DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2214.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

White Pearl

Prjónuð tunika úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri og opi í hálsmáli að framan. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-20
DROPS Design: Mynstur w-765
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-600-700-750 g litur 16, hvítur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og gatamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2214.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um pils hluta á tuniku):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og 4 lykkjur færri í umferð).

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um hvora hlið á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman í lokin. Prjónað er gatamynstur á bakstykki alveg eins og á framstykki, en án gataumferðar og opi að framan. Ef ekki er óskað eftir að hafa gatamynstur á bakstykki er prjónað sléttprjón yfir þessar lykkjur.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 109-117-123-133-143-153 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur (1. umferð er prjónuð frá röngu og 5. umferð í A.1 á við um táknin 2 lykkjur slétt saman er einnig frá röngu. ATH: Síðasta lykkjan í 5. umferð er prjónuð slétt).
Skiptið yfir á hringprjón 5 þegar A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Teljið 26-29-31-35-39-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 57-59-61-63-65-67 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (nú eru 26-29-31-35-39-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚRTAKA VIÐ PRJÓNAMERKI:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 12 sinnum = 61-69-75-85-95-105 lykkjur.
GATAMYNSTUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 46-47-48-46-47-49 cm byrjar gatamynstur við miðju að framan. Síðasta úrtaka við prjónamerki er eftir í öllum stærðum þegar A.2 byrjar og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 13-17-20-25-30-35 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður, prjónið A.2 (= 39 lykkjur), prjónið síðan þær 13-17-20-25-30-35 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur (munið eftir síðustu úrtöku við prjónamerkin).
ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
Jafnframt þegar stykkið mælist 55-55-55-55-56-56 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKKNING. Aukið svona út með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 67-75-81-91-101-111 lykkjur.
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón á hæðina yfir ystu 6-6-7-9-11-13 lykkjurnar í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og gatamynstri eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón í hvorri hlið er fækkað um 3-3-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-4-5-7-9-11 sinnum.
GATAMYNSTUR HELDUR ÁFRAM:
Jafnframt þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 1-1-1-2-2-2 sinnum á hæðina yfir sömu 39 lykkjurnar, en í síðustu umferð í síðustu endurtekningu með A.3 (ranga) er felld af miðju lykkjan í umferð fyrir opi mitt að framan og hvor hluti er prjónaður fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu og prjónið nú eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg, haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef úrtöku er ekki lokið, prjónið sléttprjón og síðan A.4A yfir ystu 19 lykkjur við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 77-78-79-81-82-84 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu), setjið ystu 7-7-8-8-9-9 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn.
Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og síðan 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Tunikan mælist ca 82-84-86-88-90-92 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið A.4B yfir fyrstu 19 lykkjur við miðju að framan, prjónið sléttprjón eins og áður, haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef úrtöku er ekki lokið og haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg.
Þegar stykkið mælist 77-78-79-81-82-84 cm (stillið af að næsta umferð sé frá réttu), setjið ystu 7-7-8-8-9-9 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráð.
Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og síðan 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 109-117-123-133-143-153 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur alveg eins og á framstykki.
Skiptið yfir á hringprjón 5 þegar A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Teljið 26-29-31-35-39-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 57-59-61-63-65-67 lykkjur, setjið 1 prjónamerki (nú eru 26-29-31-35-39-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚRTAKA VIÐ PRJÓNAMERKIN:
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 12 sinnum = 61-69-75-85-95-105 lykkjur.
GATAMYNSTUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 46-47-48-46-47-49 cm byrjar gatamynstur mitt að aftan. Síðasta úrtaka við prjónamerkin er eftir í öllum stærðum þegar A.5A byrjar og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 13-17-20-25-30-35 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður, prjónið A.5A (= 39 lykkjur), prjónið síðan þær 13-17-20-25-30-35 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur (munið eftir síðustu úrtöku við prjónamerkin).
ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
Jafnframt þegar stykkið mælist 55-55-55-55-56-56 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 67-75-81-91-101-111 lykkjur.
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón á hæðina yfir ystu 6-6-7-9-11-13 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og gatamynstri eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón í hvorri hlið eru felldar af 3-3-4-6-8-10 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-4-5-7-9-11 sinnum.
GATAMYNSTUR HELDUR ÁFRAM:
Jafnframt þegar A.5A hefur verið prjónað til loka, endurtakið A.5B á hæðina yfir sömu 39 lykkjur til loka.
HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm fellið af miðju 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar fellt er af fyrir hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá hálsi = 15-16-16-17-17-18 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 2 umferðir brugðið á móti hvor annarri á öxlum.
Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að framan og prjónið upp ca 74 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan), á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Nafula wrote:

This looks beautiful I would love ❤️ it in different lengths short ,as a top ,normal,length,midi and maxi but I only have 2 hands and 24hrs a day.🏃🏾‍♀️🏃🏿‍♀️🏃🏽‍♀️🤦🏾‍♀️🤪🤪🧐🙃

09.07.2023 - 16:59

country flag E Vd Linden wrote:

Ik heb het patroon a2 klaar op de voorkant. Gaat a5 gelijk er achteraan of eerst tussen de 2 patronen de ribbels aan de zijkant en die pennen verder tricosteek? Ik zie het niet goed op de afbeelding

06.04.2023 - 10:28

DROPS Design answered:

Dag E Vd Linden,

Op de voorkant brei je eerst A.2 en dan A.3 er gelijk achteraan, dus geen naalden ertussen.

12.04.2023 - 20:37

country flag Lillian wrote:

Tænker at strikke denne, men jeg har 2 spørgsmål. Kan jeg strikke den nederste del rundt og dele arbejdet lige inden mønster?. Kan jeg sætte et lille ærme i fra anden opskrift, og evt hvilken? på forhånd tak

12.04.2021 - 12:18

DROPS Design answered:

Hej Lillian, ja det kan du godt, bare du sørger for at indtagningerne ikke kommer til at trække arbejdet til den ene side. Under billedet finder du tunikaen med ærmer, den opskrift kan du med fordel bruge :)

12.04.2021 - 13:48

country flag Nicole Preuss wrote:

Bytt til rundpinne 5 når A.1 er strikket ferdig. Strikk glattstrikk videre med 1 kantmaske i RILLE i hver side – les forklaring over. HUSK PÅ STRIKKEFASTHETEN! glattstrikk eller rille??? har strikket rille nå men ser ikke ut 😪

30.06.2019 - 21:10

DROPS Design answered:

Hej. Du ska nu sticka vidare i glattstrikk, det är kun 1 kantmaske i hver sida som ska stickas i rille. Lycka till!

01.07.2019 - 10:41

country flag Renate wrote:

Super.auf jeden Fall werde ich dieses nacharbeiten.Meine Nadel sind bereit

20.12.2018 - 15:40

country flag Beti wrote:

Dieses Modell ist traumhaft, würde es gern nacharbeiten.

20.12.2018 - 13:25

country flag Karen wrote:

I'm looking forward to making this one!

11.12.2018 - 18:38