DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Heim

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa með norrænu mynstri úr DROPS Alpaca.

DROPS 207-1
DROPS Design: Mynstur Z-869
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Höfuðmál: 54/56 - 54/56 - 56/58 - 56/58 - 58/60 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-100 g litur 6309, turkos/grár
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 4305 dökk indigo
50-50-50-50-50-50 g litur 7139, grágrænn

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50-50-50-100 g litur 6309, turkos/grå
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 4305 fjólublár/grár/blár
50-50-50-50-50-50 g litur 7139, grágrænn

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

HÚFA:
STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 7233, gulgrænn
50-50-50 g litur 6309, turkos/grå
50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50 g litur 4305 fjólublár/grár/blár
50-50-50 g litur 7139, grágrænn

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 40 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS ALPACA 607, 2923, 2020, 2915, 5565.
B) DROPS ALPACA 517, 3900, 9020, 3770, 3969.
C) DROPS ALPACA 601, 7238, 100, 2916, 7815.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 34) = 3,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu með turkos/grár og prjónið 11-12-12-13-13-14 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-24-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-72-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 77-84-84-91-91-98 lykkjur slétt, snúið herðið á þræði og prjónið 88-96-96-104-104-112 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka frá miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki skitur mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum turkos/grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 34-36-38-40-42-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 138-144-150-156-162-168 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan) – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkunina, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón hringinn með litnum turkos/grár.
Þegar stykkið mælist 1½-1½-2-2-2-2 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út um 34-36-40-46-48-52 lykkjur jafnt yfir = 172-180-190-202-210-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2½-2½-3-3-3-3 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út um 28-36-38-42-46-48 lykkjur jafnt yfir = 200-216-228-244-256-268 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá prjónamerki við hálsmál, byrjar mynstur.
Þ.e.a.s. Prjónið A.1 hringinn (= 50-54-57-61-64-67 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Ör-1: Aukið út um 36-36-40-44-44-52 lykkjur jafnt yfir = 236-252-268-288-300-320 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-63-67-72-75-80 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-2: Aukið út um 40-42-50-54-60-64 lykkjur jafnt yfir = 276-294-318-342-360-384 lykkjur (nú er pláss fyrir 46-49-53-57-60-64 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum).
Ör-3: Aukið út um 20-26-30-34-44-48 lykkjur jafnt yfir = 296-320-348-376-404-432 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-87-94-101-108 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Ör-4: Aukið út um 12-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir = 308-340-372-400-432-464 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-85-93-100-108-116 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með gulgrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir A.1, aukið út um 2-6-6-10-6-14 lykkjur jafnt yfir = 310-346-378-410-438-478 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð með gulgrænn þannig: Prjónið 46-51-54-60-66-73 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-70-80-84-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-109-121-133-147 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 62-70-80-84-86-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 47-52-55-61-67-74 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-222-238-262-290-318 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með gulgrænn. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-5-4-4-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 222-242-258-286-314-342 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 74-82-86-98-106-104 lykkjur jafnt yfir = 296-324-344-384-420-456 lykkjur (það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 62-70-80-84-86-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-90-94-98-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gulgrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 10-13-19-19-19-22 sinnum = 50-52-52-56-60-60 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-35-33-32-30 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-20-20-20-20 lykkjur jafn yfir = 68-72-72-76-80-80 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-43-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með litnum turkos/grár.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-4-4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 140-144-148 lykkjur.
Prjónið A.2 hringinn (= 35-36-37 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2, fækkið um lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan.
Ör-1: Fækkið um 8-6-4 lykkjur jafnt yfir = 132-138-144 lykkjur. Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 22-23-24 mynstureiningar með 6 lykkjum).
Ör-2: Fækkið um 24-26-28 lykkjur jafnt yfir = 108-112-116 lykkjur. Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Ör-3: Fækkið um 24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 84-88-92 lykkjur. Haldi áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 21-22-23 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum gulgrænn þannig: Prjónið 3-3-4 umferðir slétt, * prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2, prjónið 5-5-6 umferðir slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11-11-12 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 23-24-25 cm ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = turkos/grár
symbols = gulgrænn
symbols = grágrænn
symbols = natur
symbols = dökk indigo
symbols = útauknings-/úrtöku umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Heim

Giorgia, Italy

Heim

Annette, Germany

Heim

Giorgia Trotter, Italy

Heim

Katharina

Heim

Kerstin, Germany

Heim

Giorgia Trotter, Italy

Heim

Maja, Norway

Heim

Liebsteschwester, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Evy wrote:

Hei! Skal lage en genser i Large. Holder på med A.1 mønster på pil 1. Har økt med 40 masker, men forstår ikke hvordan jeg skal få mønsteret til å passe over hverandre. Ser på bildet at «stjernene» og resten av mønstrene er loddrett ovenfor hverandre. Får det ikke til å stemme når jeg går fra 57 til 67 rapporter med 4 masker.

17.02.2021 - 16:24

DROPS Design answered:

Hej Evy, mønsteret skal stemme hele vejen rundt, men efter en udtagningsomgang vil det ikke stemme over maskerne på forrige omgang og det skal det ikke heller :)

23.02.2021 - 09:56

country flag Maja wrote:

Czy moge używać 2 nitki razem? I druty numer 4 ?

17.02.2021 - 14:13

DROPS Design answered:

Witaj Maju, to będzie już całkiem inny sweterek. Musisz wykonać próbkę, dopasować liczbę oczek... Jeśli masz już doświadczenie to próbuj, jeśli nie, radzę kontakt ze sklepem, w którym kupujesz włóczki, myślę, że będą w stanie ci pomóc. Powodzenia!

17.02.2021 - 14:51

country flag Sissel wrote:

Hei, finnes det mål for størrelsene på genseren? Finner ikke. Nydelig genser 🤗👍

20.01.2021 - 20:08

country flag Lucy Macfarlane wrote:

I am trying to decrease for the hat and don’t understand what this means”knit 1 round where all the stitches are knitted together 2 and 2, “ do I knit 3 rounds then decrease by knitting 2tog every 2nd stitch, for 1 round then knit 5 more rounds without dec and do the same again for 1 round again decreasing every other stitch by knitting 2 tog ? Thank you

13.01.2021 - 07:06

DROPS Design answered:

Hi Lucy, This means that on the one round you knit the first 2 stitches together, then knit the next 2 stitches together and so on to the end of the round. This halves the number of stitches on the needle. Then you knit 5 rounds without decreasing and finally decrease by knitting all stitches together 2 and 2 on the 6th round. Happy knitting!

13.01.2021 - 07:36

country flag Ieva wrote:

Hallo, gibt es ein Video mit Abnahmetipp für die untere Ärmelmitte? Wo wird der Markierungsfaden nach der Abnahme plaziert? Für mich verdrehen sich die Ärmel merkwürdig... Danke!

02.01.2021 - 13:22

DROPS Design answered:

Liebe Leva, der Markierungsfaden muss immer zwischen den 2 mittleren Masche unter der Ärmel sein, und es wird am Ende der Runde + am Anfang der Runde bzw beidseiting von dieser Markierung abgenommen - siehe diese Lektion (hier wird es beidseitig von der mittleren Maschen abgenommen); bis 3 Maschen vor der Markierung bleiben, 1 M abnehmen, 2 M re stricken (Markierung muss immer zwischen diesen beiden Maschen sein), 1 Masche abnehmen. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 15:38

country flag Angela wrote:

Ciao, un informazione è un bellissimo maglione ma non si può comprare?Ci sono articoli bellissimi È un sito molto strano, che x comprare non è facile avevo trovato un articolo ma non c'era il contrassegno! Grazie

28.11.2020 - 13:56

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, questo è un sito gratuito di spiegazioni di modelli di maglia e uncinetto. Se vuole acquistare i capi finiti può rivolgersi ad un rivenditore DROPS: loro avranno sicuramente delle magliaie che possono realizzare questi capi. Buon lavoro!

28.11.2020 - 21:13

country flag Bia Broberg wrote:

Kan jeg får sendt garn til denne opskrift ?

05.11.2020 - 18:22

country flag Eva Emilia Thea Vogelius wrote:

Hej. Kan det være rigtigt at der umiddelbart inden rib på ærmet skal tages masker UD?? Jeg strikker blusen. Mvh Eva

11.10.2020 - 19:34

DROPS Design answered:

Hei Eva. Ja, det stemmer. Da vil vrangborden få en naturlig fin overgang til resten av ermet, og ikke en trang vrangbord som det var mye av på 80-tallet. God Fornøyelse!

12.10.2020 - 14:57

country flag Fabienne Henry wrote:

Bonjour Après la séparation dos/devant et manches, il faut commencer le tour suivant par le milieu d'une manche. Faut-il couper le fil et faire glisser les mailles jusqu'au milieu de la première manche ? Merci d'avance pour votre aide. Cordialement Fabienne Henry

07.10.2020 - 08:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Henry, comme vous le souhaitez, vous pouvez soit couper le fil et le joindre au milieu des nouvelles mailles montées, soit continuer le tour jusqu'au milieu des mailles montées et y décaler le marqueur du début des tours et continuer à partir de là. Bon tricot!

07.10.2020 - 08:43

country flag Susanne wrote:

Finnes det mønster til nede på ermene? Ser på bilde til drops galleri at noen har strikket den med mønster nede, dette var veldig fint :)

29.07.2020 - 00:28

DROPS Design answered:

Hej Susanne, nej, men du kan vælge et stykke i diagrammet og bruge nederst på ærmet. God fornøjelse!

29.07.2020 - 15:34