur. Haldið áfram með A.4 hringinn þar til stykkið mælist (15) 18-18-21-22 (23) cm frá uppábroti mitt að framan. Fellið nú af 4 lykkjur mitt að framan og mitt að aftan. Hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið hægri skálm eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI SKÁLM: = (56) 60-64-72-76 (80) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki í innanverða skálm og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.4 hringinn – þar sem mynstureiningin gengur ekki jafnt upp, prjónið sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir hringinn, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki innan á skálm – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og að lokum í (5.) 9.-6.-6.-7. (7.) hverri umferð alls (4) 5-6-8-9 (10) sinnum = (28) 30-32-36-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (13) 17-20-23-26 (31) cm frá skiptingu. Prjónið nú fót eins og útskýrt er að neðan. FÓTUR: = (28) 30-32-36-38 (40) lykkjur. Haldið eftir fyrstu (14) 15-16-18-19 (20) lykkjum á prjóni fyrir hæl (það er mikilvægt að skoða flíkina vel svo að hællinn lendi ekki mitt á fæti), setjið (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur sem eftir eru á þráð (= mitt á fæti). Prjónið HÆLÚRTAKA í sléttprjóni – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur settar af þræði mitt á fæti til baka á prjóninn = (28) 30-32-36-38 (40) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn aftur yfir allar lykkjurnar. Þegar fóturinn mælist (7) 9-10-10-11 (12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2,5 til 3 cm til loka), skiptið lykkjunum þannig að það verða (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (4) 4-4-5-5 (5) sinnum = (12) 14-16-16-18 (20) lykkjur eftir í umferð. Klippið þráðinn frá þannig að það verði nægilega langur þráður til að sauma með. Leggið stykkið flatt og saumið (6) 7-8-8-9 (10) lykkjur á fæti við (6) 7-8-8-9 (10) lykkjum undir fæti með lykkjuspori. Fóturinn mælist ca (10) 11-12-13-14 (15) cm frá prjónamerki á hæl. Setjið til baka (56) 60-64-72-76 (80) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið skálm og fót alveg eins, en passið uppá að fóturinn snúi í rétta átt, svo að hællinn komi ekki mitt ofan á fæti (setjið fyrstu (14) 15-16-18-19 (20) lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu (14) 15-16-18-19 (20) lykkjum á prjóni fyrir hæl). FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant fyrir saum yfir að röngu og saumið fallega niður, en skiljið eftir smá op til að þræða teygjuna í gegn. Þræðið teygjuna í gegn og saumið opið saman. Saumið saman 4 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Marie Sirlin wrote:
Depuis quelques jours j'éprouve des difficultés à accéder au contenu de votre site : certaines pages ne présentent aucune image, les diagrammes n'apparaissent plus, voir certains modèles sont inaccessibles (les lavettes en fil safran). J'ai enlevé le bloqueur de publicité ABP de mon ordinateur, j'ai consulté le site depuis mon téléphone ... Rien à faire. Que dois-je effectuer pour avoir à nouveau accès à l'intégralité du site ? Cordialement, Marie
05.10.2021 - 15:12