DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Day to Date

Hekluð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað ofan frá og niður í vinkil, A-formi og köðlum með stuðlakrókum. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-11
DROPS Design: Mynstur me-182
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-750-800-900-1000-1100 g litur 37, skýjaskógur

HEKLFESTA:
16 tvíbrugðnir stuðlar á breidd og 5,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju i 4. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, er fyrstu fastalykkju skipt út með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar):
Einungis er fækkað bara í umferð með tvíbrugðnum stuðlum!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið þannig: Heklið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.13 (= 3 lykkjur), prjónamerki situr hér, heklið A.12 (= 3 lykkjur).

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Einungis er bara fækkað í umferð með tvíbrugðnum stuðlum!
Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, heklið í næstu 2 tvíbrugðna stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 næstu tvíbrugðna stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af síðustu 2 fastalykkjum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið heklað. Síðan skiptis stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar sem heklað er áfram í hring hvort fyrir sig.

BERUSTYKKI:
Heklið 88-88-96-100-100-108 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með Merino Extra Fine og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 88-88-96-100-100-108 fastalykkjur.

HEKLIÐ MYNSTUR A.1-A.9 þannig:
Setjið 4 prjónamerki (látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu) jafnframt er heklað í hring þannig:
* Setjið prjónamerki, heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir 1 lykkju og A.3 yfir 1 lykkju (= ermi), setjið prjónamerki, heklið A.4 yfir 2-2-4-2-2-4 lykkjur, A.5a yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur, A.6 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.7 yfir 1 lykkju (= miðju lykkja), A.8 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.9a yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur og A.4 yfir 2-2-4-2-2-4 lykkjur (= framstykki/bakstykki) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur, en heklið A.2 einungis að ör sem er sýnd í þinni stærð, heklið síðan A.4 yfir þessar lykkjur. Þegar A.5a og A.9a hefur verið heklað til loka, heklið A.5b og A.9b, endurtakið síðan A.5b og A.9b á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram þar til A.1, A.3, A.6, A.7 og A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina.
Nú eru 29-31-39-37-33-31 lykkjur í hvorri ermi og 75-75-79-81-81-85 lykkjur bæði á framstykki og bakstykki.
Stykkið mælist ca 14 cm, mælt meðfram öxl.

ENDURTAKIÐ MYNSTUR A.1-A.9 ÞANNIG:
Fyrsta umferð er hekluð þannig: * Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.4 yfir 27-29-37-35-31-29 lykkjur og A.3 yfir 1 lykkju (= ermi), heklið A.4 yfir 2-2-4-2-2-4 lykkjur, A.5b yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur eins og áður, A.4 yfir 17 lykkjur, A.6 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur,
A.7 yfir 1 lykkju (= miðju lykkja), A.8 yfir 1-1-1-3-3-3 lykkjur, A.4 yfir 17 lykkjur, A.9 yfir 17-17-17-18-18-18 lykkjur eins og áður og A.4 yfir 2-2-4-2-2-4 lykkjur (= framstykki/bakstykki) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, mælt meðfram öxl (þ.e.a.s. ca 7-9-10-12-14-15 umferðir á eftir fyrstu endurtekningu af mynstri A.1 – A.9). ATH: Í hvert skipti sem A.6/A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið A.6/A.8 á hæðina hvoru megin við A.7, þær lykkjur sem eftir eru yfir A.6/A.8 eru heklaðar í A.4.
Nú eru ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur í hvorri ermi og ca 95-101-107-115-119-127 lykkjur bæði á framstykki og bakstykki = alls ca 280-304-332-352-360-380 lykkjur.
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig:
Heklið 6-6-6-8-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir ermalykkjur (= ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur), heklið yfir lykkjur á framstykki eins og áður (= ca 95-101-107-115-119-127 lykkjur), heklið 6-6-6-8-10-12 loftlykkjur, hoppið yfir ermalykkjurnar (= ca 45-51-59-61-61-63 lykkjur) og heklið yfir lykkjur á bakstykki eins og áður (= ca 95-101-107-115-119-127 lykkjur).
Nú eru ca 202-214-226-246-258-278 lykkjur í umferð (= ca 101-107-113-123-129-139 lykkjur bæði á framstykki og bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 1 umferð með mynstri eins og áður og 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul (þannig að það passið við mynstrið) í hverja loftlykkju undir ermi. Klippið þráðinn frá og færið umferðina til þannig að byrjað er undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt undir báðar ermar.
Heklið síðan mynstur eins og áður, en lykkjum er fækkað í hvorri hlið þannig:
* Heklið A.4 yfir 2-2-4-4-5-8 lykkjur, A.10a eða A.10b (veldu umferð í mynsturteikningu þannig að hún passi við þar sem stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki í þinni stærð, þannig að mynstrið haldi áfram) yfir 11 lykkjur, heklið mynstur eins og áður, þ.e.a.s. haldið áfram að auka út hvoru megin við A.7 (eins og útskýrt er í mynstri A.6 og A.8) þar til 13-13-15-15-16-19 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, heklið A.11a eða A.11b (veldu umferð í mynsturteikningu þannig að hún passi við þar sem stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki í þinni stærð, þannig að mynstrið haldi áfram) *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru lykkjur auknar út hvoru megin við A.7 eins og útskýrt er í mynstri A.6 og A.8 (= alls 8 tvíbrugðnir stuðlar fleiri í umferð) og lykkjum er fækkað í A.10 og A.11 (= alls 4 tvíbrugðnir stuðlar færri í umferð).
Þegar A.10 og A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið (= alls 4 lykkjur) til loka – sjá ÚRTAKA-1. Heklið þar til stykkið mælist ca 25-25-26-26-26-26 cm frá skiptingu, mælt meðfram hlið þar sem stykkið er styst – stillið af eftir umferð með fastalykkjum (þ.e.a.s. ca 11 umferðir með tvíbrugðnum stuðlum = 11 úrtökur).
Heklið nú 1 kant þannig:
Heklið * 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* hringinn, stillið af þannig að endað sé með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm mælt frá öxl og niður, þar sem stykkið er styst.

ERMI:
Festið enda með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju undir ermi, heklið 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull í hverja og eina af 2-2-2-3-4-5 loftlykkjum undir ermi (passið uppá hvor heklaðar séu fastalykkjur eða tvíbrugðnir stuðlar miðað við mynstur), heklið 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af ca 45-51-59-61-61-63 lykkjum sem hoppað var yfir fyrir ermi og endið með 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul í hverja af síðustu 3-3-3-4-5-6 loftlykkjum undir ermi = ca 51-57-65-69-71-75 fastalykkjur/tvíbrugðnir stuðlar.
Haldið áfram hringinn eftir A.4.
Þegar ermin mælist 2 cm fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 5-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 8-11-13-13-14-15 sinnum = ca 35-35-39-43-43-45 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 43-42-41-40-38-37 cm (eða að óskaðri lengd – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir umferð með fastalykkjum.
Nú er heklaður 1 kantur í kringum ermi þannig: Heklið * 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina, stillið af þannig að endað sé með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant í kringum hálsmálið þannig: Byrjið mitt ofan á öxl, festið endann með 1 keðjulykkju í 1 lykkju, heklið * 1 fastalykkju í næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* hringinn þannig, stillið af að umferðin endar með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, hoppið e.t.v. yfir færri lykkjur. Klippið frá alla enda og festið.

Mynstur

symbols = fyrsta umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig hekla á næstu umferð í/um lykkjurnar

symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = 2 fastalykkjur í sömu lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 3 tvíbrugðnir stuðlar í sömu lykkju

symbols = STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungs heklað í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan tvíbrugðna stuðulinn).
Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakrókur byrjar.
Hringur í enda á stuðlakrók = sýnir hvaða tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum á að hekla utan um.

symbols = STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungs heklað í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 fimmbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan fimmbrugðna stuðulinn).
Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakrókur byrjar.
Hringur í enda á stuðlakrók = sýnir hvaða fimmbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum á að hekla utan um.
symbols = STUÐLAKRÓKUR-FIMMBRUGÐINN STUÐULL (einungs heklað í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fimmbrugðinn stuðul um 1 fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan fjórbrugðna stuðulinn).
Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakrókur byrjar.
Rúða í enda á stuðlakrók = sýnir hvaða fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum á að hekla utan um.
symbols = heklið 2 stuðlakróka-fimmbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðlakrók-fimmbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta stuðlakrók-fimmbrugðinn stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar = 1 lykkja
symbols = 2 FASTALYKKJUR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri)
symbols = 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR SAMAN: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Sabrina wrote:

Guten Morgen! Diese Anleitung wird ja mit Merino Extra Fine und Häkelnadel 4,5 gearbeitet. Kann ich stattdessen auch einen Bobbel und Häkelnadel 2 verwenden? Allerdings habe ich hier einen Maschenprobe von 17 Doppelstäbchen auf 10 cm. Soll ich es da stattdessen statt Größe XL auf XXL häkeln? Danke für die Info im Vorhinein!

02.01.2023 - 08:08

DROPS Design answered:

Liebe Sabrina, wir können Ihnen nur empfehlen unsere Wolle DROPS Merino Extra Fine oder ein anderes Garn der Garngruppe B (siehe Garnumrechner) zu benutzen. Sonnst sollen Sie sich an Ihren Wolleladen wenden. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim häkeln!

02.01.2023 - 16:11

country flag Vanessa H wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zu diesem Punkt: BITTE BEACHTEN: Jedes Mal, wenn A.6/A.8 in der Höhe zu Ende gehäkelt wurde, A.6/A.8 in der Höhe beidseitig von A.7 weiterhäkeln, die restlichen Maschen über A.6/A.8 im Muster A.4 häkeln....\r\nIch weiß nicht, was damit gemeint ist.\r\nIch häkel das Stück in Größe M, m.E. bleiben keine restlichen Naschen übrig, so dass ich A.6. u d A.8. ganz normal nach Muster häkeln kann. Ist das korrekt?

09.10.2022 - 09:55

DROPS Design answered:

Liebe Vanessa, nachdem Sie A.6/A.8 einmal in der Höhe gehäkelt haben, beginnen Sie A.6/A.8 wie zuvor beidseitig von A.7 und die restlichen Maschen von den vorrigen A.6/A.8 häkeln Sie wie im A.4. Viel Spaß beim häkeln!

10.10.2022 - 10:12

country flag Ruth Polk wrote:

I just sent a question and I belive I figured it out as I hit send. Repeat A.5b and A.9b. My mind must had a momentary lapse. Thank you.

13.09.2022 - 01:23

country flag Ruth Polk wrote:

Thank you for your reply. Hopefully this will be my last question. The pattern says - when you finish A.5b and A.9b then repeat these patterns onwards in height. Does that mean start 5b and 9b over start 5a again and go through both. I appreciate your time.

13.09.2022 - 01:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Polk, A.5a and A.9 a are like set up rows, when they are done, just continue working following A.5b/A.9b, this means you will then repeat only the 4 rows shown in A.5b/A.9b (and work the other diagrams as before). Happy crocheting!

13.09.2022 - 09:36

country flag Regi Polk wrote:

Hi! I'm practicing (learning) pattern 207-11 Raglan top to see if I can figure out your diagram style. My most urgent question is where is the total stitches per row so you can double check your work? I'm slowly figuring out the chart as the written part is a bit confusing but I really want to make it. Thank you.

12.09.2022 - 00:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Polk, we do not give the number of sts at the end of each round but you can double check with the number of stitches in each diagram - use markers between diagrams, this can help. Happy crocheting!

12.09.2022 - 11:49

country flag Marita wrote:

Da man er ferdig med 9a & 5a,så er det staver det siste vi hekler,men 10 a & 11 a skal du å starte med staver. Der det står stjerne er det fastmasker,men den skal vi jo liksom være ferdig med da det står *

20.11.2021 - 09:54

DROPS Design answered:

Hei Marita. Litt usikker på hva du mener, men omgangen med sort stjerne = første omgang er allerede heklet, den viser bare hvordan neste omgang skal hekles i/om maskene. Slik at når du har heklet A.5a og A.9a 1 gang i høyden skal du hekle A.5b og A.9b videre i høyden. A.5a og A.9a slutter med en omgang med dobbeltstav, mens A.5b og A.9b starter med fastmasker, da gjentas mønstret slik du allerede har heklet. I A.10a og A.11a starter du med dobbeltstaver (raden med sort stjerne er allerede heklet). mvh DROPS Design

23.11.2021 - 10:10

country flag Christelle wrote:

Bonjour, Je suis désolée mais j'ai du mal à comprendre les explications rédigées pour faire ce modèle. Existe-t-il un diagramme avec une vue de l'ensemble du modèle. J'ai plus de facilité à lire les diagrammes. Les diagrammes qui représentent seulement une partie de l'ouvrage ne sont pas suffisants pour moi. J'ai besoin d'une vue d'ensemble. Je me repère mieux de cette façon. Merci de votre réponse

28.10.2021 - 21:15

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, nous n'avons pas d'autre diagramme que ceux indiqués, vous devez lire les explications écrites et suivre simultanément les diagrammes indiqués. Certaines découpent les diagrammes pour les mettre côte à côte, cela les aide à suivre, peut-être que cette technique pourra aussi vous aider? Bon crochet!

02.11.2021 - 13:26

country flag Minke wrote:

Ich habe meine Frage schon gelöst. Nur A2 wird bis zu dem Pfeil gehäkelt. A1 und A3 bis zum Ende.

22.04.2021 - 18:06

country flag Minke wrote:

Hallo, Ich häkeln die Größe XL. Bis zu dem Pfeil für die Schultern gibt es 33 Maschen. Wie komme ich denn am Ende des Teils auf 37 Maschen wenn ich nicht mehr zunehme? Liebe Grüße

22.04.2021 - 17:49

DROPS Design answered:

Liebe Minke, die Zunahmen häkeln Sie in A.2 bis zum Pfeil dann häkeln Sie diese 11 Maschen mit A.4 aber bei der nächsten Reihen nehmen Sie immer noch zu im A1 und A.3 = nach 12. Reihe (= nach A.1/A.3) haben Sie 13 M in A.1, 11 in A.4 (ehem. A.2) und 13 in A.3 = 37 Maschen. Viel Spaß beim häkeln!

23.04.2021 - 07:46

country flag Justyna wrote:

Przerobiłam kilka rzędów i mam wątpliwość co do tego klina z przodu i z tyłu. Na zdjęciu swetra wygląda jakby był robiony 2x 3 słupki podwójne w jedno oczko, a w schemacie jest 3 słupki podwójne w jedno oczko, 3 słupki podwójne, 3 słupki podwójne w jedno oczko (A6-A8). Czy coś robię źle, czy też zdjęcie nie do końca odpowiada schematowi? W obecnej chwili ten motyw z przodu jest w ogóle niewidoczny.

06.02.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, 1-szy rząd schematu A.6 (przed oczkiem środkowym) to 3 słupki podwójne w to samo oczko, schemat A.7 (oczko środkowe) to 1 słupek podwójny w oczko (w kolejnych okrążeniach będzie to dalej 1 sł2 albo 1 oś), a schemat A.8 (za oczkiem środkowym) to 3 słupki podwójne w to samo oczko. Miłej pracy!

06.02.2021 - 19:00