Roussel wrote:
Bonjour je reviens vers vous au sujet du motif de la manche 5 fois 2mailles mais comment faire car au second tour je me retrouve avec 15mailles au lieu de 13 initialement comment tricoter ces deux premières avant le diagramme et à mesure que je tricote les rangs suivants il y a toujours 2mailles en plus le diagramme se limite simplement à 5fois 2mailles je ne saisis pas l’explication merci beaucoup j’attends votre réponse
20.03.2024 - 17:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Roussel, pour que le motif soit symétrique, on va tricoter les 13 mailles de la manche ainsi: 1 m end (raglan), 5 x les 2 mailles de A.1A = 10 m, la maille de A.1B, 1 m end (raglan), et comme vous augmentez 1 maille juste après la m end du raglan au début de la manche + juste avant la m end du raglan à la fin de la manche, vous avez effectivement 15 mailles. Tricotez les augmentations en les incorporant au point fantaisie, si la m suiv/précédente doit être 1 m end, tricotez l'augmentation à l'envers, si la m suiv/précédente doit être 1 m env, tricotez l'augmentation à l'endroit. Bon tricot!
21.03.2024 - 08:58Roussel wrote:
Bonjour je ne comprends pas l’explication quand j’ai mis mes quatre marqueurs je commence par les 13 mailles de la manche je fais ma maille endroit et un jeté ensuite le diagramme qui comporte 8mailles je ne peux pas le faire 5fois à la suite vu qu’il me reste 5mailles pour la manche (13mailles -8=5 et pour le jersey 42 mailles mon premier rang se tricote à l’endroit et le prochain envers je vous remercie de me renseigner merci beaucoup
08.03.2024 - 09:49DROPS Design answered:
Bonjour Mme Roussel, vous allez tricoter 2 mailles jersey à chaque raglan (le fil marqueur est entre ces 2 mailles), vous aurez donc 11 mailles pour chaque manche (= 5 x les 2 mailles de A.1A + la maille de A.1B) et les mailles du devant/ du dos en jersey. Placez bien vos marqueurs, au 1er rang, comptez bien vos 2 mailles pour le raglan sans les confondre avec les 2 mailles endroit des raglans. Bon tricot!
08.03.2024 - 16:05Nathalie wrote:
Bonjour, est-ce que c'est possible pour faire un pull entre deux tailles (4-5 ans) de prendre la nombre médian entre la taille 3-4 ans et 5-6 ans. Par exemple commencer par monter 78 mailles ? Ou est-ce que ça va faire des erreurs ensuite?
19.02.2024 - 09:46DROPS Design answered:
Bonjour Nathalie, c'est probablement possible, mais vous avez juste 2 cm de différence entre 2 tailles aussi bien en largeur qu'en hauteur, ce soit être facile de trouver la taille idéale en mesurant un vêtement qui va bien à l'enfant, la longueur des manches est elle facile à ajuster à la longueur souhaitée. Bon tricot!
19.02.2024 - 15:17NANADOUMGAR wrote:
Bonjour Pourriez-vous me dire où trouver l'information suivante : nombre de pelotes à acheter en fonction de la taille du pull que l'on veut réaliser? Merci beaucoup
21.10.2023 - 19:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Nanadoumgar, bien sûr: vous trouverez la quantité requise dans l'en-tête, au poids, autrement dit, en taille 2 ans il faut pour ce pull 150 g wDROPS Sky / 50 g la pelote =3 pelotes. Bon tricot!
23.10.2023 - 09:51Martina Killing-Teske wrote:
Vielen Dank für die Anleitung. Ich würde den Pullover gerne für meine Enkelkinder mit der Drops Nepal Wolle stricken. Haben Sie einen Umrechnungsfaktor für mich zum Materialverbrauch? Gruß Martina
23.08.2023 - 15:10DROPS Design answered:
Liebe Frau Killing-Teske, sowas haben wir leider nicht, am besten benutzen Sie eine andere Wolle der Garngruppe B (wie Lima, selbe Zusammensetzung als Nepal) - versuchen Sie unseren Garnumrechner oder suchen Sie ein anderes Modell, das der Garngruppe C gehört. Viel Spaß beim stricken!
23.08.2023 - 16:50Vivi Sekunda wrote:
Hovedvidden på et 2 årligt barn er ca. 48-50 cm. Man slår 76 m op og strikkefastheden er 21 m = 10 cm, ergo har man behov for 105 m 🙄🤔. Kan jeg få en forklaring? Venlig hilsen Vivi Sekunda
01.08.2023 - 17:58DROPS Design answered:
Hej Vivi, slå løst op, så vil det ribstrikkede gøre halsen elastisk, så hovedet kan gå igennem :)
07.08.2023 - 13:53Claudia Foy wrote:
Do you have a similar pattern in men’s size?
17.06.2023 - 20:18DROPS Design answered:
Hi Claudia, you can choose from green text . Happy knitting!
18.06.2023 - 06:09Marlene wrote:
Can\'t understand what the A1A and the A1B mean and how they are used?
21.04.2023 - 08:02DROPS Design answered:
Dear Marlene, when working pattern, you will start repeating A.1A and end with A.1B so that the pattern will be symmetrical (starts and ends on both sides the same way). Happy knitting!
21.04.2023 - 08:32Vero wrote:
Hallo. Gibt es eine Möglichkeit, diesen Pullover in Gr.122/128 mit Drops Air zu stricken? Lg, Vero
16.01.2023 - 21:50DROPS Design answered:
Liebe Vero, mit Air würden Sie eine andere Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe haben, so sollen Sie die ganze Anleitung neu je nach Ihrer eigenen Maschenprobe umrechnen - sonnst finden Sie hier unsere gestrickten Pullover mit einem Garn der Garngruppe C. Viel Spaß beim stricken!
17.01.2023 - 10:18
Blue August |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldu perluprjóni á ermum. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-17 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. MYNSTUR (á við um ermar): Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þ.e.a.s. aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar aukið er út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 32-34-36-38-40-42 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 32-34-36-38-40-42 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á bakstykki. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Aukið út fyrir LASKALÍNA eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið sléttprjón á framstykki þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerki, prjónið A.1A yfir næstu 10 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin, prjónið sléttprjón á bakstykki þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í byrjun á umferð og aukið út fyrir laskalínu á undan prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með A.1 á báðum ermum, sléttprjón á framstykki og bakstykki og 2 lykkjur sléttprjón meðfram hverri laskalínu (1 lykkja sléttprjón hvoru megin við öll prjónamerkin). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 16-17-18-19-20-21 sinnum hvor megin við öll prjónamerkin (meðtalin útaukning sem er útskýrð í fyrstu umferð) = 218-230-242-254-266-278 lykkjur. Haldið áfram með mynstur án útaukninga þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið til fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki í byrjun á umferð (lyftið fyrstu lykkju á hægri prjón yfir á vinstri prjón), setjið fyrstu 47-49-51-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi (þær 2 lykkjur í sléttprjóni í laskalínu tilheyra nú ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-74-78-82 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-51-53-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 62-66-70-74-78-82 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAMSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 16-19-22-24-27-30 cm frá skiptingu (eða að óskaðir lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 144-152-160-168-176-184 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 47-49-51-53-55-57 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með A.1 hringinn (passaðu uppá að þú byrjið við rétta umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem mynstureining endaði á berustykki) Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-3½-4-4½ cm millibili alls 8 sinnum í öllum stærðum = 37-39-41-43-45-47 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 20-24-27-31-34-38 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-5-3-5 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 23-27-30-35-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Uschi wrote:
Habe den Pullover in Größe 128 gestrickt , sehr schön geworden , tolle Anleitung , allerdings viel Wolle gebraucht , 350g !?
28.09.2023 - 14:17