Life With Flair Jumper |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROP Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum á berustykki og ¾ löngum útvíðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-35 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2 og A.3). ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu í A.1): Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja klukkuprjóns lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn bruðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið alveg eins út við hitt prjónamerkið. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðnir svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 228 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 66) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-123-129-129-138-150 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Alpaca. Byrjun á umferð = miðja að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: STÆRÐ S, M og L: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn,1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 148-164-172 lykkjur. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 215-230-250 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1 hringinn (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 4-4-4-5-5-5 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá ÚTAUKNING-1 = 185-205-215-258-276-300 lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 4-4-4-5-5-5 lykkjum brugðið á milli hverra klukkuprjóns lykkja. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið A.2 hringinn (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 333-369-387-430-460-500 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 37-41-43-43-46-50 mynstureiningar með 9-9-9-10-10-10 lykkjum). Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 16-17-19-21-23-25 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú 4 umferðir sléttprjón, EN í annarri hverri umferð halda klukkuprjóns lykkjur áfram eins og áður (þ.e.a.s. klukkuprjóns lykkjur eru prjónaðar eins og áður, en með sléttprjóni á milli klukkuprjóns lykkja – ATH: Klukkuprjóns lykkjurnar verða aðeins sýnilegri í þessum 4 umferðum, en það kemur mýkri skipting á milli áferðar og sléttprjóns). Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 332-368-388-428-460-500 lykkjur í fyrstu umferð. Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-54-57-63-70-77 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-76-80-88-90-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-108-114-126-140-154 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 66-76-80-88-90-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 50-54-57-63-70-77 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-3½-3-3-3 cm millibili alls 4-4-5-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 228-248-268-296-328-356 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 66-70-74-82-92-100 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-3 = 294-318-342-378-420-456 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem er prjónað síðar dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 66-76-80-88-90-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-84-90-98-102-108 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 8-11-14-17-17-19 sinnum í mismunandi stærðum: S: Í 8. hverri umferð, M: Í 5. hverri umferð, L: Í 4. hverri umferð, XL: Í 3. hverri umferð, XXL: Til skiptis í annarri hverri og í 3. hverri umferð, XXXL: Í annarri hverri umferð = 56-62-62-64-68-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-21-20-19-17-15 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-2-2-0-4-2 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64-64-72-72 lykkjur. Prjónið A.4 hringinn (= 7-8-8-8-9-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 84-96-96-96-108-108 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 35-32-31-30-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-27-27-27-30-30 lykkjur jafnt yfir = 108-123-123-123-138-138 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 38-35-34-33-31-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Majbritt Hoffmann wrote:
Findes der en opskrift lignende denne i str. 3-4 år?
19.07.2020 - 17:51DROPS Design answered:
Hej Majbritt, Nej desværre, du kan søge på "bluser" "børn" eller "baby" så får du alle vores bluser frem vi har til børn og baby (op til 4 år) God fornøjelse!
28.07.2020 - 12:21Bente wrote:
Enkel og fin modell Vil gjerne strikke denne
18.02.2019 - 22:10Lilli wrote:
Spring Blossom
08.02.2019 - 10:46Eve wrote:
Is this top down or bottom up?
18.12.2018 - 02:37