DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sweet Heather

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-18
DROPS Design: Mynstur me-171
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 25, bleikur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2).

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

GATARÖÐ:
Útaukning fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki endar á undan útaukning á ermum. Til þess að gataröðin sem er gerð með útaukningu innan við A.2 haldi áfram, prjónið niður að fram- og bakstykki með gatamynstri (A.3/A.4) innan við A.2 þannig:
Prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2 og ermi á bakstykki og þegar eftir eru 2 lykkjur á undan síðustu einingu með A.2 á framstykki. Prjónið A.4 eftir fyrstu mynstureiningu A.2 á framstykki og á eftir erum og A.2 á bakstykki.

ÚTAUKNING-1 (á við um fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á bakstykki og framstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt þannig að það myndist gat. Í hvert skipti sem aukið er út, eykst fjöldi lykkja í sléttprjóni á milli 2 eininga A.2 á bakstykki og framstykki.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 206 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 6,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur færri í umferð).

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 138-138-146-146-154-154 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 28-28-30-30-32-32 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 134-134-142-142-150-150 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur þannig: 1 lykkja slétt (= miðjulykkja á bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóni, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðju lykkja á framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, (= hálft bakstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-26-30-35-38 sinnum = 294-326-350-382-430-454 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með sömu útaukningu fyrir laskalínu á ermum 4-4-5-3-0-1 sinnum til viðbótar (= alls 24-28-31-33-35-39 útaukningar á ermum). Á framstykki og bakstykki er nú prjónað mynstur A.3 og A.4, svo að GATARÖÐ haldi áfram - sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð eins og áður án útaukninga. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 310-342-370-394-430-458 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að aftan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 48-52-56-60-67-70 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 95-103-111-119-133-139 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-82-90 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 47-51-55-59-66-69 lykkjur sem eftir eru í umferð (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 206-222-242-258-290-306 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður, þ.e.a.s. prjónið þannig: Sléttprjón fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið – sjá ÚRTAKA-1, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjurnar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón fram að næstu mynstureiningu A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur og fækkið jafnframt lykkjum hvoru megin við prjónamerkin – munið eftir ÚRTAKA-1, A.2 yfir næstu 27-27-29-29-31-31 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju innan við A.2 á bakstykki og framstykki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri) og fækkað hefur verið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur færri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn er allan tímann sá sami. Haldið svona áfram með úrtöku og útaukningu í annarri hverri umferð alls 31-31-34-34-37-38 sinnum, þar til allt mynstrið í hliðum er horfið. Eftir umferð þar sem lykkjur í mynstri hafa horfið í hliðum, prjónið eins margar lykkjur í mynstri og pláss er fyrir. Þ.e.a.s. þegar ekki er lengur pláss til að prjóna úrtöku og uppslátt í gatamynstri í A.2, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
Þegar búið er að prjóna þannig að allt mynstrið í hliðum er horfið mælist stykkið ca 22-22-24-24-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið nú sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu (= ca 6-6-4-4-2-1 cm með sléttprjóni eftir mynstri í hlið). Aukið nú út um 30-34-38-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 236-256-280-296-332-352 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar fellt er af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 60-68-74-78-82-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-76-84-88-94-104 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermum – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 0-4-2-1½-1-1 cm millibili alls 1-4-7-7-9-12 sinnum (einungis 1 úrtaka í stærð S) = 66-68-70-74-76-80 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-28-26-25-23-22 cm, aukið út um 6-8-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 72-76-76-80-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar fellt er af. Ermin mælist ca 32-31-29-28-26-25 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = Hnútur: Prjónið 1 lykkju slétt fram og til baka í sömu lykkju þar til aukið hefur verið út frá 1 til 15 lykkjur. Nú ertu með 5 lykkjur á hægri prjón. Steypið 2. lykkju (næst ystu lykkju á hægri prjón) yfir ystu lykkju, steypið 3. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 4. lykkju yfir ystu lykkju, steypið 5. lykkju yfir fyrstu lykkju (= 1 hnútur).
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

201-18 Sweet Heather

Irina V E, United States

201-18 Sweet Heather

Irina V E, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Helene Kraayvanger wrote:

How can I download or print off this pattern in a compact version???

19.11.2023 - 21:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kraayvanger, our patterns can only be printed using the button "print > pattern" - using a virtual printer will allow you to save them as a .PDF. Happy knitting!

20.11.2023 - 11:17

country flag Marie-Gabrielle wrote:

Faut-il tricoter A3 et A4 en totalité (c'est-à-dire sur 10 tours) quelle que soit la taille du modèle? Merci

12.09.2023 - 11:16

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Gabrielle, vous devez tricoter A.3 et A.4 jusqu'à ce que les augmentations des manches soient faites, et que vous avez bien le total de mailles pour votre taille, puis, au tour suivant, vous diviser l'empiècement pour terminer le dos/le devant et les manches séparément. A.3 et A.4 permettent de continuer les trous le long des raglans dos et devant, sans pour autant augmenter de mailles. Bon tricot!

12.09.2023 - 17:03

country flag Teston wrote:

J ai choisi le modeleM.quand les 24 tours sont terminés,je ne comprends pas comment on tricote A2(si on ne fait pas d'augmentations);d'autre part A3 et A4 se tricotent avant et aprés A2 mais combien de tours??est ce que ces mailles sont à la place des2 mailles envers du diagramme A2,???

04.05.2022 - 17:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Teston, lorsque les augmentations ont été faites 24 fois sur le devant et le dos (=soit 48 tours au total, car on augmente tous les 2 tours); vous continuez à augmenter sur les manches comme avant, mais vous tricotez maintenant A.3 /A.4 sur le dos/devant au lieu des augmentations avant/après A.2. cf RANG AJOURÉ:. Bon tricot!

05.05.2022 - 08:58

country flag Jane wrote:

On A2 it shows a dark slant going over 2 stitches but nothing on diagram to say what it does. Is it an increase or decrease?

09.03.2022 - 21:31

DROPS Design answered:

Hi Jane, The diagonal line from top left to bottom right is: Slip 1 stitch as if to knit, knit 1 and pass the slipped stitch over the knitted stitch. A diagonal line from bottom left to top right is: Knit 2 together. Happy knitting!

10.03.2022 - 07:02

country flag Jane wrote:

On A 2 it shows a slant over two stitches but nothing on diagram to say what it is help

09.03.2022 - 21:29

DROPS Design answered:

Dear Jane, the both slant over 2 stitches in A.2 are explained under the 4th and 5th symbol - see diagram key: / = knit 2 stitches together; \ = slip 1 as if to knit, knit 1, pass the slipped stitch over the knitted stitch. Happy knitting!

10.03.2022 - 10:04

country flag Cathy Kapp wrote:

I understand what you're saying to put a marker on each side of the A2 stitches worked to mark where the front, sleeves and back are. In the pattern there are also a section where you knit 12 stitches after the first A2 and the third A2 stitches. What are they part of, front, sleeve or back? I'm still just trying to find where each section starts and ends. Thanks for your help.

16.12.2021 - 16:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kapp, yoke is worked in the round from mid back, the 12 sts between 1st and 2nd A.2 + the 12 sts between 3rd and 4th A.2 are for the sleeves. You are increasing with a yarn over on each side of each A.2 (= raglan lines), ie after 1st increase there are for ex; 14 sts for each sleeve. Happy knitting!

17.12.2021 - 07:59

country flag Cathy Kapp wrote:

I really love this design but find it very hard to follow the pattern which is not written very well. I am an experienced knitter and I've been knitting for more than 50 years. Please tell me how I can put markers where the front, sleeve, back and other sleeve is, this would make it easier to see any mistakes I make. I'm assuming when I get to the last row on the diagram that I start at row 1 again. Thanks for your help.

14.12.2021 - 02:28

DROPS Design answered:

Hi Cathy, You can insert markers on each side of all A.2 sections (each transition between body and sleeves). When you have completed a diagram go to row 1 for the next repeat as you say. Happy knitting!

14.12.2021 - 07:07

country flag Mathilde wrote:

PS ^^ : En démarrant le col, lorsque l'on monte les 138 mailles, lesquelles concernent les côtés ? ( les épaules, puis les manches ) ? Seraient-ce les 8 côtes ? Encore Merci pour votre aide, par avance :)

15.10.2021 - 01:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mathilde, les tours commencent au milieu dos, les 28 m de A.1 seront ensuite tricotées en suivant A.2 (= raglans) et les 12 m (1 m end, (2 m end, 2 m env) x 8, 2 m env, 1 m end) sont pour les manches. Bon tricot!

15.10.2021 - 08:01

country flag Mathilde wrote:

Bonjour à l'équipe ;) . Je me demandais si le fait de relever les mailles de dessous la manche, était équivalent à les faire "glisser" sur l'aiguille ? Je sais relever des mailles sur un ouvrage commencé mais sur une "chainette" de points rajoutés.. je ne l'ai jamais fait :/ Merci par avance de votre réponse et bonne journée ;)

14.10.2021 - 21:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mathilde, cette leçon montre, dans les photos 18A/B comment soit monter (A) soit relever (B) les mailles dans les mailles montées sous la manche. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

15.10.2021 - 07:50

country flag Julita Skowrońska wrote:

Dzień dobry Schemat A2 ma w każdym rozmiarze jedno oczko mniej niż A1, a powinien być przerabiany jako ciągłość A1. Czy to błąd czy ja źle rozumiem schemat? Dziękuję i pozdrawiam Julita

04.08.2021 - 08:10

DROPS Design answered:

Witaj Julito, na końcu schematu A.1 masz 27 oczek, a na początku schematu A.2 jest ich również 27. Zobacz dokładnie opis symboli. Pozdrawiamy!

04.08.2021 - 09:32