DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frambuesa

Prjónuð síð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og perluprjóni á berustykki. A-formi og vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-15
DROPS Design: Mynstur ne-315
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
750-800-900-950-1050-1150 g litur 8910, hindber

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
A.2 mælist ca 16-16-16-20-20-20 cm á hæð.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS HORNATALA, (köntuð) NR 537: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 74 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27) = 2,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kant að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Þegar berustykkið er tilbúið, prjónið smá laskalínu áður en stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Öll útaukning fyrir laskalínu er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð (ranga), er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 10-10-10-9-9-9 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Síðan eru prjónaðir lausir vasar sem saumaðir eru á framstykkin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-88-92-92-96-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 5 kantlykkjur), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með A.1 (= 5 kantlykkjur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm, en munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 27-33-29-39-47-43 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 111-121-121-131-143-143 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð á eftir kanti við miðju að framan, það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í A.1). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir 5 kantlykkjur að framan, prjónið A.2A (= 6-6-6-7-7-7 lykkjur), prjónið A.2B þar til eftir eru 10-10-10-11-11-11 lykkjur í umferð (= 9-10-10-9-10-10 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum), prjónið A.2C (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur) og endið með A.1 yfir 5 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2A eru lykkjur auknar út jafnt yfir í umferð eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1 (það er alltaf aukið út í umferð frá röngu).
Ör-1: Aukið út 40-40-40-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 151-161-161-179-191-191 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 40-40-40-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 191-201-201-227-239-239 lykkjur.
Ör-3: Aukið út 30-30-30-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 221-231-231-263-275-275 lykkjur.
Ör-4: Aukið út 4-6-6-10-2-14 lykkjur jafnt yfir = 225-237-237-273-277-289 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 16-16-16-20-20-20 cm frá prjónamerki í hálsi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í A.1 í hvorri hlið við miðju að framan að réttu máli. Aukið síðan út fyrir smá laskalínu eins og útskýrt er að neðan.

LASKALÍNA:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið til að merkja hvar auka á út fyrir laskalínu. Prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að lykkjur séu prjónaðar. 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 39-40-40-46-48-51 lykkjurnar (= framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-44-44-50-48-48 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 67-69-69-81-85-91 lykkjum (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-44-44-50-48-48 lykkjum (= ermi). Nú eru 39-40-40-46-48-51 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-4-6-4-6-8 sinnum = 241-269-285-305-325-353 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-44-46-50-54-59 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-89-97-107 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 41-44-46-50-54-59 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 165-177-189-205-225-245 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 44-47-50-54-59-64 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 77-83-89-97-107-117 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau aðeins síðar þegar auka á út lykkjum í hliðum.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í A.1 í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 8 sinnum í hvorri hlið = 197-209-221-237-257-277 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í A.1) og aukið jafnframt út 40-43-41-45-50-55 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 237-252-262-282-307-332 lykkjur. Það er aukið út til að koma í veg fyrir að kanturinn sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í A.1, prjónið A.3 þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í A.1. Haldið svona áfram þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 44-52-56-58-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-58-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og aukið út mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-2-2--2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 4-7-9-9-10-11 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Þegar ermin mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 6 -7-5-6-3-3½ cm millibili alls 4-3-4-3-5-4 sinnum = 50-50-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-34-32-31 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-1-1-0-0 lykkjur = 50-50-55-55-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið A.3 hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-37-35-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

VASI:
Fitjið upp 33-33-33-39-39-39 lykkjur á hringprjón 5,5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2A (= 6-6-6-7-7-7 lykkjur), prjónið A.2B yfir næstu 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum), prjónið A.2C (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til hinn borðinn í perluprjóni hefur verið prjónaður til loka.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hinn vasann á sama hátt.
Staðsetjið 1 vasa á hvort framstykki ca 8 til 13 cm frá kanti yst á kant við miðju að framan og kant í kant við skiptinguna á milli sléttprjóns og kants neðst á fram- og bakstykki – sjá mynd (mátið e.t.v. peysuna og staðsetjið að eigin ósk).
Saumið vasana niður á framstykkin innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á vösum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Brigitta Sommer wrote:

Wieso steht am Schluss vom Rumpf nach den 5M A1 , danach bis 7 M vor Ende A3 stricken dabei muss man doch das Bord mit 2r / 2l stricken? Aber auch das stimmt nicht. Ich stricke 5M A1 danach Rippenmuster 2r/ 2l . Nach der Blende fange ich mit rechts an aber höre vor der Blende mit links auf. Was mache ich falsch?

24.10.2023 - 17:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Sommer, am Schluss vom Rumpf wird es nicht Rippenmuster 2 re/2 li gestrickt aber 2 re/ 3 Perlmuster, so: 5 M Perlmuster (A.1), *2. rechts, 3 Perlmuster (A.3)*, von *-* wiederholen bis 7 M übrig sind, 2 M rechts (so ist das Rippenmuster symmetrisch), 5 M Perlmuster (A.1). Viel Spaß beim stricken!

25.10.2023 - 07:29

country flag Jessica Larsson wrote:

Hej Framkanten på koftan ser ut att vara i Moss-stickning, men mönsterbeskrivning A.1 är resår. Iaf när jag stickar den. Ska det vara moss el resår? Med vänlig hälsning, Jessica

05.07.2022 - 20:00

DROPS Design answered:

Hej Jessica, Hvis du strikker ifølge diagram A.1, så bliver det til moss-stickning, se videoen nederst i opskriften "Hur man stickar mosstickning fram och tillbaka" :)

06.07.2022 - 08:00

country flag Maryse wrote:

Svp, A. 2A, taille XL, il faut augmenter 48 m au rang 8 à la flèche 1, selon augmentations-1 c'est à dire avec des jetés. Au rang suivant on doit tricoter les jetés torses, mais, sur ce même rang commence le point fantaisie. Je ne sais pas comment combiner tricoter un jeté torse alors qu'il sert aussi à "glisser 1 maille à l'endroit" par exemple. Comme j'ai des jetés toutes les 2 et 3 m, ça tombe aussi sur les points fantaisie. Merci pour une réponse svp

26.02.2022 - 02:11

DROPS Design answered:

Bonjour Maryse, vous pouvez alors simplement glisser ce jeté comme pour le tricoter torse à l'endroit, tricotez la maille suivante à l'endroit et passer le jeté par-dessus la maille glissée; vous pouvez aussi décaler le jeté avant/après si vous préférez ou bien plutôt augmenter au dernier rang du point de riz si c'est plus simple pour vous. Bon tricot!

28.02.2022 - 09:06

country flag Belinda wrote:

De maten kloppen niet van dit patroon. Ik heb normaal maat M, maar deze was veel te groot. Toen alles uitgetrokken en maat S gemaakt. Ook deze was te groot.

28.11.2021 - 20:48

country flag Sabine wrote:

Hallo, ich habe eine technische Frage zu dieser schönen Jacke. Laut Anleitung soll in den Reihen mit den Pfeilen gleichmäßig verteilt zugenommen werden. In der nächsten Hinreihe soll dann das Lochmuster gestrickt werden. Ich verstehe nicht, wie man die Umschläge aus der Vorreihe verschränkt abstricken soll und gleichzeitig das Lochmuster stricken soll. Die Umschläge sind doch keine Maschen, die ich zusammen stricken kann. Ich hoffe, Sie können mir weiterhelfen.

30.10.2021 - 17:04

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, wenn Sie bei den Rückreihen Umschläge zum Zunehmen stricken, sollen Sie bein den Hinreihen rechts verschränkt gestrickt werden, um Löcher zu vermeiden, gleichzeitig stricken Sie das Lochmuster wie im Diagram gezeigt (nun werden die vorrigen Umschläge verschränkt gestrickt). Viel Spaß beim stricken!

02.11.2021 - 13:53

country flag Diane wrote:

Modele206-15 A2A fleche1 ligne 13 sur 6m. Je fais 4end, jeté,gl et il me manque 1m pour finir le rang merci

12.03.2021 - 14:09

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, je ne suis pas sûre de comprendre, la flèche 1 du Diag. A.2A se trouve au 6ème rang (= S, M, L) ou au 8ème rang (= XL, XXL, XXXL), sur ce rang vous devez augmenter 40-40-40-48-48-48 m à intervalles réguliers (cette leçon explique comment procéder - votre nouveau nombre de mailles (= 151-161-161-179-191-191 mailles.) vous permettre de tricoter comme avant, avec juste plus de motifs de A.2B entre A.2A et A.2.C. Bon tricot!

12.03.2021 - 15:44

country flag Julie wrote:

Concernant les augmentations de l'empiècement, est-ce qu'elle doivent être réparties sur toutes les mailles ou seulement sur les 10x10 mailles de A2B (pour le medium) Merci

10.03.2021 - 00:03

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, quand vous augmentez dans A.2 vous devez augmenter comme indiqué sous AUGMENTATIONS-1 sur toutes les mailles du rang sauf celles de bordure des devants, autrement dit A.2A, B et C. Cette leçon pourra vous aider à placer ces augmentations à intervalles réguliers si besoin. Bon tricot!

10.03.2021 - 07:53

country flag Arlene Joffe wrote:

On Drops/206/15 how do I cater for the increases into the chart patterns. The charts show a pattern of 6 sts (A.2A); then 9 repeats of a 10 st (A2B); then a 5 st chart (A.2C). But then you increase by 40 sts. The pattern no longer fits the now 151 sts, and there are further increases later. Please advise me how to proceed, as the lace triangles have to join onto each other, but if I include the increases, there are no longer 6 or 10 sts per chart, each section increases by 1 or 2 or 6 sts

28.11.2020 - 13:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Joffe, after you have increased 40 sts and get the 151 sts work the diagrams as before but over more sts: A.1 (= 5 front band sts), A.2A (= 6 sts), repeat A.2B until 10 sts remain (= 13 repeats of A.2B), A.2C (= 5 sts), A.1 (= 5 sts) = 5+6+ 13x10 + 6+9=151 sts. Happy knitting!

30.11.2020 - 08:24

country flag Margarita wrote:

Leicht verständliche und schnell umzusetzende Anleitung. Vielen lieben Dank für die kostenfreie Verfügung. My best regards to all the fans of wool

27.09.2020 - 17:18

country flag Coco wrote:

Bonjour concernant l\'empiècement il est indiqué que nous devons faire 10 fois A.2B mais après avoir fait les augmentations de la flèche 1 nous devons donc augmenter le nombre de motifs?\r\nMerci beaucoup pour votre réponse.

23.09.2020 - 11:32

DROPS Design answered:

Bonjour Coco, effectivement, vous devez continuer le point fantaisie comme avant, mais à chaque fois sur davantage de mailles, autrement dit, vous avez A.1 pour la bordure devant comme avant, 1 fois A.2A, vous répétez A.2B jusqu'à ce qu'il reste 6 ou 7 mailles (selon la taille) et terminez par A.2C (5 ou 6 m selon la taille) et A.1 pour la bordure devant. Bon tricot!

23.09.2020 - 14:26