DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Escape Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-3
DROPS Design: Mynstur ne-318
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 2923, gulur
100-100-150-150-150-150 g litur 0100, natur
50-100-100-100-100-100 g litur 1477, pistasía
50-100-100-100-100-100 g litur 2920, appelsína
50-50-50-50-50-100 g litur 8911, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 6273, kirsuber
50-50-50-50-50-50 g litur 6790, kóngablár
50-50-50-50-50-50 g litur 4434, fjólublár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-7-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Í þeim umferðum þar sem mynsturbekkur er með 2 litum prjónast grunnliturinn í mynsturborða einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.
Mikilvægt er að halda réttri prjónfestu á hæðina, ef prjónað er of fast þá kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 20. Og 21. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat (þ.e.a.s. ekki prjónuð snúin).
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur. Einnig er hægt að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins bæði að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Eftir berustykkið er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-84-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum gulur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 81-86-96-101-106-111 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:
Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú ætlar ekki að hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki mitt að aftan, á milli 2 lykkja í stærð M, L og XXL og í miðju lykkjuna í stærð S, XL og XXXL (= 40-43-48-50-53-55 lykkjur inn frá hvorri hlið).
Byrjið frá réttu með litnum gulur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.

BERUSTYKKI:
Sjá LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 70-75-85-90-95-100 lykkjur (= 14-15-17-18-19-20 mynstureiningar með 5 lykkjum) prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með mynstur með útaukninguþar til eftir er 1 umferð í A.1 og A.2. Nú eru 263-281-317-335-353-371 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð í A.1 og A.2, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 257-285-315-333-335-373 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan næstu umferð þannig, byrjið nú með A.3 yfir lykkjur í A.1 og A.4 yfir lykkjur í A.2: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og útkýrt er í fyrstu umferð í A.3 (= framstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-81-91-97-107-115 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.3 (= bakstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.3 og endið með 5 lykkjum í garðaprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 173-185-203-221-239-257 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir næstu 162-174-192-210-228-246 lykkjur, prjónið A.4, endið með 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með A.3 og A.4 þar til það hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón með gulur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Aukið út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 193-205-223-241-259-277 lykkjur – SJÁ ÚTAUKNING-2. Þegar stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm frá skiptingu, prjónið eina umferð frá röngu þar sem aukið er út um 39-43-45-51-53-59 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING-1 = 232-248-268-292-312-336 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-56-62-64-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-60-66-72-78-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi, fækkið lykkjum með 5-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 7-10-12-14-15-15 sinnum = 40-40-42-44-48-48 lykkjur – SJÁ ÚRTAKA. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í grunnlit. Þegar ermin mælist ca 35-36-34-35-33-34 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt með litnum gulur þar sem aukið er út um 8-8-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = gulur
symbols = kirsuber
symbols = pistasía
symbols = kóngablár
symbols = appelsína
symbols = natur
symbols = sæblár
symbols = fjólublár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Escape Jacket

Belinda, United Kingdom

Winter Escape Jacket

Julia, France

Winter Escape Jacket

Sedative, Germany

Winter Escape Jacket

Marit, Estonia

Cardigan per Milena

Giancarla, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Astrid wrote:

Hallo, für diese schöne Jacke gibt es die Farbe Pistazie nicht. Farbnummer 1477. Was kann ich denn alternativ nehmen?

26.05.2023 - 15:04

DROPS Design answered:

Liebe Astrid, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) helfen, die besten passenden Farben zu finden. Viel Spaß beim stricken!

26.05.2023 - 15:22

country flag Lucia Battisti wrote:

Buongiorno un chiarimento in merito a questo modello , sto realizzando la taglia media, ho quasi terminato lo sprone, (mancano 6 giri di A 1 e A2 alla fine) misurando dall.'alto dopo i 4 cm delle coste ho 20 cm devo terminare o posso finire i 6 giri? Grazie mille dell' aiuto

29.01.2022 - 15:36

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, deve finire la lavorazione del diagramma. Buon lavoro!

30.01.2022 - 20:05

country flag DELANGLE FRANCOISE wrote:

Bonjour, Si je comprends bien au premier rang du jacquard de l'empiècement, on tricote 5 mailles de bordure, 18 fois le motif A1, UNE SEULE fois le motif A2 (1 seule maille) puis 5 mailles de bordure. En faisant le calcul je ne comprends pas comment on arrive à 335 mailles à la fin de ce motif. Merci infiniment Merci

05.11.2020 - 16:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Delangle, tout à fait, on tricote 1 fois A.2 pour que le motif soit symétrique de chaque côté. Vous avez au début de A.1/A.2: 5 + 18 x 5 + 1 + 5 = 101 m. Augmentez comme indiqué dans A.1 = 13 m dans chaque A.1 = 19 m quand A.1 est terminé: 5 + 18x19 m + 1 + 5 = 335 m. Bon tricot!

05.11.2020 - 17:35

country flag Joanna Zawadzka wrote:

Oczywiscie ze ma znaczenie.Porozpoczęciu dzielenia robotki na przody ,rekawy i tył i wrabianiu kolejnego koloru,fiolet dzubki fioletowych trojkatów nie wyjdą dokładnie nad turkusowymi elementami ,to zaburzy wzór.jestem perfekcjonistką ;-)

17.09.2020 - 16:33

DROPS Design answered:

To rozumiem :) Jeśli tak to zamknij 1 o. na początku rzędu (za obszyciem ściegiem francuskim) i 1 o. na końcu (przed obszyciem ściegiem francuskim). Tak będzie najprościej dopasować kolejne schematy. Uda ci się na pewno. Powodzenia!

18.09.2020 - 10:41

country flag Joanna wrote:

Witam. Po zakonczeniu karczka, w ostatnim rzędzie mam dopasować liczbę oczek do 355,czyli dodac dwa oczka -robię rozmiar XXL.Gdze te oczka powinny sie znajdowac aby nie zaburzyc wzoru.

17.09.2020 - 16:07

DROPS Design answered:

Witaj Joasiu, dodajesz te 2 oczka w ostatnim rzędzie schematów A.1 i A.2, które jest wykonane jednym kolorem, zatem miejsce gdzie dodasz oczka nie ma znaczenia. Pozdrawiamy!

17.09.2020 - 16:26

country flag Anette wrote:

Jeg liker ikke å strikke frem og tilbake...... Er genseren omtrent like i størrelse slik at jeg kan ta utgangspunkt i den og så lage for oppklipt midt på fremme?

11.02.2020 - 17:56

DROPS Design answered:

Hei Anette. Sjekk målskissene nederst på oppskriftene, både til jakken (DROPS 205-3) og genseren (DROPS 205-4) opp mot hverandre og husk å legge til ekstra oppklippsmasker i front. God Fornøyelse!

11.02.2020 - 18:52

country flag Piia wrote:

Suomenkielisessä ohjeessa päävärin sanotaan olevan punamulta. Outoa.

22.01.2020 - 06:22

country flag Kim wrote:

Beste , op het patroon op het einde van het telpatroon in rij 2 komt een meerdering... deze meerdering komt op de averechtse kant. Klopt dat? En hoe kun je meerderen met een omslag op de averechtse kant ? Hoor graag Groetjes kim

18.12.2019 - 18:44

DROPS Design answered:

Dag Kim,

Ja, dat klopt inderdaad, de meerdering komt op de verkeerde kant. De omslag (dus de meerdering) kun je op de volgende naald gedraaid recht breien, zodat er geen gaatje ontstaat.

26.12.2019 - 19:24

country flag Theresa Morris wrote:

This looks like a very warm cosy jacket.

08.12.2019 - 10:32

country flag Lesley wrote:

Sorry, another silly question. When there is an increase (make 1 ) shown at the end of the chart row, does the newly made stitch become the 1st stitch of the next repeat? For example, row 2 of chart A1 has a M1 at the end. Do I work the last stitch in the repeat in Golden Rod, make 1 in golden rod and then work the next stitch in cerise OR do I work the stitch after the M1 in golden rod? Sorry if I am being a bit dim Thank you

07.11.2019 - 23:39

DROPS Design answered:

Hi Lesley, Yes, the new stitch becomes stitch 1 on the next row and the yarn over and then the first stitch in row 3 are both worked in goldenrod. Happy knitting!

08.11.2019 - 07:12