DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Summer Berries Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, ¾ ermum og A-formi. Stærð S – XXXL

DROPS 201-14
DROPS Design: Mynstur de-195
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 20, bláberjapie

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (ljós bleik) NR 618: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

RENDUR:
Til þess að flíkin verði meira röndótt er prjónað til skiptis með 1 þræði frá 2 mismunandi dokkum, stillið af þannig að dokkurnar byrji með ólíkum litum. * Prjónið 2 umferðir með fyrri dokkunni, prjónið 2 umferðir með seinni dokkunni (ekki herða á þræðinum þegar hann er dreginn upp) *, prjónið frá *-*. Með þessu þá blandast litirnir meira og þá koma líka mjórri rendur.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca. 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÞEGAR AUKIÐ ER ÚT UM 2 LYKKJUR HVORU MEGIN VIÐ LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI Í ÞÁ ER ÞAÐ GERT ÞANNIG:
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, takið upp liðinn á undan lykkju og prjónið snúið slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið upp liðinn á undan næstu lykkju og prjónið snúið slétt (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat.

ÞEGAR AUKIÐ ER ÚT UM 1 LYKKJU HVORU MEGIN VIÐ LYKKJU MEÐ PRJÓNAMERKI Í ÞANNIG:
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Þegar aukið er út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð koma götin í laskalínu til með að fá lengri fjarlægð á milli hverra annarra en þegar aukið er út í annarri hverri umferð. Til að koma í veg fyrir þetta eru prjónuð göt í umferðum án útaukninga þannig:
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm millibili.
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkja slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjón. Allt stykkið er prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 116-116-116-136-136-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Delight. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni og prjónið 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni.
Þegar stykkið mælist 1,5 cm er prjónuð 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út þannig: Prjónið perluprjón yfir 5 kantlykkjur að framan, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 18 lykkjur jafnt yfir næstu 106-106-106-126-126-126 lykkjurnar – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og endið með 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni = 134-134-134-154-154-154 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í perluprjóni.
Skiptið yfir á hringprjón 3. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett í 26.-26.-26.-31.-31.-31. lykkju í umferð, annað prjónamerki er sett í 47.-47.-47.-52.-52.-52. lykkju í umferð, þriðja prjónamerki er sett í 88.-88.-88.-103-.103.-103. lykkju í umferð og fjórða prjónamerkið er sett í 109.-109.-109.-124.-124.-124. lykkju í umferð. Á milli lykkja með prjónamerki eru nú 25-25-25-30-30-30 lykkjur í hvoru framstykki, 40-40-40-50-50-50 lykkjur á bakstykki og 20 lykkjur í öllum stærðum á hvorri ermi.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjón, sléttprjón yfir næstu 20-20-20-25-25-25 lykkjur, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón yfir 20 lykkjur á ermi, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón yfir 40-40-40-50-50-50 lykkjur á bakstykki, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón yfir 20 lykkjur á ermi, aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, prjónið sléttprjón yfir næstu 20-20-20-25-25-25 lykkjur á framstykki og endið með 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni.

Haldið áfram í sléttprjóni með kantlykkjur að framan í perluprjóni og aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Yfir 2 lykkjur hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-8-8-10 sinnum (fyrsta útaukningin hefur nú þegar verið prjónuð), aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 8-8-8-9-9-10 sinnum. Þegar aukið hefur verið út alls 14-14-14-17-17-20 sinnum eru 294-294-294-354-354-394 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð alls 0-7-12-4-13-12 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-4-3-7-4-5 sinnum – SJÁ LEIÐBEININGAR.
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 342-382-414-442-490-530 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti (mælt mitt að framan).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 52-57-61-67-73-78 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 72-82-90-92-104-114 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 94-104-112-124-136-146 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-82-90-92-104-114 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 52-57-61-67-73-78 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Takið prjónamerkin úr stykkinu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 212-232-252-276-308-332 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 7-7-9-9-13-15 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-6-5-5-4 cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum = 232-252-272-300-332-360 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 30 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið perluprjón yfir 5 kantlykkjur að framan, stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Prjónið svona þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 72-82-90-92-104-114 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-13-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-89-99-101-117-129 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 9-13-17-17-23-28 sinnum í S: Í 10. hverri umferð, í M: Í 6. hverri umferð, í L og XL: í 4. hverri umferð, í XXL: Í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í 3. hverri umferð alls 19 sinnum og í XXXL: Í hverri umferð alls 8 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 20 sinnum = 61-63-65-67-71-73 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 29-28-27-24-23-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir um 5-3-1-3-3-1 lykkjur = 56-60-64-64-68-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3 og fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Ulrika Nielsen wrote:

Hej! Jag undrar om maskan mellan ökningarna för raglan räknas till ärmarnas maskantal eller till fram- o bakstyckena?

22.06.2023 - 08:15

country flag Celine wrote:

Bonjour Pouvez-vous m'indiquer comment faire pour ne pas voir La forme trapèze pour ce modèle de veste , je n'avais pas réalisé et je veux une forme droite normale Merci à l'avance de votre aide

10.11.2022 - 15:40

DROPS Design answered:

Bonjour Céline, il vous suffit de ne pas faire les augmentations sur les côtés - en revanche, vous devrez ajuster le nombre d'augmentations avant les côtes car votre nombre de mailles ne correspondra pas. Bon tricot!

10.11.2022 - 17:05

country flag Christine wrote:

I’m knitting size small with 134 sts on my needle Then I inserted the marker threads and keep getting 45 sts for the back and not 40.!!!

18.10.2022 - 05:45

DROPS Design answered:

Hi Christine, The first marker thread is inserted in the 26th stitch (remember in the stitch not between stitches), then the second in the 47th stitch, the 88th stitch and finally the 109th stitch. This leaves you with 25 stitches on the row. The back piece is measured between marker threads 2 and 3, which is 40 stitches (not counting the marker-stitches themselves). Happy knitting!

18.10.2022 - 07:06

country flag Heidi Jarbekk Bruun wrote:

Hei, jeg er ferdig med alle økningene til raglan og har riktig antall masker (414 - strikker L), men arbeidet måler bare 19 cm. Har nok bommet litt på strikkefastheten, men vil det se pent om jeg bare fortsetter å strikke uten å øke mer til jeg får riktig lengde?

22.09.2021 - 20:10

DROPS Design answered:

HEi Heidi. Du kan strikke til du får riktig mål (i høyden) uten økninger. mvh DROPS Design

28.09.2021 - 11:56

country flag Jane wrote:

Hei hvor mange gange skal det økes hver 2omgang og 4omgang? Mvh jane

05.05.2021 - 09:13

DROPS Design answered:

Det kommer an på hvilken størrelse du strikker, se her: Fortsett økningen til raglan og det økes 1 maske på hver side av maskene med merketråd i på hver 2.pinne totalt 0-7-12-4-13-12 ganger og deretter på hver 4.pinne (dvs på annenhver pinne fra retten) totalt 6-4-3-7-4-5 ganger – LES STRIKKETIPS.

07.05.2021 - 09:38

country flag Siobhain wrote:

Hi, I would like to check what length double point needles I need for this pattern. Are 20cm needles suitable? Thank you.

10.03.2021 - 15:53

DROPS Design answered:

Dear Siobhain, sure they are, the double pointed needles will be used for the sleeves - you can also use a longer circular needle and work magic loop. Happy knitting!

10.03.2021 - 16:15

country flag Noellie wrote:

Ho inviato una mail perchè non mi tornavano le maglie aumentate. Ho rivisto il tutto con una amica esperta di maglia e mia ha spiegato bene. Mi scuso e vi ringrazio.

19.02.2021 - 16:21

DROPS Design answered:

Buonasera Noellie, dove ha inviato la mail? Se in futuro dovesse avere altre difficoltà può scriverci compilando direttamente il modulo alla fine di ogni modello. Buon lavoro!

19.02.2021 - 21:04

country flag Emilia wrote:

Hej, Jag undrar lite över ökningstips 2, ökning i sidan mellan fram och bakstycke. Ska de 4 ökade maskorna hamna på framstycket, eller 2 på bakstycket? När jag läser tipset låter det nästan som att två ska hamna på vänster framstycke och två ska hamna på höger sida av bakstycket. Det kan väl ändå inte stämma eller? Men det blir ju så om jag ökar två maskor innan varje markör.

28.07.2020 - 09:49

DROPS Design answered:

Hej Emilia, du øker 1 masker på hver side af masken med markør i begge sider (markøren er i midten af siden). God fornøjelse!

05.08.2020 - 15:31

country flag Wilmo wrote:

Bonjour, je voudrais faire une rehausse dos pour ce gilet. Si je fais des rangs raccourcis sur 15 mailles, est-ce que ça sera équilibré? j\'ai vu ces explications sur un autre modèle, le ROSENDAL 181-1 . merci de votre aide - je n'ai jamais tricoté de pull avec une rehausse!

25.06.2020 - 17:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wilmo, il serait plus sage de prendre en base un modèle avec réhausse tricoté dans le même groupe de fils A/avec le même échantillon - le Modèle Rosendal est tricoté avec une laine du groupe B, le calcul sera différent. Bon tricot!

26.06.2020 - 07:51

country flag Elena wrote:

Ho iniziato questo modello ma dopo 10 cm di lavoro ho interrotto... 116 maglie per il girocollo sono assolutamente troppo poche!! Il collo risulta strettissimo, mentre dalle foto è evidente che deve restare abbastanza largo. Altri modelli equivalenti, trovati qui e fatti con lo stesso filato, per la taglia L montano dalle 130 alle 140 maglie!! Vorrei sapere se qualcuna è riuscita a lavorare la taglia L di questo modello seguendo esattamente le istruzioni...

27.05.2020 - 10:08