DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Lace

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað neðan frá og upp og ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-50
DROPS Design: Mynstur cl-099
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 02, hvítur

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.17.

ÚRTAKA:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

ÚTAUKNING:
Heklið 2 stuðla í sömu lykkju (= 1 stuðull fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
Stykkið er heklað fram og til baka í hlutum og saumað saman í lokin. Heklað er frá mitti, neðan frá og upp. Síðan er heklað frá mitt og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður.

FRAMSTYKKI (efri hluti):
Stykkið er heklað neðan frá og upp.
Heklið 90-98-108-121-131-144 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Light. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2-4-2-3-1-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 14-15-17-19-21-23 sinnum = 74-81-89-100-108-119 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.1 yfir 8-10-14-18-22-26 lykkjur (= 4-5-7-9-11-13 mynstureiningar með 2 lykkjum), heklið A.2 yfir 17 lykkjur, A.3 yfir næsta stuðul, heklið A.4 yfir 18-21-21-24-24-27 lykkjur (= 6-7-7-8-8-9 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.5 yfir 3 lykkjur, heklið A.6 yfir 17 lykkjur, heklið A.7 yfir 8-10-14-18-22-26 lykkjur (= 4-5-7-9-11-13 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 stuðli í síðustu lykkju. Þegar öll mynsturteikning A.1 til A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar áfram.
Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. klippið frá (á ekki við um stærð S). Heklið næstu umferð þannig (frá réttu):
Hoppið yfir 0-2-6-10-14-18 lykkjur fyrir handveg, festið þráðinn með 1 keðjulykkju (á ekki við um stærð S) og heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) í næstu lykkju, heklið A.8 yfir 6 lykkjur, heklið A.1 yfir 2 lykkjur, haldið áfram með mynstur A.2 til A.6 eins og áður, heklið A.7 yfir 2 lykkjur, heklið A.9 yfir 6 lykkjur og endið með 1 stuðul í næstu lykkju. Nú eru eftir 0-2-6-10-14-18 lykkjur í umferð fyrir handveg. Þegar A.8 og A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur verið fækkað um alls 3-4-6-8-10-12 mynstureiningar (með 2 lykkjum) af A.1 og A.7 í hvorri hlið á stykki.
Heklið áfram eins og áður, þ.e.a.s. heklið þannig:
1 stuðull í fyrstu lykkju, þ.e.a.s. heklið þannig:
1 stuðull í fyrstu lykkju, heklið A.1 yfir 2 lykkjur, haldið áfram með mynstur A.2 til A.6 eins og áður (jafngildir yfir 56-59-59-62-62 lykkjur), heklið A.7 yfir 2 lykkjur og 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 21-23-25-25-27-29 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu.
Heklið nú vinstri öxl þannig:
Heklið 1 stuðul, A.1 og A.2 eins og áður, síðan er heklað A.10. Þegar A.10 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað með 1 stuðul, A.1, A.2 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm. Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir miðju 3-4-4-5-5-6 loftlykkjubogana (= hálsmál):
Byrjið frá réttu og heklið hægri öxl þannig:
Heklið A.11 (= yfir 2 loftlykkjuboga), heklið A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður. Þegar A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram með 1 stuðul, A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir vinstri öxl. Klippið frá og festið enda.

FRAMSTYKKI (neðri hluti):
Stykkið er heklað ofan frá og niður.
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af sömu loftlykkjum og efri hluti á framstykki (= þ.e.a.s. í 74-81-89-100-108-119 loftlykkjur) – JAFNFRAMT er fækkað um 4-3-5-6-4-3 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 70-78-84-94-104-116 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, endurtakið A.12 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 1 lykkja, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram þar til A.12 hefur verið heklað til loka á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4-10-4-8-12-14 stuðla jafnt yfir – sjá útaukning = 74-88-88-102-116-130 stuðlar.
Heklið nú þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, heklið A.13 yfir 7 lykkjur, heklið A.14 yfir næstu 56-70-70-84-98-98 lykkjur (= 4-5-5-6-7-7 mynstureiningar yfir 14 lykkjur), heklið A.15 yfir 9 lykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram þar til A.13 til A.15 hefur verið heklað til loka á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að fækka/auka lykkjum jafnt yfir til 81-90-96-105-117-129 stuðlar.
Heklið síðan þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, A.3 yfir 1 lykkju, endurtakið A.4 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 25-28-30-33-37-40 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.5 yfir 3 lykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar öll mynsturteikning A.3 til A.5 hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar áfram. Þegar neðri hluti á framstykki mælist ca 24 cm í öllum stærðum (= ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl), endið eftir síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI (efri hluti):
Stykkið er heklað neðan frá og upp.
Heklið alveg eins og framstykki þar til lykkjum hefur verið fækkað fyrir handveg. Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu.
Heklið nú hægri öxl þannig:
Heklið 1 stuðul, A.1 og A.2 eins og áður, síðan er A.10 heklað. Þegar A.10 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram með 1 stuðul, A.1, A.2 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir framstykki. Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir miðju 3-4-4-5-5-6 loftlykkjuboga (= hálsmál).
Byrjið frá réttu og heklið vinstri öxl þannig:
Heklið A.11 (= yfir 2 loftlykkjuboga), heklið A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður. Þegar A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram með 1 stuðul, A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir vinstri öxl. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI (neðri hluti):
Heklið á sama hátt og framstykki (neðri hluti).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið hliðarsauma – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Byrjið í hlið undir ermi og heklið jafnt yfir í umferð í kringum allan handveg (ATH: ekki hekla yfir 0-4-12-20-28-36 lykkjur mitt undir ermi á berustykki, það á að sauma ermina að þessum lykkjum í lokin) þannig: Heklið * 1 stuðul um ystu umferð, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* alls 33-33-36-39-39-44 sinnum, hringinn allan handveginn og endið með 1 stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2 = 67-67-73-79-79-85 lykkjur. Heklið síðan þannig: Heklið A.16 þar til 1 lykkja er eftir (= 11-11-12-13-13-14 mynstureiningar yfir 6 lykkjur) og endið með A.17 yfir síðustu lykkju. Endurtakið A.16 og A.17 á hæðina þar til ermin mælist ca 24-24-24-28-28-28 cm – endið eftir síðustu umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hvora hlið á ermi að fram- og bakstykki og saumið síðan sauma undir ermi – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið á annarri öxlinni og heklið * 1 fastalykkja um ysta stuðul/umferð, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram öllum hálsinum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.06.2019
Leiðrétting - FRAMSTYKKI (neðri hluti)..Heklið nú þannig:
Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, heklið A.13 yfir 7 lykkjur, heklið A.14 yfir næstu 56-70-70-84-98-98 lykkjur (= 4-5-5-6-7-7 mynstureiningar yfir 14 lykkjur), heklið A.15 yfir 9 lykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram þar til A.13 til A.15 hefur verið heklað til loka á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að fækka/auka lykkjum jafnt yfir til 81-90-96-105-117-129 stuðlar.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjaðu í næstu umferð!
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 9 loftlykkjur
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = keðjulykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju, 1 loftlykkja, 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 stuðull um loftlykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = umferð með úrtöku/útaukningu
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-50

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Jenny Mörling wrote:

Hej. Har kommit till A3 och kört fast där. Kan inte hitta symbolerna där i symbolförklaringen. Vad ska man göra vid A3

14.03.2024 - 14:54

DROPS Design answered:

Hej Jenny, jo A.3 består af luftmasker, for at komme op i højden :)

19.03.2024 - 11:45

country flag Marion Stensen wrote:

Hallo waarom zijn de aantal centimeter van het geschreven patroon anders dan op de het telpatroon gr marion

11.07.2023 - 18:55

DROPS Design answered:

Dag Marion,

Kan je aangeven waar er precies een verschil is tussen het geschreven patroon en de maattekening? |De totale lengtes van de mouw en de panden komen bijvoorbeeld overeen.

12.07.2023 - 16:27

country flag Edith wrote:

Ik heb echt problemen met de tekst bij de mouw: er wordt gezegd dat je om het hele armsgat moet haken, maar bij “afwerking” staat ook dat je elke kant van de mouw aan het lijf moet naaien. Hoe zit dit? Dat lijkt me dubbelop,,, de mouw zit al aan het lijf gehaakt. Komt daarbij nog dat de steken midden onder de mouw moeten worden vrijgelaten (zie mijn vraag hieronder). Het is één groot raadsel voor mij. Kunt u mij helpen? Alvast bedankt!

14.04.2022 - 23:19

DROPS Design answered:

Dag Edith,

Bij de beschrijving van de mouw staat in het begin dat je niet over de steken midden onder de mouw op de pas haakt en dat de mouw later aan deze steken genaaid worden. Dit is wat er bedoeld wordt me 'Naai elke kant van de mouw aan het lijf' bij onder de paragraaf afwerking. Echter als je maat S haakt gaat dit niet op omdat er 0 steken midden onder de mouw op de pas zitten.

20.04.2022 - 09:57

country flag Edith wrote:

Ik begrijp niet dat je bij de mouw 12 steken moet openlaten. Krijg je dan geen gat waar de oksel zit? Of worden die 12 steken een deel van de mouwnaad? Graag uw reactie.

14.04.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Dag Edith,

Nee, je krijgt geen gat hoor. Deze 12 steken zijn onderdeel van het armsgat en de mouw komt hier tegenaan. Niet de mouwnaad, maar de kop van de mouw.

19.04.2022 - 08:18

country flag Ulrika Tångring Guillou wrote:

Jag förstår inte vänster axel. Frågor inom parentes. "Virka 1 stolpe, A.1 och A.2 som förut" (menas det som de två sista varven på A1 och A2?). När "A.10 är färdigvirkat på höjden" (Ska den virkas fram och tillbaka eller fram till nästa "A1, A2 och sen tillbaka eller ska jag virka halva arbetet och sen vända? Om jag ska virka till uppnådd höjd, vilka rader ska jag då upprepa i A10, för det räcker ju inte med 3 rader?)

17.01.2022 - 15:31

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. Ja, de 2 siste radene av A.1 og A.2. Du hekler A.10 på høyre skulder og A.11 på venstre skulder. Når du hekler A.10 og A.11 hekler du også A.1 og A.2 og når du hekler siste rad av A.10 og A.11 vil de skrå naturlig den den siden de skal og det fortsettes med 1 stav, A.1 og A.2 som før. Du hekler hver skulder hver for seg. mvh DROPS Design

18.01.2022 - 12:10

country flag Ulrika Tångring Guillou wrote:

Nu är jag fast igen för jag får inte raderna att stämma. Tänker jag fel då jag tänker att diagrammet ska läsas varannan rad från höger och varannan från vänster? Det blir fel på rad tre då inte mönstren är över varandra?

05.12.2021 - 10:37

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. Første rad lese fra høyre til venstre. Andre rad fra fra venstre til høyre. Tredje rad fra høyre til venstre. Fjerde rad fra fra venstre til høyre, osv. Siden du hekler med flere diagrammer er det lurt å bruke maskemarkører mellom hvert diagram, da har du en bedre oversikt og det er lettere å se om diagrammene stemmer med hverandre i høyden (noe det skal gjøre). mvh DROPS Design

07.12.2021 - 14:20

country flag Ulrika wrote:

Mönster i varv 2. Jag har virkat en stolpe (3 lm) i första maskan och sen ska jag Virka A1 över 8 maskor. Första varvet är redan gjort säger diagrammet (fast det tycker jag inte, jag har ju bara virkat EN stolpe). Ska jag sedan gå uppåt och då virka 1 st, 1 lm och sen stolpe om lm/ lmb * 3 i de olika luftmaskbågarna från förra varvet? Sedan varv A3 så är det symboler som är snedstreck vilka inte är förklarade vad jag kan se.

10.11.2021 - 10:27

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. Første rad som hekles er forklart i oppskriften og denne raden har også en sort stjerne tegnet inn i diagrammene. Så når du har heklet denne raden og har 74-81-89-100-108- 119 staver, skal du begynne på 2. rad og etter diagram A.1 til A.7 slik: Hekle 1 stav i første maske (=3 luftmasker), hekle A.1 over 8-10-14-18-22-26 masker, hekle A.2 over 17 masker, A.3 over neste stav, hekle A.4 over 18-21-21-24-24-27 masker, hekle A.5 over 3 masker, hekle A.6 over 17 masker, hekle A.7 over 8-10-14-18-22-26 masker og avslutt med 1 stav i siste maske. Når hele diagram A.1 til A.7 er heklet ferdig i høyden, gjentas de siste 2 radene videre. mvh DROPS Design

15.11.2021 - 08:58

country flag Paula wrote:

Miten ihmeessa taman mallin A3 ja A5 mallikertojen vinot viivat virkataan. ovat kuin ketjusilmukat, mutta vinossa, miksi niistä ei kerrota piirrosten listassa, miten menetellaan.

28.06.2021 - 09:23

country flag Tamara Weiße wrote:

Hallo, ich habe eine Frage: Ich habe jetzt das Vorderteil begonnen. 1. Reihe :108 Luftmaschen 2. Reihe: 5 Stäbchen, 1 Luftmasche 3. Reihe: Frage: sind die Muster A1 - A7 in einer Reihe zu häkeln? So dass in 1 Reihe die Muster A1 - A7 vorhanden sind? Ist zwischen den 5 Stäbchen in der 1. Reihe 1 Luftmasche zu häkeln? Vielen Danke für die Hilfe Tamara Weiße

06.02.2021 - 11:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Weiße, bei der 1. Reihe muss 1 Luftmasche übersprungen werden und nicht gehäkelt werden. Man überspringt in der ersten R in regelmäßigen Abständen 1 Lm, damit der Rand nicht zu stramm und eng wird und elastisch bleibt - in der Regel häkelt man die Lm etwas fester als später die M, um das auszugleichen, schlägt man mehr Lm an. Wenn Ihnen sehr lockere Luftmaschen anschlagen, können Sie auch nur die Anzahl der Lm anschlagen, die Sie in der 2. R für die Stb brauchen (wobei dabei zu beachten ist, dass das 1. Stb aus 3 Lm besteht). Viel Spaß beim häkeln!

08.02.2021 - 08:16

country flag Marianne wrote:

Jeg har brug for uddybning af hækleinformation 2 i forhold til ærmet. Hvor mange luftmasker tager man i begyndelsen af en dobbelt stangmaskerække og hvor mange luftmasker tager man i begyndelsen af en tre dobbelt stangmaske række? På forhånd tak.

20.07.2020 - 11:29

DROPS Design answered:

Hej Marianne, du erstatter begge med 3 luftmasker. God fornøjelse!

31.07.2020 - 09:49