DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Raven

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað í vinkil í garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-26
DROPS Design: Mynstur db-095
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-400-400-400-500 g litur 13, grár
300-300-400-400-400-500 g litur 03, myntusúkkulaði

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
* Prjónið 2 umferðir slétt með gráum, prjónið 2 umferðir slétt með myntusúkkulaði *, prjónið frá *-*.
Fyrsta umferð í hverri rönd er alltaf prjónum frá réttu. Þræðirnir fylgja með í stykkinu í hlið, en passið uppá að fylgiþræðirnir herði ekki á stykkinu.

OPIÐ GARÐAPRJÓN:
Prjónið 2 umferðir garðaprjón (fyrsta umferð = rétta) með gráum.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón með myntusúkkulaði. Endurtakið þessar 4 umferðir.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á eftir 2 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið um 1 lykkju á undan 2 lykkjum þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur eins og áður.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.
Aukið svona út hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp, með garðaprjóni, hvort fyrir sig. Það er byrjað í einu horninu og lykkjur auknar út fyrir breidd á neðri kanti, síðan er lykkjum fækkað og aukið út fyrir öxl, hálsmáli og hlið.
Vinstri ermi er prjónuð fram og til aka í opnu garðaprjóni ofan frá og niður.
Hægri ermi er prjónuð fram og til baka ofan frá og niður, fyrst með garðaprjóni, síðan í opnu garðaprjóni. Ermar eru saumaðar á í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 8 með Big Delight. Prjónið 1 umferð slétt (= frá röngu). Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan og aukið út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón = 5 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppsláttur er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt!
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja garðaprjón (= 2 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt!
Prjónið síðan umferð 3 og 4.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 55-59-63-68-74-80 cm mælt meðfram síðustu lykkju frá réttu (= neðri kantur). Stykkið mælist ca 39-42-45-48-52-57 cm, mælt frá horni (= uppfitjunarkanturinn) í prjónstefnu. Nú eru ca 93-99-107-113-123-133 lykkjur í umferð.
Breiddin og hæðin hefur nú verið prjónað til loka í stærð XXXL, á meðan það vantar 13-11-9-6-2 cm á hæðina í hinum stærðunum.

STÆRÐ S-M-L-XL-XXL:
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður núinn, það eiga að myndast göt!
Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami (þetta er gert til að stykkið væri hærra en ekki breiðara):
Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76 cm mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu (= hæð á flíkinni). Stykkið mælist ca 48-50-52-52-54-57 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu.

ALLAR STÆRÐIR:
= 93-99-107-113-123-133 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju frá réttu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju garðaprjón (= 2 lykkjur færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Gerð er öxl í byrjun á umferð og hæð í hlið á stykki í lok umferðar frá réttu.

Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 17-19-21-24-27-30 cm frá prjónamerki (mælt í hlið meðfram fyrstu lykkju frá réttu = vinstri öxl). Stykkið mælist ca 60-64-67-69-73-78 cm frá horni (= uppfitjunarkanti) í prjónstefnu.
Nú eru ca 65-67-73-73-79-85 lykkjur í umferð.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur garðaprjón, setjið þær síðan á 1 band (= 5 lykkjur settar á þráð), fellið af næstu 16 lykkjur í garðaprjóni (= fyrir hálsmáli), prjónið garðaprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjón = ca 42-44-50-50-56-62 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 10-10-11-11-13-14 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli, mælt í prjónstefnu og ca 70-74-77-79-81-88 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu.
Nú eru ca 31-33-38-38-41-46 lykkjur í umferð.
Fellið lykkjur af með sléttum lykkjum.
Setjið til baka 5 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) = 3 lykkjur.
UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = 1 lykkja.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Festið enda.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til stykkið mælist 55-59-63-68-74-80 cm mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu. Stykkið mælist ca 39-42-45-48-52-57 cm mælt frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu. Nú eru ca 93-99-107-113-123-133 lykkjur í umferð.
Breiddin og hæðin hefur nú verið prjónað til loka í stærð XXXL, á meðan það vantar 13-11-9-6-2 cm á hæðina í hinum stærðunum.

STÆRÐ S-M-L-XL-XXL:
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið garðaprjón þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja færri), 1 lykkja garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt!
Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami
Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76 cm mælt meðfram fyrstu lykkju (= hæð á flík). Stykkið mælist ca 48-50-52-52-54-57 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu.

ALLAR STÆRÐIR:
= 93-99-107-113-123-133 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið garðaprjón þar til eftir eru 3 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju garðaprjón (= 2 lykkjur færri).
UMFERÐ 2(= ranga): Prjónið slétt.
Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 17-19-21-24-27-30 cm frá prjónamerki (mælt í hlið meðfram fyrstu lykkju frá röngu = vinstri öxl). Stykkið mælist ca 60-64-67-69-73-78 cm frá horni (= uppfitjunarkantur) í prjónstefnu.
Nú eru ca 65-67-73-73-79-85 lykkjur í umferð. Stillið málið af og lykkjufjölda við framstykki.
Prjónið 1. umferð 1 sinni til viðbótar (= frá réttu). Setjið nú lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 5 lykkjur, setjið þær síðan á þráð, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = ca 58-60-66-66-72-78 lykkjur.
Haldið áfram með umferð 1 og 2 (þ.e.a.s. lykkjum fækkar í báðum hliðum á stykki) þar til það eru jafn margar lykkjur og þær lykkjur sem fækkað var um á framstykki (= ca 31-33-38-38-41-46 lykkjur).
Stykkið mælist ca 17-17-18-18-19-20 cm, mælt meðfram síðustu lykkju frá réttu, frá þar sem lykkjur voru settar á þráð og ca 70-74-77-79-81-88 cm frá horni (= uppfitjunarkanti) í prjónstefnu.
Fellið lykkjur af með sléttum lykkjum.
Setjið til baka 5 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) = 3 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = 1 lykkja.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Festið enda.

VINSTRI ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður. Fitjið upp 67-72-75-80-85-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 8 með grár.
Prjónið OPIÐ GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar ermin mælist 2-2-2-2-4-4 cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA að ofan.
Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 17-19-20-22-24-26 sinnum = 33-34-35-36-37-38 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-40-39-38-36-34 cm prjónið garðaprjón og rendur til loka. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist alls 46-45-44-43-41-39 cm.

HÆGRI ERMI (laskalína):
Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Fitjið upp 12 lykkjur með grár (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki). Stykkið er prjónað í röndum og garðaprjóni.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki 6 lykkjur inn frá réttu.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (= 2 lykkjur fleiri) og 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING.
Aukið lykkjum innan við 2 lykkjur með garðaprjóni í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 21-23-25-27-29-32 sinnum.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð alls 6-6-6-7-7-7 sinnum.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 66-70-74-80-84-90 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1-2-1-0-1-0 lykkju = 67-72-75-80-85-90 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju frá réttu. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan opið garðaprjón, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar ermin mælist 2-2-2-2-4-4 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 17-19-20-22-24-26 sinnum = 33-34-35-36-37-38 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-40-39-38-36-34 cm, prjónið sléttprjón og rendur til loka. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist alls 46-45-44-43-41-39 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið vinstri ermi í fram- og bakstykki ca 25-27-28-30-32-34 cm niður frá öxl með litnum grár. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju með litnum grár.
Saumið hægri ermi í innan við 1 kantlykkju með þeim lit sem fellt var af á fram- og bakstykki. Saumið ermasaum innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni með litnum grár.
Saumið hliðarsauma ca 8-8-10-10-12-14 cm niður frá þar sem ermar eru saumaðar í fram- og bakstykki, í ystu lykkjubogana með litnum grár (eða að óskaðri lengd) = ca 35-35-34-34-32-32 cm klauf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.02.2019
Leiðrétting:DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)300-300-400-400-400-500 g litur 13, grár
300-300-400-400-400-500 g litur 03, minntu súkkulaði

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Isabell Klein wrote:

Habe ein Problem bei der Anleitung Vorderteil: nachdem der Markierer gesetzt wurde 27 cm stricken. Das sind bei 23 R= 10cm 62 Reihen. Je eine Masche am Anfang und Ende in jeder 2. 44M abgenommen-=Reihe abnehmen= 62M. 123 M-62M = 61M. Laut Anleitung aber ca.79M. Das wären aber nur 19cm. Was sehe ich falsch?

15.02.2019 - 17:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Klein, in die Grösse XXL stricken Sie von 54 cm bis 73 cm in die Strickrichting (27 cm für die Schulter sind im Diagonal gemessen) = 19 cm = 44 Reihen = 44 M abgenommen. Es waren 123 M - 44 = 79 M. Viel Spaß beim stricken!

19.02.2019 - 08:44

country flag Olivia wrote:

Bellissimo! Finalmente un asimmetrico!

12.02.2019 - 20:24

country flag Valeria wrote:

Buongiorno, questo lavoro è stupendo! E' possibile avere la traduzione in italiano? Grazie

12.02.2019 - 11:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Valeria. La traduzione arriverà presto. Buon lavoro!

12.02.2019 - 11:30