DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Bride

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-3
DROPS Design: Mynstur fl-045
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-500 g litur 03, ljós grár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd og 44 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón / klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 126 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,8.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er aukið út með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á eftir ca 8. hverja lykkju (þráðurinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).

KLUKKUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 126-132-138-144-150-156 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-17-18-19-20-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 110-115-120-125-130-134 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir í hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 50-51-54-55-56-62 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 160-166-174-180-186-196 lykkjur. Prjónið eina umferð slétt. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 4-4-4-5-5-5 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkjunni sem tilheyrir uppslættinum og aukið jafnframt út 68-72-80-88-96-104 lykkjur jafnt yfir = 228-238-254-268-282-300 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú klukkuprjón í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkju sem tilheyrir uppslættinum og aukið jafnframt út um 68-72-80-88-96-104 jafnt yfir = 296-310-334-356-378-404 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú klukkuprjón í 6-6-6-7-7-7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður slétt saman með lykkju sem tilheyrir uppslættinum og aukið jafnframt út um 16-29-32-38-42-49 lykkjur = 312-339-366-394-420-453 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 20-21-22-24-25-26 cm aukið út um 16-29-32-38-42-49 lykkjur jafnt yfir = 328-368-398-432-462-502 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki er berustykkið tilbúið. Næsta umferð er prjónuð þannig:

Prjónið fyrstu 47-52-56-62-68-76 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-79-86-91-94-99 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-105-113-125-137-152 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 69-79-86-91-94-99 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 48-53-57-63-69-76 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 210-230-250-274-302-332 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 5-5-6-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með ca 5 cm millibili alls 5 sinnum = 230-250-270-294-322-352 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28 cm, aukið út um 46-50-54-57-62-68 lykkjur jafnt yfir = 276-300-324-351-384-420 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 69-79-86-91-94-99 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 79-89-98-103-108-113 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-16-19-21-22-23 sinnum = 55-57-60-61-64-67 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 38-36-35-33-32-30 cm. Aukið nú um 11-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 66-69-72-75-78-81 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Jackie wrote:

When knitting the English rib, having finished row 3 and starting row 2 again. End of row 3 finishes with knitting the y o and slip stitch. Row 2 starts with purl the y o and slip stitch together. I am finding that my row 2 starts with 2 ‘single ‘ stitches in front of the y o and slipped stitches. Have tried several times. Can you advise what I’m doing wrong please?

13.08.2023 - 17:17

DROPS Design answered:

Dear Jackie, round 3 starts with (YO, slip 1 as if to P) so that the first stitch on next round will be (Purl together YO and slipped stitch). We show in this video how to work English rib in the round, it might then help. Happy knitting!

14.08.2023 - 10:08

country flag Claude wrote:

Bonjour, le point de ce modèle est le point brioche et non le point côtes anglaises et il faut beaucoup de concentration pour parvenir à suivre la vidéo quand on tient le fil de la main droite... Pourquoi diminuer de 16 mailles (taille s) pour augmenter de 50 mailles le rang suivant entre le col et l'empiècement ? Ne peut-on pas simplement augmenter de 34 mailles ? Cordialement, Claude

03.11.2022 - 10:52

DROPS Design answered:

Bonjour Claude, ces diminutions après le col + les augmentations au début de l'empiècement permettent de marquer joliment le col. Bon tricot!

03.11.2022 - 14:03

country flag Emilita wrote:

Quisiera saber si este patrón o parecido está para bebés y niños. Gracias. saludos

24.02.2022 - 18:30

DROPS Design answered:

Hola Emilita, puedes probar con los siguientes patrones, que son similares: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10511&cid=23 https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10319&cid=23

28.02.2022 - 16:56

country flag Anett wrote:

Am Ende des Rumpfteiles sollen für meine Größe 50 Maschen zugenommen werden.Jedoch mißt der untere Umfang des Rumpfes nur 4 cm mehr als der obere.Selbst wenn ich dann mit Nadel 2,5 weiter stricke, habe ich dann viel mehr Weite als angegeben!Da stimmt doch was nicht!

30.01.2022 - 23:11

DROPS Design answered:

Liebe Anett, nach alle Zunahmen (vor Bündchen) haben Sie 250 Maschen (= ca 104 cm Umfang/52 cm flach, wie in der Maßskizze), dann nehmen Sie 50 Maschen regelmäßig zu und jetzt stricken Sie Bündchen mit den kleineren Nadeln: man braucht mehr Maschen im Bündchen für den selben Umfang als glatt rechts, deshalb wird es so zugenommen.Viel Spaß beims tricken!

31.01.2022 - 10:13

country flag Van Der Sijpt Chris wrote:

Zou deze trui graag breien met gewone naalden(geen rondbreinld)van onder naar boven.hoe bereken ik mijn steken aub?met dank

08.11.2021 - 18:30

DROPS Design answered:

Dag Chris,

Omdat de pas helemaal in de rondte gebreid wordt met structuurpatroon, is dit patroon niet zo geschikt om met rechte naalden te breien. Voor sommige andere patronen is dit wel mogelijk.

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

10.11.2021 - 16:28

country flag Mona Bjørheim wrote:

Hei. Jeg holder på med armene og lurer på om jeg forstår mønsteret riktig? Skal jeg felle så ofte som hver 11/2 cm og så strikke et ganske langt stykke hvor jeg ikke feller? Mvh Mona

08.04.2021 - 16:43

DROPS Design answered:

Hei Mona. Når du har felt på hver 1,5 cm 16 eller 19 ganger (spørs hvilken str. du strikker), måler arbeidet/ermen 4+24 cm eller 4+28,5 cm, Altså 28 eller 32,5 cm, så fortsetter du uten å felle i 8 eller 2,5 cm til ermet måler 36 eller 35 cm. 8 eller 2,5 cm er ikke et langt stykke uten å felle. mvh DROPS design

26.04.2021 - 10:23

country flag Patricia wrote:

Bonjour je souhaite réaliser ce modèle en baby alpaca silk. Est ce que les explications sont les mêmes ? et la taille des aiguilles est t'elle identique ? sachant que le fil de remplacement est suggéré dans les explications . merci de votre réponse

04.01.2021 - 13:53

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, n'hésitez pas à nous dire si la réponse précédente a pu vous aider ou bien si vous avez besoin de précisions complémentaires. Bon tricot!

05.01.2021 - 10:32

country flag Patricia wrote:

Bonjour, la possibilité de réaliser ce modèle dans un autre groupe de fil est donnée. J'ai choisi Babay alpaca silk pour le faire par contre je me pose la question de savoir si les explications à suivre sont identiques que pour le fil Flora donné ici ? idem pour les aiguilles sont elles les mêmes ? Merci pour votre réponse. Cordialement

03.01.2021 - 16:12

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, vous pouvez tout à fait remplacer DROPS Flora par DROPS Baby Alpaca Silk, vérifiez bien la quantité nécessaire via notre convertisseur, comme c'est une laine du même groupe, vous devriez avoir la même tension - la règle de l'échantillon s'applique ici comme toujours. Bon tricot!

04.01.2021 - 16:17

country flag Diana Blockx wrote:

Geachte, na het beindigen van de pas en men de steken gaat verdelen voor de mouwen wordt er gevraagd om een aantal steken bij te zetten. Is het eerst de steken voor de mouw op een hulpdraad zetten en dan de extra steken er achter bijzetten of is het de helft van de mouw, dan de bijkomende steken en dan de rest; Vriendelijke groeten D Blockx

12.11.2020 - 22:09

DROPS Design answered:

Dag Diana,

De steken worden opgezet onder de oksel, dus in de zijnaad tussen het voorpand en het achterpand (en later als je de mouw breit aan de onderkant van de mouw), dus niet halverwege de mouw.

14.11.2020 - 10:08

country flag Isabela Anaguano wrote:

Hello dear Team, I don't understand why we need to decrease stitches after knitting the neck, just to increase it again in the next row? Can I omit the decrease and increase only the number of stitches I need to continue in my size?

15.10.2020 - 17:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Anaguano, this way there is a nice transition between neck edge and yoke, the one you can see also on the photo. Happy knitting!

16.10.2020 - 08:32