DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Egyptian Feathers

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni og röndum í sikk-sakk mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-30
DROPS Design: Mynstur fa-425
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 100, natur
150-150-200-200-200-250 g litur 904, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 103, gráblár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
26 lykkjur á breidd og 52 umferðir á hæð með klukkuprjóni í sikk-sakk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Fyrst er prjónað mynstur A.1 (= stroff í kanti í hálsi). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 yfir A.2.

RENDUR:
Til þess að ná fram tveggja lita áhrifum, prjónið rendur með til skiptis 1 umferð litur-2 og 1 umferð litur-1.
Mynstur A.2 byrjar í umferð með litnum natur eins og útskýrt er í uppskrift. Í hvert skipti sem annað hvort er aukið út eða lykkjum fækkað í A.2 og A.3, er það gert í umferð með litur-2.
Rendurnar eru prjónaðar í klukkuprjóni.
RÖND 1: Litur-1 = fjólublár, litur-2 = natur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 5 cm þar sem stykkið er styst.
RÖND 2: Litur-1 = gráblár, litur-2 = natur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 9 cm þar sem stykkið er styst.
RÖND 3: Litur-1 = natur, litur-2 = fjólublár. Prjónið þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Síðasta umferðin í mynsturteikningu er prjónuð með litnum fjólublár. Prjónið síðan rendur í brugðið þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið með litnum natur.
UMFERÐ 2: Prjónið með litnum fjólublár.
Endurtakið umferð 1 og 2.

LEIÐBEININGAR:
Allur lykkjufjöldi sem er gefinn upp þegar prjónað er klukkuprjón er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er talið saman sem 1 lykkja (ef annað er ekki tekið fram).

ÚRTAKA (á við um miðju undi ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 14.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni með sikk-sakk mynstri, síðan er stykkið prjónað í sléttprjóni með rönguna út og rendur með 1 umferð af hverjum lit. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp120-132-132-144-144-156 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 10-11-11-12-12-13 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.2 hringinn (= 10-11-11-12-12-13 mynstureiningar með 12 lykkjum – og fyrsta umferð er prjónuð með litnum natur). Sjá RENDUR og LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 240-264-308-336-384-416 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 9-9-9-9-11-11 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Prjónið nú A.3 yfir A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 320-352-396-432-456-494 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 17-17-19-19-21-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Haldið nú áfram með brugðið og rendur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 19-19-21-21-21-21 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkjur jafnt yfir þannig: Aukið út um 4-4-4-4-8-8 lykkjur með 2 cm millibili alls 1-2-1-1-2-2 sinnum = 324-360-400-436-472-510 lykkjur – lesið ÚTAUKNING-1.
Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 49-53-58-65-72-78 lykkjur brugðið eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 64-74-84-88-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið brugðið eins og áður yfir næstu 98-106-116-130-144-157 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 64-74-84-88-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið brugðið eins og áður yfir næstu 49-53-58-65-72-79 lykkjur (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-228-248-276-304-330 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið brugðið hringinn eins og áður og rendur.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-2½-2½-3-3-2½ .cm millibili alls 10-10-10-9-9-11 sinnum = 252-268-288-312-340-374 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm að loka máli).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-18-18-17-19 lykkjur jafnt yfir = 270-288-306-330-357-393 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn með litnum natur (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-74-84-88-92-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-82-92-96-100-106 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið brugðið hringinn, í röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-13-17-18-19-21 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-41-40-39-37-35 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 2 cm að loka máli. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn með litnum natur (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-41-39-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.04.2021
Mynsturteikning A.3, stærð S-M hefur verið leiðrétt: 1. tákn í nokkrum umferðum hefur verið breytt frá rúðu með tákni X yfir í tóma rúðu.

Mynstur

symbols = brugðið
symbols = slétt
symbols = litur-1
symbols = litur-2
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana brugðið
symbols = uppslátturinn og óprjónaða lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og óprjónaða lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = aukið út um 2 lykkjur með litur-2 þannig: Prjónið 3 lykkjur í brugðnu lykkjuna og uppsláttinn, prjónið uppsláttinn og brugðnu lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að steypa lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur
symbols = fækkið um 2 lykkjur í brugðið til vinstri með litur-2 þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (uppsláttur og brugðin lykkja + 1 lykkja slétt), lyftið yfir næsta uppslætti og brugðnu lykkjuna á hægri prjón, setjið þær til baka aftur á vinstri prjón þannig að lykkjan sitji yst (og uppslátturinn sem lykkja nr tvö), setjið til baka lykkjuna sem prjónuð var saman á vinstri prjón, haldið þræðinum framan við stykkið, lyftið lykkjunni og uppslættinum á vinstri prjón (þ.e.a.s. önnur og þriðja lykkjan á vinstri prjón) yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón (með þráðinn framan við stykkið), setjið að lokum til baka þessa lykkju á hægri prjón (= 2 lykkjur færri).
symbols = fækkið um 2 lykkjur í brugðið til hægri með litur-2 þannig (það er mikilvægt að halda þræðinum framan við stykkið allan tímann í gegnum þessa úrtöku): Lyftið uppslættinum og brugðnu lykkjunni yfir á hægri prjón, setjið lykkjuna á lykkjuhaldara framan við stykkið (með þráðinn framan við lykkjuna), lyftið næsta uppslætti og brugðnu lykkjunni á vinstri prjón laust yfir á hægri prjón, setjið til baka lykkju frá lykkjuhaldara á vinstri prjón, prjónið þessa lykkju brugðið, lyftið brugðnu lykkjunni og uppslættinum (þ.e.a.s. önnur og þriðja lykkja á hægri prjón) yfir ystu lykkjuna, lyftið næstu brugðnu lykkju og uppslætti (þ.e.a.s. önnur og þriðja lykkja á hægri prjón) yfir ystu lykkjuna (= 2 lykkjur færri)
symbols = prjónið 2 lykkjur (og 1 uppslátt, um lykkjuna frá fyrri umferð sem var klukkuprjóns lykkja) brugðið saman
symbols = aukið út um 2 lykkjur með litur-2 þannig: Prjónið 3 lykkjur i brugðið, þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju brugðið, en bíðið með að steypa lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju brugðið í sömu lykkju 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Elisabeth Sandberg wrote:

Legger opp 155 masker til v. Bord. Kommer til A1 b så stemmer ikke mønster. Hva er feilen???

07.04.2024 - 11:01

DROPS Design answered:

Hei Elisabeth, Du burde ha lagt opp 156 masker til halskanten og deretter strikker du A.1 rundt (12 masker = 13 rapport i bredden på omgangen = 156 masker). God fornøyelse!

08.04.2024 - 06:44

country flag Randi Aas Sjøvik wrote:

Denne ble for vanskelig enda jeg har strikket mye. Har dere forslag til en annen oppskrift jeg kan bruke garnet til. Jeg har de tre fargene og str M

18.03.2024 - 14:36

DROPS Design answered:

Hei Randi, Hvis du søker ved å klikke på forstørrelses-glasset øverst til høyre, og setter inn "genser i Fabel", kommer alle våre oppskrifter opp, og du kan velge en som passer til fargene du har kjøpt. Lykke til!

19.03.2024 - 07:01

country flag Randi Aas Sjøvik wrote:

Jeg skal begynne på Egyptian Feathers genser men finner ikke mønster A1 i oppskriften

16.03.2024 - 21:12

DROPS Design answered:

Hei Randi, Alle diagrammene er på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

18.03.2024 - 06:54

country flag Carol wrote:

Hi. Can you please explain in detain how to knit together the yarn over and slipped stitch. My confusion is that the yarn over and the slipped stitch are on the right needle so how do you knit them together? Is there a video on this? Thanks

28.09.2023 - 21:03

DROPS Design answered:

Hi carol, Here is a link to our video on English rib in the round. Hope it helps. https://www.garnstudio.com/video.php?id=188&lang=no Happy knitting!

29.09.2023 - 06:44

country flag Laura wrote:

Me encanta el modelo, pero no veo cuál es el diseño del gráfico A1 que corresponde al elástico. Es elástico 1/1? cuántas vueltas/hileras hay que hacer? Lo siento, pero no me queda claro. Me podrían despejar la duda por favor? Gracias!

31.10.2021 - 08:51

DROPS Design answered:

Hola Laura, el gráfico del elástico de A.1 está en el diagrama de las medidas, bajo la manga.

01.11.2021 - 13:00

country flag Anne wrote:

Hei. Jeg ser at det er 2 ikoner som betyr det samme; firkant helt farget og firkant halvt dekket på tvers, altså øk 2 masker……. Er det noen grunn til det?

17.10.2021 - 23:11

country flag Anne Synnøve wrote:

Hei. Jeg lurte på om det finnes et instruksjonsvideo som viser hvordan man: «øk 2 masker med farge-2 slik: Strikk 3 masker i vrangmasken og kastet, dvs strikk kastet og vrangmasken vrang sammen, men vent med å løfte masken av pinnen, lag 1 kast om høyre pinne og strikk masken og kastet vrang sammen 1 gang til = 3 masker» Jeg får det ikke til.

06.10.2021 - 07:37

DROPS Design answered:

Hej Anne. Nej det ser dessvärre inte ut som vi har det, vi har kun videon Hvordan strikke 3 masker i 1 maske där det visas med räta maskor. Kanske den ändå kan vara till hjälp, principen är densamma bara att du ska göra det med vrangmasker. Mvh DROPS Design

06.10.2021 - 09:15

country flag Anne wrote:

Når en vrangmaske blir til 3, hvorfor er det da ingen foskyvninger på neste omgang?

07.09.2021 - 12:46

DROPS Design answered:

Hei Anne, Noen av omgangene med slik økning også feller like mange masker (omgang 1 i A.3 for eksempel). Hvis man ikke feller samtidig, blir det ekstra masker på yttersiden av A.3, som er strikket i mønster på neste omgang. Håper dette hjelper. Hilsen Drops Team

08.09.2021 - 09:51

country flag Anne K wrote:

Jeg får ikke maskeantallet til å gå opp med de forandringene som skal gjøres på A2, første rad med forandringer. Strikker str m med 132 masker. Skal det ikke gå opp på runden?🤔

05.09.2021 - 14:42

DROPS Design answered:

Hei Anne, Etter halsen har du 132 masker. A.2 er 12 masker i bredden og du har plass til 11 rapport av mønsteret = 132. Første 10 omganger er det ikke noe endring på maskeantall før du øker i 11. omgang. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

06.09.2021 - 08:58

country flag Anne K wrote:

Strikker str m, På første omgang med maskeforandringer i antall får jeg ikke antall masker til å gå opp på runden. Er det riktig?

05.09.2021 - 14:35

DROPS Design answered:

Hei Anne, Du øker 2 masker hver gang du strikker A.2 i bredden og det skal gå opp på omgangen på samme måten som de 10 første omgangene. Hilsen Drops Team.

06.09.2021 - 09:00