DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Country Sunrise Jacket

Prjónuð peysa með röndum, blöðruermum og laskalínu. Stykkið er prjónað úr DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-21
DROPS Design: Mynstur ai-191
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150-150-150-200 g litur 16, blár
100-100-100-100-100-100 g litur 27, sægrænn
100-100-100-100-100-100 g litur 08, ljós bleikur
50-50-50-50-100-100 g litur 14, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 15, fjólublá þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (blá) NR 612: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR BERUSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
9-9-10-10-11-11 cm með lit 15, fjólublá þoka,
9-9-10-10-11-11 cm með lit 14, fjólublár,
0-2-2-4-4-6 cm með lit 08, ljós bleikur.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
9-7-8-6-7-5 cm með lit 08, ljós bleikur (þ.e.a.s. ljós bleika röndin verður alls 9-9-10-10-11-11 cm meðtalin umferð frá berustykki),
9-9-10-10-11-11 cm með lit 27, sægrænn,
9-11-9-11-9-11 cm (eða til loka) með lit 16, blár.

RENDUR ERMI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
13-11-11-9-9-8 cm með lit 08, ljós bleikur (þ.e.a.s. ljós bleika röndin verður alls 13-13-13-13-13-14 cm meðtalin umferð frá berustykki),
13-13-13-13-13-14 cm með lit 27, sægrænn,
20-21-19-20-18-17 cm (eða til loka) með lit 16, blár.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 4,2.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju saman.

LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum):
Hægt er að stilla lengd á ermum eins og útskýrt er í uppskrift, en athugið að lengd á ermum á að vera aðeins lengri en vanalega til að ermin „pokist“ aðeins neðst niðri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist síðan fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Kantar að framan eru prjónaðir meðfram miðju að framan og að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum og stroff kanti.

BERUSTYKKI:
Lesið allan kaflann um berustykki áður en byrjað er að prjóna!
Fitjið upp 102-106-114-114-118-126 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með litnum fjólublá þoka. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 20-21-22-22-23-25 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 38-40-42-42-44-48 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 20-21-22-22-23-25 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki.
Prjónið nú RENDUR BERUSTYKKI með 1 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið við miðju að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 18-20-21-24-26-28 sinnum = 246-266-282-306-326-350 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsi mitt að framan. Ef þessu máli hefur ekki verið náð, prjónið áfram þar til náð hefur verið réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 38-41-43-47-51-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-41-43-47-51-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað síðan hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-174-186-202-222-242 lykkjur. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 164-176-188-204-224-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 5,5 (þetta á við um alla affellingarkanta á þessu stykki). Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi.
Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-9-8-8-8-8 sinnum = 72-76-80-84-88-90 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist ca 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 72-72-80-80-88-88 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 85 til 109 lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 4,5 með litnum blár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1).
Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½-3 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 85 til 109 lykkjur meðfram hægra framstykki á hringprjón 4,5 með litnum blár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1).
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 45-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2-3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 5-6 cm frá kanti í hálsmáli. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er þegar fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum (séð frá réttu). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist eins og vinstri kantur að framan.
Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 112-116-124-124-128-136 lykkjur meðfram öllum kanti í hálsmálii á hringprjón 4,5 með blár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 86-90-94-98-102-106 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kant að framan. Prjónið síðan áfram þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.04.2019
Leiðrétting: BERUSTYKKI: Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsi mitt að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Deb Hobson wrote:

How many grammes/balls would be needed to knit the cardigan in one shade for the smallest size please? I'm assuming it's fewer than all the colours added together 😊

07.06.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hobson, we unfortunately have no experience with this jumper worked with a single colour as it was worked with stripes, and we don't have the piece anymore. You can add all colours together, you might require somewhat less - your DROPS store will be able to help you - even per mail or telephone. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

08.06.2023 - 09:23

country flag Victoria wrote:

When starting the rib at the lower part of the body the pattern says to 'knit one for from the wrong side while increasing 2 stitches'. This leaves a ridge of stitches on the right side before going into the ribbed section, which looks strange. Should it be a purl row on the row of increases? Many thanks

05.06.2023 - 14:16

DROPS Design answered:

Dear Victoria, correct, this row should be purled from the wrong side, pattern has been fixed, thanks for your feedback. Happy knitting!

05.06.2023 - 17:32

country flag Vickyf wrote:

I'm doing this lovely cardigan in size medium but my tension is very different to the suggested 16 stitches and 20 rows. I've got 16 stitches and 26 rows. Will the yoke shaping work as mine only measure 16 cms after finishing the increases (rather than 20mins). Thanks

20.05.2023 - 23:27

DROPS Design answered:

Dear Vicky, since your tension is higher in amount of rows, that means that you work too many rows in 10 cm. You need to reach the necessary length of the yoke (20 cm), so you may need to spread out your increases, so as to reach the necessary number of stitches by the time the piece measures 20cm. For example, instead of increasing every other row, increase every other row at the beginning and then, after having worked 2/3 of the increases, start increasing every 4th row instead. Happy knitting!

21.05.2023 - 18:52

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

Når man strikker opp maskene til Venstre stolpe begynner man ned til halsen eller halsen til nede? Takk for hjelpen

11.06.2022 - 19:51

DROPS Design answered:

Hei Ana Cecilia. Du skal strikke opp masker fra retten og da blir det fra halsen og ned. mvh DROPS Design

13.06.2022 - 10:07

country flag Ana Cecilia Ramirez wrote:

Hvilken end skal man begynne å strikke opp maskene til Venstre stolpen? Fra halsen eller fra neden.?

11.06.2022 - 19:36

country flag Erin wrote:

Est-il possible de rajouter un léger décolleté ? Si oui, comment ?

19.02.2021 - 18:36

DROPS Design answered:

Bonjour Erin, tout à fait, vous pouvez par exemple tricoter une réhausse pour que l'encolure dos soit plus haute que celle du devant - pour ceci, vous pouvez vous inspirer d'un modèle de même tension qui en propose une. Bon tricot!

22.02.2021 - 07:27

country flag Anne wrote:

To get the 10 1/4 inch length before I separate the sleeves and body, I will have more stitches. What should I do to match the pattern count? Also, when I separate the sleeves and body I do it on a wrong side row? Do the yarn overs just slide onto the stitch holder too? How do I knit them in the round? 😊

12.09.2020 - 19:46

DROPS Design answered:

Dear Anne, check your tension, you should have 20 rows = 4" - if you have less rows, yoke will be too long, you can compensate by working less rows between the increase rows for raglan. The dividing row is worked from WS, if you still have some yarn overs on the needle, just count them as stitches when counting/dividing pieces. This lesson shows how to work a jumper top down and could help you with this jacket. Happy knitting!

14.09.2020 - 08:44

country flag Pia Nielsen wrote:

Jeg har brugt omregneren, som viser, at man kan bruge Brushed Alpaca Silk. Jeg kan bare ikke få strikkefastheden til at passe. Har prøvet tykke og tynde pinde.

16.02.2020 - 21:51

DROPS Design answered:

Hej Pia, Hvis du får strikkefastheden til at stemme i bredden, så kan du følge målene i opskriften. Vi bruger pinde 5,5-6 for at få 16 masker på 10 cm i Brushed Alpaca Silk. God fornøjelse!

18.02.2020 - 11:26

country flag Karete wrote:

Nå er det mulig jeg surrer fælt, men jeg har lest meg blind på oppskriften. I forklaringen til oppskriften står det at alle striper strikkes i glattstrikk. I selve oppskriften står det på sin side: strikkes i rillestrikk. Er ikke rillestrikk å strikke rett på alle pinner, også fra vrangsiden? Hva er det jeg ikke får med meg? 😅

12.09.2019 - 22:45

DROPS Design answered:

Hei Karete, Kant maskene er strikket i rille, resten av stykket er strikket i glattstrikk. God fornøyelse!

13.09.2019 - 07:30

country flag Tine wrote:

Kan man strikke den i sky og så evt gå en størrelse op?

14.07.2019 - 10:43

DROPS Design answered:

Hei Tine. Nei, denne jakken er strikket i et garn fra garngruppe C, mens garnet DROPS Sky tilhører garngruppe B (tynnere garn), slik at resultatet vil ikke bli det samme. mvh Drops design

26.08.2019 - 13:20