DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Berry Diamond Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu og blöðruermum úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-17
DROPS Design: Mynstur ai-188
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 23, kóralrif

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 8,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 8. og 9. hver lykkja saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.14. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.14). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-10-9-9½-10 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá skiptingu á milli erma og bakstykkis, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 97-101-105-109-113-117 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 15 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10-12-14-16-18-20 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.3 (= 15 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Nú eru 105-109-113-117-121-125 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1, A.2 og A.3. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Laskalína er alltaf 2 lykkjur sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Á ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. Á fram- og bakstykki eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1, A.2 og A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 169-173-177-181-185-189 lykkjur í umferð.
Útaukningar bæði á ermum og fram- og bakstykki heldur áfram eins og áður, en nú er prjónað mynstur A.4 til A.8 yfir A.1 til A.3 þannig: Prjónið A.4 (= 24 lykkjur) yfir A.1, yfir 47 lykkjur í A.2 er prjónað þannig: Prjónið A.5 (= 2 lykkjur), prjónið A.6 yfir 42 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 14 lykkjum) og prjónið A.7 (= 3 lykkjur). Prjónið A.8 (= 24 lykkjur) yfir A.3. Kantlykkjur að framan, laskalína og ermar er prjónað eins og áður.
Þegar prjónað hefur verið til og með umferð merktri með ör í þinni stærð hefur verið aukið út alls 18-21-22-24-26-29 sinnum frá byrjun á berustykki og nú eru 241-269-281-301-321-349 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-24-25-27-29-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 41-44-46-50-54-59 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-89-97-107 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 41-44-46-50-54-59 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 169-181-193-209-229-249 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar.
Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig (byrjið í umferð merktri með ör í þinni stærð þannig að mynstrið haldi áfram): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.9a (= 7 lykkjur), prjónið A.10a yfir næstu 14-14-14-14-28-28 lykkjurnar (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.11a (= 16 lykkjur), prjónið 6-12-18-26-8-18 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.12a (= 15 lykkjur), prjónið A.10a yfir næstu 42-42-42-42-70-70 lykkjurnar (= 3-3-3-3-5-5 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.11a (= 16 lykkjur), prjónið 6-12-18-26-8-18 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.12a (= 15 lykkjur), prjónið A.10a yfir næstu 14-14-14-14-28-28 lykkjurnar (= 1-1-1-1-2-2 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.13a (= 8 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Endurtakið A.9a til A.13a á hæðina (þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður) þar til stykkið mælist ca 4-5-4-6-4-4 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Prjónið nú áfram með A.9b til A.13b, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Prjónið þar til A.9b til A.13b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan í sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 28-27-28-28-28-27 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 31-35-39-39-43-51 lykkjur jafnt yfir = 200-216-232-248-272-300 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5.

ERMI:
Setjið 44-52-54-56-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-60-64-66-70-74 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-5-2-3-0-2 sinnum = 50-50-60-60-70-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-8-8-6-8-6 cm er mynstur prjónað hringinn þannig:
Prjónið A.14a yfir allar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.14a hefur verið prjónað til loka eru 70-70-84-84-84-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.14b. Endurtakið A.14b á hæðina þar til stykkið mælist ca 41-38-38-36-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu) – stillið af að endað sé eftir heila einingu á hæðina. Prjónið síðan A.14c. Þegar A.14c hefur verið prjónað til loka eru 35-35-42-42-42-42 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-6-6-2-2 lykkjur jafnt yfir = 32-32-36-36-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 48-45-45-43-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
Ný mynsturteikning: A.9 og A.10 (umferð 23, vantaði uppslátt). A.11 og A.12 (umferð 15, vantaði uppslátt)
Yfirfarið á vefsvæði: 17.10.2019
Ný mynsturteikning A.4 (umferð 1)

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (= EKKI gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = síðasta útaukning á framstykki og bakstykki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Berry Diamond Cardigan

Renata, Poland

Berry Diamond Cardigan

Stephanie, Netherlands

Berry Diamond Cardigan

Monika Martinson, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Blais wrote:

Bonjour, Je voulais savoir si des le début de l’empiètement, les augmentations se font tous les deux rangs pour les raglans de manches et tous les qu’âtres rangs pour les motifs? Merci bien. Stéphanie

05.11.2023 - 18:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blais, on doit augmenter pour le raglan tous les rangs sur l'endroit, autrement dit tous les 2 rangs, et ce à chaque raglan, on va donc augmenter 8 mailles tous les 2 rangs: 1 pour chaque devant et 2 pour chaque manche et le dos. Bon tricot!

06.11.2023 - 08:48

country flag Michelle wrote:

Love this pattern but have two questions: Chart A.13 says to begin the medium size 7 rows up. Is this also the same row to begin chart A.12 or just begin at the bottom? In the Body directions when repeating A.9a to A.13a vertically, the pattern goes on to state “adjust to finish after a whole repetition vertically”—how would one adjust? Thank you for your help!

17.03.2023 - 16:16

DROPS Design answered:

Dear Michelle, the arrows are only applied to both, so start both charts at the same arrow. About adjusting, it means that when the piece measures approx. 5cm (for M size) it may measure a bit less or a bit more than 5cm (a few mm) but the important thing is that the last row worked is the last row of the charts, so that the pattern will fit for the next rows. Happy knitting!

19.03.2023 - 23:42

country flag Viviana wrote:

Buongiorno, non riesco a capire quando devo cominciare ad usare A10b, A11b, A12b sul corpo

10.05.2022 - 07:34

DROPS Design answered:

Buongiorno Viviana, deve lavorare i diagrammi A.9a - A.13a una volta e poi procede con A.9b - A.13b. Buon lavoro!

10.05.2022 - 12:51

country flag Viviana wrote:

Mi riferivo ai raglan ma lavorando ho capito, grazie!

10.05.2022 - 07:29

country flag Viviana wrote:

Buongiorno, non riesco a capire se i gettati prima e dopo i ragazzi devono essere "chiusi" o se deve rimanere il buco. Dalla foto mi sembra rimanga il buchetto, grazie.

12.04.2022 - 07:57

DROPS Design answered:

Buonasera Viviana, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!

01.05.2022 - 23:37

country flag Namrata wrote:

Hi, I am a bit confused on following the row for the sleeves (small size) where we start increasing - is it two stitches every eight row until we have 70 stitches starting from 50. Or is it increasing ten stitches every eight row two times over so that we have 70stitches, Please advise. Thank you Namrata

04.06.2021 - 21:26

DROPS Design answered:

Dear Namrata, you decrease 2 stitches at EACH repeat of the the A.14 pattern (in size S twice). So there is a decrease of 10 stitches in the 3d and in the 11th round. Happy Knitting!

07.06.2021 - 03:31

country flag Donna Jensen wrote:

Does the 88 beginning stitches already include the edges or do you need to add 10 more for the edges

22.04.2021 - 22:39

DROPS Design answered:

Dear Donna, the 88 stitches already include the edge / band stitches, you don't need to add them. Happy Knitting,

23.04.2021 - 01:36

country flag Anaïs wrote:

Merci pour votre réponse !

25.01.2021 - 10:05

country flag Anaïs wrote:

Bonjour, merci beaucoup pour ce magnifique modèle ! J'aurais une petite question. Je viens de finir l'empiècement au niveau de la flèche (L). Je me demandais si après avois fait glisser les mailles de la manche il fallait reprendre le motif de A4, A5, A6, A7, A8 pour le terminer ou si on reprenait directement à A9, A10, etc. ? Je vous remercie. Bonne journée.

24.01.2021 - 00:49

DROPS Design answered:

Bonjour Anaïs, lorsque vous avez glissé les mailles des manches en attente, vous tricotez de suite A.9, A.10 etc.. mais choisissez bien votre rang pour continuer le motif après l'empiècement. Bon tricot!

25.01.2021 - 09:21

country flag Postema wrote:

Hoe brij ik een steek gedraaid averecht?

23.11.2020 - 10:10

DROPS Design answered:

Dag Postema,

Dit doe je door de naald in de achterste lus van de steek te steken en vervolgens normaal averecht breien. Zie ook onderstaande video waarin te zien is dat op de teruggaande naald in de tweede omslag de naald in de achterste lus gestoken wordt.

24.11.2020 - 13:37