DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Nothing Jumper

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-18
DROPS Design: Mynstur sk-038
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100-100-100-100 g litur 13, ljós gallabuxnablár
100-150-150-150-150-200 g litur 12, gallabuxnablár
100-100-150-150-150-150 g litur 07, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur) mínus kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (= 4 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendur eru prjónaðar þannig:
Rönd-1: Prjónið 18-19-19-20-21-21 cm með litnum ljós gallabuxnablár.
Rönd-2: Prjónið 18-18-19-20-20-21 cm með litnum gallabuxnablár.
Rönd-3: Prjónið með litnum ljós sægrænn til loka (= 17-18-19-19-20-21 cm).

RENDUR Á ERMI:
Haldið áfram með litnum gallabuxnablár þar til röndin mælist alls 23 cm í öllum stærðum, prjónið síðan með litnum ljós sægrænn til loka.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, (prjónamerki situr hér), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, (= prjónamerki situr hér). Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað í hring niður að klauf í hliðum, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð brugðið og 2 umferðir slétt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig:
Prjónið * A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur), A.2 (= 1 lykkja), A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur), setjið 1 prjónamerki hér (= bakstykki/framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermum og aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkju á framstykki og bakstykki (miðjulykkja = A.2) = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram hringinn með mynstur og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 21-25-26-31-31-30 sinnum til viðbótar (alls 22-26-27-32-32-31 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðirnar endurteknar á hæðina 20-23-27-28-33-36 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 þar til það eru 49-55-63-65-75-81 lykkjur sléttprjón á milli A.1 og A.3 á bakstykki og framstykki) = 284-316-340-368-392-404 lykkjur. Haldið síðan áfram með áferð yfir 18-18-18-22-22-22 lykkjur í A.1 og A.3 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm mælt frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-18 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-18 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-202-222-242-266-286 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 5-5-6-6-7-9 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið mynstur eins og áður yfir 18-18-18-22-22-22 lykkjur í A.1 og A.3, prjónið sléttprjón yfir miðju 4 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 2 lykkjur garðaprjón hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 16 cm er prjónað fram að prjónamerki í annarri hlið á stykki. Síðan er prjónað fram og til baka yfir helming af lykkjum í umferð fyrir fram- og bakstykki, þannig að það myndist klauf í hliðum.

BAKSTYKKI:
= 95-101-111-121-133-143 lykkjur. Prjónið mynstur A.1/A.3, sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 20-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 115-121-133-145-159-171 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Setjið 57-67-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 67-77-83-87-91-95 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 5-5-6-6-7-9 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn og RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili 7 sinnum og með 3 cm millibili 6 sinnum.
Stærð M: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili 10 sinnum og 3 cm millibili 4 sinnum.
Stærð L: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 5 sinnum og með 2 cm millibili 12 sinnum.
Stærð XL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 9 sinnum og með 2 cm millibili 9 sinnum.
Stærð XXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 12 sinnum og með 2 cm millibili 7 sinnum.
Stærð XXXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 16 sinnum og með 2 cm millibili 4 sinnum.
Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 41-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir = 50-56-58-62-64-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn erði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Angelika Steenbuck wrote:

Hallo liebes Team, ich stricke Größe L. Meine Frage: Die Streifenfolge für den Rumpf erfolgt nach 19 cm, die Streifenfolge für den Ärmel erfolgt nach 23 cm, die Ärmelabtrennung erfolgt nach 26 cm. Dann muss ich für 7 cm mit 4 Knäulen arbeiten? Gibt es eine andere Lösung oder habe ich es falsch verstanden? Lieben Gruß Angelika

14.07.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

Liebe Angelika, nach 19 cm (vom Anfang) stricken Sie die Passe weiter mit jeansblau - dann, nach 26 cm (= 7cm wurden mit jeansblau gestrickt) teilen Sie die Arbeit und stricken Sie Rumpf und Ärmel separat weiter - 12 cm noch mit jeansblau dann mit hell seegrün bis zur Ende, für die Ärmel stricken Sie mit jeansblau weiter bis die Ärmel 23 cm (noch 16 cm nach der Verteilung + 7 cm vor der Verteilung = 23 cm) misst, dann stricken Sie mit hell seegrün bis zur Ende. Viel Spaß beim stricken!

27.07.2023 - 10:51

country flag Raquel wrote:

Me encanta esta prenda, pero cuando veo el patrón, no sé cómo hacer los cuatro primeros agujeros que están en el centro del delantero y en el centro de la espalda. Aparecen en las fotos, pero no en el patrón. O sencillamente estoy haciendo algo mal, ¿no?

06.04.2023 - 07:48

DROPS Design answered:

Hola Raquel, los primeros agujeros en el centro son las hebras trabajadas a cada lado del punto central, de A.2 . Las hebras trabajadas en el patrón se trabajan después de derecho para que queden los agujeros.

06.04.2023 - 23:03

country flag Lena wrote:

Bonjour ! Je suis en train de faire le pull mais je ne comprends pas tout. J'ai déjà tricoté les 26 fois le raglan (Taille M). Dois-je continuer d'augmenter pour le raglan ? Ou pas ? Car il me reste encore des rangs à faire pour atteindre les 55 mailles pour les milieux. J'espère avoir été claire dans mes questions et que vous saurez me répondre... Cordialement, Lenablg.

18.08.2021 - 12:16

DROPS Design answered:

Bonjour Lena, quand les diagrammes sont terminés, continuer à augmenter comme pour la dernière augmentation de part et d'autre de A.2 (= après A.1 et avant A.3 sur le devant et le dos) jusqu'à ce qu'il y ait 55 cm (en M) entre A.1 et A.3 - continuez à augmenter tous les 2 tours aussi pour les manches (26 augmentations de chaque côté des manches au total). Bon tricot!

18.08.2021 - 14:27

country flag Laura wrote:

I didn't find any reference to short rows or something like that to raise neckline, however the diagram seems to have it... If it hasn't, any idea how to manage raising back neck at the same time I'm working on raglan increases? Thank you very much for your help!

06.05.2021 - 15:12

DROPS Design answered:

Dear Laura, no there is not any raise in the back-neckline on this piece. If would be difficult to raise it withouth disturbing the pttern, but íou can add a few short rows, starting from the middle of the neck, and go back and forth for a couple of times. Happy Knitting!

06.05.2021 - 15:21

country flag Noeline Geydien wrote:

Dear Madame I have printed Patt No. Drops 199-18Sweet Nothing Jumper. We don,t stock your wool in South Africa and am using Elle Denim Look. Would you please be so kind to explain the pattern more clearly for me? just love the pattern.\r\nThanking you in advance

08.03.2021 - 18:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Geydien, our yarns are available all around the world thanks to the DROPS stores shipping worldwide - see the list here. To help you understanding the patterns you will find a list of videos and lessons at the bottom of the page. Feel free to ask any question here or contact the store where you bought the yarn for any individual assistance. Happy knitting!

09.03.2021 - 08:00

country flag Lone wrote:

Jeg har samme problem med deling til krop og ærmer.. Strikker str L og har 340 masker.. Der skal deles i 99+71+99+71 masker som giver rette antal.. Men glatstrik i for og bagstykke er 63 masker plus 18 masker struktur i mønsteret i hver side = 89 masker Hvis jeg strikker 99 i for og bagstykke skrider det ift mønsteret?

18.02.2021 - 20:44

country flag Helle Christiansen wrote:

Jeg har startet forfra 2 gange. Når jeg skal skille krop og ærmer, har 81 masker til ærme og ikke 71 som beskrevet i opskriften. Jeg strikker str L. Jeg kan ikke se hvad det er jeg gør forkert. Kan I hjælpe mig?

13.04.2020 - 07:18

DROPS Design answered:

Hei Helle. Litt usikker på hvor det går galt hos deg, men i oppskriften står det, i str L: Neste omgang strikkes slik: Strikk mønster som før over de første 99 maskene (= bakstykke), sett de neste 71 maskene på en tråd (= erme), legg opp 12 masker på pinnen (= i siden under ermet), strikk de neste 99 maskene (= forstykke), sett de neste 71 maskene på en tråd (= erme), legg opp 12 masker på pinnen (= i siden under ermet). Du setter selv de 71 maskene på en tråd, så da er jeg usikker på hvor du får de 81 maskene ifra. mvh DROPS design

27.04.2020 - 13:36

country flag Manuela wrote:

Il campione 10x10 è con i ferri 4.50 oppure 3.50? Grazie mille

19.12.2019 - 22:07

DROPS Design answered:

Buonasera Manuela, il campione solitamente si lavora con i ferri con cui si lavora la maggior parte del capo, in questo caso misura 4,5 mm . Si ricordi che comunque il n° di ferri è indicativo, l'importante è ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

19.12.2019 - 22:35

country flag Roser wrote:

És la primera ves que hago un sueter empezando por arriba y en este modelo me confunde los puntos del raglan con el diagrama,no se cual és el medio de la Espada,,,,,,,disculpes,,,,,

27.11.2019 - 16:15

DROPS Design answered:

Hola Roser. El canesú de esté patrón no es fácil. A.2 (= 1 punto) es el punto central del delantero y de la espalda. Tienes que trabajar muy atentamente según el patrón. Utiliza los marcapuntos!

30.11.2019 - 20:41

country flag Sheri Adams wrote:

In order to get the pattern, must a person print it to get it or is there a way to save it for later?

27.06.2019 - 20:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Adams, you can either print the pattern clicking on the icon with the printer/Pattern (and choose a virtual printer to save it as a .PDF) or add it to your favourites by clicking on the icon with a heart/Add to favourites. Happy knitting!

28.06.2019 - 06:28