DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9812.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Remember When

Prjónuð peysa með laskalínu og áferð úr DROPS Nepal og DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með uppábroti í hálsmáli. Stærð S – XXXL.

DROPS 205-23
DROPS Design: Mynstur ne-322
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 0100, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200 g litur 01, natur
Eða notið 1 þráð:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
400-500-550-600-650-700 litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9812.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 53 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 14.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á ermum og í mynstri A.1 á framstykki og bakstykki.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 56-58-60-64-64-68 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm (= uppábrot). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 60-60-60-64-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið nú mynstur þannig: Setjið 1 prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 19-19-19-21-23-25 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), sléttprjón yfir næstu 9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 19-19-19-21-23-25 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), sléttprjón yfir næstu 9 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú eru 4 prjónamerki í stykki. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu og sýna skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma. Haldið svona áfram með mynstur hringinn, jafnframt í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-19-21 sinnum = 180-196-204-216-220-240 lykkjur. Haldið síðan áfram með sömu útaukningu á fram- og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð með útaukningu) 1-1-1-2-3-3 sinnum til viðbótar. Nú hefur verið aukið út alls 16-18-19-21-22-24 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-18-19-19-21 sinnum á ermum = 184-200-208-224-232-252 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist berustykki ca 21-24-25-28-29-32 cm frá prjónamerki og niður mitt að framan. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón þar til stykki mælist 22-24-26-28-30-32 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 53-57-59-65-69-75 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 39-43-45-47-47-51 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 53-57-59-65-69-75 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-47-47-51 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 116-124-132-144-156-168 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 hringinn eins og áður. ATH: Mynstrið á að halda áfram eins og áður yfir lykkjur frá berustykki og mynstur gengur jafnt upp alla leiðina hringinn í umferð.
Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist ca 20 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-26-26-30-34 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 136-148-158-170-186-202 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 39-43-45-47-47-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-54-56-60 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 35-33-32-30-29-27 cm aukið út um 8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-62-64-66-70 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 39-37-36-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá stroffið efst í hálsmáli innan að stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það brotni uppá kantinn. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of stíft og snúi út þá er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur og ekki stífur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Deni wrote:

Thanks for your prompt reply however I didn't quite understood :(. Is it possible to maybe elaborate simpler with sketch maybe?

05.01.2023 - 18:08

DROPS Design answered:

Dear Deni, the increases will let the pattern grow in width, ie when you increase before A.1 you have to work the new stitch either K or P depending of the next stitch: if the first st in A.1 is a P stitch (like 1st stitch then work the new st before A.1 with P and after A.1, if the last st worked is a P st, then work the new st as a K. the pattern should grow on each side incorporating new sts in the pattern. Happy knitting!

06.01.2023 - 08:41

country flag Deni wrote:

Hi,I'm knitting size xxl and need assistance with the increasing part of raglan,how do I knit newly increased stitches so that pattern outside of A1 section is maintained?

04.01.2023 - 16:12

DROPS Design answered:

Dear Deni, the new stitches increased are worked following A.1, ie the new stitch before A.1 is worked like the last stitch of the next repeat and the new stitch after A.1 is worked like the first stitch of the next repeat, after 2nd increase, work the new sts as the next to last st before A.1 and like the 2nd st next repeat after A.1 and continue like this so that the pattern is growing on the sides but continue in the middle. Happy knitting!

05.01.2023 - 10:46

country flag Anna wrote:

Il gettato nel ferro successivo va lavorato esclusivamente a diritto ritorto o può essere lavorato anche a rovescio ritorto a seconda di quello che dice A1 (quando A1 comincia con un rovescio)?Cioè, A1 comincia dopo i nuovi gettati o questi fanno parte del motivo?

24.01.2022 - 08:42

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, i gettati si lavorano a diritto ritorto sul ferro successivo. Buon lavoro!

24.01.2022 - 22:42

country flag Mel wrote:

Thank you for your reply. Another question I have is, does that k1 overlap with the knit stitches involved in raglan increases? Because the increase is yo, k1, slip marker, k1, yo. Then do we k1 and do A1 or just A1? Thank you so much for your help

10.01.2022 - 08:48

DROPS Design answered:

Dear Mel, this knit 1 on either side of A.1 is one of the raglan stitches, ie you should always have 2 knitted stitches on each raglan with the marker thread between these stitches and increase then on either side of these 2 sts. (as explained under RAGLAN). Happy knitting!

10.01.2022 - 09:16

country flag Mel wrote:

Hi, I'm knitting a size S and I'm confused by the yoke section. It says to K1, A1, K1, stocking stitch over, K1, A1, k1, stocking stitch. And then we continue this pattern while increasing every 2nd round. Do we always do K1, or does that sometimes become a P1 depending on what A1 says? Thank you!

09.01.2022 - 19:02

DROPS Design answered:

Hi Mel, You knit 1 before and after each A.1, then work A.1 according to the diagram. Happy knitting! Happy knitting!

10.01.2022 - 08:29

country flag Chiara wrote:

Penso di aver risolto: inizio il motivo A1 con il dritto e non con il rovescio. In qst modo entrami i lati del REGLAN saranno uguali. Speriamo, è la terza volta che disfo.

14.02.2021 - 12:46

DROPS Design answered:

Buonasera Chiara, il diagramma A.1 inizia con 1 maglia rovescio: probabilmente sbaglia a lavorare il gettato prima del rovescio. Buon lavoro!

14.02.2021 - 19:44

country flag Chiara wrote:

Anche così il punto di aumento davanti sinistro (guardando frontalmente) è diverso, più largo da quello di destra. Io faccio (dopo il marcapunti che separa spalla destra dal davanti): una maglia dritto gettato girando due volte, poi rovescio e dritto fino alla penultima maglia, poi gettato, lavoro ultima maglia a dritto, passo segnapunti e passo alla spalla sinistra. Facendo così, il primo aumento è più largo del secondo e risultano diversi. Sto facendo corretto? Grazie!

13.02.2021 - 21:16

country flag Chiara wrote:

Buongiorno, ma dopo il primo marcapunti, faccio dritto, un gettato e un rovescio dello schema ma mi si crea un “buco” maggiore a quello che esce se faccio dritto gettato dritto, nonostante al giro successivo il li lavori a dritto ritorto. Forse sbaglio a entrare nel rovescio quando faccio gettato. Spero sia comprensibile la mia problematica

12.02.2021 - 00:54

DROPS Design answered:

Buonasera Chiara, sbaglia la lavorazione del gettato prima del rovescio, deve avvolgere 2 volte il filo prima del rovescio. Buon lavoro!

12.02.2021 - 23:06

country flag Ans Wisselink wrote:

Als ik dit wil breien met enkele draad, hoeveel meter heb ik dan nodig.

13.12.2020 - 11:37

DROPS Design answered:

Dag Ans,

Je hebt dan hetzelfde aantal meters nodig. M.a.w.: je kunt één van de draden weg laten. De stekenverhouding verandert dan wel in de stekenverhouding zoals aangegeven bij het betreffende garen, dus zul je het patroon op basis daarvan ook om moeten rekenen.

17.12.2020 - 23:26

country flag Lisbet Hjelmaas wrote:

Er det bare på vrangborden det skal brukes dobbel trå, har lest oppdriften noen ganger, ser at det starter med dobbel trå men ser ikke hvor det slutter. En som lurer

07.08.2020 - 11:53

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth, Hele plagget skal strikkes med 1 tråd av hver kvalitet. God fornøyelse!

10.08.2020 - 06:56