Leaf Play |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og blaðamynstri Stærð S - XXXL.
DROPS 205-5 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 46 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ATH: Í mynsturteikningu A.1 og A.2 er aukið út í blaðamynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu, fylgdu mynsturteikningunni vel. Í viðbót eru lykkjur sem auknar hafa verið út fyrir laskalínu teiknaðar inn í mynsturteikningu (sjálf útaukningin fyrir laskalínu er teiknuð inn). LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma þannig: Aukið út á eftir/á undan lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn að framstykki og bakstykki prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat. Uppslátturinn að ermum er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Lykkjur með prjónamerki í (= laskalínu lykkjur) eru prjónaðar slétt í hverri umferð á öllu berustykkinu. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist síðan í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 46-48-50-52-54 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-8-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 58-58-58-64-66 lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin merkja laskalínuna og eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. ATH: Prjónamerkin eru sett án þess að prjóna lykkjurnar. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð, teljið 6-6-6-7-8 lykkjur (= hægri ermi þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-23-23 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6-6-6-7-8 lykkjur (= vinstri ermi þegar flíkin er mátuð) og setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 21-21-21-23-23 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Setjið 1 prjónamerki mitt í framstykki. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið lykkju með prjónamerki í slétt (= laskalínu lykkja), Aukið út fyrir LASKALÍNU eftir þessa umferð – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón yfir lykkjurnar á ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við næstu laskalínu lykkju, prjónið A.1 yfir fyrstu 14-14-14-15-15 lykkjurnar á framstykki, prjónið A.2 yfir 7-7-7-8-8 lykkjur á framstykki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við næstu laskalínu, prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalínu lykkju, prjónið A.1 yfir fyrstu 14-14-14-15-15 lykkjur á bakstykki, prjónið A.2 yfir 7-7-7-8-8 lykkjur á bakstykki og aukið út fyrir laskalínu á undan laskalínu lykkju. Haldið áfram með MYNSTUR svona – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalínu lykkjurnar í annarri hverri umferð alls 9-11-11-14-14 s (meðtalin útaukning sem er útskýrð í fyrstu umferð) – nýjar lykkjur á framstykki og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og sýnt er í A.1 og A.2 Á ermum eru prjónaðar nýjar lykkjur í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir allar útaukningar fyrir laskalínu eru 154-170-170-204-206 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, án útaukninga fyrir laskalínu. Þegar síðasta umferð í A.1 og A.2 er eftir, mælist stykkið ca 20-23-23-26-26 cm frá þar sem prjónamerki var sett í framstykki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 26-30-30-37-38 lykkjur á þráð fyrir ermi (þ.e.a.s. 1. og 2. laskalínu lykkja + 24-28-28-35-36 lykkjur á milli þessa 2 laskalínu lykkja), fitjið upp 4-4-8-4-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu umferð í A.1 og A.2 yfir 51-55-55-65-65 lykkjur á framstykki, setjið næstu 26-30-30-37-38 lykkjur á þráð fyrir ermi (þ.e.a.s. 3. og 4. laskalínu lykkju + 24-28-28-35-36 lykkjur á milli þessa 2 laskalínu lykkja), fitjið upp 4-4-8-4-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu umferð í A.1 og A.2 yfir 51-55-55-65-65 lykkjur á bakstykki. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-146 lykkjur. Prjónið að miðju á 4-4-8-4-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Umferðin byrjar nú hér og fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2-2-4-2-4 lykkjur brugðið, prjónið A.3 yfir næstu 29-33-33-37-37 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 22-22-22-28-28 lykkjur, prjónið 4-4-8-4-8 lykkjur brugðið (= í hlið), prjónið A.3 yfir næstu 29-33-33-37-37 lykkjur, prjónið A.4 yfir næstu 22-22-22-28-28 lykkjur og endið með 2-2-4-2-4 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 30-30-32-30-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 57-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 26-30-30-37-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-8-4-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 30-34-38-41-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-8-4-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! (það má ekki prjóna ermina of fasta). Þegar ermin mælist 4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-4-3-2-1½ cm millibili alls 2-3-4-5-7 sinnum = 26-28-30-31-32 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-16-16-15-15 cm frá skiptingu, aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 30-32-34-35-36 lykkjur. Endurtakið útaukningu þegar ermin mælist 18-18-18-17-17 cm frá skiptingu = 34-36-38-39-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-35-33-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-1-0 lykkjur = 34-36-38-38-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-40-38-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Mirjam wrote:
Flot mønster, men for voldsomt på så tykke pinde.
22.06.2019 - 19:29Soussou wrote:
Je crains qu'il soit grossissant à cause de l'épaisseur du fil et du motif en relief. A réserver aux sylphides ...
21.06.2019 - 15:07Cécile wrote:
Dans l'air du temps !
15.06.2019 - 13:10Regina wrote:
Herrlich soviel Pullis mit Eskimo! Das macht Spass und geht schnell. Bitte einen eiskalten Winter. Ich hoffe, der Rücken hat auch das Blattmuster.
12.06.2019 - 22:22Siri wrote:
Min absolutte favoritt! Trenger en slik i minst tre-fire farger! Håper håper håper denne blir en del av kolleksjonen!
11.06.2019 - 00:55Ellis wrote:
Again very thick yarn and big needles, quick but not elegant
08.06.2019 - 20:41