DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Urban Autumn

Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í einlitu klukkuprjóni og tveggja lita klukkuprjóni í röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-26
DROPS Design: Mynstur ai-219
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL
Höfuðmál: Ein stærð

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-300 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 27, sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 17, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 09, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 06, svartur

PEYSA:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250-250-300-300 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 27, sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 17, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 09, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 06, svartur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 30 umferðir (15 umferðir talið í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
Ein stærð

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 02, hveiti
50 g litur 27, sægrænn
50 g litur 17, gallabuxnablár
50 g litur 09, sæblár
50 g litur 05, brúnn
50 g litur 06, svartur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 36 umferðir (18 umferðir talið í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS AIR 02, 20, 28, 05, 07, 06
B) DROPS AIR 02, 26, 19, 05, 12, 06

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.4 og A.5.

LEIÐBEININGAR (á við um lykkjufjölda):
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja.

RENDUR A.1 (á við um peysu):
Örvar í A.1 sýna hvaða lit á að byrja með, annað hvort aðal lit (A) eða með auka lit (B). Prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B).
A: hveiti (H), gallabuxnablár (B).
B: hveiti (H), sægrænn (B).
C: hveiti (H), gallabuxnablár (B).
D: hveiti (H), sæblár(B).

RENDUR A.2 (á við um peysu):
Örvar í A.2 sýna hvaða lit á að byrja með, annað hvort aðal lit (H) eða með auka lit (B). Prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B). Með 2 litum, prjónið aðra hverja umferð með (H) og (B).
A: sæblár(H).
B: sægrænn (H).
C: brúnn (H).
D: svartur (H).
E: sægrænn (H), svartur (B).
F: hveiti (H), brúnn (B).
G: brúnn (H).
H: hveiti (H).
I: hveiti (H), sæblár(B).
J: hveiti (H), gallabuxnablár (B).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

ÚRTAKA (á við um ermar, einungis í stærð L, XXL og XXXL):
Fellið af til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í umferð með (H).
Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðin + 1 lykkja og uppsláttinn), steypið síðan óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð þannig:
Takið fyrstu lykkjuna og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, steypið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem var sett til baka yfir á vinstri prjón, að lokum yfir þá lykkju sem eftir er á hægra prjóni (= 2 lykkjur færri).

RENDUR A.4 (á við um húfu):
Örvar í A.4 sýna hvaða lit byrjað er með, annað hvort aðal lit (H) eða auka lit (B). Þegar prjónað er með 2 litum, er önnur hver umferð prjónuð með (H) og (B).
A: hveiti (H), gallabuxnablár (B).
B: hveiti (H), sægrænn (B).
C: hveiti (H), gallabuxnablár (B).
D: hveiti (H), sæblár(B).
E: sæblár(H).

RENDUR A.5 (á við um húfu):
Örvar í A.5 sýna hvaða lit byrjað er með, annað hvort aðal lit (H) eða auka lit (B). Þegar prjónað er með 2 litum, er önnur hver umferð prjónuð með (H) og (B).
A: sægrænn (H)
B: brúnn (H).
C: svartur (H).
D: sægrænn (H), svartur (B).
E: vete (H), brúnn (B).
F: brúnn (H)

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli (með uppábroti) er prjónaður í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni og einlitu klukkuprjóni, ofan frá og niður frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-76-80-88-92-92 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm (= meðtalið uppábrot). Skiptið yfir í litinn hveiti og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-16-32-28-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTÖKU = 56-56-64-56-64-72 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Sjá LEIÐBEININGAR-1.
Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN og RENDUR A.1 – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 7-7-8-7-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 140-140-160-168-192-216 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 12-12-12-16-16-16 cm mælt eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan.
Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn (= 70-70-80-84-96-108 mynstureiningar með 2 lykkjum) í RENDUR A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar berustykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm eftir kanti í hálsmáli við miðju að framan, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið fyrstu 20-20-22-25-28-31 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 40-40-44-50-56-62 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-30-36-34-40-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 20-20-22-25-28-31 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 88-96-104-116-128-140 lykkjur. Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.2 eins og áður – þær 4-8-8-8-8-8 lykkjur mitt undir ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar (þær sem eiga að vera prjónaðar með uppslætti) brugðið. Haldið áfram þar til allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Prjónið síðan einlitt klukkuprjón þannig: Prjónið A.3 umferðina hringinn (= 44-48-52-58-64-70 mynstureiningar með 2 lykkjum) í litnum hveiti.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 1 cm að loka máli) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
* Uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, 1 lykkja brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, steypið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 30-30-36-34-40-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-38-44-42-48-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-8-8-8-8-8 lykkja undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það merkir byrjun á umferð og er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum.
Haldið áfram eftir mynsturteikningu A.2 eins og áður - þær 4-8-8-8-8-8 lykkjurnar mitt undir ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar (sem prjónaðar eiga að vera saman með uppslættinum) brugðið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á einungis við um stærð L, XXL og XXXL) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 0-0-2-0-2-3 sinnum = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Prjónið síðan einlitt klukkuprjón þannig: Prjónið A.3 (= 2 lykkjur) í litnum hveiti umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 41-39-39-37-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú er eftir ca 1 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
* Uppslátturinn og lykkjan er prjónað saman, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
* lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá affellingarkantinn inn að röngu og saumið kant í hálsmáli niður að innan með smáu, fallegu spori með litnum svartur – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur og passið uppá að þessi saumur sé ekki sýnilegur á framhlið.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á hringprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 10 lykkjur á sokkaprjón 5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá hægri prjón, takið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Sjá LEIÐBEININGAR.
Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón og RENDUR A.4 – sjá útskýringu að ofan þannig: Prjónið A.4 umferðina hringinn (= 5 mynstureiningar með 2 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 70 lykkjur í umferð. Húfan mælist ca 11 cm ofan frá og niður.
Prjónið nú A.5 umferðina hringinn (= 35 mynstureiningar með 2 lykkjum) í RENDUR A.4 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru engir uppslættir á prjóni, einungis 70 lykkjur. Húfan mælist ca 21 cm ofan frá og niður.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð með litnum svartur, þannig: * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 105 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt), uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Húfan mælist ca 25 cm ofan frá og niður.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2019
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Næsta umferð er prjónuð þannig:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, steypið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Yfirfarið á vefsvæði: 24.03.2021
Mynsturteikning A.2, stærð XL-XXL-XXXL: Rönd G og H hefur verið leiðrétt

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt þannig: Prjónið uppslátt og slétta lykkju slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni af prjóni, *sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman án þess að steypa lykkjunni af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum = 5 lykkjur (þ.e.a.s 4 lykkjur fleiri).
symbols = prjónið með aðal lit (A)
symbols = prjónið með auka lit (B)
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Urban Autumn

Alida Francesca, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Janne Knudsen wrote:

Hej Drops.\r\nHar i farvekoderne til den røde og den grønne udgave?\r\nNår jeg vælger en af de opskrifter, er det stadig farvekoderne til den blå udgave, der kommer frem

27.01.2024 - 20:27

DROPS Design answered:

Hej Janne, Ja farvekombinationerne finder du i opskriften lige under Materiale - Pinde :)

02.02.2024 - 12:21

country flag Kathrin wrote:

Hallo! Ich würde das Modell gerne nachstricken, lege aber Wert auf 100% Naturfaser, weshalb ich das Garn Air nicht verwenden möchte. Ich könnte laut oben stehenden Angaben auch Garne der Kategorie A zweifädig verwenden. Das würde ich gerne tun - können Sie mir sagen, welche Garnmengen ich dann benötige, wenn ich Drops Alpaca verstricken möchte?

16.11.2021 - 04:10

DROPS Design answered:

Liebe Kathrin, benutzen Sie unser Garnumrechner, so finden Sie alle Garnalternativen von der Garngruppe C (auch mit 100% Naturfasern wie Alaska oder Nepal z.B.) oder mit 2 Fäden Garngruppe A je nach Wunsch; eine Maschenprobe immer zuerst stricken und bitte beachten, daß unterschiedliche Zusammensetzungen/Wollen können unterschiedliche Ergebnisse geben. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

16.11.2021 - 09:10

country flag Nikki Melvin wrote:

I'm working on the 3XL pattern. For A.2 it says that G and H are one color. It's true if you are working the S-M-L diagram. XL-2XL-3XL says two colors for G and H. For the second color, what should go there?

23.11.2020 - 18:20

DROPS Design answered:

Hi Mrs Melvin, sorry for late answer, the diagram has been edited,. Happy knitting!

26.04.2021 - 13:40

country flag Rianne wrote:

Thank you! I was just looking for a project with this patent stitch, for me a new style of knitting. This pattern catch me, even I didn't know it was this stitch. What a beautiful sweater!

08.05.2020 - 09:46

country flag Rianne wrote:

What are the numbers of the colours of the two other combinations with red and green, shown in te little pictures under the main picture?

07.05.2020 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Rianne, Colour combinations shown are (in the same order as the materials list): A) DROPS AIR 02, 20, 28, 05, 07, 06 - B) DROPS AIR 02, 26, 19, 05, 12, 06. Happy knitting!

08.05.2020 - 09:01

country flag Michaela wrote:

Hallo, danke für die Anleitung zu diesem wunderschönen Pulli! Eine Frage habe ich dazu: Ist es korrekt, dass der Pulli mit 8mm Nadeln, die Mütze aber mit 5mm Nadeln gestrickt werden?

11.01.2020 - 22:10

DROPS Design answered:

Liebe Michaela. Es ist korrekt, Wir stricken die Mütze mit 5 mm Nadeln und der Pulli mit 8 mm. Viel Spaß beim stricken!

12.01.2020 - 23:32

country flag Svetlana wrote:

Jeg får ikke fin overgang fra en til andre farge når jeg strikker striper A.2, det blir store hull mellom første og siste masken på bærestykke. Lurer på om jeg strikker for løs. Savner en video der man kan få se en sånn overgang, når man strikker striper.

02.09.2019 - 10:39

country flag Tina wrote:

Liebes Drops-Team, ich habe ein Problem mit der letzten Runde vor dem Abketten des Rumpfes: es heißt *1 M rechts, 1M links, den Umschlag und die M links zusammen stricken...*. Zwischen der linken Masche und dem Umschlag hab ich aber noch eine rechte Masche... Kann das sein? Vielen Dank für die vielen tollen neuen Anleitungen u und all die Arbeit, die drin steckt!!

28.08.2019 - 09:38

DROPS Design answered:

Liebe Tina, eine Korrketur erfolgt, hier sollen Sie so stricken: *1 Masche rechts, 1 M links, 1 Umschlag, 1 Masche wie zum Linksstricken heben, die nächste Masche und den Umschlag links zusammen stricken* . Viel Spaß beim stricken!

09.09.2019 - 11:20

country flag Elina Ruuni wrote:

Is this pattern reversible and what briocheknitting patterns you have reversible brioche top down?Thank you for these lovely patterns 🥰

18.08.2019 - 10:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ruuni, due to the pattern, this jumper might be reversible - you will find all our knitted pattern with English rib aka brioche here. Happy knitting!

19.08.2019 - 10:21

country flag Regina wrote:

Der Brioche-Trend. Super. Das macht Freude beim Stricken.

12.06.2019 - 22:56