DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Heim Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-2
DROPS Design: Mynstur Z-868
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-100 g litur 6309, turkos/grár
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 4305 dökk indigo
50-50-50-50-50-50 g litur 7139, grágrænn

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (hvít) NR 521: 8-8-8-8-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Byrjið frá réttu með turkos/grár og prjónið 11-12-12-13-13-14 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 62-72-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið til baka (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað

LEIÐBEININGAR-2 (á við um kanta að framan):
Í þeirri umferð þar sem mynstur er með 2 litum er grunnliturinn í mynstri einnig prjónaður yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum 102 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-8-8 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8-7½-7½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til aka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 112-120-124-128-132-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum turkos/grár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffi er lokið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-38-40-42-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 146-156-162-168-174-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð við miðju að framan, það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki!
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum turkos/grár og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 1½-1½-2-2-2-2 cm frá prjónamerki við háls, aukið út um 34-36-40-46-48-52 lykkjur jafnt yfir = 180-192-202-214-222-232 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2½-2½-3-3-3-3 cm frá prjónamerki við háls, aukið út um 31-35-37-41-45-47 lykkjur jafnt yfir = 211-227-239-255-267-279 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá prjónamerki við hálsmál, byrjar mynstur.
Þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 50-54-57-61-64-67 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með ör í A.1A eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1 – ATH: Fyrsta útauknings umferð er frá röngu og síðan 3 næstu útauknings umferðir frá réttu.
Ör-1: Aukið út um 36-36-40-44-44-52 lykkjur jafnt yfir = 247-263-279-299-311-331 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-67-72-75-80 mynstureiningar með A.1A með 4 lykkjum).
Ör-2: Aukið út um 40-42-50-54-60-64 lykkjur jafnt yfir = 287-305-329-353-371-395 lykkjur (nú er pláss fyrir 46-49-53-57-60-64 mynstureiningar A.1A með 6 lykkjum).
Ör-3: Aukið út um 20-26-30-34-44-48 lykkjur jafnt yfir = 307-331-359-387-415-443 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-87-94-101-108 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum).
Ör-4: Aukið út um 12-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir = 319-351-383-411-443-475 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-85-93-100-108-116 mynstureiningar A.1A með 4 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum gulgrænn og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir A.1, aukið út um 2-6-6-10-6-14 lykkjur jafnt yfir = 321-357-389-421-449-489 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með gulgrænn þannig: Prjónið 52-57-60-66-72-79 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-70-80-84-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-109-121-133-147 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 62-70-80-84-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 52-57-60-66-72-79 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 213-233-249-273-301-329 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-61-65-71-78-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 101-111-119-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum gulgrænn og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-5-4-4-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 233-253-269-297-325-353 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 75-83-87-99-107-115 lykkjur jafnt yfir = 308-336-356-396-432-468 lykkjur (það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman).
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 62-70-80-84-86-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-90-94-98-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gulgrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 10-13-18-19-19-21 sinnum = 50-52-54-56-60-62 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-34-33-31-30 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-18-20-20-22 lykkjur jafn yfir = 68-72-72-76-80-84 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 45-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.06.2020
Sjá LEIÐBEININGAR-2.

Mynstur

symbols = turkos/grár
symbols = gulgrænn
symbols = grágrænn
symbols = natur
symbols = dökk indigo
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Heim Jacket

Ida, Norway

Heim Jacket

Edith, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Trudy wrote:

Om dit vest met een verhoging aan de achterkant ( bij de nek) te breien: die extra toeren voor de verhoging brei ik nadat het halsboord gebreid is? Vgr Trudy

06.10.2023 - 20:00

DROPS Design answered:

Dag Trudy,

Ja klopt. Je breit eerst de halsboord en dan de verhoging.

08.10.2023 - 16:31

country flag Irmgard Paula wrote:

Habe die Jacke in XXL gestrickt. 19cm länger als in der Anleitung. Es blieben in der Farbe gelbgrün 100g und noch ein Knäuel mit 40g übrig.

06.11.2022 - 11:47

country flag Carin wrote:

Hej! Jag tänker använda mig av garnet Drops alpacka för att sticka denna kofta. Jag undrar om jag kan sticka på rundsticka, enbart rätstickning, klippa upp framstycket/framsidan och plocka upp maskor och sticka ”knappkanten” efter? (Istället för att sticka aviga och räta maskor) Hälsningar Carin

25.01.2022 - 18:21

DROPS Design answered:

Hej Carin. Ja det kan du göra, kom ihåg att lägga till några "uppklippningsmaskor" bara. Se gärna denna video för tips. Mvh DROPS Design

26.01.2022 - 10:49

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, Sur le diagramme taille L il faut démarrer le diagramme sur l'endroit mais la première augmentation correspond à un rang envers alors qu'elle doit être faite à l'endroit selon les explications. Pouvez vous m'aider svp ? Dois je faire les augmentations sur un rang envers ou un rang endroit ? Merci d'avance !.

16.10.2021 - 21:50

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, le diagramme se commence sur l'endroit dans toutes les tailles, le 1er rang d'augmentation se fera effectivement sur l'envers, faites les jetés entre 2 m envers (cf cette vidéo) et tricotez ces jetés torse à l'endroit au rang suivant. Bon tricot!

18.10.2021 - 08:59

country flag Marjo Van T Hof wrote:

Ik ben tot nu toe niet tevreden met het antwoord! Want.... In het patroon staat wel degelijk, dat er onderaan het lijf (zie regel 12: brei 1 naald recht aan de goede kant ...etc etc.) 99 steken moeten worden gemeerderd. Zou u daar nogmaals uw licht over willen laten schijnen? Ik vin het aantal van 99 steken nogal veel om te moeten meerderen om de boordsteek niet té strak te laten zijn. Bvd

11.08.2021 - 09:25

DROPS Design answered:

Dag Marjo,

Dan had ik je vraag in eerste instantie verkeerd begrepen. Er worden inderdaad 99 steken gemeerderd vlak voordat je de boord breit. De boord wordt vervolgens met een dunnere naald gebreid en om te voorkomen dat de boord te strak wordt (wat normaliter vaak wel de bedoeling is bij bijvoorbeeld een trui) moeten er zoveel steken gemeerderd worden. Op die manier blijft het lijf doorlopen in een lichte A-lijn.

17.08.2021 - 13:04

country flag Marjo wrote:

Ik ben tot nu toe niet tevreden met het antwoord! Want.... In het patroon staat wel degelijk, dat er onderaan het lijf (zie regel 12: brei 1 naald recht aan de goede kant ...etc etc.) 99 steken moeten worden gemeerderd. Zou u daar nogmaals uw licht over willen laten schijnen? Ik vin het aantal van 99 steken nogal veel om te moeten meerderen om de boordsteek niet té strak te laten zijn. Bvd

05.08.2021 - 10:32

country flag Marjo wrote:

Zojuist de pasafgerond en ben dus nu aan het zgn. lijf. Tot mijn verbazing zie ik, dat er bij een lengte van 30cm vanaf het meetpunt in het oksel, voor XL 99 steken moeten worden gemeerderd. Is dit niet héél erg veel l?? Tot dit punt bestaat het aantal steken uit 297. Dan is 99 steken dus 1/3 x zoveel . Ik twijfel heel erg of ik dít wel moet gaan doen. Kunt mij raad geven? Bij voorbaat dank. Mvrgr. Marjo

01.08.2021 - 20:07

DROPS Design answered:

Dag Marjo,

Voor maar xl meerder je op het lijf van 273 naar 297 steken, dat zijn 24 steken in totaal.

02.08.2021 - 21:01

country flag May Anita Bulling wrote:

Hei. Ser desverre ikke hvor jeg ser målene på størrelser?? Så finner ikke ut hvilken str jeg skal velge? På forhånd takk.

06.02.2021 - 12:38

DROPS Design answered:

Hei May Anita. Målene til de forskjellige størrelsene finner du på målskissen nederst på oppskriften. mvh DROPS design

08.02.2021 - 13:41

country flag Christiane wrote:

Ik zie dat dit vest met naalddikte 3 en 3,5 wordt gebreid, terwijl naalddikte 3 bij deze wol geldt. Het vergelijkbaar vest Blueberry Fizz wordt met naaldiktes 2,5 en 3 gebreid. Wordt dit vest niet erg los met naalddikte 3,5?

04.01.2021 - 13:42

DROPS Design answered:

Dag Christiane,

Als je de juiste stekenverhouding hebt, zoals aangegeven in het patroon, kun je de aantallen steken aanhouden zoals beschreven. Per patroon kan de naalddikte soms inderdaad ietsje afwijken van wat normaal voor het garen geadviseerd wordt.

09.01.2021 - 16:13

country flag Marit wrote:

Jeg kan ikke finne at det står noe sted hvilken farge man skal ha på stolpene. Har jeg oversett noe? Går jo an å se på bildet, men hadde vært fint om det stod beskrevet.

07.04.2020 - 21:48

DROPS Design answered:

Hei Marit. Ditt ønske er oversendt til designavdelingen, slik at de kan ta en titt og evnt forbedre / lage en tekst ang farger og stolpen. mvh DROPS design

20.04.2020 - 13:27