DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dear to my Heart Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-7
DROPS Design: Mynstur me-167
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 23, gráblár
100-100-100-150-150-150 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g färg 30, sinnep

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykki er prjónað í hring, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-85-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er að neðan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út alveg eins við hitt prjónamerkið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermar):
Byrjið 3 lykkjum fyrir prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum sinnep. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-21-31-18-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-133-147-138-150-156 lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt. Prjónið síðan UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI:

BERUSTYKKI:
Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 18-19-21-23-25-26 mynstureiningar með 7-7-7-6-6-6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 288-304-336-368-400-416 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með litnum gráblár þar til stykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-45-49-54-60-63 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 59-61-69-75-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-91-99-109-121-127 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 59-61-69-75-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 43-46-50-55-61-64 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 186-202-218-238-266-286 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-10-10-12-16 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gráblár.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 198-214-230-250-278-298 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm til loka).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 38-38-46-46-54-58 lykkjur jafnt yfir = 236-252-276-296-332-356 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman.
Skiptið yfir í hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 59-61-69-75-79-81 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-85-91-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-10-10-10-12-16 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum gráblár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkju mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 9-11-14-14-17-20 sinnum = 49-49-51-57-57-57 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-39-37-36-34-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm til loka, úrtöku mitt undir ermi er lokið og það eru styttri mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt með litnum gráblár og fækkið um 1-1-3-1-1-1 lykkjur í umferð = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar með 8 lykkjum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð með litnum natur þar sem fækkað er um 0-0-0-4-4-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-52-56 lykkjur. Nú eru eftir ca 3 cm til loka. Ef óskað er eftir að hafa ermina lengri er hægt að prjóna áfram með litnum natur að óskaðri lengd. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm.
Skiptið yfir í litinn sinnep og prjónið 1 umferð stroff. Fellið síðan laust af með litnum sinnep og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 46-45-43-42-40-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = gráblár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit í mynsturbekk, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Dear to my Heart Sweater

Madebymaaike, Belgium

Dear to my Heart Sweater

Marion, Belgium

Dear to my Heart Sweater

Monika Martinson, Sweden

Heart Sweater

Annalisa, Italy

Dear to my Heart Sweater

Kimberly, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Chopin wrote:

C’est le blanc qui est bleuté.

08.01.2024 - 21:12

country flag Chopin wrote:

Bonjour J’ai lavé le pull en cycle laine 30 degrés et le pull est ressorti bleuté. Il y a eu un transfert de couleur. Je souhaiterais avoir vos conseils pour rattraper ce problème plutôt que celui du revendeur qui connaît certainement moins les laines que vous. J’ai essayé un trempage dans du vinaigre blanc de 30 minutes puis lavage à 30 degrés sans succès . Merci beaucoup pour votre aide . Je dois trouver une solution car là c’est vraiment dommage.

08.01.2024 - 21:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chopin, retrouvez toutes les instructions de lavage sous le nuancier + d'autres astuces complémentaires ici, pour toute réclamation complémentaire (et même tout conseil supplémentaire), merci de bien vouloir vous adresser à votre magasin, même par mail ou téléphone on pourra vous aider et vous renseigner. Bon tricot!

09.01.2024 - 07:52

country flag Chopin wrote:

Bonjour J’ai lavé le pull en cycle laine à 30 degrés Mais le blanc a pris une teinte bleutée. J’en suis extrêmement contrariée que puis-je faire ? Merci pour votre aide et espérant qu’une solution existe

08.01.2024 - 08:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chopin, merci de bien vouloir transmettre votre commentaire auprès du magasin où vous avez acheté votre laine, ils pourront ainsi vous aider et le prendre en charge. Merci pour votre compréhension.

08.01.2024 - 11:11

country flag Tania Wensing Lole wrote:

Gostaria de video como calcular a quantia de pontos

10.05.2023 - 13:48

country flag Mrs Sweta Shah wrote:

Good afternoon Before I buy the yarn for the above sweater, I just wanted to know if someone could help when I get stuck with the pattern ie following the diagram etc Thank you Mrs Shah

22.03.2022 - 15:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Shah, sure, you will find a list of relevant lessons at the very bottom of the pattern (just above this sections) as well as related videos to that pattern here - these might already help you. And then feel free to ask any question using this section. Happy knitting!

22.03.2022 - 16:02

country flag Tone Campbell wrote:

Hvordan er det mulig å få 3 økninger hver 8 cm, om første er etter 4 cm, og lengden skal være ca 22 cm? 22- 4 er 18, 3x8 er 24...... 24- 18 er 6....... Så skal den være 22 eller 28 cm fra deling?

12.05.2021 - 01:25

country flag Tone Vassbotn wrote:

Hei, jeg er svært skuffet. Jeg ønsket akkurat denne fargen, men da garnet kom var det mye mørkere enn på modellen dere viser bilde på. Bestilte på nytt - da i lys gråblå. Det viste seg at også den var for mørk. Sitter igjen med 16 nøster for mørkt garn. Hvordan kan dere komme med så feil farger - helt ubegripelig og svært frustrerende.

23.04.2021 - 20:15

country flag Karien wrote:

Een prachtige trui. Het patroon klopt. Alleen hebben wij 500 gr van blauw nodig. Om de maat M te kunnen breien. Dus 10 bollen ipv 400 gr. = 8 bollen.

29.03.2021 - 17:09

country flag Doris Hebbering wrote:

Ich würde gerne diesen Pulli in Baby Merino stricken-also Garngruppe A anstatt B. Wie muss ich da vorgehen?

15.02.2021 - 21:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hebbering, auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2021 - 09:38

country flag Hilde Irene Frankum wrote:

Strikket ferdig. Ble veldig liten. Er det mulig å "vaske" den større? Noen sier det går an...pga merinoull..

09.02.2021 - 14:09

DROPS Design answered:

Hei Hilde Irene. Merino Extra Fine skal vaskes på 40 grader finvask for å holde fassongen. Har opplevd at noen har vasket feil / ved ullvask slik at plagget har blitt større, men dette er noe vi ikke kan garantere. Kommer an på det er strikket fast eller løst, strikkefastheten overholdt osv. Er det strikket for løst er sjangsen større for at plagget vil bli større ved feilvask. mvh DROPS design

12.02.2021 - 15:24