DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

After Midnight Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-27
DROPS Design: Mynstur sk-047
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 05, svartur
50-50-100-100-100-100 g litur 03, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 11, heslihneta
50-50-50-50-50-50 g litur 17, karrí
50-50-50-50-50-50 g litur 18, dauf bleikur
50-50-50-50-50-50 g litur 19, múrsteinn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með litnum ljós beige og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-95-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 84-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 40) = 2,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman,
prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með tvöföldum þræði. Eða hægt er að fella af með grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum karrí. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn ljós beige. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út u m 40-42-44-46-48-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 132-138-144-150-156-162 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan) – berustykki er mælt frá þessu prjónamerki!
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 hringinn (= 22-23-24-25-26-27 mynstureiningar með A.1 með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út um lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING-1!
Ör-1: Aukið út um 42-48-48-54-60-60 lykkjur jafnt yfir = 174-186-192-204-216-222 lykkjur (nú er pláss fyrir 29-31-32-34-36-37 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-2: Aukið út um 38-42-48-52-52-58 lykkjur jafnt yfir = 212-228-240-256-268-280 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-57-60-64-67-70 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-3: Aukið út um 28-30-36-44-50-50 lykkjur jafnt yfir = 240-258-276-300-318-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-43-46-50-53-55 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-4: Aukið út um 18-24-30-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 258-282-306-330-354-372 lykkjur (nú er pláss fyrir 43-47-51-55-59-62 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-5: Aukið út um 12-18-18-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 270-300-324-354-378-408 lykkjur (nú er pláss fyrir 45-50-54-59-63-68 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 19-19-19-25-25-25 cm frá prjónamerki við háls.
Prjónið síðan sléttprjón með svartur þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með litnum svartur þannig: Prjónið 40-44-47-52-57-63 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki), setjið næstu 40-44-47-52-57-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 81-89-95-105-115-127 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 54-61-67-72-74-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-45-48-53-58-64 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 174-190-206-226-250-274 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 198-214-230-250-274-298 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan.
Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 54-61-67-72-74-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-67-75-80-84-87 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-6-7-8-9-8 sinnum = 52-55-61-64-66-71 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-16-13-13-12 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1 cm millibili alls 18-16-17-20-20-20 sinnum = 88-87-95-104-106-111 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 88-87-95-104-104-111 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-1-1-0-0-1 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 44-44-48-52-52-56 lykkjur eftir.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = ljós beige
symbols = múrsteinn
symbols = svartur
symbols = karrí
symbols = daufbleikur
symbols = hesilhneta
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

After Midnight Sweater

Alessandra, Brazil

Crop topin lumoissa

RuinedMama, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Kerrie Carter wrote:

I am not a spammer! Can you post Drop Sky wool to Australia?

19.03.2024 - 21:43

DROPS Design answered:

Dear Carrie, we cannot ship, but if you search teh stores that carry out yarns, you can find ones that have worldwide shipping ( HERE. I hope this helps. Happy Knitting!

20.03.2024 - 01:12

country flag Kerrie Carter wrote:

Why don’t you ship to Australia? I can’t source the wool here or online

19.03.2024 - 04:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Carter, please find list of DROPS stores shipping worldwide here. Happy knitting!

19.03.2024 - 11:35

country flag LLP Syl wrote:

Merci pour ce beau modèle que j'ai effectué sans difficulté avec votre belle laine toute douce ! Il fait sensation !! Syl

07.03.2024 - 16:57

country flag Marille wrote:

Dzień dobry. Chciałabym zrobić chustę z tego wzoru Just Dreaming. Gdzie mogę kupić Drops Fabel 822. Nie udało mi się znaleźć. Czy może nie jest już produkowana? Pozdrawiam

26.01.2024 - 12:28

DROPS Design answered:

Witamy, niestety ten kolor nie jest już produkowany. Radzę zadać pytanie na grupie na facebooku DROPS Workshop, może komuś jeszcze została i zechce odsprzedać. A może jakiś inny kolor, oferta kolorystyczna włóczki Fabel jest bardzo szeroka. Pozdrawiamy!

26.01.2024 - 15:31

country flag Monica wrote:

Hallo ik ben met de mouwen bezig, nu staat in het patroon: in maat xl, bij het minderen hoef ik elke toer 0 keer te minderen, waarbij ik 104 steken telkens over heb, en op de laatste toer staat elke steek 2 recht samen, zodat ik 52 steken over heb, dus moet ik nu in elke steek 2 recht samen breien?

17.03.2023 - 09:42

DROPS Design answered:

Dag Monica,

Inderdaad, je kunt in jouw maat gewoon alle steken 2 aan 2 recht samen breien, waarmee je het aantal steken halveert.

19.03.2023 - 16:54

country flag Kalaiselvan N wrote:

We are well made hand knit sweater and supply from india. Working on merino wools as well.

07.08.2022 - 12:45

country flag Veronica wrote:

Precioso modelo. Explicaciones super claras y precisas. Estoy finalizando el canesu del sweater.

25.08.2021 - 05:50

country flag Ineke wrote:

Ik heb een vraagje. Ik kom niet uit met mijn kleuren bij de 29e toer van de pas ik brei hem in maat xxxl en heb 330 steken opstaan…als ik hem uit brei zoals er staat eindig ik met dezelfde kleur als ik begonnen ben …graag een beetje hulp met wat ik verkeerd heb gedaan..ik heb het al 2x uitgehaald Liefs Ineke

16.08.2021 - 14:13

country flag Ninni Jensen wrote:

Kan man ikke få opskrifter på Dansk??

21.01.2021 - 21:13

country flag Agnes wrote:

Ich würde dieses Model gerne mit der Wolle "Alpaca" stricken, komme aber mit der Garnumrechnug nicht klar. Sky gehört zur Garngruppe B, Alpaca zu A.Wie komme ich auf die benötigte Garnmenge? Vielen Dank für ihre Hilfe!

18.09.2020 - 10:16

DROPS Design answered:

Liebe Agnes, wenn Sie mit einer Alpaka Wolle stricken möchten, dann benutzen Sie DROPS Lima = Garngruppe B auch. Benutzen Sie unseren Garnumrechner um die Alternative zu sehen und die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim stricken!

18.09.2020 - 13:20