DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dalvik

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára. Prjónuð húfa fyrir börn úr DROPS BabyMerino með norrænu mynstri.

DROPS Children 34-18
DROPS Design: Mynstur bm-017-bn
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-200-250-250-300 g litur 19, grár
50-50-50-50-50-50 g litur 02, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 20, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 21, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 22, ljós grár

PEYSA:

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-300 g litur 19, grár
50-50-50-50-50-50 g litur 02, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 20, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 21, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 22, ljós grár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
2/4 - 5/8 - 9/12 ára
Höfuðmál: ca 48/52 – 52/54 – 54/56 cm

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50-50-50 g litur 19, grár
50-50-50-50-50-50 g litur 02, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 20, dökk grár
50-50-50-50-50-50 g litur 21, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 22, ljós grár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 27) = 3,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá eru prjónaðar ca önnur hver og þriðja hver lykkja slétt saman.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið með litnum dökk grár þannig: Prjónið 15-15-16-16-17-17 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-32-32-34-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-45-48-48-51-51 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-68-68 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-75-80-80-85-85 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið 90-90-96-96-102-102 lykkjur.
Snúið og prjónið að miðju að aftan.
Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (A.2 á einungis við stærð 2 ára – þessi mynstureining hefur verið prjónuð á berustykki í hinum stærðunum).
Húfa: Sjá mynstureiningu A.3.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjóni. Eða hægt er að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-90-92-94-96-98 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með litnum dökk grár Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 27-30-33-31-34-37 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 115-120-125-125-130-135 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu þá beint áfram í berustykki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1 hringinn (= 23-24-25-25-26-27 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð á undan umferð merktri með ör í A.1, eru 230-240-250-250-260-270 lykkjur í umferð.
Í umferð merktri með ör í A.1, er aukið út um 10-20-22-30-36-38 lykkjur jafnt yfir = 240-260-272-280-296-308 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 14-16-16-16-16-16 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og í litnum grár þar til stykkið mælist 14-16-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-38-40-42-44-46 lykkjur sléttprjón með litnum grár (= ½ bakstykki), setjið næstu 50-54-56-56-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-80-84-88-92 lykkjur sléttprjón með litnum grár (= framstykki), setjið næstu 50-54-56-56-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-38-40-42-44-46 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum grár (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-164-172-184-192-200 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi í aðra hlið á stykki. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.2 hringinn (á einungis við um stærð 2 ára – þessi mynstureining hefur verið prjónuð í berustykki í hinum stærðunum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum grár (á við um allar stærðir). Prjónið með litnum grár þar til stykkið mælist ca 15-17-21-24-27-30 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, það eru ca 5 cm til loka).
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 50-54-56-56-60-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar vor upp undir ermi = 56-60-62-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.2 hringinn (á einungis við um stærð 2 – þessi mynstureining hefur verið prjónuð í berustykki í hinum stærðunum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum grár (á við um allar stærðir).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3½-4-4-4½ cm millibili alls 6-7-7-7-8-8 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Prjónið síðan með litnum grár þar til ermin mælist 18-21-26-29-33-37 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm til loka).
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 23-26-31-34-38-42 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir í sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 138-144-150 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með litnum dökk grár Baby Merino. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 112-116-120 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.3 hringinn (= 28-29-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með ör í A.3 er fækkað um 1-2-0 lykkjur jafnt yfir = 111-114-120 lykkjur. Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 37-38-40 mynstureiningar með 3 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 11 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan sléttprjón með litnum grár. Þegar stykkið mælist 13-15-17 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-4-0 lykkjur jafnt yfir = 110-110-120 lykkjur. Setjið nú 10 prjónamerki í stykkið með 11-11-12 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman (= 10 lykkjur færri). Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9 sinnum í öllum stærðum = 20-20-30 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 10-10-15 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð til viðbótar þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5-8 lykkjur eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 19-21-23 cm ofan frá og niður.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.09.2019
Leiðrétting - UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA:..Snúið, herðið á bandi og prjónið 75-75-80-80-85-85 lykkjur slétt, snúið, herðið á bandi og prjónið brugðið 90-90-96-96-102-102 lykkjur, snúið og prjónið að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

Mynstur

symbols = dökk grár
symbols = ljós grár
symbols = grár
symbols = svartur
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynstur umferð, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útauknings umferð / úrtöku umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Dalvik

Bettina Sundman, Finland

Dalvik

Martina, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Catherine wrote:

Thank you. I am knitting size 5/6.

04.03.2024 - 16:29

DROPS Design answered:

Dear Catherine, that's right, you first increase at the bottom of each A.1 (3 sts) then work straight until 24th row, increase 2 more times before the round with an arrow = 250 sts, then increase 22 sts evenly on this round = 272 sts. Happy knitting!

05.03.2024 - 09:55

country flag Catherine wrote:

Are there no increases in A1 between row 6 and row 26? I'm a bit worried it won't widen over the shoulders. I'm now on row 11 and have 200 stitches. Is this right?

01.03.2024 - 20:35

DROPS Design answered:

Dear Catherine, could you please indicate which size you are working so that we may check if the amount of stitches at that stage is correct? Here the increases are all accumulated at the start and the end so that the increases won't interrupt the pattern in later rows. So those increases should be enough. Happy knitting!

03.03.2024 - 19:10

country flag Diane wrote:

Bonjour je fais le modèle dalvik j’ai besoin de renseignement quand on commence le diagramme je comprends que je commence par le bas du diagramme jusqu’au haut. Deux choses j’ai comme l’impression que le diagramme donne pas le même motif que sur la photo du modèle et deuxième on spécifie que quand on a terminé le motif avant la flèche sur le diagramme j’ai l’impression que j’aurai plus que 250 mailles . Merci de me venir en aide à une personne qui apprend seule.

10.01.2024 - 21:19

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, en taille 5/6 ou 7/8, vous commencez par 125 mailles et tricotez 25 fois le diagramme A.1 (25 x 5 = 125), vous augmentez 5 mailles au total dans chaque A.1 comme indiqué dans le diagramme, ainsi vous avez 10 mailles dans chaque A.1 avant le tour avec la flèche, soit 25 x 10 = 250 mailles, diminuez 22 ou 30 mailles au tour suivant = 272-280 mailles et continuez le diagramme. Bon tricot!

11.01.2024 - 08:03

country flag Tiffany wrote:

The instructions for the back of neck elevation are not corrected in the US English version of the pattern. They are correct in the UK English pattern.

11.11.2023 - 05:51

country flag Riitta-Liisa Alaraasakka wrote:

Malli bm-017-bn (children 34-18) koko 3/4 Silmukkaluvut ovat kaarrokkeen jälkeen väärin, pyydän korjausta!

13.10.2023 - 13:57

DROPS Design answered:

Hei, silmukkaluku näyttää oikealta. Etu- ja takakappaleessa on 164 silmukkaa (38 + 6 + 76 + 6 + 38 s).

18.10.2023 - 16:39

country flag Ann-Gerd Salmonson wrote:

Var finns diagrammet till mönstret?

11.08.2023 - 20:35

DROPS Design answered:

Hej Ann-Gerd, nederst i mönstret ovanför måttskissen :)

16.08.2023 - 11:21

country flag Anne Roget wrote:

Merci pour Le tutoriel "comment tricoter des rayures en rond sans décalage" découvert grâce à votre réponse à Julia le 13.07.21 car je me demande que faire avec les fils qui ne sont pas utilisés par exemple pendant 8 rangs comme le noir. Couper le fil? Ou le faire "monter" : comment? Je propose d'ajouter ce tutoriel aux 8 autres.

06.09.2022 - 18:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roget, vous pouvez soit le couper quand les rayures sont trop longues, soit le faire suivre avec les autres couleurs (en les croisant pour éviter des longueurs sur l'envers). On retrouve cette technique dans cette autre vidéo montre comment croiser les fils pour des rayures en rangs, mais on peut procéder de la même façon au changement de tour. Bon tricot!

07.09.2022 - 08:14

country flag Sten-Inge Olsson wrote:

Stickat den tidigare bra modell

22.04.2022 - 20:39

country flag Marcela wrote:

Como hacer este patrón con lana chenilla,y cuánto cantidad necesito y que agujas tengo que usar,se tejer pero nunca eh usado este patrón para jersey nórdico,si eh hecho jackar ,me puedes guiar o dirigirme adónde buscar en tu página???.

12.04.2022 - 20:38

DROPS Design answered:

Hola Marcela, la cantidad y aguja dependerá del grosor del hilo de chenilla que estés usando; tendrás que realizar una muestra y probar aquella que se ajuste más a la indicada en el patrón. Ten en cuenta que chenilla es un hilo más delicado y tenderá a estropearse si se trabaja jacquard de forma prieta, como en este jersey. Puedes consultar en nuestra colección otros patrones con dibujo jacquard trabajado con hilos más gordos, que probablemente sea menos problemático para trabajar con chenilla.

14.04.2022 - 18:22

country flag Christine wrote:

Hallo, ich habe eine dünnere Wolle und möchte diesen Pulli Stricken. Meine Wolle ist für Nadelstärke 2,5 bis 3,5 und die Lauflänge beträgt 410 Meter pro 100 Gramm. Kann ich einfach statt Größe 122/128 (das ist die Größe die ich brauche), die nächste Größe nehmen, also 134/140? Für eine Antwort bin ich wirklich sehr dankbar. Liebe Grüße

09.03.2022 - 20:12

DROPS Design answered:

Liebe Christine, am besten stricken Sie Ihre Maschenprobe und dann können Sie die Anleitung neu umrechnen - gerne wird Ihnen Ihr Wolleladen damit helfen. Viel Spaß beim stricken!

10.03.2022 - 10:10