DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Egyptian Feathers Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni og röndum í sikk-sakk mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-29
DROPS Design: Mynstur fa-434
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 100, natur
150-150-200-200-200-250 g litur 904, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 103, gráblár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
26 lykkjur á breidd og 52 umferðir á hæð með klukkuprjóni í sikk-sakk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTUR AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI (prjónað fram og til baka vegna mynsturs með klukkuprjóni þannig):
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið slétt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Fyrst er prjónað mynstur A.1A/A.2A (= stroff í kanti í hálsmáli). Þegar A.1A hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1B/A.2B yfir A.A. Þegar A.B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1C/A.2C yfir A.B.

RENDUR:
Þegar klukkuprjón er prjónað með tveimur litum, prjónið fram og til baka á hringprjón þannig: Prjónið 1. Umferð frá réttu með litur-2, færið allar lykkjur til baka í hinn endann á hringprjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu, nema með litur-1.
Snúið síðan stykkinu, prjónið 1. umferð frá röngu með litur-2, færið allar lykkjur til baka á hinn endann hringprjóninum og prjónið næstu umferð einnig frá röngu, nema með litur-1.
Það eru prjónaðar 2 umferðir frá réttu með sitt hvorum litnum og 2 umferðir frá röngu með sitt hvorum litnum.
Það eru einnig prjónaðar rendur í klukkuprjóni, þ.e.a.s. litur-1 = slétta lykkjan frá réttu er prjónuð og litur-2 = prjónað er í brugðnu lykkjuna frá réttu.
Stillið af að hver rönd endar eftir 2 umferðir frá röngu.
RÖND 1: Litur-1 = fjólublár, litur-2 = natur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 5 cm þar sem stykkið er styst.
RÖND 2: Litur-1 = gráblár, litur-2 = natur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 9 cm þar sem stykkið er styst.
RÖND 3: Litur-1 = natur, litur-2 = fjólublár. Prjónið þar til A.1c og A.2c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
Síðasta umferðin í mynsturteikningu er prjónuð með litnum fjólublár frá réttu.
Prjónið síðan rendur á berustykki og fram- og bakstykki þannig (kantar að framan í garðaprjóni eru prjónaðir eins og áður):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið brugðið með litnum natur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt með litnum fjólublár. Færið allar lykkjur til baka á hinn endann á hringprjóni þannig að hægt sé að prjóna næstu umferð frá röngu.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið slétt með litnum natur.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt með litnum fjólublár. Færið allar lykkjur til baka á hinn endann á hringprjóninum þannig að hægt sé að prjóna næstu umferð frá réttu.
Endurtakið umferð 1 til 4.

LEIÐBEININGAR-1:
Ef þú ert ekki viss um hvaða lit þú átt að prjóna með næst, þá getur þú alltaf séð hvaða litur var prjónaður í fyrri umferð á kantlykkjum að framan.

LEIÐBEININGAR-2:
Allur lykkjufjöldi sem er gefinn upp þegar prjónað er klukkuprjón er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er talið saman sem 1 lykkja (ef annað er ekki tekið fram).

ÚRTAKA (á við um miðju undi ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 331 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er 321 lykkjur með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 80,25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 80. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur brugðið (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið frá réttu og slétt frá röngu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur saman og prjónið síðustu lykkjuna. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður venjulega svo það myndist gat (þ.e.a.s. uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn).
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu með ca 9-9-8-8-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni með sikk-sakk mynstri, síðan er stykkið prjónað í sléttprjóni með rönguna út og rendur með 1 umferð af hverjum lit. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 131-143-143-155-155-167 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum natur.
Prjónið frá röngu þannig: 5 sléttar kantlykkjur að framan, prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 sléttar kantlykkjur að framan.
Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= alls 10-11-11-12-12-13 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2A (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1A og A.2A hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan mynstur þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu með litnum natur): Prjónið 5 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN Í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1B þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= alls 10-11-11-12-12-13 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 lykkjur garðaprjón í kanti að framan.
Færið allar lykkjur til baka á hinn endann á hringprjóninum þannig að næsta umferð sé prjónuð með litur-1 frá réttu. Lesið RENDUR, LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1B og A.2B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 251-275-319-347-395-427 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 9-9-9-9-11-11 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Prjónið nú A.1C yfir A.1B og A.2C yfir A.2B.
Þegar A.1C og A.2C hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 331-363-407-443-467-505 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 17-17-19-19-21-21 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Haldið áfram með sléttar lykkjur frá röngu og brugðnar lykkjur frá réttu, 5 lykkjur garðaprjón í kanti að framan í hvorri hlið og rendur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 19-19-21-21-21-21 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út jafnt yfir þannig: Aukið út um 4-4-4-4-8-8 lykkjur með 2 cm millibili alls 1-2-1-1-2-2 sinnum = 335-371-411-447-483-521 lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1.
Þegar stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti (mælt meðfram kanti að framan) skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 5 lykkjur garðaprjón í kanti að framan eins og áður, prjónið eins og áður yfir næstu 49-53-58-66-72-78 lykkjur (= kantur að framan), setjið næstu 64-74-84-88-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 99-107-117-129-145-159 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 64-74-84-88-92-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 49-53-58-66-72-78 lykkjur og endið með 5 lykkjur garðaprjón í kanti að framan eins og áður. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 223-239-259-287-315-341 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Haldið áfram fram og til baka eins og áður með sléttum lykkjum frá röngu og brugðnum lykkjum frá réttu, 5 lykkjur garðaprjón í kanti að framan í hvorri hlið við miðju að framan og rendur.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½-2½-2½-3-3-2½ cm millibili alls 10-10-10-9-9-11 sinnum = 263-279-299-323-351-385 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm að loka máli).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður), þar sem aukið er út um 18-20-18-18-17-19 lykkjur jafnt yfir (ekki auka út yfir kanta að framan) = 281-299-317-341-368-404 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff með litnum natur þannig (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm.
Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-74-84-88-92-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-82-92-96-100-106 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið brugðið hringinn í röndum með til skiptis 1 umferð með litnum natur og 1 umferð með litnum fjólublár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-13-17-18-19-21 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 41-40-39-38-36-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir 2 cm að loka máli. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 54-57-60-60-63-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn með litnum natur (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-41-40-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.03.2019
Litir sem eru notaðir í umferð 24 og 25 í mynsturteikningu A.1b í stærð S-M hafa verið leiðréttir

Mynstur

symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = frá réttu með lit-1
symbols = frá réttu með lit-2
symbols = frá röngu með lit-1
symbols = frá röngu með lit-2
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lyfta lykkjan er prjónað slétt saman (bæði frá réttu og frá röngu)
symbols = uppslátturinn og lyfta lykkjan er prjónað brugðið saman (bæði frá réttu og frá röngu)
symbols = frá röngu: Aukið út um 2 lykkjur með litur-2 þannig: Prjónið 3 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur
symbols = frá röngu: Fækkið um 2 lykkjur með litur-2 þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni yfir og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + lykkja og uppsláttur), steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = frá röngu: Fækkið um 2 lykkjur með litur-2 þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni yfir og uppsláttinn á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni á vinstra prjón, lyftið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett var til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir þá lykkju sem eftir eru á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri).
symbols = frá röngu: Prjónið 2 lykkjur (og 1 uppslátt, um lykkju frá fyrri umferð sem var klukkuprjónslykkja) slétt saman
symbols = frá röngu: Aukið út um 2 lykkjur með litur-2 með því að prjóna 3 lykkjur í sléttu lykkjuna þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Elisabeth Sandberg wrote:

Jeg prøver å strikke Egyptian Feathers jacket. Legger opp 155 masker. Når jeg begynner på mønster stemmer ikke det. Hva er det som er feil

05.04.2024 - 09:43

DROPS Design answered:

Hej Elisabeth, 5 ret, A.1B=12x12=144, A.2B=1,5ret=155 m :)

09.04.2024 - 09:53

country flag Barbara wrote:

Endlich, nach fast einem Jahr mit einigen Unterbrechungen, habe ich die Jacke fertig gestrickt. Allerdings war mir der Ausschnitt zu weit und zu dehnbar geworden. Um dies auszugleichen, habe ich den Rand mit zwei Runden feste Maschen umhäkelt. Nun gefällt sie mir gut, auch wenn ein paar Fehler vorhanden sind.

29.08.2023 - 13:02

country flag Carina Richard wrote:

Hej ! Jag har kommit till första ökningen i diagram A1.B varv 7. har då ökat 6m hur stickar jag dom på nästa varv ? mvh Carina

28.05.2023 - 19:24

DROPS Design answered:

Hei Carina Du følger bare forklaringen til diagrammet / diagramikonene. I 7.rad i diagram A.1B felles og økes det like mange masker, slik at maskeantallet blir det sammen. Når du kommer til 11. rad økes det med 4 masker hver gang diagrammet strikkes, og så her vil du se hvordan det strikkes på rad 12 ved å følge forklaringen til diagrammet / diagramikonene. mvh DROPS Design

30.05.2023 - 10:14

country flag Barbara wrote:

Hallo, ich bin gerade beim stricken der Ärmel angekommen. Ich verstehe hier etwas nicht. In der Anleitung steht: je 1 Masche aus den 8 unter dem Arm angeschlagenen Maschen auffassen . Wann werden die restlichen 6 Maschen dazu genommen? Oder nimmt man gleich am Anfang jeweils 4 Maschen dazu? ( und nicht eine, wie in der Anleitung) Ansonsten ist die Jacke bis jetzt schön geworden.

08.11.2022 - 19:00

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, bei der Verteilung haben Sie 8 Maschen angeschlagen, wo die Maschen der Ärmel stillgelegt waren, bei den Ärmeln fassen Sie jetzt 1 Masche in jeder diese 8 Maschen auf - diese Lektion zeigt ab Bild 18b) wie man die Ärmel auffasst und weiterstrickt. Viel Spaß beim stricken!

09.11.2022 - 08:20

country flag Barbara wrote:

Hallo, ich habe gerade bei der Passe A.1B fertig gestrickt und möchte nun mit A.1C beginnen. Mir fällt allerdings auf, dass bisher nur die Farben natur und flieder verstrickt wurden. Auf der Abbildung ist aber doch auch graublau mit dabei. Wann kommt graublau zum Einsatz? Auch in der Strickschrift A.1C wird nur natur und flieder angegeben.\r\nMit vielen Grüßen, Barbara.

21.07.2022 - 15:34

DROPS Design answered:

Liebe Barbara, schauen Sie mal bei "Hinweise zur Anleitung" unter "Streifen" - dort ist beschrieben, welche Farben Sie wann benutzen - auch graublau wird dort genannt. Viel Spaß beim Stricken!

28.07.2022 - 08:16

country flag Lark Dearing Randall wrote:

Pattern says to work A.1A and A.2A for neck but I don’t see a chart A.1A or A.2A

02.11.2021 - 04:21

DROPS Design answered:

Hi, they are next to the schematic drawing (on the right), at the bottom. Happy knitting!

02.11.2021 - 08:20

country flag Lise Gunn wrote:

Nå er jeg en dreven strikker og har strikket A.1B i størrelse L. Når jeg går videre til A.C1 skjer det noe etter 9 omgang. Da passer ikke mønsteret lenger i slutten (eller det blir starten når skal videre i mønsteret. Har rekket opp hele A.1 C hele 7 ganger og kjenner tålmodigheten tar snart slutt. Hva skjer?

02.07.2021 - 12:02

country flag Anita Bjørke wrote:

Hei! Jeg sliter med å skjønne diagram forklaringene. Jeg driver med M. A.1B den sorte ruten og de skrå (fellingene?). Kan noen forklare det litt bedre, eller eventuelt henvise til hvilken video som passer best? jeg klarer ikke å finne en som matcher... Skal jeg virkelig lese fra høyre på noen omganger og fra venstre på andre? Da bør jo dette stå opplyst ett sted i oppskriften. Har rekket opp flere ganger, og råd ført meg med min mor som har strikket i 40 år...

04.05.2021 - 13:53

DROPS Design answered:

Hei Anita. Du kan sjekke denne videoen for å se hvordan den sorte ruten strikkes (men bare lag 1 kast), Hvordan øke 4 masker strikket med 2 farger i helpatent i 1 maske og kast Foreløpig har vi ingen video som viser de skrå fellingene (men det kommer). Når man strikker etter diagram, strikker man 1. pinne fra høyre til venstre og 2. pinne fra venstre til høyre, dersom det ikke står annet forklart i oppskriften. I denne oppskriften står det forklart med diagramikoner til høyre på diagrammene (opp ned trekant, stjerne, sirkel og sort stjerne). mvh DROPS design

10.05.2021 - 09:01

country flag Yvonne wrote:

Har stickat rätt många år, men klarar inte o förstå mönstret. Läst på det i två dagar nu.

30.03.2021 - 15:47

country flag Diana wrote:

Hallo, ich kann kein Diagramm für A.1A und A.2A finden. Wo steht, was ich da stricken muss? Vielen Dank

04.10.2020 - 13:58

DROPS Design answered:

Liebe Diana, beide Diagramme A.1A und A.2A finden Sie neben der Maßskizze, unter der Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

05.10.2020 - 10:50