DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Past to Present

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í vinkil með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-1
DROPS Design: Mynstur sk-042
Garnflokkur B + B eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-200 g litur 05, svartur
100-100-100-100-100-150 g litur 07, ljós sægrænn
100-100-100-100-100-150 g litur 11, heslihneta
100-100-100-100-100-150 g litur 01, hvítur
100-100-100-100-100-150 g litur 19, tígulsteinn

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS Sky 05, 17, 08, 01, 14
B) DROPS Sky 05, 11, 06, 18, 07
C) DROPS Sky 05, 10, 12, 01, 13

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 5,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

RENDUR:
Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum ljós sægrænn.
4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum heslihneta
4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum hvítur
4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum múrsteinn
4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum svartur
Endurtakið síðan þessar 5 rendur til loka.

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju að framan/aftan + axlir):
Prjónið að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= gat). Það er aukið út um 8 lykkjur alls í hverri útauknings umferð.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Útskýring með táknum sýnir hvernig stykkin eru prjónuð þegar prjónað er fram og til baka

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið mitt að framan/mitt að aftan og það er prjónað fram og til baka í 2 hlutum (= hliðar).
Stroffið er prjónað í hring í lokin.
Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir miðju/mitt undir og prjónað er fram og til baka í eitt stykki (= neðan á ermi). Stroffið er prjónað í hring í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 58-60-62-64-68-72 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-14-12-16-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 68-68-76-76-84-84 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Prjónið næstu umferð jafnframt og sett eru 4 prjónamerki (látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð fyrir útaukningu), þannig: prjónið 1 lykkju slétt og setjið fyrsta prjónamerkið í þessa lykkju (= mitt á öxl), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið annað prjónamerki í þessa lykkju (= mitt að aftan), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið þriðja prjónamerkið í þessa lykkju (= mitt á öxl), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið fjórða prjónamerkið í þessa lykkju (= mitt að framan), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur sem eftir eru slétt.
Síðan er prjónað sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-24-26-28-29-32 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 244-260-284-300-316-340 lykkjur í umferð (= 60-64-70-74-78-84 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki í). Stykkið mælist ca 29-32-35-37-39-43 cm, mælt í prjónstefnu frá eftir kanti í hálsmáli. Klippið frá.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Setjið fyrstu 25-25-29-31-31-31 lykkjur á þráð fyrir hálfri ermi, fitjið upp 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-85-89-97-109 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 49-49-57-61-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-85-89-97-109 lykkjur (= framstykki), setjið 24-24-28-30-30-30 lykkjur sem eftir eru á fyrsta þráðinn fyrir ermi og fitjið upp 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í hvorri öxl og setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju mitt að framan. Látið prjónamerkin sitja þar – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-172-184-192-212-236 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og setjið 1 prjónamerki í 3.-3.-4.-4.-5.-5. lykkju af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir annarri erminni, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu (= hliðar).
Haldið áfram í sléttprjóni, rendur og útaukningu mitt að aftan og mitt að framan eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur við hvort eitt af 2 nýju prjónamerkjum í hliðum – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð til loka.
Prjónið þar til stykkið mælist 13-13-13-13-11-7 cm mitt að framan, mælt frá prjónamerki í miðju lykkju frá skiptingu (eða prjónið áfram að óskuðu máli, nú eru eftir ca 5 cm með stroffi að loka máli) – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð án úrtöku/útaukninga. Klippið frá.
Setjið lykkju með prjónamerki í mitt að aftan + lykkjur fram til á undan lykkju með prjónamerki í mitt að framan á 1 þráð (= hálft bakstykki + hálft framstykki), það á að prjóna yfir þessar lykkjur aðeins síðar. Nú er hálft framstykki og hálft bakstykki á prjóni.

HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Sjá útskýringu með táknum í A.1 fyrir þennan part. Byrjið frá réttu og fellið af lykkju með prjónamerki í mitt að framan/mitt að aftan. Haldið áfram með sléttprjón, rendur og úrtöku við prjónamerki í hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 7 og prjónið á sama hátt og hitt hálft framstykki/bakstykki.

NEÐRI KANTUR:
Byrjið í annarri hliðinni og prjónið upp ca 156-168-180-196-216-232 lykkjur meðfram öllum neðri kanti á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum í litnum svartur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – SJÁ AFFELLING.

ERMI:
Setjið 49-49-57-61-61-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-54-64-68-70-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 3.-3.-4.-4.-5.-5. lykkju af 5-5-7-7-9-9 lykkjum undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Haldið áfram í sléttprjóni, röndum og útaukningu mitt á ermi eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við prjónamerki undir ermi – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð til loka.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 23-21-20-18-14-9 cm mitt á ermi, mælt frá prjónamerki í miðju lykkju frá skiptingu (eða prjónið áfram að óskuðu máli, nú er eftir ca 5 cm stroff til loka) – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð án útaukninga/úrtöku.
Nú er prjónað fram og til baka – sjá útskýringu á táknum A.2 fyrir þennan hluta. Byrjið frá réttu og fellið af lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. Haldið áfram með sléttprjón, rendur og úrtöku við prjónamerki mitt undir ermi – JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Á ERMI:
Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp ca 52-56-64-64-68-72 lykkjur meðfram öllum neðri kanti á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum í litnum svartur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = mitt að framan
symbols = mitt að aftan
symbols = mitt ofan á ermi
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Veronique31 wrote:

J'en rêvais...

11.07.2019 - 14:40

country flag Maria Letizia wrote:

Originale nella costruzione e nell'abbinamento colore

03.07.2019 - 17:26

country flag Inês wrote:

Muito chique e elegante!!!

02.07.2019 - 00:29

country flag Claire wrote:

Un maravilloso diseño, hermosa combinación de colores.

17.06.2019 - 21:00

country flag Inger Jensen wrote:

Fantastic way to use leftovers.

11.06.2019 - 20:22

country flag Sylvie wrote:

Les couleurs sont jolies mais les rayures en diagonale alourdissent la silhouette à moins d'être très mince comme le mannequin.

10.06.2019 - 20:00

country flag Marie wrote:

Très beau. J ai hâte que les explications soient publiées

09.06.2019 - 22:05

country flag Astrid wrote:

Ik vind echt een prachtig patroon

08.06.2019 - 23:55

country flag Christina Helander wrote:

Jättefin!

08.06.2019 - 13:41

country flag Patrizia Smach wrote:

Magnifique je l’adore !!!

07.06.2019 - 07:19