DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Inner City Jacket

Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-12
DROPS Design: Mynstur ai-228
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-650-750 g litur 27, sægrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS STÁLTALA, Hringlaga (silfur) NR 533: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) mínus 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 18,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 18. og 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrri hnappagötum þannig:
Fyrsta hnappagat: Fellið af fyrir hnappagati í 7. umferð í A.1 annað skiptið sem mynsturteikning er prjónuð á hæðina.
Annað hnappagat: Fellið af fyrir hnappagötum þegar prjónaðir hafa verið 6-7-8-7-8-7 cm með mynstri A.3.
Þriðja hnappagat: Fellið af fyrir hnappagati í 7. umferð í A.1 þriðja skiptið sem mynsturteikning er prjónuð á hæðina.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 108-112-128-132-140-156 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 18-18-22-22-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 90-94-106-110-118-130 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næst síðustu umferð í A.1 er aukið út 0-5-2-0-1-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 90-99-108-110-119-130 lykkjur. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, L, XL, XXXL:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 4-5-5-6 sinnum á breidd, A.5 (= 10 lykkjur), 3-3-4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Stærð M og XXL:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-4 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 5-6 sinnum á breidd, 4-5 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Allar stærðir:
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 84-93-102-102-111-120 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 20-21-22-22-23-24 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 31-35-39-39-43-47 lykkjur. Haldið síðan áfram með eins margar lykkjur í mynstur og pláss er fyrir, þar til handvegurinn mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm (stykkið mælist alls 63-65-67-69-71-73 cm) – stillið af að endað sé eftir 4.,8.,14. eða 18. umferð í A.4/A.5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 59-63-67-75-79-83 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 51-55-59-63-67-71 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkja og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður). Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Prjónið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2 – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (þ.e.a.s. 6 lykkjur brugðið í þessari umferð), A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni (brugðið í þessari umferð). Í næst síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út í umferð til 47-56-56-57-66-67 lykkjur (fækkið/aukið út yfir 6 kantlykkjur að framan). Prjónið síðustu umferð í A.1. Nú er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, XXL, XXXL:
6 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-3-3 sinnum á breidd, 4-5-6 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Stærð M, L og XL:
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-2-2 sinnum á breidd, A.5 (= 10 lykkjur), 3-3-4 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Allar stærðir:
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 44-53-53-62-62 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 13-14-14-14-15-15 lykkjur (= sjalkragi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-39-39-39-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt 0-4-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 31-35-39-39-43-47 lykkjur fyrir öxl. Snúið og prjónið sléttar lykkjur fyrir öxl (lykkjur fyrir sjalkraga eru áfram eftir á prjóni), snúið og fellið af.
Klippið frá. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Prjónið nú sjalkraga yfir 13-14-14-14-15-15 lykkjur með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1-5: Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt yfir fyrstu 6-7-7-7-7-7 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 7: Prjónið slétt til baka.
UMFERÐ 8: Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
Endurtakið umferð 1-8 þar til kraginn mælist 7-7-7½-7½-8-8 cm þar sem stykkið er styst, mælt frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 59-63-67-75-79-83 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 6 lykkjur eru eftir, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem fækkað er um 8-8-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 51-55-59-63-67-71 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkja og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður). Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Prjónið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist ca 17 cm. Prjónið nú A.1 yfir A.2. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3 yfir A.1. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 32-34-36-34-36-34 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð frá réttu (þ.e.a.s. 1.,3.,5. eða 7. umferð í mynsturteikningu). Klippið frá og prjónið síðan frá réttu (þannig að það verða 2 umferðir frá réttu á eftir hvorri annarri) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni (brugðið í þessari umferð), A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (þ.e.a.s. 6 lykkjur brugðið í þessari umferð). Í næst síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 47-56-56-57-66-67 lykkjur (fækkið/aukið út yfir 6 kantlykkjur að framan). Prjónið síðustu umferð í A.1. Nú er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, XXL, XXXL:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 4-5-6 lykkjur slétt, A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-3-3 sinnum á breidd, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Stærð M, L og XL:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4 lykkjur slétt, A.5 (= 10 lykkjur), A.4 (= 18 lykkjur) alls 2-2-2 sinnum á breidd, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Allar stærðir:
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá hlið fyrir handveg = 44-53-53-62-62 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 31-39-39-39-47-47 lykkjur og fækkið jafnframt 0-4-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir (= 31-35-39-39-43-47 lykkjur fyrir öxl), prjónið slétt yfir síðustu 13-14-14-14-15-15 lykkjur (sjalkragi). Snúið og prjónið slétt yfir allar lykkjur í umferð.
Snúið og fellið af fyrstu 31-35-39-39-43-47 lykkjur fyrir öxl. Stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Prjónið nú sjalkraga fram og til baka yfir 13-14-14-14-15-15 lykkjur með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1-5: Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt yfir fyrstu 6-7-7-7-7-7 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 7: Prjónið slétt til baka.
UMFERÐ 8: Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
Endurtakið umferð 1-8 þar til kraginn mælist 7-7-7½-7½-8-8 cm þar sem stykkið er styst, mælt frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á stuttan hringprjón.
Fitjið upp 76-76-88-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 64-64-72-72-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur A.1 umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið mynstur A.2. Endurtakið A.2 á hæðina alls 2 sinnum. Stykkið mælist nú ca 17 cm. Prjónið nú A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 4-0-4-2-6-4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.3. Haldið áfram þar til stykkið mælist alls 42-40-38-38-37-35 cm. Haldið nú áfram með A.3 en prjónið fram og til baka þannig að það myndist smá klauf mitt undir ermi (þetta er gert til að auðveldara sé að setja ermina við fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki). Þegar ermin mælist alls 44-42-40-41-40-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Síðasta hluta á ermi sem prjónaður er fram og til baka er saumaður við þar sem 3-3-3-4-4-5 lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið á hinni hliðinni. Saumið sjalkragann saman við miðju að aftan innan við affellingarkantinn og saumið kragann við hálsmálið að aftan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Merete Wøhlk wrote:

Hej Jeg kan ikke se nogen indtagning til v udskæringen. Kommer den af sig selv på grund af mønsteret, eller har jeg bare ikke set ordenligt efter. Venlig hilsen Merete

30.10.2023 - 14:49

DROPS Design answered:

Hej Merete, jakken har sjalskrave og den strikkes lige op, se måleskitsen nederst i opskriften, hvordan det skal se ud :)

31.10.2023 - 08:46

country flag Tok wrote:

I'm having trouble understanding the front band, from the pattern is knitted 6 stitch for the band. But from the model picture, the band seem to be picked up and knit afterward.

23.11.2022 - 10:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tok, the front band stitches are 6 stitches worked in garter stitch at the bottom + at the end of the row (on body) - the last picture migh help you seeing how they look at. Happy knitting!

23.11.2022 - 15:37

country flag Morgan Bediat wrote:

Bonjour. Je viens de commencer le dos . Après les côtes 2/2 il faut faire 1 fois A1 et 2 fois A2 .mais si je comprend bien sur le schéma de A1 seul les rang endroit sont visibles ,donc 12 rangs sur le schéma ce qui ramène avec les rangs envers a 24 rangs. 10cm étant égal à 20 rangs d'après l'échantillon je ne comprend pas comment l'ouvrage peut mesurer 17cm après A2 . Pouvez vous m'aider svp .merci

10.09.2022 - 18:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bediat, tous les rangs figurent dans les diagrammes, aussi bien ceux sur l'endroit que ceux sur l'envers, ainsi A.1 va se tricoter sur 12 rangs ainsi: 1 rang end sur l'end, 1 rang env sur l'env, 1 rang end sur l'end, 1 rang end sur l'env, 1 rang end sur l'end, 1 rang env sur l'env, 1 rang env sur l'end, 1 rang env sur l'env, 1 rang end sur l'end, 1 rang end sur l'env, 1 rang end sur l'end et 1 rang env sur l'end. Bon tricot!

12.09.2022 - 09:41

country flag Raabia wrote:

Hi, I'm working on the back, the A4 part of the pattern and the lines look very joined together. Not like the picture at all. The horizontal line joins with the vertical line. I've checked the pattern and I'm not doing anything wrong

13.04.2022 - 01:06

DROPS Design answered:

Dear Raabia, the resulting pattern may depend on your gauge. The rib also is sometimes tight when worked; you can block that part with steam, so that the stitches open up more and start forming a texture. Happy knitting!

14.04.2022 - 19:00

country flag Mona Johansen wrote:

Hei. 😊Er det feil i forklaringen til mønster A4 på ryggen i str M ,får ikke mønsteret til å gå opp på 1 runde på A4 når jeg gjør som forklart? 3 rett masker pluss 1 rille maske før mønsteret ,(str M) og avslutte med 4 rett masker pluss en rille....? \r\nMvh Mona 😊

21.01.2022 - 11:56

DROPS Design answered:

Hej Mona. Jo det ska gå opp; 1+3+(18*5)+4+1= 99 m. Mvh DROPS Design

21.01.2022 - 12:00

country flag Paula wrote:

Hola, en la espalda después de la siza se termina solo tejiendo el patrón de A5 o se turna con A4.

12.11.2021 - 22:45

DROPS Design answered:

Hola Paula, depende de la talla. En las tallas M y XL trabajas solo A.4, en el resto A.4 y A.5.

14.11.2021 - 19:39

country flag Montserrat Fellay wrote:

Comment peut ton augmenter à 57 mailles quand on en a déjà 63 maille la je comprend pas comment vous faite sa Merci j espère que je suis assez claire

31.05.2021 - 02:00

DROPS Design answered:

Si vous aviez 63 mailles (= XL) au début du devant droit, vous devrez diminuer 6 mailles à intervalles réguliers dans les mailles de A.1 (cette leçon explique comment faire) autrement dit 63-6= 57 mailles. Bon tricot!

31.05.2021 - 08:09

country flag Montserrat Fellay wrote:

Voici la fin pouvez vous m aide à comprendre ses 3 mail que je vous est envoyez Modèle n ai 228 A.1 jusqu'à ce qu'il reste 1 maille et 1 maille lisière au point mousse (la tricoter à l'envers sur ce rang). Au dernier rang de A.1, ajuster le nombre de mailles à 47-56-56-57-66-67 mailles (ne pas diminuer/augmenter au-dessus de la bordure devant). Tricoter maintenant en fonction de la taille ainsi:

31.05.2021 - 01:22

DROPS Design answered:

Les réponses précédentes ont-elles pu vous aider?

31.05.2021 - 08:07

country flag Montserrat Fellay wrote:

Suite dés explication que je ne comprend pas Couper le fil et continuer sur l'endroit (2 rangs sur l'endroit l'un après l'autre) ainsi: 6 mailles de bordure devant au point mousse (c'est-à-dire tricoter ces 6 mailles à l'envers sur ce rang),

31.05.2021 - 01:18

DROPS Design answered:

... Coupez votre fil à la fin de ce rang 1,3,5 ou 7 de A.3, et tricotez le rang suivant de nouveau sur l'endroit = vous tricotez ainsi 2 rangs sur l'endroit l'un après l'autre. Pour que le point mousse continue correctement, tricotez les 6 mailles à l'envers au 2ème rang sur l'endroit et tricotez ainsi: 6 m env (=bordure devant), tricotez A.1 et terminez par 1 m lis au point mousse (= à tricoter à l'envers). ..

31.05.2021 - 08:06

country flag Montserrat Fellay wrote:

Je vous pause une question en plusieurs fois car tout ne rentre pas Je ne comprend pas A.1. Continuer jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 32-34-36-34-36-34 cm – ajuster pour arrêter après un rang sur l'endroit (c'est-à-dire après un rang 1,3,5 ou 7 du diagramme).

31.05.2021 - 01:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Montserrat Fellay, vous tricotez d'abord A.1, puis 2 x A.2 en hauteur, A.1 et A.3; quand votre ouvrage mesure 32 à 34 cm (cf taille), mais ajustez cette longueur de sorte que vous ayez tricoté un rang 1, 3, 5 ou 7 du diagramme A.3, autrement dit après un rang sur l'endroit...

31.05.2021 - 08:04