DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 3.08 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6.16€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Baby

Prjónað sett með buxum og húfu fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð: Fyrirburar til 4 ára.

DROPS Baby 33-12
DROPS Design: Mynstur me-071-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

BUXUR:

STÆRÐ:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
(100) 100-100-150-150 (150-200) g litur 01, natur

HÚFA:

Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3) ára
Höfuðmál í cm:
ca (28/30) - 32/34 - 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 – 50/52) cm

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
(50) 50-50-50-50 (50-100) g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 3.08 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6.16€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR (á við um buxur):
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA (á við um innan á skálm):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (á við um buxur):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

Fitjið upp (84) 96-104-116-124 (136-144) lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2½ cm prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= (21) 24-26-29-31 (34-36) göt í umferð). Haldið síðan áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið upphækkun aftan á buxunum eins og útskýrt er að neðan.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN:
Til að buxurnar passi betur eru þær prjónaðar hærra að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan.
Byrjið frá réttu og prjónið 10 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 20 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir (60) 60-80-80-100 (100-100) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan.

BUXUR:
Prjónið nú A.1 hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar buxurnar mælast (15) 17-18-21-22 (23-24) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur (= mitt að aftan), prjónið (34) 40-44-50-54 (60-64) lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur mitt að framan, prjónið (34) 40-44-50-54 (60-64) lykkjur slétt og fellið af þær 4 lykkjur sem eftir eru mitt að aftan. Klippið frá. Setjið lykkjur frá annarri hlið á stykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið skálm eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

SKÁLM:
= (34) 40-44-50-54 (60-64) lykkjur. Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna og haldið áfram með A.1 hringinn. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1 eru prjónaðar slétt. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur innan á skálm – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (1½) 1½-1½-1½-2 (2½-3½) cm millibili alls (4) 5-7-8-8 (8-8) sinnum = (26) 30-30-34-38 (44-48) lykkjur. Prjónið áfram þar til skálmin mælist (7) 9-12-15-19 (23-29) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (6) 6-8-6-8 (8-10) lykkjur jafnt yfir (aukið út eftir ca 5. hverja lykkju) – sjá ÚTAUKNING = (32) 36-38-40-46 (52-58) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á buxunum, byrjið mitt að framan og hnýtið síðan slaufu.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að framan.

HÚFA:
Fitjið upp (60) 66-72-78-84 (90-96) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið (8) 9-10-11-12 (13-14) lykkjur slétt, takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið (8) 9-10-11-12 (13-14) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 7 cm í öllum stærðum.
Prjónið síðan alveg eins, nema án útaukningar. Þ.e.a.s. haldið áfram með úrtöku alveg eins þar til ekki eru neinar lykkjur eftir á milli úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá, þræðiði þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca (14) 14-15-16-17 (17-18) cm mælt frá neðstu hornum.

SNÚRA:
Prjónið fram og til baka með 2 sokkaprjónum nr 3,5. Prjónið upp 4 lykkjur í horninu í annarri hlið á húfunni (horni sem er fyrir eyrað).
Prjónið 4 lykkjur slétt, * snúið ekki stykkinu, en færið lykkjurnar til yfir á hina hliðina á prjóninum, færið þráðinn aftan við 4 lykkjurnar, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur slétt frá réttu til baka *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca (14)16-18-20-22 (24-26) cm, fellið af og festið enda.
Prjónið hina snúruna á sama hátt í horni í garngsæðri hlið í húfunni.


DÚSKUR:
Gerið 2 dúska ca 3 cm að þvermáli. Festið þá efst á húfuna.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.03.2020
Ný mynsturteikning A.1
Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2020
Leiðrétting: SKÁLM: Nýr fjöldi lykkja í stærð 0/1 mán.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Baby

Hermine, Belgium

Winter Baby

Pauline Bouteiller, United States

Winter Baby

IntreccidiCeci, Italy

Winter Baby

Hilde Brustad, Norway

Winter Baby Hat | nr 2

Hermine, Belgium

b33-12 a Winter Baby Pants

paxwaldi, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Kari wrote:

Hei :) Jeg strikker denne luen nå, og det står at man skal repetere 1. og 2. omgang til arbeidet måler 7 cm. Måler man da fra startmarkøren, eller der man har økt, som fort er 1 cm lenger? Veldig fin lue :)

11.01.2024 - 14:09

DROPS Design answered:

Hei Kari, Du måler fra oppleggskanten. God fornøyelse!

12.01.2024 - 06:28

country flag Lena Folkman wrote:

Hej! Tacksam för gratis mönster på babymössa.Men förstår inte hur jag ska minska efter 7 cm. Hur ofta och hur många varv? Det står fortsätt med minskningarna tills det inte är några maskor kvar mellan minskningarna. Om jag fortsätter så minskar jag bara med 6 maskor per varv, efter var 10:e maska?Bra info fram till 7 cm, men sen tyvärr förvirrande.Verkar annars bli en bra mössa. Vänliga hälsningar, Lena Folkman

10.01.2024 - 19:24

country flag Marjut wrote:

Pyöröpuikot 60cm ei kyllä millään yletä ainakaan noihin pieniin kokoihin. Eli pitäisi olla 40cm mittaiset puikot?

01.11.2023 - 19:42

country flag Alena wrote:

Dobrý deň, Chcela by som sa informovať ohľadom čiapočky. Na 1. kruhovú radu je potrebných viac očiek, ako bolo nahodených na začiatku. Upliesť teda 1.kruhovú radu a zbytok 2. radu, po označenie začiatku kruhu, dokončiť hladko (2. kruhová rada), alebo upliesť hladko celý 2.kruh a vždy sa bude posúvať začiatok kruhovej rady? Alebo robím niekde chybu? Ďakujem

11.10.2023 - 13:48

DROPS Design answered:

Dobrý den, Aleno, počet ok v 1. kruhové řadě odpovídá počtu nahozených ok, a to u všech velikostí. K žádným posunům začátku kruhové řady nedochází a nejsou potřeba. Nemohlo dojít k záměně údajů? Zkontrolujte, prosím, zda pracujete vždy s údaji pro tu správnou velikost - tj. řiďte se vždy číslovkou na stejné pozici, jako má označení velikosti; např. pro vel. 6/9 měsíců, která je ve výčtu velikostí 4. v pořadí, se budete vždy řídit údajem, který je také 4. v pořadí. Pokud je zádrhel v něčem jiném, napište a rozlouskneme to! Hodně zdaru, Hana

11.10.2023 - 18:10

country flag Gunilla Sörnmo wrote:

Jag undrar över mönstret till mössan. På vartannat varv i början ökas det 2 maskor mindre än det minskas, dvs någonstans måste antalet maskor jag stickar mellan ökning/minskning modifieras. Detta hittar jag inte i mönstret. Kan ni förtydliga?

20.06.2023 - 14:54

DROPS Design answered:

Hej Gunilla, På varv 1 beskriver vi hur du ökar 2 maskor och minskar 2 maskor - det gör du 3 ggr = samma antal maskor :)

22.06.2023 - 14:31

country flag Elke Hildebrandt wrote:

Ich bin bei der Hose in der Größe 6/9 Monate bei einer Länge von 21 cm angekommen (gemessen ab dem Anschlagrand an der vorderen Mitte). Wie kann es sein, daß wenn ich mit einer neuen Reihe beginne, also an der Kante, die ja der vorderen Mitte entspricht, und vier Maschen abkette, dies der hinteren Mitte entsprechen soll und ich nach 50 rechts gestrickten Maschen und 8 abgeketteten Maschen bei der vorderen Mitte angekommen sein soll. Mir scheinen die Begriffe vordere/hintere vertauscht.

07.02.2023 - 12:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hildebrandt, die Runden beginnen in der hinteren Mitte, so ketten Sie die ersten 4 Maschen ab, stricken Sie die nächsten 50 M (die 1. davon ist schon auf der Nadel), ketten Sie die nächsten 8 M (vorderen Mitte), stricken die nächsten 50 M (die 1. davon ist schon auf der Nadel) und ketten die letzten 4 Maschen der Runde ab = so wurden 8 Maschen hinten und vorne für den Schritt abgekettet, und es sind 50 M für jedes Bein. Kann das Ihnen helfen?

07.02.2023 - 13:18

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Det jeg lurte på er hvor lang (i cm ) snoren bør være. Takk for hjelpen.

08.11.2022 - 22:05

DROPS Design answered:

Hej Anne-Beate, lav den med 3 meter og så kan du altid forkorte den med en knude hvis den bliver for lang :)

11.11.2022 - 13:47

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Jeg tenkte og lage snor på annen måte. F.eks hekle eller lignende.

08.11.2022 - 05:34

DROPS Design answered:

Hei Anne-Beate, Det kan du selvfølgelig gjøre. Hilsen Drops Team.

08.11.2022 - 07:31

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Hvor lang bør snoren være i de ulike str på buksen. Takk for hjelpen.

06.11.2022 - 19:11

DROPS Design answered:

Hei Anne-Beate, Snoren lages av 3 meter lange tråder og er lik i alle størrelsene. Hvis du synes den blir for lang for størrelsen du strikker, kan den klippes litt kortere når den er ferdig, før du knyter en knute i hver ende. God fornøyelse!

07.11.2022 - 07:50

country flag Linda wrote:

Gracias por su ayuda, gorrino terminado para mí nieto

01.11.2022 - 15:26