DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Mermaid Wrap

Prjónað sjal í garðaprjóni með stuttum umferðum úr 1 þræði DROPS Delight og 1 þræði DROPS Kid-Silk.

DROPS 203-15
DROPS Design: Mynstur de-201
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju á langhlið og niður að horni = ca 84 cm.
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 170 cm.

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300 g litur 09, turkos/fjólublár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125 g litur 27, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með garðaprjóni og 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu og sýnir hvernig fækka á lykkjum í mismunandi mynstureiningum.

ÚRTAKA-1:
Prjónið mynsturteikningu A.1 yfir fyrstu lykkjurnar í umferð (séð frá réttu).
Endurtakið A.1 á hæðina alls 8 sinnum (= 24 lykkjur færri í mynstureiningu). Nú eru prjónaðar stuttar umferðir og garðaprjón þar til öll mynsturteikingin hefur verið prjónuð til loka.
Í hvert skipti sem byrjað er á nýrri mynstureiningu með stuttum umferðum byrjar úrtaka á ný. Þ.e.a.s. fækkað er um 24 lykkjur í hverri og einni af fyrstu 3 mynstureiningum.

ÚRTAKA-2:
Prjónið mynsturteikingu A.2 yfir fyrstu lykkjurnar í umferð (séð frá réttu). Endurtakið A.2 á hæðina alls 4 sinnum, síðan eru fyrstu 6 umferðirnar í mynsturteikningu prjónaðar (= 13 lykkjur færri í mynstureiningu). Prjónið nú stuttar umferðir og garðaprjón þar til öll mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka.
Í hvert skipti sem byrjað er á nýrri einingu með stuttum umferðum byrjar úrtaka á ný. Þ.e.a.s. fækkað er um 13 lykkjur í hverri og einni af síðustu 2 mynstureiningum á sjalinu.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að það myndist stórt gat þegar stykkinu er snúið við í stuttu umferðunum verður að herða á þræðinum áður en prjónað er áfram.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 5 mynstureiningum með stuttum umferðum. Prjónað er frá efst á sjali og niður að neðri kanti á sjali.

SJAL:
Fitjið upp 272 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

EINING 1:
Prjónið stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkið jafnframt lykkjum innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-1 og sjá mynsturteikningu A.1! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum), síðan er prjónað áfram þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu alls 25 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 64 umferðir garðaprjón og það hefur verið fækkað um 24 lykkjur í þessari einingu = 248 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Eining 1 er nú lokið og prjónaðar hafa verið 66 umferðir garðaprjón.

EINING 2:
Prjónið stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkið jafnframt lykkjum innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-1 og sjá mynsturteikningu A.1! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 28 sinnum til viðbótar (= alls 29 sinnum), síðan er prjónað áfram þar til eftir eru 8 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu alls 1 sinni. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 64 umferðir garðaprjón og það hefur verið fækkað um 24 lykkjur í þessari einingu = 224 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Eining 2 er nú lokið og prjónaðar hafa verið 66 umferðir garðaprjón.

EINING 3:
Prjónið stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkið jafnframt lykkjum innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-1 og sjá mynsturteikningu A.1! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 21 sinni til viðbótar (= alls 22 sinnum), síðan er prjónað áfram þar til eftir eru 7 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu alls 8 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 64 umferðir garðaprjón og það hefur verið fækkað um 24 lykkjur í þessari einingu = 200 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Eining 3 er nú lokið og prjónaðar hafa verið 66 umferðir garðaprjón.

EINING 4:
Prjónið stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkið jafnframt lykkjum innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-2 og sjá mynsturteikningu A.2! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum), síðan er prjónað áfram þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu alls 26 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 64 umferðir garðaprjón og það hefur verið fækkað um 13 lykkjur í þessari einingu = 187 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Eining 4 er nú lokið og prjónaðar hafa verið 66 umferðir garðaprjón.

EINING 6:
Prjónið stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkið jafnframt lykkjum innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA-1 og sjá mynsturteikningu A.2! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til eftir eru 5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 16 sinnum til viðbótar (= alls 17 sinnum), síðan er prjónað áfram þar til eftir eru 6 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð frá réttu alls 13 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka hafa verið prjónaðar 64 umferðir garðaprjón og það hefur verið fækkað um 13 lykkjur í þessari einingu = 174 lykkjur í umferð. Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka. Eining 5 er nú lokið og prjónaðar hafa verið 66 umferðir garðaprjón.

Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, fellið af með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Luise Rosa wrote:

Dank für Ihre Antwort-ich gebe nicht auf! nochmals: A1 hat 8Reihen - 1.Rap A1 beginnt mit: über alle Ma stricken, 3.R 1Ma abnehmen-am Ende 4 Ma übrig, 5.R stricken bis 7 Ma übrig, 7.R 2Ma abnehmen, stricken bis 7Ma übrig. OK! Nach der 8.R müsste ich wieder mit A1 beginnen: hin und rück über alle Ma stricken, 11.R 1Ma abnehmen, bis 4 Ma stricken, wenden - 13.R bis 7 Ma stricken usw. ODER - 9.R bis 7 Ma übrig, 11.R bis 7Ma übrig, 13. R??? 15R? in welchen Reihen muss ich dann abnehmen?

17.08.2020 - 09:49

DROPS Design answered:

Liebe Luise Rosa, nach der 8. Reihe stricken Sie die verkürzten Reihen weiter wie zuvor, dh immer noch bis 7 M übrig sind (insgesamt 5 Mal bis 7 M übrig sind), dann stricken bis 8 M übrig sind, insgesamt 25 Mal. So stricken Sie 3 Krausrippen (= die 6 ersten Reihen) + 4 Krausrippe (bis 7 mehr M bleiben) + 25 Krausrippen (bis 8 M mehr bleiben) = 32 Krausrippen = 64 Reihen (= 8 Mal die 8 Reihen in A.1 = A.1 wird insegesamt 8 Mal in der Höhe wiederholt) = 8 Mal 3 M abegnommen = 24 M abgenommen. Viel Spaß beim stricken!

17.08.2020 - 11:13

country flag Luise Rosa wrote:

Hallo Drops-Team, trotz Fragen bei Strickexpertinnen verstehe ich/wir die Anleitung (Rapport-Beschreibung) nicht - Rapport 1 besteht aus 8 Reihen, in der 3. und 7. Reihe wird jeweils abgenommen - richtig? Werden verkürzte Reihen in jeder Hinreihe gestrickt? 2) wie wird die 7. Reihe, die 9. Reihe, usw. gestrickt? Verkürzt? Bei wie vielen Maschen muss ich wenden? 3) Wie oft muss ich Rapport 1 stricken? Vielen Dank für die Hilfe Luise

03.08.2020 - 12:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rosa, in jedem Rapport stricken Sie verkürzten Reihen, dh bei dem 3. Reihe (=Hinreihe) stricken Sie bis 4 Maschen übrig sind - dann in jeder 2. Reihe stricken Sie bis 7 M mehr als in der vorherigen Hinriehe übrig war (insgesamt 5 x), dann stricken Sie die verkürzten Reihen bis 8 M mehr als zuvor übrig sind - es wurden 32 Krausrippen gestrickt wenn das 1. Rapport fertig ist. z.B. bei 7. Reihe stricken Sie bis 4 (3. Reihe) + 7 (5.Reihe) + 7 (7. Reihe) = 21 M übrig sind, bei 9. Reihe bis 21+7= 28 M übrig sind, usw. Viel Spaß beim stricken!

03.08.2020 - 13:29

country flag Marianne wrote:

Er det rigtigt, at det ene øverste hjørne bliver meget mindre spidst end det andet, fordi man strikker over alle masker flere gange?

15.05.2020 - 20:04

DROPS Design answered:

Hej Marianne, ja det stemmer, det bliver som det du kan se på billedet. God fornøjelse!

22.05.2020 - 12:21

country flag Mijke Stoetzer wrote:

Beste heer/mevrouw, ik heb een vraag over het patroon 203-15. Wat moet ik na naald 6 doen? in de eerste herhaling? Moet ik naald 1 t/m 6 blijven herhalen, tot er 33 ribbels zijn gebreid? Of wordt er iets anders bedoeld? Groetjes Mijke Stoetzer

03.04.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

Dag Mijke,

Je gaat op dezelfde manier verder, maar je zorgt ervoor dat er steeds 7 steken méér over zijn dan de vorige keer. Dus naald 5 en 6 herhaal je nog 5 keer (in totaal 5 keer). Daarna doe je hetzelfde maar zorg je ervoor dat je 8 steken (in plaats van 7 steken) méér over hebt en dit doe je 25 keer in totaal.

04.04.2020 - 18:47

country flag Myriam wrote:

Merci beaucoup de vos explications, bonne journée.

10.03.2020 - 13:08

country flag Myriam wrote:

Bonjour, je n'arrive pas à comprendre, au rang 5 pour le rang raccourci, on diminue de 7 mailles ou de 7+ 4 mailles de plus? et quand "Continuer ainsi et tricoter encore 4 fois jusqu'à ce qu'il reste 7 mailles de plus", cela veut dire que l'on tricote encore 4 fois la série de 6 rang?svp et pour les 25 fois , c'est quels rangs qu'il faut répéter? merci de votre réponse cela fait 3 jours que je fais et défait

09.03.2020 - 16:44

DROPS Design answered:

Bonjour Myriam, effectivement, au rang 5 on tricote jusqu'à ce qu'il reste 4 m + 7 m soit 11 m, puis on va tourner quand il reste 11 + 7 m et ainsi de suite jusqu'à ce qu'on ait tourné 5 fois au total en laissant 7 m de plus (en arrêtant de tricoter quand il reste 7 m de plus que la fois précédente). Ensuite, on continue de la même façon mais en laissant 8 mailles de plus et ce 25 fois au total, et ainsi de suite. en même temps, tricotez A.1 comme avant - cf DIMINUTIONS-1. Bon tricot!

10.03.2020 - 10:12

country flag Jani Zeidler wrote:

Ich arbeite am Mermaid Wrap Bin beim ersten Rapport. In der Anleitung wird Diagramm A1 angegeben aber nur über 6 Rd. gestrickt. Das Diagramm A1 hat aber 8 Rd angegeben... Bin da grade etwas verwirrt. Danke für eure Hilfe

16.01.2020 - 20:46

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zeidler, A.1 wird über 8 Reihen gestrickt und so weiterwiederholt, wir beschrieben die 6 ersten Reihen, aber dann stricken Sie weiter wie zuvor ber bis mehr Maschen bleiben (= zuerst 7 Maschen mehr, dann 8 Maschen, usw). Viel Spaß beim stricken!

17.01.2020 - 08:57

country flag Margrit Meyer wrote:

Ich möchte Drops Delight für einen Schal aus der Fernsehsendung Kaffee oder Tee verstricken. Ich bin äußerst empfindlich gegen Kratzwolle. Ich verhält sich da die Delight?

23.11.2019 - 14:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Meyer, nehmen Sie bitte Kontakt mit Ihrem DROPS Laden auf (auch telefonisch oder per Mail), so kann man Ihnen am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

25.11.2019 - 08:17

country flag Ljerka wrote:

Where the heart is located, I can't find it? Thank you! Kind regards Ljerka

13.09.2019 - 01:44

DROPS Design answered:

Dear Ljerka, you will find the heart after the icon for Comments / FAQ / icon Print. Happy knitting!

13.09.2019 - 08:02

country flag Ljerka wrote:

How do I add patter to my favourites?

12.09.2019 - 07:57

DROPS Design answered:

Hi Ljerka, on the site with the pattern, look for a heart and click on it. Then, you will be asked to enter your email in order to save all your favourite patterns in one place. Kind regards from DROPS Design

12.09.2019 - 08:36