DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Country Sunrise

Prjónuð peysa með röndum, blöðruermum og laskalínu. Stykkið er prjónað úr DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-22
DROPS Design: Mynstur ai-190
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150-150-150-200 g litur 16, blár
100-100-100-100-100-100 g litur 27, sægrænn
100-100-100-100-100-100 g litur 08, ljós bleikur
50-50-50-50-100-100 g litur 14, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 15, fjólublá þoka

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 5,25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

RENDUR BERUSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
9-9-10-10-11-11 cm með lit 15, fjólublá þoka,
9-9-10-10-11-11 cm með lit 14, fjólublár,
0-2-2-4-4-6 cm með lit 08, ljós bleikur.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
9-7-8-6-7-5 cm með lit 08, ljós bleikur (þ.e.a.s. ljós bleika röndin verður alls 9-9-10-10-11-11 cm meðtalin umferð frá berustykki),
9-9-10-10-11-11 cm með lit 27, sægrænn,
9-11-9-11-9-11 cm (eða til loka) með lit 16, blár.

RENDUR ERMI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig:
13-11-11-9-9-8 cm með lit 08, ljós bleikur (þ.e.a.s. ljós bleika röndin verður alls 13-13-13-13-13-14 cm meðtalin umferð frá berustykki),
13-13-13-13-13-14 cm með lit 27, sægrænn,
20-21-19-20-18-17 cm (eða til loka) með lit 16, blár.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum):
Hægt er að stilla lengd á ermum eins og útskýrt er í uppskrift, en athugið að lengd á ermum á að vera aðeins lengri en vanalega til að ermin „pokist“ aðeins neðst niðri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/ stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum og stroff kanti.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir í litinn fjólublá þoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-16-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-104-112-112-116-124 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið hér (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 38-40-42-42-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-14-14-14-14 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 38-40-42-42-44-48 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= bakstykki).
Prjónið RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-21-24-26-28 sinnum = 244-264-280-304-324-348 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá kanti í hálsmáli mitt að framan. Ef stykkið mælist styttra en þetta þá er hægt að prjóna áfram að réttu máli.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 0-0-0-1-2-3 sléttar lykkjur, setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-84-92-100-110 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 74-80-84-91-98-107 lykkjur sem eftir eru slétt (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-68-72-74 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi.
Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-9-8-8-8-8 sinnum = 72-76-80-84-88-90 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist ca 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 7 cm að loka máli – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 72-72-80-80-88-88 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.04.2019
Leiðrétting: BERUSTYKKI:..Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-20-22-24-26-28 cm frá kanti í hális mitt að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Country Sunrise

Isidor, Germany

Sweet Country Sunrise

Laila Sparby, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Anne wrote:

Jeg er ferdig med bolen og skal begynne på ermene, men forstår ikke hvordan disse strikkes. Jeg har 56 masker (str L) på tråden, og forstår at det skal legges opp 8 nye masker i tillegg til disse før jeg strikker videre. I følge videoen, så blir det et hull i armhulen/midt under ermet som skal monteres til slutt. Det som er forvirrende er at det ikke står noe om montering i oppskriften. Hva gjør jeg?

18.04.2024 - 20:19

DROPS Design answered:

Hei Anne, Det blir ikke noe hull under ermet fordi du strikker opp 1 maske i hver av de maskene lagt opp på bolen. God fornøyelse!

19.04.2024 - 08:14

country flag Laura Vranken wrote:

In het patroon staat bij het stukje over de pas het volgende: Meerder zo voor de raglan iedere andere naald 18-20-21-24-26-28 keer in totaal = 244-264-280-304-324-348 steken. Wilt dit zeggen dat ik één naald (ronde) wel moet meerderen en de andere naald niet, en zo verder. Of wilt dit zeggen dat ik echt iedere naald moet meerderen? Bedankt!

08.11.2021 - 13:23

DROPS Design answered:

Dag Laura,

Ja, klopt helemaal. De ene naald wel en de andere naald niet.

11.11.2021 - 07:35

country flag Mette wrote:

Skulle gjerne strikket denne med en hals som er litt tettere og ikke så vid, hvordan får jeg til dette uten at det blir stygt i fht raglanfelling ?

18.10.2021 - 13:13

DROPS Design answered:

Hei Mette. Om du ser på målskissen og cm målene vil du se at den ikke er så vid, 40 cm i den minste str. Om du f.eks ønsker å strikke et stykke /eller strikke genseren ferdig før du strikker halskanten (slik at du kan justere vidden slik du ønsker), kan du legge opp med 2 rundpinner, for så å kunne strikke hver siden vei. Start med å legge opp 100-104-112-112-116-124 masker, videre strikkes bærestykket som forklart i oppskriften. Se Hvordan legge opp med 2 rundpinner mvh DROPS Design

18.10.2021 - 13:50

country flag Daniela wrote:

Ich würde den Pullover gerne in zwei Farben Stricken. Wie viel Gramm von Air benötige ich für die Größe XS?

19.09.2021 - 18:51

DROPS Design answered:

Liebe Daniela, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

20.09.2021 - 11:07

country flag Faren Kovacevich wrote:

Thank you for your response. I did see the paragraph as you mentioned. I know I'm not the brightest crayon in the box. Please explain it to me that I'm doing it right. Some patterns, I get more easily than others. I'm not getting the 0 4 0 4 0 2 and the 36 36 40 40 44 44. What does this mean? I know I'm decreasing 2 stitches on both sides of the marker. Am I decreasing every row?

23.04.2021 - 00:18

DROPS Design answered:

Dear Faren, this pattern is available in a number of different sizes (i.e S - M - L - XL - XXL - XXXLin this case) . In our patterns, when you see a string of numbers, spearated by a dash (i.e: 0-4-0-4-0-2 in this case), each number is relevant for one size. In this example, if the pattern says increase 0-4-0-4-0-2 stitch, for size S íou increase 0 stitches (there is no increase for this size), for size M increase 4 stitches, for size L there is no increase (0), for size XL there increase 2 stitches, size XXL there is no increase and size XXXL increase 2 stitches. It is helpful to print out the pattern and circle th erelevant numbers for the size you are making. Happy Knitting!

23.04.2021 - 01:45

country flag Faren Kovacevich wrote:

I'm doing the large. I started the sleeves and got my increases to stitches add up to 80. I want to make sure I'm understanding the pattern. Am I making any deceases or not? It doesn't quite look right without any decreases when doing the k2 p2 with 80 stitches on 4.5 mm needles. I know smaller needles will tighten for the cuff of sleeve.

22.04.2021 - 17:07

DROPS Design answered:

Dear Faren, just before you start the K2/P2 ribbing, in the last row, just before you change to the 4.5 mm needles, you knit the stitches together 2 by 2. (Look for the sentence "On next round knit all stitches together 2 by 2 = 36-36-40-40-44-44 stitches." in the pattern). Happy Knitting!

22.04.2021 - 18:26

country flag Anita Johnsen wrote:

Kan ikke se brystmålet på denne bluse i str. xxl og xxxl??

15.04.2021 - 11:23

DROPS Design answered:

Hei Anita. Om du ser på målskissen til genseren, helt nederst på siden, ser du målene. Det er de sammen målene nederst på genseren som der er over brystet. mvh DROPS design

19.04.2021 - 15:36

country flag Alice Akhlaghi wrote:

Hej! Jag stickar denna i en färg, när man börjar med fram och bakstycke står det att tråden ska klippas och man ska börja varvet mitt i de 6 nya maskorna. Finns det någon tanke med detta? Eller kan jag bara fortsätta sticka i borjan på de 6 nya utan att klippa tråden? Mvh Alice

19.10.2020 - 22:43

country flag Alice wrote:

Hej! Jag vill sticka denna i storlek s, rekommenderar ni rundstickor 40cm eller 80 cm? Mvh Alice

13.10.2020 - 20:30

DROPS Design answered:

Hej Alice. Du behöver den korta rundstickan i början av arbetet när du inte har så många maskor och sedan får du byta till den långa när du får fler maskor och det blir för trångt på den lilla. Mvh DROPS Design

14.10.2020 - 07:42

country flag Kirsten wrote:

For mange masker i forhold til antal cm?

04.10.2020 - 16:30

DROPS Design answered:

Hej Kirsten. Får du for mange masker på 10 cm, skift til tykkere pinde för att få stickfastheten att bli riktig. Mvh DROPS Design

06.10.2020 - 07:55