Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt | |
= brugðið |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Winter Baby |
|||||||
|
|
||||||
Prjónað sett með buxum og húfu fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð: Fyrirburar til 4 ára.
DROPS Baby 33-12 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR (á við um buxur): Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (á við um innan á skálm): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um buxur): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp (84) 96-104-116-124 (136-144) lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2½ cm prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= (21) 24-26-29-31 (34-36) göt í umferð). Haldið síðan áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið upphækkun aftan á buxunum eins og útskýrt er að neðan. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Til að buxurnar passi betur eru þær prjónaðar hærra að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 10 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 20 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 60 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir (60) 60-80-80-100 (100-100) lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. BUXUR: Prjónið nú A.1 hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar buxurnar mælast (15) 17-18-21-22 (23-24) cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 4 lykkjur (= mitt að aftan), prjónið (34) 40-44-50-54 (60-64) lykkjur slétt, fellið af 8 lykkjur mitt að framan, prjónið (34) 40-44-50-54 (60-64) lykkjur slétt og fellið af þær 4 lykkjur sem eftir eru mitt að aftan. Klippið frá. Setjið lykkjur frá annarri hlið á stykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið skálm eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! SKÁLM: = (34) 40-44-50-54 (60-64) lykkjur. Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna og haldið áfram með A.1 hringinn. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1 eru prjónaðar slétt. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur innan á skálm – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (1½) 1½-1½-1½-2 (2½-3½) cm millibili alls (4) 5-7-8-8 (8-8) sinnum = (26) 30-30-34-38 (44-48) lykkjur. Prjónið áfram þar til skálmin mælist (7) 9-12-15-19 (23-29) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (6) 6-8-6-8 (8-10) lykkjur jafnt yfir (aukið út eftir ca 5. hverja lykkju) – sjá ÚTAUKNING = (32) 36-38-40-46 (52-58) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina skálmina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á buxunum, byrjið mitt að framan og hnýtið síðan slaufu. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að framan. HÚFA: Fitjið upp (60) 66-72-78-84 (90-96) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið (8) 9-10-11-12 (13-14) lykkjur slétt, takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið (8) 9-10-11-12 (13-14) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 7 cm í öllum stærðum. Prjónið síðan alveg eins, nema án útaukningar. Þ.e.a.s. haldið áfram með úrtöku alveg eins þar til ekki eru neinar lykkjur eftir á milli úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá, þræðiði þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca (14) 14-15-16-17 (17-18) cm mælt frá neðstu hornum. SNÚRA: Prjónið fram og til baka með 2 sokkaprjónum nr 3,5. Prjónið upp 4 lykkjur í horninu í annarri hlið á húfunni (horni sem er fyrir eyrað). Prjónið 4 lykkjur slétt, * snúið ekki stykkinu, en færið lykkjurnar til yfir á hina hliðina á prjóninum, færið þráðinn aftan við 4 lykkjurnar, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur slétt frá réttu til baka *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca (14)16-18-20-22 (24-26) cm, fellið af og festið enda. Prjónið hina snúruna á sama hátt í horni í garngsæðri hlið í húfunni. DÚSKUR: Gerið 2 dúska ca 3 cm að þvermáli. Festið þá efst á húfuna. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6918 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (48)
Delrue Maryse wrote:
Bonjour Ma question concerne le pantalon baby 33 Je ne comprends pas quant il faut rabattre 4mailles =(milieu du dos Désolée
05.09.2022 - 18:23DROPS Design answered:
Bonjour Mme Delrue, les tours commencent au milieu dos, vous rabattez les 4 premières mailles du début du tour, tricotez les (34) 40-44-50-54 (60-64) mailles suivantes (la 1ère de ces mailles est déjà sur l'aiguille), rabattez les 8 mailles suivantes (= milieu devant), tricotez les (34) 40-44-50-54 (60-64) mailles suivantes (la 1ère de ces mailles est déjà sur l'aiguille) et rabattez les 4 dernières mailles, coupez le fil et passez le dans la dernière maille. Tricotez maintenant les mailles de l'une des jambes et mettez celles de l'autre en attente. Bon tricot!
06.09.2022 - 09:04Annelies Rennert wrote:
Stricke die babymütze. Nach 7cm soll weiter gestrickt ohne zunehmen aber abnehmen wie zuvor. Verstehe ich nicht wie viel mal auf einer Runde. Bitte geben Sie mir eine Rückmeldung.
11.08.2022 - 18:56Annelies Rennert wrote:
Hallöchen, ich strick die Babymütze. Ich verstehe nicht, nach 7 cm weiterstricken ohne zunahme und und dann abnehmen wie zuvor. Bitte erklären Sie mir da. Danke Annelies Rennert
11.08.2022 - 18:53DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, nach 7 cm stricken Sie wie zuvor, aber nun ohne die Zunahmen (= die Umschläge sind jetzt nicht mehr gestrickt); mit nur den Abanhmen wie zuvor (und diese Abnahmen wie zuvor über einander stricken). So wird die Maschenanzahl bei jeder 2. Runde abnehmen. Viel Spaß beim stricken!
12.08.2022 - 09:43Berit Nygård wrote:
Skjønner ikke , etter 7 cm fortsett som før på lue uten å øke. Hva er økningen er Det et kast , jeg skjønner ikke hvordan jeg fortsetter på luen etter 7 cm . ?
07.12.2021 - 22:04DROPS Design answered:
Hej Berit, ja du har øget med kast på hver 2. pind. Nu fortsætter du uden kast :)
08.12.2021 - 08:19Arja wrote:
Ohjeen mukaan tehdään 1 langankierto, eli yksi silmukka lisätään. Kavennuskohdassa kapenee 2 silmukka niin työhän kapenee koko ajan. Kuvassa näyttäisi olevan 2 langan nostoa silmukan molemmin puolin. Kuvassa on myös korvaläpät ja pintakuvio. Näyttää siltä että ohje ei täsmää kuvan kanssa.
09.10.2021 - 06:49Loly Aguilar Araujo wrote:
Hola me gustaría saber si cuando en el gorro se dejan de hacer aumentos las disminuciones son en todas las vueltas o una vuelta si y otra no gracias
10.08.2021 - 20:03DROPS Design answered:
Hola Loly, los disminuciones son cada dos vueltas (una vuelta si y otra no). Buen trabajo!
10.08.2021 - 21:09Anu wrote:
Ich stricke die Größe mit der Maschenzahl 78. Bei der 1. Rd geht es mir am Schluss nicht auf. Es bleiben nach dem Umschlag 2 Maschen übrig. Bei der kleineren Größe gehts auf. Was mach ich falsch, oder stimmt die Anleitung nicht?
08.07.2021 - 16:41DROPS Design answered:
Liebe Anu, so stricken Sie: *1 Masche rechts, 1 Umschlag (= 1 Zunahme), 11 Maschen rechts, 2 Maschen zusammen wie zum Rechtsstricken abheben, 1 Masche rechts und die beiden abgehobenen Maschen überziehen (= 2 Abnahmen), 11 Maschen rechts, 1 Umschlag (= 1 Zunahme)* (= 26 Maschen insgesamt), von *bis* 3 Mal wiederholen = 26x3= 78. Setzen Sie eine Markierung zwischen jede Wiederholung, es kann Ihnen helfen, die Maschenanzahl zu kontrollieren. Viel Spaß beim stricken!
09.07.2021 - 07:10Mariana wrote:
Add to tag words "earflaps". Thank you
05.07.2021 - 16:43Nicole Faille wrote:
Bonjour, Avez-vous des tutos disponible sur votre site? Merçi
15.04.2021 - 22:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Faille, qu'entendez-vous par tutos? Nous avons des leçons, des vidéos et des centaines de .
16.04.2021 - 14:20Michelle wrote:
Hei På luen så står det at jeg skal fortsette å felle da på 1.omg så 2.omg rett til det ikke er m mellom fellingene. Hvor mange masker skal det være totalt på pinnen da? Jeg får det til å bli 3 evt 6 men lua blir isåfall mye lengre enn den skal bli. Hva gjør jeg evt feil? Kunne også vært skrevet tydeligere at di 7 cm skal måles fra lengste spissen. Mer naturlig å måle fra omg start men det skiller det jo noen cm.
29.03.2021 - 18:16DROPS Design answered:
Hei Michell. Har du sjekket strikkefastheten din i høyden, stemmer den? Stemmer at det blir 3 evnt 6 masker, slik du også får. Det står i oppskriften at man skal måle fra en av de nederste spissene. mvh DROPS design
12.04.2021 - 14:39