DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 204-19
DROPS Design: Mynstur u-883
Garnfokkur B
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150 g litur 48, vínrauður
50-100 g litur 01, natur

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 48, vínrauður
50-100 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

VETTLINGAR:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Lengd: ca 24-26. Ummál: ca 21-21 cm.

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 48, vínrauður
50-50 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um efst á húfu):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um efst á vettling):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki).

ÚRTAKA-3 (á við um þumal):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um vettlinga):
Ef óskað er eftir því að gera vettling í stærra ummáli er hægt að prjóna vettlinginn með hálfu eða heilu númeri grófari prjónum. Ef prjónað er með hálfu númeri grófari prjónum þá verður 1 cm meira ummál og í heilu númeri grófari prjónum verðu ummálið 2 cm meira.

LEIÐBEININGAR-3 (á við um vettlinga):
Lengdin áður en opið fyrir þumal byrjar er hægt að stilla af með því að prjóna fleiri eða færri umferðir áður en merki fyrir þumal er prjónað.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 27-28 mynstureiningar með 4 lykkjum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist ca 20 cm í báðum stærðum, en passið uppá að næsta umferð sé einlit umferð strax á undan eða eftir umferð með «doppum».
Setjið 6-7 prjónamerki í stykkið með 18-16 lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 = 6-7 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4 sinnum = 54-42 lykkjur eftir. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með lit í síðustu rönd þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í öllum þremur umferðum = 7-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25-26 cm ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Gerið einn dúsk með litnum vínrauður og natur ca 6 cm í þvermáli og festið efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Vettlingarnir hafa sama ummál í báðum stærðum, en misjafna lengd. Ummálinu er hægt að breyta – sjá LEIÐBEININGAR-2!

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fyrir fald.
Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Stykkið er nú mælt frá uppábroti!
Prjónið 8 umferðir sléttprjón með litnum vínrauður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.1 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist ca 11 cm frá uppábroti (stillið af að næsta umferð sé einlit umferð með litnum vínrauður), prjónið að prjónamerki fyrir op fyrir þumal þannig – sjá LEIÐBEININGAR-3: Prjónið 14 lykkjur sléttprjón með litnum vínrauður, prjónið 8 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit sem skilur sig frá afgangi af stykki, prjónið síðan 26 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum vínrauður. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 21-23 cm frá uppábroti. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd – ATH: Endið eftir heila rönd með litnum natur og prjónið e.t.v. með litnum vínrauður (án «doppa») til loka.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og1 prjónamerki eftir 24 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11 sinnum í báðum stærðum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður að uppábroti.

ÞUMALL VINSTRI VETTLINGUR:
Dragið út þráðinn sem prjónaður var yfir 8 lykkjur fyrir opi fyrir þumal. Prjónið upp 8 lykkjur hvoru megin við op fyrir þumal með litnum vínrauður = 16 lykkjur.
Skiptið þessum 16 lykkjum á sokkaprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. Þegar þumallinn mælist ca 5-5½ cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á þumli. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli á þumli, mátið e.t.v. vettlingana og prjónið að óskaðri lengd.
Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-3 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum í hverri umferð alls 3 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 6-6½ cm ofan frá og niður.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vínrauður. Prjónið 8 umferðir sléttprjón fyrir fald.
Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið 8 umferðir sléttprjón með litnum vínrauður. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.2 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.2 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist ca 11 cm frá uppábroti (stillið lengd af eftir vinstra vettlingi), prjónið að prjónamerki fyrir op fyrir þumal þannig: Prjónið 26 lykkjur sléttprjón með litnum vínrauður, prjónið 8 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumal með þræði í öðrum lit, prjónið síðan 14 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum vínrauður. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 21-23 cm frá uppábroti (stillið lengdina af eftir vinstri vettlingi).
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og1 prjónamerki eftir 24 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 11 sinnum í báðum stærðum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

ÞUMALL:
Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri vettlingi.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá fald fyrir saum að röngu og saumið niður með smáu fallegu spori.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = natur
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Katarina Lans wrote:

I mönstret 204-19, så är det lite oklart hur man minskar på toppen av vantarna. Jag förstår ingenting! Går det att tydliggöra? T.ex. att man ska minska 3 maskor innnan markören, men det blir bara förvirrande när man ska kombinera beskrivningen och minskningstips 2. Vore enklare att läsa vad man ska göra sticka för sticka.

22.01.2024 - 20:44

DROPS Design answered:

Hej Katarina. När du ska börja minska och har satt de 2 markörerna i arbetet så minskar du vid varje markör på följande sätt: Börja 3 maskor före markören, sticka 2 maskor räta tillsammans, sticka 2 rätmaskor (markören sitter mellan dessa 2 maskorna), lyft 1 maska som om den skulle stickas rät, sticka 1 rätmaska, drag den lyfta maskan över maskan som stickades (= 2 maskor minskade vid markören). Detta gör du vid varje markör och varje varv tills du har 4 maskor kvar. Då klipper du av tråden, drar den genom de sista 4 maskorna, drar åt och fäster tråden. Mvh DROPS Design

24.01.2024 - 15:05

country flag Valerie wrote:

Bonjour Lorsque je commence les diminutions le dessin est décalé, dois je ajuster ou continuer selon le schéma ? Merci par avance pour votre aidaient cordialement Valerie

19.10.2023 - 18:51

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, au choix, vous pouvez simplement continuer en suivant le diagramme ou bien ajuster le motif pour que les plumetis soient toujours alignés. Bon tricot!

20.10.2023 - 08:08

country flag Marian wrote:

When decreasing I find that the pattern is not staying as it should because there are less stitches. Is this correct, if not, how do I adjust? Thank you.

04.09.2023 - 15:33

DROPS Design answered:

Dear Marian, continue working the pattern as before over as many stitches as possible - depending on the decrease rounds you might have some difference at the transition of rounds. Happy knitting!

05.09.2023 - 11:43

country flag Nini Nielsen wrote:

Jeg mener at det er et dårligt design. vanten er alt for vid i den lille størrelse. desuden er karisma ikke egnet til p.3

27.02.2021 - 22:20

country flag Jane wrote:

Not to worry I finally found the answer: MITTENS - SHORT OVERVIEW OF THE PIECE: Work piece in the round on double pointed needles, bottom up. Mittens have the same circumference in both sizes but different length. Circumference can be adjusted - read KNITTING TIP-2!

15.11.2019 - 14:33

country flag Jane wrote:

The mitten pattern says it is for 2 sizes -s/m and m/l. As far as I can see you cast on 48 stitches for both sizes. I can’t see where you do increases, or make adjustments, to make the larger size, so the pattern is just for one size? How many extra stitches do I cast on for the m/l size? Thank you

15.11.2019 - 14:11

DROPS Design answered:

Dear Jane, mittens have the same circumference in both size (only length is different) - to adust circumference see KNITTING TIP-2. Happy knitting!

15.11.2019 - 14:42