DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Life With Flair

Prjónuð peysa úr DROP Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum á berustykki og ¾ löngum útvíðum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-36
DROPS Design: Mynstur z-854
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 3112, daufbleikur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lend 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og klukkuprjóns lykkjur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: Lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Blóm (ljós bleik) NR 615: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu í A.1):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja klukkuprjóns lykkju (ekki er aukið út á milli klukkuprjóns lykkja og kanti að framan).
Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið alveg eins úr við hitt prjónamerkið.
Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 258 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 248 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 71) = 3,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 6½-7-7½-7½-8-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 122-134-140-140-149-161 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-3-3-3 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
STÆRÐ S, M og L: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn,1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 159-175-183 lykkjur.
STÆRÐ XL, XXL og XXXL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 226-241-261 lykkjur.
ALLAR STÆRÐIR: Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 4-4-4-5-5-5 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) – sjá ÚTAUKNING-1 = 196-216-226-269-287-311 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 4-4-4-5-5-5 lykkjur brugðið (séð frá réttu) á milli hverra klukkuprjóns lykkja.
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur), prjónið A.2B þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36-40-42-42-45-49 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjum), prjónið A.2C (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 340-376-394-437-467-507 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3A (= 5-5-5-6-6-6 lykkjur), prjónið A.3B þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 36-40-42-42-45-49 mynstureiningar með 9-9-9-10-10-10 lykkjum), prjónið A.3C (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 16-17-19-21-23-25 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Prjónið nú 4 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, EN í hverri umferð frá réttu halda klukkuprjóns lykkjur áfram alveg eins og áður (þ.e.a.s. klukkuprjóns lykkjur eru prjónaðar eins og áður, en í sléttprjóni á milli klukkuprjóns lykkja – ATH: Klukkuprjóns lykkjurnar verða aðeins sýnilegri í þessum 4 umferðum, en það kemur mýkri skipting á milli áferðar og sléttprjóns).
Prjóni síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 0-0-4-1-1-1 lykkjur jafnt yfir = 340-376-398-438-468-508 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá röngu þannig: Prjónið 55-59-62-68-75-82 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 65-75-80-88-89-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-108-114-126-140-154 lykkjur sléttprjón eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 65-75-80-88-89-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-59-62-68-75-82 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 222-242-258-282-314-342 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – mundið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan.
Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-3½-3-3-3 cm millibili alls 4-4-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 238-258-278-306-338-366 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 67-71-78-83-93-101 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 305-329-356-389-431-467 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem er prjónað síðar dragist saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru efir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-75-80-88-89-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-83-90-98-101-107 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 8-11-14-17-17-19 sinnum í mismunandi stærðum: S: Í 8. hverri umferð, M: Í 5. hverri umferð, L: Í 4. hverri umferð, XL: Í 3. hverri umferð, XXL: Til skiptis í annarri hverri og í 3. hverri umferð, XXXL: Í annarri hverri umferð = 55-61-62-64-67-69 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-21-20-19-17-15 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-3-2-0-5-3 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64-64-72-72 lykkjur. Prjónið A.4 hringinn (= 7-8-8-8-9-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 84-96-96-96-108-108 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 35-32-31-30-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-27-27-27-30-30 lykkjur jafnt yfir = 108-123-123-123-138-138 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðnar) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 38-35-34-33-31-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju – þessi lykkja er nú kölluð klukkuprjónslykkja
symbols = prjónið 5 lykkjur í klukkuprjónslykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að steypa lykkjunni af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið sömu lykkju slétt án þess að steypa henni af vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri)
symbols = prjónið 5 lykkjur í lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að steypa lykkjunni af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið sömu lykkju slétt án þess að steypa henni af vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Carina wrote:

Hola Se puede hacer elevación del escote? Y en ese caso cuándo se haría, después de terminar con el punto inglés? Gracias

29.02.2024 - 14:13

DROPS Design answered:

Hola Carina, sí, puedes trabajar una elevación después de la cenefa del cuello, antes de empezar el canesú.

29.02.2024 - 23:01

country flag La TricotAnne wrote:

Bonjour 👋 Dans l’empiètement, quand on a 5m entre les côtes anglaises et que l’on arrive à 9cm, on nous dit de tricoter A.2B mais c’est pareil 🤨 Doit-on faire des augmentations? On passe de 311 à 507 m comment ?

08.09.2022 - 12:35

DROPS Design answered:

Bonjour La TricotAnne, dans chaque A.2B vous allez augmenterr 4 mailles, autrement dit, en XXXL: 5 m point mousse, A.2A (= 6 m), 49 x A.2B (= 6 m), A.2C (= 1 m), 5 m point mousse = 5+6+(49*6)+1+5=311 m - quand A.2B est terminé, vous avez 5 m point mousse, A.2A (= 6 m), 49 x A.2B (= 10 m), A.2C (= 1 m), 5 m point mousse =5+6+(49*10)+1+5= 507 mailles. Vous tricote ensuite A.3 (on a maintenant alternativement 3 m envers et 5 m envers entre chaque maille en côtes anglaises). bon tricot!

08.09.2022 - 13:01

country flag Anette wrote:

Ska ökningarna i A2B också stickas vridna el dylikt på avig varvet efter ökningarna?

20.12.2021 - 18:28

DROPS Design answered:

Hei Anette. Nei, ikke vridd. Du øker med 4 masker hver gang A.2B strikkes (den sorte prikken). På neste rad strikkes disse maskene rett fra vrangen (se 2.rad i diagrammet og diagramteksten til ikonet firkant med en strik i (-). mvh DROPS Design

21.12.2021 - 12:54

country flag Delrieu Bernadette wrote:

Je fais le modèle 201-36 cardigan\r\nje ne comprends pas comment ce tricote le diagramme A1A\r\nquand vous dite que le dessin represente l endroit du travail\r\nje comprends bien le 1 rang\r\nmais de 2eme represente t il l\'envers du travail ?le tuto montre un modèle en ron\r\n\r\nmerci avance j ai regardé le tuto mais celui ci montre un modèle en rond

28.09.2020 - 10:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Delrieu, les diagrammes montrent tous les rangs: sur l'endroit, vous lisez de droite à gauche et sur l'envers de gauche à droite. 1 case blanche = jersey endroit et 1 case avec un tiret = jersey envers - cf légende. Bon tricot!

28.09.2020 - 11:06

country flag Rosario wrote:

Thanks!

17.02.2020 - 22:50

country flag Rosario wrote:

Hi, I am having problems with diagram A3B. If I understood the cardigan right, this is meant to ‘split’ the knit in two to expand the pattern. But if I follow the diagram, the opening is not centred, that is, the two new stitches do no branch from the previous knit. Am I doing something wrong?

16.02.2020 - 22:12

DROPS Design answered:

Dear Rosario, didn't you forget to increase 1 purl stitch in each p-section in A.1, ie before working A.2? Then, when working A.2 you will increase 4 sts in each repeat and these new 9-10 stitches will be worked as in A.3B. Hapy knitting!

17.02.2020 - 10:23

country flag Bente Bønke wrote:

En diagramforklaring mangler i model 201-36. A2B str. S-M-L symbol "tyk sort klat", hvad står den for?

28.11.2019 - 13:39

DROPS Design answered:

Hei Bente! Forklaringen på den sorte prikken kan du finne på fjerde ikon i diagramforklaringen. Lykke til!

28.11.2019 - 14:14

country flag Sofie Jonsson wrote:

Äntligen! Letat länge efter denna modell. Hoppas den kommer snart så att jag kan börja sticka. Tycker den ska heta Princess cake. Den är så söt och läcker!😊

18.01.2019 - 22:50

country flag Michaela wrote:

Wunderschöne Jacke! Möchte am liebsten gleich loslegen mit stricken. Ich hoffe sehr,dass die Anleitungen bald freigeschaltet werden und diese Jacke auch dabei ist 😥

05.01.2019 - 12:26

country flag Sylvia wrote:

Such a beautiful Cardigan, love it, but it seems to be, I am lonely with it. Sad about it, if this Cardigan doesn't make it. ;-(

16.12.2018 - 11:42