DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Birch Woods

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-11
DROPS Design: Mynstur ai-176
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-350-400-450 g litur 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
16 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með gatamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4 og A.5).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni/mynstri.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 238 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 38) = 6,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp.
Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað til loka í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-170-190-200-220-240 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan þannig: Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 12-12-13-14-13-13 cm (eða að óskuðu máli – ef maður vill stilla af lengd á stykki þá er það gert hér) – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.4 yfir allar lykkjur (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Endurtakið A.4 1 sinni á hæðina, en síðasta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 37-39-43-46-50-54 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), fellið af næstu 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 74-80-88-92-100-108 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 37-39-43-46-50-54 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki) = 148-158-174-184-200-216 lykkjur. Stykkið mælist ca 32-32-33-34-35-35 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 31-33-35-37-39-41 lykkjur á sokkaprjón 5 með Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna/hringprjón 5,5.
Prjónið næstu umferð þannig: 0-1-2-3-4-0 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-2-3-4-5-1 lykkjur í umferð (= 2-2-2-2-2-3 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.3 yfir næstu lykkju, endið með 0-1-2-3-4-0 sléttar lykkjur. Haldið áfram þar til A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-7-8-7-9-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með 3½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-14-15-16-16 sinnum = 51-57-63-67-71-73 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-19-19-18-16-14 cm (eða að óskuðu máli – ef maður vill stilla af lengd á ermum þá er það gert hér), prjónið A.4 yfir allar lykkjur – passið uppá að lykkja með stjörnu verði mitt á ermi og aðlagið mynstrið af út í hvora hlið. Þ.e.a.s. þegar útaukning hefur verið gerð til loka undir ermi, prjónið þannig: 0-3-1-3-0-1 lykkjur slétt, A.4 (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum) og 1-4-2-4-1-2 lykkjur slétt. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni og útaukar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.4 (passið uppá að það sé sami fjöldi úrtöku og uppsláttar í mynstri). Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Endurtakið A.4 1 sinni til viðbótar á hæðina, en síðasta umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 45-51-55-59-61-61 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg = 45-51-55-59-61-61 lykkjur. Stykkið mælist ca 41-39-39-38-38-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 238-260-284-302-322-338 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið A.5 yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.5 er lykkjum fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
ÖR-1: Fækkið um 38-40-44-42-42-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 200-220-240-260-280-300 lykkjur.
(A.5 er nú prjónað 20-22-24-26-28-30 sinnum á breidd).
ÖR-2: Fækkið um 40-50-50-50-40-40 lykkjur jafnt yfir = 160-170-190-210-240-260 lykkjur.
(A.5 er nú prjónað 16-17-19-21-24-26 sinnum á breidd).
ÖR-3: Fækkið um 40-40-40-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 120-130-150-170-200-220 lykkjur.
(A.5 er nú prjónað 12-13-15-17-20-22 sinnum á breidd).
ÖR-4: Fækkið um 28-30-42-30-40-40 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-140-160-180 lykkjur.
ÖR-5: Fækkið um 16-20-18-28-42-30 lykkjur jafnt yfir = 76-80-90-112-118-150 lykkjur.

STÆRÐ: XL-XXL:
ÖR-6: Fækkið um 18-20 lykkjur jafnt yfir = 94-98 lykkjur.

STÆRÐ XXXL:
ÖR-7: Fækkið um 28 lykkjur jafnt yfir = 122 lykkjur.
ÖR-8: Fækkið um 20 lykkjur jafnt yfir = 102 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka mælist berustykki ca 20-22-23-24-25-27 cm og það eru 76-80-90-94-98-102 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (skiptið e.t.v. yfir á grófari prjón).

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (= EKKI gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman – ATH: Í umferð merktri með svartri rúðu færist byrjunin á umferðinni um 1 lykkju til vinstri, þ.e.a.s. lyftið fyrstu lykkjunni á hægri prjón yfir án þess að prjóna hana, prjónið síðan mynstureininguna hringinn. Lykkjan sem steypt var yfir á hægri prjón kemur nú til með að prjónast í síðustu endurtekningunni. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt og í umferðinni á eftir byrjar umferðin aftur eins og áður.
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Umferð þar sem byrjunin færist til
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 3 lykkjur brugðið saman – ATH: Í umferð merktri með svartri rúðu færist byrjunin á umferð til um 2 lykkjur til vinstri, þ.e.a.s. lyftið 2 fyrstu lykkjunum yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, prjónið síðan mynstureininguna hringinn. Þessar 2 lykkjur sem steyptar voru yfir á hægri prjón koma nú til með að prjónast í síðustu endurtekningunni. Í næstu umferð eru allar lykkjurnar prjónaðar slétt og í umferðinni á eftir byrjar umferðin aftur eins og áður.
symbols = úrtöku umferð
symbols = miðju lykkja mitt á ermi
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag R C Andersson wrote:

Hej, jeg har fundet løsningen= a.5 er 2x a.4 i højden, så se bare bort fra mit tidliger spørgsmål. God dag til jer. MVH

12.04.2023 - 10:05

DROPS Design answered:

Godt at høre :)

13.04.2023 - 11:22

country flag Cathie Castaneda wrote:

Hello! I am making pattern 202-11 for the second time & I just noticed something. Under the “Yoke” instructions it says to decrease 38 stitches on the A.5 stitch chart on Row 2. But then on A.5, Row 3 you increase 40 stitches. I’m confused because it just seems easier to increase just 2 stitches on Row 3. Let me know what you think. Thank you!!! I’m trying to happy knit haha.

11.10.2022 - 01:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Castaneda, the stitches increased on row 3 in A.5 will be decreased on row 11, since they belong to the pattern - decrease 38 sts on row with the arrow (row 2), then work pattern as shown in diagram (increasing 2 sts in each repeat then decreasing these 2 sts in each repeat) and continue decreasing evenly on each row with an arrow as explained in the written pattern. Happy knitting!

11.10.2022 - 08:04

country flag Cathie Castaneda wrote:

Hello again! I didn’t state my previous question good enough. The decreases I am wondering about are in the yoke section. I am supposed to decrease 38-40 stitches and I don’t know where to decrease them in the design of the lacework without it affecting the look of the lacework pattern. I see that the lacework sections decrease each time the decreases are made . I know how to calculate how to calculate how often to do the decreases

10.08.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Castaneda, you have to decrease the stitches evenly on a same round - read more here. This means the pattern won't repeat in height exactly over each other as in the diagram but you will then have the correct number of stitches to repeat the diagrams in width. Happy knitting!

11.08.2022 - 10:35

country flag Cathie Castaneda wrote:

Hello! Regarding the yoke decreasing in pattern 202-11. I understand how to calculate how often to decrease the stitches. I’m not understanding how to decrease in the lacework charts A5. Decreasing in the charts doesn’t leave me enough stitches to do each repetition. I understand that the number of repetitions will be decreased, I just don’t get how to work A5 pattern with less stitches.

10.08.2022 - 09:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Castaneda, you should have enough stitches in each size to repeat A.5 as explained, please note that you should increase 2 sts in each A.5 before working the lace pattern (with the purled stitches), then decrease 2 sts in each A.5 on the last row of this section. Hope it can help, happy knitting!

10.08.2022 - 16:12

country flag Cathie Castaneda wrote:

Previous question correction haha! What is the vertical height of A4? And the vertical height of A5? And how many vertical times is the A4 section repeated on the body and the sleeves? Thank you!

06.08.2022 - 07:06

DROPS Design answered:

Dear Cathie, A.4 is repeated twice in the body and the sleeves vertically. Its length depends on the size: for size XXL A.4 is longer than for size S. For sizes S-XL it's 24 rows; for sizes XXL and XXXL it's 25 rows. Remember to work with the correct gauge so that you will have enough cm to reach the armhole with just 2 repeats of A.4. A.5 measures between 20 and 27 cm depending on the size (the number of rows to work will depend on the size you are working). Happy knitting!

07.08.2022 - 23:00

country flag Cathie Castaneda wrote:

Another question on pattern 202-11. What is the of A4 ? And A5?

06.08.2022 - 07:00

DROPS Design answered:

Dear Cathie, please see answer above.

07.08.2022 - 23:00

country flag Cathie Castaneda wrote:

202-11: In the body, it appears A4 is only worked twice (which equals approximately 12 1/2”) before combining the body with the sleeves. In the sleeve directions it states to work A4 three times on the sleeves before working the yoke & sleeve together. In the 202-11 photo there are 3 sections of A4 on the body (not 2), not 3 like the sleeves. Am I missing working a 3rd repitition of A4 on the body?

05.08.2022 - 22:10

DROPS Design answered:

Dear Cathie, you work A.4 twice in the sleeves and body (in the sleeves it says to work A.4 until finishing vertically and then repeat 1 more times = 2 in total). Remember that you start working A.4 in the body when the piece measures approx. 12 cm (in size S). One repeat is approx. 10 cm in vertical (24 rows for size S, for example), so 2 repeats are 20 cm approx. As you can see, the body up to the yoke measures 31 cm for size S (see measurements schematic below the pattern charts) so with 2 repeats of A.4 you have already reached the armhole. Happy knitting!

07.08.2022 - 23:00

country flag Cathie Castaneda wrote:

I have been trying to get the correct knitting gauge. I have had to knit this pattern with size 11 needles to get the gauge. which seems way too big. The gauge works out to 4 stitches per inch. I think 4 stitches per inch is too few stitches with using ‘C’ weight yarn. That gauge is more when using bulky weight yarn. Any answers? I’m wondering if there could be an error in the printing of the knitting gauge. Thank you!

22.07.2022 - 22:43

DROPS Design answered:

Hi Cathie, the pattern is correct. Please remember there is no correct needle size; everyone’s knitting is different. Needle size is only a suggestion! If you have too many stitches on 10 cm switch to larger needles. If you have too few stitches on 10 cm switch to smaller needles. For more information please see the lesson Drops HERE. Happy knitting!

24.07.2022 - 14:32

country flag Eva Skytte wrote:

Jeg skal gentage mønster diagram A4, men skal tage masker ud på 5 pind i diagrammet, hvis jeg gør det i gentagelsen, så bliver hver diagram på 12 masker i stedet for de 10 masker som diagrammet er på, det kommer jo ikke til at passe sammen, så hvad gør jeg , tager masker ud og strikker dem ret på hver side af diagrammet, eller skal jeg ikke tage ud, så diagram stadig passer i maskeantal

29.05.2021 - 23:38

DROPS Design answered:

Hei Eva. Du øker med 1 kast, slik det er beskrevet i diagrammet, du vil da på neste omgang ha 12 masker pr rapport av diagram A.4. De nye maskene strikkes som vist i diagrammet (vrang). Ved 13. omg (str. L+XL) minskes maskeantallet og du vil igjen ha 10 masker pr rapport. Bruk gjerne maskemarkører (tråd) mellom hver rapport, så får man en bedre oversikt. mvh DROPS design

31.05.2021 - 09:53

country flag HilaryHilary wrote:

Hi I have this pattern and bought 350g of Drops Big Merino group C yarn - to knit the large size. The tension is fine based on 17 x 22 on the yarn with 5mm needles and 16 x 20 on the pattern with 5.5. needles. However, I have already used up 2 balls and have barely started. Just a few rows past the bottom patterned piece. Is this weight correct? If I need to buy more I will need to do it soon to hopefully get the same dye lot.

26.01.2021 - 12:31

DROPS Design answered:

Dear HilaryHilary, both yarn have different meterages, you have to calculate the total amount of yarn required from the total meterage in Air and the meterage of Big Merino - use our yarn converter or read more here. So that in size L you need 350 g DROPS Air but 700 g DROPS Big Merino - 1 ball Air is approx. 150 m while 1 ball Big Merino is approx. 75 m. Happy knitting!

26.01.2021 - 14:47