DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Berry Diamond

Prjónuð peysa með laskalínu og blöðruermum úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-18
DROPS Design: Mynstur ai-189
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 23, kóralrif

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 78 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.8).

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá skiptingu á milli erma og bakstykkis, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 86-90-94-98-102-106 lykkjur. Skiptið síðan yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir 29 lykkjur (= bakstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.1 yfir 29 lykkjur (= framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína). Nú eru 94-98-102-106-110-114 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Laskalína er alltaf 2 lykkjur sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Á ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjóni. Á fram- og bakstykki eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 158-162-166-170-174-178 lykkjur í umferð.
Útaukning bæði á ermum og fram- og bakstykki heldur áfram eins og áður, en nú er mynstur A.2 til A.4 prjóna yfir 47 lykkjur í A.1 þannig: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), prjónið A.3 yfir 42 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 14 lykkjum) og prjónið A.4 (= 3 lykkjur).
Laskalína og ermar er prjónað eins og áður.
Þegar prjónað hefur verið til og með umferðar merktri með ör í þinni stærð, hefur verið aukið út alls 18-21-22-24-26-29 sinnum frá byrjun á berustykki og nú eru 230-258-270-290-310-338 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-24-25-27-29-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 68-74-77-83-89-97 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í lið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-89-97-107 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 3-3-4-6-8-10 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 158-170-182-198-218-238 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðarnar.
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig (byrjið í umferð merktri með ör í þinni stærð þannig að mynstrið haldi áfram): Prjónið 3-6-9-13-4-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5a (= 15 lykkjur), prjónið A.6a yfir næstu 42-42-42-42-70-70 lykkjur (= 3-3-3-3-5-5 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.7a (= 16 lykkjur), prjónið 6-12-18-26-8-18 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.5a (= 15 lykkjur), prjónið A.6a yfir næstu 42-42-42-42-70-70 lykkjur (= 3-3-3-3-5-5 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.7a (= 16 lykkjur) og endið með 3-6-9-13-4-9 lykkjur sléttprjón.
Endurtakið A.5a til A.7a á hæðina (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) þar til stykkið mælist ca 4-5-4-6-4-4 cm frá skiptingu – stillið af þannig að endað sé eftir heila einingu af hæðina.
Prjónið síðan með A.5b til A.7b, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður.
Prjónið þar til A.5b til A.7b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-28-28-28-27 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-34-38-38-42-50 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-236-260-288 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5.

ERMI:
Setjið 44-52-54-56-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-60-64-66-70-74 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi (á ekki við um stærð XXL) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-5-2-3-0-2 sinnum = 50-50-60-60-70-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-8-8-6-8-6 cm er mynstur prjónað hringinn þannig:
Prjónið A.8a yfir allar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.8a hefur verið prjónað til loka eru 70-70-84-84-84-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.8b. Endurtakið A.8b á hæðina þar til stykkið mælist ca 41-38-38-36-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu) – stillið af að endað sé eftir heila einingu á hæðina. Prjónið síðan A.8c. Þegar A.8c hefur verið prjónað til loka eru 35-35-42-42-42-42 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-6-6-2-2 lykkjur jafnt yfir = 32-32-36-36-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5.
Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 48-45-45-43-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
Ný mynsturteikning: A.5 og A.7 (umferð 15, vantaði uppslátt). A.6 (umferð 23, vantaði uppslátt)

Mynstur

symbols = slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (= EKKI gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = síðasta útaukning á framstykki og bakstykki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Berry Diamond

cfaraone, United States

Berry Diamond

Ola, Poland

Berry Diamond

Beatrice Mauri, Italy

Berry Diamond

Beatrice Mauri, Italy

Berry Diamond

J_e_z_i_o_r_k_a, Poland

Berry Diamond

LillyS, Estonia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Edith Ventura wrote:

Hallo bei a1 werden am rücken- und vorderteil in jeder 2. runde am rand verschränkte aufnahmen gemacht. nur bei den ärmeln werden die umschläge re gestrickt damit ein loch entsteht. auf dem bild sind die löcher aber beidseits der raglanmaschen zu sehen. könnte es sein, dass beidseitig die umschläge nur re gestrickt werden? vielen dank und liebe grüsse edith

14.05.2021 - 22:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ventura, die Umschläge für die Raglanzunahmen werden verschränkt gestrickt, um Löcher zu vermeiden, es kann kleine Löcher entstehen, aber viel kleiner als beim Lochmuster. Viel Spaß beim stricken!

17.05.2021 - 08:44

country flag Laura Johnson wrote:

Where do you start knitting from when starting the body? The instructions say to break the yarn after putting the sleeves on threads, which indicates the knitting will start elsewhere but it doesn't say whereabouts.

10.04.2021 - 19:21

DROPS Design answered:

Dear Laura, it is best to start the round at one of the sides (at one of the markers, you've put under the sleeve). I usually start on the left side, but this is mostly personal preference. Happy Knitting!

10.04.2021 - 19:34

country flag Elisabeth wrote:

J'aimerai pouvoir imprimer les explications de ce modèle, surtout les diagrammes. Merci par avance

14.12.2020 - 15:30

DROPS Design answered:

Bonjour Élisabeth, cliquez sur le bouton "Imprimer" pour lancer l'impression. Bon tricot!

14.12.2020 - 15:58

country flag Maminko wrote:

Je viens juste de terminer ce magnifique pull, mais j'ai allongé le corps et fait des manches moins bouffantes. C'était un bonheur de le tricoter : grâce à ces motifs, il n'y avait aucune monotonie dans le travail. Cependant, avec les modèles que l'on réalise de haut en bas, on est gênée par le poids de l'ouvrage lorsque l'on tricote les manches du moins lorsqu'il s'agit d'un modèle pour adulte.

15.11.2020 - 18:26

country flag Maggie wrote:

Beste, misschien kijk ik er over maar ik kan nergens een matentabel vinden op de site zodat ik aan de hand van mijn borstomtrek, taille, heupomtrek kan bepalen welke maten er gehanteerd worden op deze site. Dank bij voorbaat.

28.09.2020 - 16:03

DROPS Design answered:

Dag Maggie,

Dat klopt er staat geen matentabel op de site. Bij ieder patroon staat onderaan het patroon een tekening met maten erbij. Je kan de maten het beste vergelijken met een bestaand kledingstuk die je goed zit.

28.09.2020 - 16:28

country flag Lise Beyer Jensen wrote:

I A1 udtagninger fra beg. 29m og til nr. 6række op = 35m, det fungerer ok! I næste række skal jeg lave omslag 6gange + de 2 ragnlang udtagninger. Jeg forstår ikke symbolerne efter de første 2masker sammen? Omslag - omslag? Skal der være 2omslag lige efter hinanden? Et kæmpehul? Maskeantallet kommer ikke til at stemme lige meget hvordan! Kunne vi få en lang udskrift på dansk af meningen med symbolerne ved disse omslag - Tak!

25.07.2020 - 15:32

DROPS Design answered:

Hej Lise, Pind 7 strikker du således: 2 omslag, 1 ret, 2r sm, 1oms, 1 ret, 1 oms, tag 1m løs af p...., 9ret osv. God fornøjelse!

03.08.2020 - 14:50

country flag Gitte Højberg wrote:

Ryg og forstykke. Start på omgangen markeret med pil i din størrelse???? Hvor på omgangen skal jeg starte? Er det ved raglan? Jeg skal strikke 6+7(a5) masker glat i str. Medium før mønster, men det kommer aldrig til at passe med mønsteret ligegyldig hvor jeg starter.

15.05.2020 - 18:39

DROPS Design answered:

Hej Gitte, ja du starter med 29 masker over bagstykket. Strikker de 29 masker som er tegnet ind i diagrammet. Husk at du starter med at strikke diagram A1 fra nederste pind fra højre mod venstre. God fornøjelse!

22.05.2020 - 12:25

country flag Criizmeow wrote:

Hola, me encantaría hacer este diseño pero siento que hay algo que no logro comprender. Al seguir las instrucciones para hacer el canesú, las indicaciones hacen que mi tejido quede con 111 puntos, en lugar de los 114 que las instrucciones debo tener, los sume para ver si era mi error, pero efectivamente la suma da lugar a 111 puntos, esto es un problema ya que cada fila sucesiva termina dañando más y más el diseño.

02.04.2020 - 05:34

DROPS Design answered:

Hola Criizmeow. El patrón es correcto. Si te fijas en el diagrama A.1 de 29 puntos, tiene aumentos en cada vuelta impar. Es decir, que después de la primera fila de A.1 en lugar de 29 puntos hay 31 (= 2 puntos aumentados) en el delantero y 2 puntos aumentados en la espalda. Un total de 4 puntos que son los que te faltaban en el recuento total (114 en vez de 110).

02.04.2020 - 17:25

country flag HELENA wrote:

R XXXL. Rozdzielenie oczek na: rękawy 20, przód i tył 29 o. Dodaję reglan 8 x po 29 o. = 338 o. Rozdzielenie z opisu 62 + 62 + 107 + 107 = 338 o. Mam oczek: rękawy 20 + reglan 2 x 29 o. = 78 o. w opisie na rękaw zdjąć po 62 o. przód i tył: 29 + reglan 2 x 29, + 4 linia regl. = 91 o. - w opisie na przód i tył po 107 o. Czy linie reglanu nie powinny oddzielać rękawów od tyłu i przodu? Dlaczego w opisie jest inny podział oczek?

18.03.2020 - 20:29

DROPS Design answered:

Witaj Heleno! Jest to przesunięte, gdyby tak nie było, to po podziale robótki tył i przód byłyby tylko o 9 o. szersze niż rękawy. Pozdrawiam!

19.03.2020 - 18:08

country flag Marieke Van Der Heijden wrote:

Via Pinterest is dit patroon geblokkeerd omdat men denkt dat dit Spam is. Heel vreemd.

01.03.2020 - 09:21