DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Simply Confident

Prjónuð peysa með laskalínu og v-hálsmáli úr DROPS Lace og DROPS Kid-Silk eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-14
DROPS Design: Mynstur la-042
Garnflokkur A + A eða B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-150-150-150-200 g litur 0501, ljós grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 10, grár

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 04, grár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði Lace + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þráð Sky = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR-1 (á við um hægri kant í hálsmáli):
Byrjið frá réttu og prjónið þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 3 fyrstu lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 4 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum.

STUTTAR UMFERÐIR-2 (á við um vinstri kant í hálsmáli):
Byrjið frá röngu og prjónið þannig: * 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 3 fyrstu lykkjur, 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 4 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu yfir allar 4 lykkjur.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki situr hér), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt af prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 2 lausir kantar í hálsmáli. Þeir eru settir inn á hringprjóninn þegar fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift (kantar í hálsmáli eru síðar saumaðir saman við miðju að aftan og saumaðir síðan við hálsmál aftan í hnakka).
Prjónið síðan berustykki fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður, JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli og laskalínu. Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið er prjónað áfram í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjón 3,5 með Lace + Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Sky og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan (1. umferð = rétta).
Þegar kantur í hálsi mælist ca 6-6-6½-6½-7-7½ cm, prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 4 lykkjur í 6 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu (allur hægri kantur í hálsmáli mælist nú ca 14-14-14½-14½-15-15½ cm innst þar sem stykkið er styst). Klippið frá og geymið kantinn í hálsmáli.
Prjónið vinstri kant í hálsmáli á sama hátt, en þegar kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6½-6½-7-7½ cm, prjónið STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eins og útskýrt er að ofan, prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 4 lykkjur í 6 cm í öllum stærðum, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu (allur vinstri kantur í hálsi mælist nú ca 14-14-14½-14½-15-15½ cm innst þar sem stykkið er styst). Setjið lykkjur á hringprjón 4, ekki klippa þráðinn frá, en fitjið nú upp 66-66-68-68-70-72 lykkjur á sama hringprjón strax eftir vinstri kant í hálsmáli og prjónið nú síðan slétt frá röngu yfir 4 lykkjur í hægri kanti í hálsmáli = 74-74-76-76-78-80 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur garðaprjón = 76-76-78-78-80-82 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 4 lykkjur fyrir kant í hálsmáli í annarri hliðinni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 5 lykkjur inn frá hvorri hlið, þ.e.a.s. eftir 4 lykkjur garðaprjón + 1 lykkja slétt (= í skiptinguna á milli framstykkis og erma), setjið næstu 2 prjónamerki eftir 16 nýjar lykkjur í hvorri hlið (= í skiptinguna á milli erma og bakstykkis). Nú eru 34-34-36-36-38-40 lykkjur á milli 2 síðustu prjónamerkja sem sett voru í stykkið (= bakstykki). Prjónið sléttprjón með 4 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið við v-hálsmáls mitt að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 24-28-31-34-36-38 sinnum.

V-HÁLSMÁL:
Í 3. umferð byrjar útaukning fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 4. hverri umferð 4-5-6-7-8-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 10-9-9-8-8-9 sinnum (= alls 14-14-15-15-16-17 lykkjur fleiri fyrir v-hálsmái í hvorri hlið).
Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, klippið frá. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan á peysuna. Nú er þetta byrjun á umferð. Prjónið nú stykkið áfram hringinn frá réttu og yfir 8 lykkjur í garðaprjóni er prjónað mynstur A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur fækkað um 4 lykkjur í mynsturteikningu. Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og laskalínu (+ 4 úrtökur í A.1) er lokið eru 292-324-352-376-396-416 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-21-23-25-28-30 cm frá prjónamerki. Endið umferð mitt á bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig:
ATH: Stykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki og 1-1-1-2-4-6 lykkjur frá hvorri hlið á ermum eru prjónaðar inn á prjóninn fyrir fram- og bakstykki, þannig að skiptingin á milli fram- og bakstykkis og ermar er ekki lengur við prjónamerkin: Prjónið fyrstu 42-46-50-54-59-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 62-70-76-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-92-100-108-118-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-46-50-54-59-64 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-220-236-260-288 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjón 4. Þegar stykkið mælist 30-30-30-30-29-29 cm, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 62-70-76-80-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4.
Prjóni að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-10-10-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 70-78-86-90-92-96 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-5-5-6-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-17-17-18 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Þegar ermin mælist 44-43-42-41-38-37 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af. Ermin mælist ca 45-44-43-42-39-38 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan þannig að saumurinn komi á röngu. Strekkið aðeins á kantinum í hálsmáli og saumið við hálsmál aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = bruðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Ela wrote:

Dziękuję za wyjaśnienie:) bardzo czytelny film.

06.03.2023 - 10:28

country flag Elżbieta wrote:

Witam, czy obszycie dekoltu dotyczy tylko tyłu czy nie?Lewe obszycie 14 cm + prawe obszycie 14 cm = 28 cm a na schemacie tyłu w rozmiarze M jest 16 cm. Jak to rozumieć ?

05.03.2023 - 13:46

DROPS Design answered:

Witaj Elu, zobacz video TUTAJ. To taki sam rodzaj konstrukcji, łatwiej jest sobie wyobrazić kształt dekoltu. Pozdrawiamy!

06.03.2023 - 09:47

country flag Dominika wrote:

Nie wiem czy czegoś nie widzę, ale ile mam nabrać oczek na start?

21.02.2023 - 12:22

DROPS Design answered:

Witaj Dominiko, zaczynamy od obszycia dekoltu (od góry swetra) i na drutach nr 3,5 należy nabrać 4 oczka. Dalej przerabiaj jak w opisie. Pozdrawiamy!

21.02.2023 - 13:34

country flag Iwona wrote:

Dzięki!!

08.11.2022 - 20:08

country flag Iwona wrote:

...jestem przy rozmieszczeniu markerów

04.11.2022 - 15:45

DROPS Design answered:

Witaj, po rozmieszczeniu nitek/markerów (są między oczkami, a nie w oczkach) w 1-szym rz. dodajesz 8 oczek na reglan. Przerabiasz 2-gi rząd na lewej stronie (narzuty przekręcając, aby uniknąć dziur). W 3-cim rzędzie dodajesz jednocześnie: 1) oczka na reglan (8 oczek) i 2) 2 oczka na formowanie dekoltu V. Obszycia dekoltu (które będą doszyte do dekoltu tyłu) są już gotowe i tutaj nie dodajesz żadnych oczek. Tak więc są rzędy gdzie dodasz 8 oczek oraz rzędy gdzie dodasz 10 oczek. Zaznaczam sobie to zawsze na osobnej kartce, aby nie pomylić częstotliwości dodawania oczek na poszczególnych fragmentach robótki. Pozdrawiamy!

07.11.2022 - 08:53

country flag Iwona wrote:

...czyli w jednym rzędzie dodać 12 oczek? (2 przy obszyciu, 2 przy dekolcie, 8 przy rękawach?

04.11.2022 - 15:27

DROPS Design answered:

Witaj Iwono, w którym miejscu we wzorze jesteś?

04.11.2022 - 15:37

country flag Iwona wrote:

Witam. Piszecie: " Dodać 1 oczko w odl. 4 oczek ściegiem francuskim od brzegu z każdej strony wykonując 1 narzut." oraz "Przerabiać kolejny rząd na lewej stronie robótki następująco: 4 oczka ściegiem francuskim, przerobić 2 razy następne oczko ". Nie rozumiem. Iwona

02.11.2022 - 19:38

DROPS Design answered:

Witaj Iwono, 'Przerabiać kolejny rząd na lewej stronie robótki następująco: 4 oczka ściegiem francuskim, przerobić 2 razy następne oczko ' dotyczy obszycia dekoltu. 'Dodać 1 oczko w odl. 4 oczek ściegiem francuskim od brzegu z każdej strony wykonując 1 narzut.' dotyczy dodawania oczek na formowanie dekoltu V. Pozdrawiamy!

04.11.2022 - 08:50

country flag Katja wrote:

Ich möchte gerne den Pulli stricken mit der Wollempfehlung drops lace. Ich finde diese Wolle aber nicht . Ist sie umbenannt worden oder gibt es eine Alternative? Viele Grüße Katja

24.02.2022 - 09:49

DROPS Design answered:

Liebe Katja, DROPS Lace gibt es jetzt nicht mehr, benutzen Sie den Garnumrechner um die beste Alternative zu finden- BabyAlpaca Silk hat die selbe Zusammensetzung. Ihr DROPS Laden kann Ihnen gerne damit auch telefonisch oder per E-Mail -helfen, die beste Alternative zu finden. Viel Spaß beim stricken!

24.02.2022 - 10:48

country flag Anita LE GOFF BLANCO wrote:

Bonjour Pour faire suite à mon message du 31 05 2021 Pouvez vous me dire où trouver la vidéo technique pour la couture du col en rangs raccourcis- merci

10.10.2021 - 20:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Goff Blanco, cette vidéo est peut être celle qui vous conviendra, elle montre, à partir du time code 13:04, comment on va assembler le col (tricoté en rangs raccourcis pour un gilet) au milieu dos, puis le long de l'encolure. Bon tricot!

11.10.2021 - 07:56

country flag Kikiceleste wrote:

Bonjour, Existe-t-il un modèle qui ressemble à ce pull mais avec des explications plus faciles/ claires… je ne me sens pas capable avec ces explications. Je suis une tricoteuse « intermédiaire «  Merci d’avance

31.08.2021 - 10:07

DROPS Design answered:

Bonjour Kikiceleste, suivez attentivement toutes les indications pas à pas, posez vos question ici si besoin et /ou demandez de l'aide à votre magasin ou bien dans le groupe DROPS Workshop - ou bien encore, consultez la liste de nos modèles, l'un d'eux vous "parlera" peut-être davantage? Bon tricot!

31.08.2021 - 12:01