Ria Peters wrote:
Na de raglanmeerderingen in maat L staan er 56 steken op de naald voor de mouwen. Volgens het patroon moet ik 60 steken per mouw op een hulpnaald zetten voordat je verder gaat met het lijf. Kunt u mij uitleggen waarom deze aantallen verschillen? Alvast dank voor uw antwoord.
10.08.2021 - 13:48DROPS Design answered:
Dag Ria,
Waarschijnlijk bedoel je dat er tussen de markeerdraden voor de mouw 56 steken zitten? Aan beide kanten van deze markeerdraden komen er dan nog 2 steken bij om op de hulpdraad te zetten voor de mouw, zodat je op 60 komt. Bij het scheiden van het werk voor de mouwen en de panden komt het wel vaker voor dat er steken van de panden naar de mouwen verschoven worden.
18.08.2021 - 19:41Elisa Cicchetti wrote:
Posso eseguire il lavoro interamente su ferri circolari? Grazie mille!
29.01.2021 - 15:05DROPS Design answered:
Buonasera Elisa, se non vuole usare i ferri a doppia punta per la lavorazione delle maniche può utilizzare dei ferri circolari con cavo corto oppure la tecnica del magic loop con i ferri circolari con cavo flessibile di almeno 80 cm. Buon lavoro!
29.01.2021 - 18:20Liesbeth wrote:
Op de schema tekening zie ik een duidelijke hals uitsnijding. Bij de beschrijving staat niets over verkorte toeren om deze hals te creëren. Hoe krijg ik anders deze gevormde hals?
22.05.2020 - 23:53DROPS Design answered:
Dag Liesbeth,
De vorm van de hals ontstaat vanzelf door de raglanlijnen. De tekening komt niet altijd 100% overeen met de vorm van het model.
05.06.2020 - 11:25Claudia wrote:
Mir scheinen die Masse extrem klein... Bei einem vergleichbaren Strickmuster (200-29) sind diese um die 10 cm weiter... Stimmen diese? Ist der Garnverbrauch korrekt? Danke im Voraus und Grüsse
19.10.2019 - 11:26DROPS Design answered:
Liebe Claudia, dieses Modell ist in der Größe S bis XXXL und dieses Modell in der Größe XS bis XXXL - Deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
21.10.2019 - 09:20Maria wrote:
Buongiorno sto finendo il modello nella taglia S ma provandolo mi rendo conto che risulta un modello avvitato e non morbido come invece appare dalle foto, le misure però corrispondono a quelle indicate sul modello, potreste chiarirmi il motivo? Avrei voluto il modello morbido così come appare in foto, uffa!
09.10.2019 - 13:15DROPS Design answered:
Buongiorno Maria, il suo campione corrisponde a quello indicato? Questo passaggio è fondamentale per la corretta riuscita della realizzazione. Buon lavoro!
09.10.2019 - 15:05Maria wrote:
Salve sto eseguendo la maglia nella taglia S ma non ho capito: quando per gli aumenti -2 dice di fare 28 aumenti sono tutti sullo stesso ferro? In questo punto io sono a25 cm dal segno che dice ti tenere presente in fondo al paragrafo dello sprone, è corretto? Devo quindi ancora continuare con il color ocra fino alla lunghezza definitiva dei 50 cm? Grazie in anticipo, Maria.
23.09.2019 - 21:47DROPS Design answered:
Buongiorno Maria. Sì è corretto. Quando si trova a 25 cm dal segno, aumenta 28 maglie sullo stesso ferro. Aumenta facendo in modo che ci siano circa lo stesso numero di maglie tra un aumento e l’altro. Finisce il lavoro con il colore ocra. Buon lavoro!
23.09.2019 - 22:42Maria wrote:
Buongiorno, mi sorge un dubbio che non ho risolto guardando i tutorial, nell'aumento per il raglan: devo sempre aumentare ai lati della quattro maglie a cavallo del segnapunto, o al giro dell'aumento successivo, i punti centrali non saranno più quattro, ma i quattro più gli aumenti precedenti?Grazie in anticipo
03.09.2019 - 16:37DROPS Design answered:
Buongiorno Maria. Deve sempre aumentare ai lati delle 4 maglie a cavallo del segnapunti, quindi sempre 2 maglie prima e 2 due maglie dopo il segnapunti. Buon lavoro!
03.09.2019 - 16:48Lorena wrote:
Buongiorno. Vorrei lavorare questo modello col filato Baby Alpaca Silk e volevo usare il convertitore di filati. Poiché questo lavoro è da effettuare con due capi, mi sbaglio, o la quantità da indicare è metà di quella indicata? Saluti e grazie.
28.05.2019 - 21:41DROPS Design answered:
Buongiorno Lorena. Alpaca e BabyAlpaca hanno lo stesso metraggio: 167 m per 50 g. La quantità di BabyAlpaca necessaria è la stessa di quella indicata nel modello. Qui può trovare indicazioni utili sulla sostituzione di filati. Buon lavoro!
28.05.2019 - 22:43Mette wrote:
Fin model - kommer der en opskrift?
20.02.2019 - 10:26
Let the Sun In Sweater |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-14 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Prjónið rendur með 2 þráðum og sléttprjóni þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð mynsturteikning A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikning A.3 prjónuð. Prjónið síðan með sinnepsgulur til loka. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 23. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 22. og 23. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 150 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt af þeim prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Allt stykkið er prjónað úr 2 þráðum og röndum. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 88-92-96-100-104-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð slétt þannig: Prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 14 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 14 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið þær 15-16-17-18-19-20 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft bakstykki). Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-19-21-23-25-28 sinnum = 216-244-264-284-304-332 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, haldið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að aftan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 30-33-36-40-44-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-60-62-64-68 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 60-66-72-80-88-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-56-60-62-64-68 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 30-33-36-40-44-49 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 5-5-8-8-8-8 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum = 152-164-176-192-212-232 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25 cm er aukið út um 28-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 180-196-212-232-256-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-56-60-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-64-70-72-76-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón og rendur eins og áður. Þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum með ca 4 cm millibili alls 7 sinnum. Stærð M: Fækkið lykkjum til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 10 sinnum. Stærð L: Fækkið lykkjum með ca 2 cm millibili alls 12 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum til skiptis með 1 og 2 cm millibili alls 13 sinnum. Stærð XXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 14 sinnum. Stærð XXXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 14 sinnum. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 42-44-46-46-48-52 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist 29-27-26-24-22-21 cm aukið út um 10-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna. Ermin mælist ca 31-29-28-26-24-23 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Karolin wrote:
Der Pulli gefällt mir sehr, aber zum Schnitt passt doppelt Alpaca wirklich nicht, das ist ein viel zu warmes Garn für den Sommer, auch einfach schon. Wäre toll wenn es den noch mit Garngruppe A gäbe.
04.11.2023 - 21:59