DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 204-7
DROPS Design: Mynstur x-439
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: Ein stærð
Mál: Ummál: Ca 21 cm. Lengd: Ca 24 cm.

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50 g litur 02, natur
100 g litur 58, sinnep

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 fyrir sléttprjón með mynstri.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 36 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með litnum sinnep DROPS Alaska og prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið með litamynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1. Eftir A.1 er skipt yfir á sokkaprjón 4 og afgangurinn á stykki er prjónað í sléttprjóni. Prjónið eftir mynsturteikningu A.2 og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 40 lykkjur. Þegar prjónað hefur verið upp að gráu rúðunum í mynsturteikningu, prjónið mynsturteikningu A.3 yfir þessar lykkjur = þumall. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning A.3 hefur verið prjónuð til loka, hafa verið auknar út 8 lykkjur í A.3 (= 11 lykkjur í A.3). Í næstu umferð eru lykkjurnar í A.3 settar á þráð og fitjaðar eru upp 3 nýjar lykkjur (fitjið upp lykkjurnar eins og sjást á efri hlið við 3 gráu lykkjurnar í A.2). Þegar A.2 er lokið, klippið frá áður en dregið er í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11 lykkjur frá þráð á sokkaprjón 4, að auki eru prjónaðar upp 9 lykkjur á bakhlið (og í hliðum við 11 lykkjur) á þumli, þar sem fitjaðar eru upp 3 lykkjur. Til að þetta verði fallegt, verður að prjóna upp lykkjur jafnframt því sem lykkjur eru auknar út þannig: Byrjið með að prjóna A.4 yfir lykkjur sem sitja á prjóni. Prjónið síðan upp 1 lykkju með litnum sinnep, sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum natur, prjónið upp 1 lykkju meðlitnum natur, prjónið upp 1 lykkju með litnum sinnep, sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum natur, prjónið upp 1 lykkju með litnum natur, sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum natur og prjónið upp 1 lykkju með litnum sinnep.
Nú er fyrsta umferð í A.4 prjónuð/búið að auka út. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður frá fyrri umferð snúinn slétt eftir mynstur í 2. umferð í A.4. Þegar A.4 er lokið, klippið frá áður en dregið er í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en prjónið eftir mynsturteikningu A.5 í stað A.2. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Fitjið upp 36 lykkjur og prjónið A.1 alveg eins og hægri vettlingur. Prjónið mynsturteikningu A.5 þar sem aukið er út um 4 lykkjur í 1. umferð, A.3 eins og á hægri vettlingi, en í gagnstæðri hlið (þar sem gráu rúðurnar eru teiknaðar í A.5). Þegar A.5 er lokið, prjónið þumal á sama hátt og hægri þumall.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.10.2019
Leiðrétting: Lykkjum er fækkað með sinnep (ekki natur)
Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2019
Leiðrétting: Ný mynsturteikning
Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2021
ÞUMALL:.. Byrjið á að prjóna A.4 yfir lykkjur sem eru á prjóni...

Mynstur

symbols = natur
symbols = sinnep
symbols = fækkið um 1 lykkju til vinstri þannig: Lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt með litnum sinnep og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = fækkið um 1 lykkju til hægri þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum sinnep
symbols = fækkið um 3 lykkjur í 1 lykkju þannig: lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum sinnep og steypið síðan lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = hér er prjónað op fyrir þumal, þ.e.a.s. A.3
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litnum sinnep
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Mittens

Jaana, Finland

204-7 Sun Catchers

Marta, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Julia wrote:

Ich wünschte, für solche Handschuhe gäbe es auch eine Häkel-Anleitung 😍

09.01.2024 - 12:16

country flag Raymonde Noel wrote:

Bonjour, c'est la première fois que je vais essayer de tricoter des mitaines jacquard. Sur le diagramme A2, en commençant il y a une série de trois carrés gris en hauteur, si je comprends c'est pour indiquer ou commencer le pouce. Mais comment savoir la couleur de ces carrés, le premier est toujours foncé mais les 3 autres sur les 14 lignes? Est-ce que le pouce commence à la fin de ces carrés gris Merci

18.01.2023 - 17:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Noel, lorsque vous atteignez les cases noires au 2ème rang de A.2/A.5, tricotez A.3 sur ces 3 mailles (et A.2/A.5 sur les autres mailles) - vous tricotez d'abord ces 3 mailles sans augmenter, puis vous augmentez tous les 2 tours, au trait noir qui divise A.3 et A.4 vous mettez les mailles du pouce en attente et montez 3 m pour la bordure au-dessus du pouce, ces 3 m se tricotent ensuite comme dans le diagramme. Bon tricot!

19.01.2023 - 10:07

country flag Hildigunnur wrote:

Mynd 5 er horfin :( sem er vont þar sem ég er einmitt að prjóna þann vettling

08.01.2023 - 19:52

country flag Johanna wrote:

Hallo, bij het Nederlandse patroon ontbreekt de hoeveelheid benodigd in de kleur Natur. Mvh, Johanna

04.10.2022 - 12:43

country flag Jo wrote:

Mihinköhän ovat suomenkielisestä versiosta jääneet diagrammit ja ohjeet suomeksi?

14.01.2021 - 07:57

DROPS Design answered:

Piirrokset on lisätty ohjeeseen.

12.03.2021 - 13:28

country flag Emma wrote:

Bonjour, Je pense qu’il y a une erreur dans les indications pour le pouce, il est indiqué de se référer au schéma À.3 mais je pense que c’est plutôt le schéma À.4

10.01.2020 - 13:00

country flag Sandra wrote:

Oppskirten har blitt oppdater med nye diagrammer og jeg er kun ferdig med den første votten. Hvor kan jeg finne de gamle?

23.11.2019 - 14:31

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, Est-ce que vous aurez d'autres modèles de ces moufles norvégiennes avec une grille comme celle-ci soit moins de 51 mailles. J'adore pouvoir les faire en laines plus épaisses comme elles. Merci.

07.11.2019 - 21:57

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, vous trouverez ici tous nos modèles de moufles, n'hésitez pas à filtrer les résultats en fonction de vos envies. Bon tricot!

08.11.2019 - 09:06

country flag Petra wrote:

Hej! Instämmer med Alice och Andrea, vantarna blir jättesmå, nästan barnstorlek! Har rätt stickfasthet med sticka 4 enligt mönstret . Ändå blev vantarna både lite för smala och alldeles på tok för korta, och då har jag ändå ganska små händer. Det står inga mått i mönstret, bara one-size, hur stora är det tänkt att de ska bli?

06.11.2019 - 21:51

DROPS Design answered:

Hej Petra, Vi har rettet i diagrammerne. Vanterne passer til størrelse S/M, strik hellere lidt løst end for stramt. God fornøjelse!

08.11.2019 - 14:08

country flag Alice wrote:

Jag undrar precis som Andrea om mönstret verkligen stämmer ? Resultatet blir ju en vante i storlek extra small. Jag har gjort ett nytt försök med stickor 4½ istället men denna vante blir också för kort. Tråkigt att det inte fungerar, vill gärna sticka de här fina vantarna.

06.11.2019 - 11:41

DROPS Design answered:

Hej Alice, Vi har rettet i diagrammerne. Vanterne passer til størrelse S/M, strik hellere lidt løst end for stramt. God fornøjelse!

08.11.2019 - 14:09