DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Swagger

Prjónuð poncho peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stuttum umferðum og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-10
DROPS Design: Mynstur fa-438
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 103, gráblár
100-150-150-150-150-200 g litur 604, yfir hafið
50-50-50-100-100-100 g litur 114, ljós perlugrár

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir garðaprjón fyrir sjálft stykkið.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir kant í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón. Síðan er prjónað garðaprjón með stuttum umferðum fram og til baka í stykkjum, aukið er út eftir hvert stykki. Prjónaðar eru 2 umferðir garðaprjón hringinn með ljós perlugrár á milli hverra stykkja. Prjónuð eru alls 10 stykki. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki sem prjónað er til loka hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón og saumaðar saman í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-115-122-127-134 lykkjur á hringprjón 3 með litnum gráblár. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn með litnum ljós perlugrár og aukið út 14-15-15-8-13-16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð (= slétt umferð) – sjá ÚTAUKNING = 120-125-130-130-140-150 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Berustykkið er nú prjónað í stykkjum fram og til baka með stuttum umferðum og í hring í garðaprjóni þannig:

STYKKI 1:
Prjónið nú með litnum yfir hafið þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir í garðaprjóni hringinn.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð.
Prjónið nú 1. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 115-120-125-125-135-145 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 110-115-120-120-130-140 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 105-110-115-115-125-135 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 100-105-110-110-120-130 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 95-100-105-105-115-125 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 90-95-100-100-110-120 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið áfram svona, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10-15-10-10-10-10 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón).
Klipp þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 5 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 144-150-156-156-168-180 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Klippið frá.

STYKKI 2:
Færið prjónamerki 72-75-78-78-84-90 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 72-75-78-78-84-90 lykkjur að gagnstæðri hlið, 2. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum gráblár þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-25-52-52-56-60 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 6.-6.-3.-3.-3.-3. hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 168-175-208-208-224-240 lykkjur.
Prjónið nú 2. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 161-168-200-200-216-232 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 154-161-192-192-208-224 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 147-154-184-184-200-216 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 140-147-176-176-192-208 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 133-140-168-168-184-200 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 126-133-160-160-176-192 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-8-8-8-8 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14-21-16-16-16-16 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 7-7-8-8-8-8 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 192-200-234-234-252-270 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 3:
Færið prjónamerki 96-100-117-117-126-135 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 96-100-117-117-126-135 lykkjur að gagnstæðri hlið, 3. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum yfir hafið þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 8.-8.-9.-9.-9.-9. hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 216-225-260-260-280-300 lykkjur.
Prjónið nú 3. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9-9-10-10-10-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 207-216-250-250-270-290 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9-9-10-10-10-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-207-240-240-260-280 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18-18-20-20-20-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 189-198-230-230-250-270 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18-18-20-20-20-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 180-189-220-220-240-260 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 27-27-30-30-30-30 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 171-180-210-210-230-250 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 27-27-30-30-30-30 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 162-171-200-200-220-240 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-10-10-10-10 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18-27-20-20-20-20 lykkjurnar frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir garðaprjón).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan hringinn með ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 9-9-10-10-10-10 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. slegið er 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinn) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 240-250-286-286-308-330 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 4:
Færið prjónamerkið 120-125-143-143-154-165 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 120-125-143-143-154-165 lykkjur að gagnstæðri hlið, 4. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum gráblár þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 10.-10.-11.-11.-11.-11. hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 264-275-312-312-336-360 lykkjur.
Prjónið nú 4. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 253-264-300-300-324-348 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 242-253-288-288-312-336 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 231-242-276-276-300-324 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 220-231-264-264-288-312 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 209-220-252-252-276-300 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-209-240-240-264-288 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-12-12-12-12 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 22-33-24-24-24-24 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 11-11-12-12-12-12 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 288-300-338-338-364-390 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 5:
Færið prjónamerkið 144-150-169-169-182-195 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 144-150-169-169-182-195 lykkjur að gagnstæðri hlið, 5. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum yfir hafið þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 0-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 0-12.-13.-13.-13.-13. hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 288-325-364-364-392-420 lykkjur.
Prjónið nú 5. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 12-13-14-14-14-14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 276-312-350-350-378-406 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 12-13-14-14-14-14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 264-299-336-336-364-392 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 24-26-28-28-28-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 252-286-322-322-350-378 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 24-26-28-28-28-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 240-273-308-308-336-364 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 36-39-42-42-42-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 228-260-294-294-322-350 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 36-39-42-42-42-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 216-247-280-280-308-336 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 12-13-14-14-14-14 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 24-39-28-28-28-28 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 12-13-14-14-14-14 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri = 312-350-390-390-420-450 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 6:
Færið prjónamerkið 156-175-195-195-210-225 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 156-175-195-195-210-225 lykkjur að gagnstæðri hlið, 6. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum gráblár þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferð garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 13.-14.-15.-15.-15.-15. hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 336-375-416-416-448-480 lykkjur.
Prjónið nú 6. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 14-15-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 322-360-400-400-432-464 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 14-15-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 308-345-384-384-416-448 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 28-30-32-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 294-330-368-368-400-432 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 28-30-32-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 280-315-352-352-384-416 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 42-45-48-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 266-300-336-336-368-400 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 42-45-48-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 252-285-320-320-352-384 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 14-15-16-16-16-16 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 28-45-32-32-32-32 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 14-15-16-16-16-16 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 360-400-442-442-476-510 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 7:
Færið prjónamerkið 180-200-221-221-238-255 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 180-200-221-221-238-255 lykkjur að gagnstæðri hlið, 7. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum yfir hafið þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 15.-16.-17.-17.-17.-17. hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 384-425-468-468-504-540 lykkjur.
Prjónið nú 7. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 16-17-18-18-18-18 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 368-408-450-450-486-522 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 16-17-18-18-18-18 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 352-391-432-432-468-504 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 32-34-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 336-374-414-414-450-486 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 32-34-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 320-357-396-396-432-468 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 48-51-54-54-54-54 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 304-340-378-378-414-450 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 48-51-54-54-54-54 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 288-323-360-360-396-432 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 16-17-18-18-18-18 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 32-51-36-36-36-36 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 16-17-18-18-18-18 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 408-450-494-494-532-570 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 8:
Færið prjónamerkið 204-225-247-247-266-285 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 204-225-247-247-266-285 lykkjur að gagnstæðri hlið, 8. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum gráblár þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-25-26-26-28-30 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 17.-18.-0-19.-19.-0 hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 432-475-494-520-560-570 lykkjur.
Prjónið nú 8. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18-19-19-20-20-19 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 414-456-475-500-540-551 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18-19-19-20-20-19 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 396-437-456-480-520-532 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 36-38-38-40-40-38 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 378-418-437-460-500-513 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 36-38-38-40-40-38 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 360-399-418-440-480-494 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 54-57-57-60-60-57 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 342-380-399-420-460-475 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 54-57-57-60-60-57 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 324-361-380-400-440-456 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 18-19-19-20-20-19 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 36-57-38-40-40-38 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 18-19-19-20-20-19 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 456-500-520-546-588-600 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 9:
Færið prjónamerkið 228-250-260-273-294-300 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 228-250-260-273-294-300 lykkjur að gagnstæðri hlið, 9. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Prjónið nú með litnum yfir hafið þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð (= slétt umferð) er aukið út um 24-0-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út með 1 uppslætti á eftir 19-0-0-0-0-0 hverja lykkju).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 480-500-520-546-588-600 lykkjur.
Útaukningum er nú lokið í öllum stærðum.
Prjónið nú 9. stykki með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 20-20-20-21-21-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 460-480-500-525-567-580 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 20-20-20-21-21-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 440-460-480-504-546-560 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 40-40-40-42-42-40 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 420-440-460-483-525-540 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 40-40-40-42-42-40 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 400-420-440-462-504-520 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 60-60-60-63-63-60 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 380-400-420-441-483-500 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 60-60-60-63-63-60 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 360-380-400-420-462-480 lykkjur), snúið, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 20-20-20-21-21-20 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 40-60-40-42-42-40 lykkjur frá röngu (= 22-22-24-24-26-28 umferðir í garðaprjóni).
Klippið þráðinn frá.
Prjónið síðan í hring með litnum ljós perlugrár þannig:
Byrjið við prjónamerkið (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 20-20-20-21-21-20 sléttar lykkjur, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn þar sem snúið var við í stuttu umferðinni) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= lykkjufjöldinn verðu sá sami) = 480-500-520-546-588-600 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). Klippið þráðinn frá.

STYKKI 10:
Færið prjónamerkið 240-250-260-273-294-300 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til með 240-250-260-273-294-300 lykkjur að gagnstæðri hlið, 10. stykki er nú prjónað með byrjun frá prjónamerki).
Allt stykkið er prjónað með litnum gráblár þannig:
Prjónið 4-4-6-8-8-8 umferðir garðaprjón hringinn = 480-500-520-546-588-600 lykkjur.
Prjónið síðan alveg eins og STYKKI-9 frá og með stuttu umferðum (þ.e.a.s. frá eftir að allar útaukningar voru kláraðar).

HLIÐ:
Færið umferðina til 33-33-34-35-37-36 lykkjur fram (þ.e.a.s. færið 33-33-34-35-37-36 lykkjurnar (= á að vera hálf ermi) varlega yfir á hægri prjón), setjið 1 prjónamerki hér = byrjun á næstu umferð.
Prjónið nú stykkið áfram fram og til baka í garðaprjóni með litnum gráblár. Þegar stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm frá eftir kanti í hálsmáli mælt frá miðju að framan, skiptist stykkið hér – stillið af að prjónað sé slétt í þessari umferð.
Prjónið fyrstu 174-184-192-204-220-228 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 66-66-68-69-74-72 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 174-184-192-204-220-228 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 66-66-68-69-74-72 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Klippið frá. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram- og til baka með litnum gráblár.
= 360-384-400-424-456-476 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig – með byrjun frá röngu: Byrjið í 4.-5.-5.-5.-5.-6. lykkju á 6-8-8-8-8-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm frá skiptingu. Fellið laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka með litnum gráblár.
Setjið 66-66-68-69-74-72 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 3,5. Fyrsta umferð er prjónuð þannig – með byrjun frá röngu: Prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 3-4-4-4-4-5 lykkjum sem fitjaðar voru upp mitt undir ermi, prjónið 66-66-68-69-74-72 lykkjur og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af síðustu 3-4-4-4-4-5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-74-76-77-82-82 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist ca 24-23-21-20-18-16 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd). Fellið laust af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman fram- og bakstykki í hlið kant í kant – saumið garðaprjón við garðaprjón.
Saumið sauma undir ermum kant í kant – saumið garðaprjón við garðaprjón.

Mynstur

symbols = stykki 1 til 10 – sjá upplýsingar í uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Angela wrote:

Spontan verliebt!

03.07.2019 - 19:34

country flag Skyline wrote:

Skyline in winter

24.06.2019 - 11:57

country flag Milky Way wrote:

Original

19.06.2019 - 18:33

country flag Irmgard wrote:

Armlift no way! And how to put your arms in a winterjacket?

10.06.2019 - 20:03

country flag Kerstin wrote:

Eigentlich hübsch, aber wehe man hebt die Arme... Quite nice, but DO NOT lift your arms...

10.06.2019 - 11:33

country flag Tiziana Gervasutti wrote:

Molto originale, mi ricorda le onde del mare

06.06.2019 - 23:00

country flag Anna wrote:

Questo lo farò sicuramente, e molto originale

06.06.2019 - 20:18

country flag Vicky Williams wrote:

How unusual and very original! Lovely1

06.06.2019 - 00:19

country flag Leonoor wrote:

Geweldig mooi ontwerp! Jammer dat ik niet direct aan de slag kan. 😉

05.06.2019 - 22:53

country flag Ingeborg Toda wrote:

I want to knit the sweater with the similar pattern and now cannot decide which I would actually knit - this one or the sweater from one of your previous models.

05.06.2019 - 20:18