Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= brugðið með gallabuxnablár | |
= slétt með gallabuxnablár | |
= ekker lykkjuspor, rúðan sýnir bara lykkjur á stykkinu sjálfu | |
= saumið lykkjuspor með rauður múrsteinn | |
= miðju lykkja | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Tiny Trucker |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með traktor og laskalínu. Stykkið er prjónað úr DROPS Sky. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 34-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 170 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 6,1. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). A.1 er prjónað í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma á berustykki. A.2 (traktor) er saumaður á framstykki með lykkjuspori. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Þ.e.a.s. fækka á lykkjum hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 5 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.1 (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri við prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í úrtökuumferð). ÚTAUKNING (á við um miðu undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki og ermar er sett saman og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón til loka. Að lokum er traktor saumaður út með lykkjuspori á framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 170-180-190-205-215-225 lykkjur á hringprjón 3 með rauður múrsteinn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 28-30-32-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 142-150-158-170-178-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm, skiptið yfir í gallabuxnablár. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 19-22-25-28-31-34 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 65-69-73-79-83-87 lykkjur sléttprjón (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 65-69-73-79-83-87 lykkjur slétt prjón (= bakstykki), fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru fyrir handvegi = 130-138-146-158-166-174 lykkjur eftir í umferð. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan. ERMI: Fitjið upp 35-35-40-40-45-45 lykkjur á sokkaprjón 3 með rauður múrsteinn. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 5-7-4-6-3-5 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4½-5½-6½-7½-8½ cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-14-16-18-20-21 cm, skiptið yfir í gallabuxnablár. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 24-27-31-35-39-42 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi mitt undir ermi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 44-46-48-50-52-54 lykkjur sléttprjón og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru fyrir handvegi. Klippið frá. Prjónið hina ermina alveg eins. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 218-230-242-258-270-282 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Allt berustykkið er prjónað með gallabuxnablár. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Byrjið umferðina við annað prjónamerkið og prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur brugðið (= ½ A.1), * prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir að næsta prjónamerki, prjónið A.1 (= 6 lykkjur – prjónamerki situr mitt í A.1) *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir að síðasta prjónamerki og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt (= ½ A.1). Haldið svona áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Þegar prjónaðir hafa verið 1-1-1-2-2-2 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman, fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNU hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til fækkað hefur verið alls 16-17-18-19-20-21 sinnum hvoru megin við öll prjónamerkin. Á eftir síðustu úrtöku eru 90-94-98-106-110-114 lykkjur eftir í umferð og stykkið mælist ca 12-13-14-15-16-17 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman. Í næstu umferð er fækkað um 18-14-18-18-22-18 lykkjur, en úrtakan skiptist þannig fækkað er um 9-7-9-9-11-9 lykkjur jafnt yfir 27-29-31-35-37-39 lykkjur í sléttprjóni á framstykki og 9-7-9-9-11-9 lykkjur jafnt yfir 27-29-31-35-37-39 lykkjur í sléttprjóni á bakstykki = 72-80-80-88-88-96 lykkjur eftir í umferð. Nú eru 6 lykkjur á milli A.1 á hvorri ermi og 18-22-22-26-26-30 lykkjur á milli A.1 á framstykki og bakstykki. Prjónið síðan kant í hálsi eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), en stillið af að stroffið passi fallega saman við A.1 umferðina hringinn. Prjónið stroff í ca 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (fellið af með grófari prjónum til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-56 cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið út traktor á framstykki með lykkjuspori í rauður múrsteinn – sjá A.1. Byrjið á 2. umferð með gallabuxnablár á framstykki og stillið af að miðju lykkjan á framstykki passi við miðju lykkju merktri með stjörnu í A.1. Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6917 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Gitte wrote:
Hej. Jeg vil høre om man ikke kan strikke traktoren på. På samme måde, som man vil strikke mønster strik. I stedet for at sy den på med maske sting. Hilsen Gitte.
24.09.2022 - 08:55DROPS Design answered:
Hei Gitte. Du kan strikke den, men da må den røde tråden følge hele veien rundt der det kun strikkes med grått (da må den røde tråden snurres rundt den grå tråden). Men da er det lett for en barnehånd å sette seg fast i disse trådene når man tar på seg genseren. Du kan også klippe tråden hver gang du har strikket en rad av diagrammet, men du vil få mange tråder å feste og det kan bli litt ujevnt /hull ved overgangene. mvh DROPS Design
26.09.2022 - 10:13Talvikki wrote:
Vastaus äskeiseen kysymykseen löytyikin työn edetessä raglavaiheeseen. Kiva ohje😊
02.04.2022 - 15:39Talvikki wrote:
Mitä ohjeessa traktorin kuvan vieressä oleva kuuden silmukan A1 ohje tarkoittaa? Nurja silmukka farkunsinisellä langalla ja Oikea silmukka farkunsinisellä langalla. Mihin??
28.03.2022 - 22:30Karen Norris wrote:
On the 11-12 years size you have said the arm will measure 42cm at the end of the increasing at the time you join onto the body to start the yoke, on the diagram and measurements showing it says 38 for biggest size, 42 cm seems very long for a child size, is this right?
13.08.2021 - 20:38DROPS Design answered:
Dear Karen, yes, the 42 cm is right, however, if you feel unsure we would suggets that you take a similarly shaped sweater, that fits, and measure and compare the sizes, and modify if necessary. Happy Stitching!
15.08.2021 - 23:32Sigrid wrote:
Kann es sein, dass es in der Anleitung einen Fehler gibt? Ich stricke Größe 104. Hier soll man nach 21 cm die Farbe wechseln. Bei der letzten Abbildung erfolgt die Abnahme für die Ärmel ebenso bei 21 cm? Bitte um Antwort. Danke!
29.01.2021 - 11:51DROPS Design answered:
Liebe Sigrid, größe 104 ist die 2. Größe = 3/4 Jahre, zu jeansblau wechseln Sie wenn die Arbeit 19 cm mist, und Verteilung stricken Sie nach 22 cm, dh 3 cm danach - wie beim letzten Fotos sind es ein paar cm von den 2. Streifen vor der Verteilung. Viel Spaß beim stricken!
29.01.2021 - 14:42Anne Roget wrote:
Quand je tricote, je ne me soucie pas de l'échantillon : le résultat obtenu est toujours conforme au modèle dans différentes laines. Mais cette fois-ci : pas du tout. Pour ce modèle, pour 10 cm, j'ai 26 mailles et non 21. J'aimerais comprendre pourquoi : laine fine pour aiguilles relativement grosses?
20.01.2021 - 20:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Roget, vérifier sa tension au préalable permet d'obtenir les mesures souhaitées, il est donc indispensable que vous ayez les 21 m x 28 rangs, utilisez des aiguilles plus grosses si besoin - lavez votre échantillon et faites le bien sécher à plat. mesurez-le à nouveau et vérifiez les mesures. Recommencez si besoin. Vous trouverez ici plus d'infos sur l'échantillon. Bon tricot!
21.01.2021 - 07:56Jasmina Handan wrote:
Hej! Jag har just börjat sticka tröja Tiny Trucker, storlek 98/104. Och det känns att 180 är för mycket maskor även när jag minskat med 30 är det alldeles för stor omfång (som att det är tänkt för ett barn som är 12år). När jag jämför med en annan tröja i storlek 104 är denna tröja, som jag börjat sticka, 10 cm bredare. Har stickat hårt men det hjälper inte. Undrar om det inte är fel i beskrivningen? Vänliga hälsningar Jasmina
06.07.2020 - 16:29DROPS Design answered:
Hej Jasmina. Har du mätt din stickfasthet så att du får 21 m på 10 cm? Om du får det så kommer din tröja få måtten som står i måttskissen så det ska vara riktigt. Om jag ser på måttskissen på andra tröjor i den storleken så är det samma mått som på denna tröja. Mvh DROPS Design
07.07.2020 - 10:24Jan wrote:
Tiny Trucker, knit # sk 007 bn After the ribbing, is the next row really a decrease row? Also, I'm making the 5/6 size and have 190 sts cast on. How many sts between each decrease to get to 158 sts. If decreases are in order ;-/ Thank YOU!
04.05.2020 - 05:54DROPS Design answered:
Hi Jan, The number of stitches is to ensure the ribbing is not tight. To find out how to decrease, divide the number of stitches by the decreases to be made 190/32 = 5.9. So here you decrease approx. every 6th stitch. Happy knitting!
04.05.2020 - 08:00MNTN wrote:
Når man skal skifte farve, er målene så udelukkende for glatstrik eller for hele arbejdet?
25.02.2020 - 15:12DROPS Design answered:
Hej, du måler fra starten af arbejdet. God fornøjelse!
26.02.2020 - 10:01Solrunn Kvam Handal wrote:
Hei kan ein strikka denne i baby merino garn
10.11.2019 - 15:34DROPS Design answered:
Hei Solrunn. Nei, DROPS Baby Merino er tynnere enn DROPS Sky, slik at strikkefastheten og målene i oppskriften ikke vil stemme. mvh DROPS design.
11.11.2019 - 12:47