Leibe Segal wrote:
I would like to make this jacket with long sleeves. Could you advise me on how to adjust the pattern, please?
27.08.2020 - 15:39DROPS Design answered:
Dear Mrs Segal, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request but you can take inspiration from a pattern with long sleeves and same tension. Happy knitting!
27.08.2020 - 16:15Susanne wrote:
Hej Hvordan kan knaphullet komme til at være på højre forkant, når tøjet er på, hvis jeg først laver knaphullet sidst på en ret pind? Så vil det, så vidt jeg kan regne ud, komme til at sidde på venstre forkant.
10.06.2019 - 23:11DROPS Design answered:
Hei Susanne. Det strikkes ovenfre og ned, så da blir begynnelsen av pinnen på venstre forstykke og slutten av pinnen på høyre forstykke (når plagget has på). Knapphullene strikkes på slutten av en pinne fra retten = høyre forstykke. God fornøyelse
11.06.2019 - 07:13Solvejg Pedersen wrote:
Super sød sommer trøje, håber opskriften snart er klar
25.02.2019 - 16:56Rini C wrote:
Sunny Summer
24.02.2019 - 18:09Hanne Enghave wrote:
Venter dagligt på opskriften. Skøn trøje
19.02.2019 - 17:56Golden Sun wrote:
Ik vindt het op gouden zonnestralen lijken
15.02.2019 - 19:28Gerda Pennekamp wrote:
Happy yellow stripes
30.01.2019 - 12:57Anne Marie wrote:
Very nice summer cardigan with graduated stripes.
13.01.2019 - 15:53
Let the Sun In |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-15 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Prjónið rendur með 2 þráðum og sléttprjóni þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð mynsturteikning A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikning A.3 prjónuð. Síðan er prjónað með litnum sinnepsgulur til loka. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) mínus kanta að framan (= 8 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 15,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 14. og 15. hverja lykkju og 15. og 16. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 160 lykkjur) mínus kanta að framan (= 8 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert og eitt af þeim prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5 næstu hnappagötum með ca 8-8-9-9-10-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. Allt stykkið er prjónað úr 2 þráðum og röndum. BERUSTYKKI: Fitjið upp 102-106-110-114-118-122 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (1. umferð = rétta): 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 96-100-104-108-112-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið). Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki 19-20-21-22-23-24 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í skiptinguna á milli framstykkja og erma), setjið eitt prjónamerki eftir 14 nýjar lykkjur í hvorri hlið (= í skiptinguna á milli ermar og bakstykkis). Nú eru 30-32-34-36-38-40 lykkjur á milli 2 síðustu prjónamerkja sem voru sett (= bakstykki). Prjónið nú sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-19-21-23-25-28 sinnum = 224-252-272-292-312-340 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, haldið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að aftan. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 34-37-40-44-48-53 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 48-56-60-62-64-68 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 60-66-72-80-88-98 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 48-56-60-62-64-68 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 34-37-40-44-48-53 lykkjur sem eftir eru í umferð (= vinstra framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-172-188-208-228 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerki fylgir með í stykkinu. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður og rendur. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með ca 5-5-8-8-8-8 cm millibili alls 4-4-3-3-3-3 sinnum = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25 cm er aukið út um 30-34-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 190-206-222-242-266-290 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-56-60-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-64-70-72-76-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón og rendur eins og áður. Þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum með ca 4 cm millibili alls 7 sinnum. Stærð M: Fækkið lykkjum til skiptis með 2 og 3 cm millibili alls 10 sinnum. Stærð L: Fækkið lykkjum með ca 2 cm millibili alls 12 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum til skiptis með 1 og 2 cm millibili alls 13 sinnum. Stærð XXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 14 sinnum. Stærð XXXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 14 sinnum. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 42-44-46-46-48-52 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist 29-27-26-24-22-21 cm aukið út um 10-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna. Ermin mælist ca 31-29-28-26-24-23 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Susanne wrote:
Jeg fandt ud af det med knaphullet, som jeg spurgte om. Det var bare mig som var lidt forvirret. Tak for nogle dejlige opskrifter :-)
11.06.2019 - 06:44