DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Happy Stripes

Prjónuð peysa með laskalínu, blöðuermum og röndum. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum DROPS Air, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-1
DROPS Design: Mynstur ai-180
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-150-150-150 g litur 16, blár
100-100-100-150-150-150 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-100 g litur 24, bleikur
50-100-100-100-100-100 g litur 18, ljós grágrænn
50-50-50-50-100-100 g litur 22, gulur
50-50-50-50-100-100 g litur 27, sægrænn
50-50-50-50-50-100 g litur 14, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 07, rúbínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 09, sæblár

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón með 2 þráðum.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7: fyrir kant með garðaprjóni á ermum.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kant með garðaprjóni í hálsi og neðst niðri á fram- og bakstykki.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru (í sömu röð og efnislisti að ofan):
A) DROPS Air 10, 01, 15, 27, 02, 18, 16, 09, 11.
B) DROPS Air 12, 01, 18, 21, 02, 11, 16, 09, 19.
C) DROPS Air 20, 01, 25, 08, 02, 15, 14, 07, 13.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 þráðum Air. Prjónið A.1 einu sinni, síðan er prjónað A.2 eins langt og hægt er til loka (á við um bæði fram- og bakstykki og ermar).

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri og alls 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónaður í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður til loka. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 2 þráðum Air.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 54-56-58-62-64-66 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum blár. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-2-6-4-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 60-60-60-68-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9 og prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur):
Teljið 2 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= ermi), teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= bakstykki), teljið 10 lykkjur í öllum stærðum, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= ermi), teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= framstykki), teljið síðustu 8 lykkjur í öllum stærðum (= ermi).
Prjónið síðan þannig: Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 12-14-15-16-17-19 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 156-172-180-196-204-220 lykkjur í umferð. Haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 48-52-54-60-64-70 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 30-34-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 48-52-54-60-64-70 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 30-34-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 104-112-120-132-144-156 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hliðinni á fram- og bakstykki, mitt í 4-4-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með rendur í A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 eins langt og hægt er til loka.
Þegar stykkið mælist 25 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 7 og 2 þræði í litnum blár.
Prjónið garðaprjón hringinn í 3 cm og endið með 1 umferð brugðið. Fellið laust af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjóni. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 30-34-36-38-38-40 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-38-42-44-46-48 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar aukið er út mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með rendur alveg eins og á fram- og bakstykki (mikilvægt er að halda áfram í sömu umferð og á fram- og bakstykki eftir berustykki).
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-5-5-5-4½-4½ cm millibili alls 8-7-6-6-6-6 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 23-24-25-26-27-28 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið garðaprjón hringinn í 3 cm og endið eftir 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 49-48-46-44-43-41 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.06.2019
Leiðrétting á byrjun á umferð = skiptiðng á milli vinstri ermi og bakstykkis
Yfirfarið á vefsvæði: 20.01.2020
Leiðrétting: BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Teljið 2 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= ermi), teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= bakstykki), teljið 10 lykkjur í öllum stærðum, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= ermi), teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (= framstykki), teljið síðustu 8 lykkjur í öllum stærðum (= ermi).
Prjónið síðan þannig: Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 12-14-15-16-17-19 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Mynstur

symbols = blár
symbols = natur
symbols = bleikur
symbols = rúbínrauður
symbols = gulur
symbols = fjólublár
symbols = sægrænn
symbols = ljós grágrænn
symbols = sæblár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Happy Stripes!

Natalie, United States

Happy Stripes

Lena, Germany

Happy Stripes

Heidi, Norway

Happy Stripes

Heidi Høgås Holm, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag Melanie wrote:

Hallo. Ich habe noch Knäuel vom Garn Wish von einem anderen Projekt und würde diese gerne nun in diesem Pullover mit Air kombinieren, indem ich einige Farben durch meine Wish Knäuel ersetze. Air stricke ich mit zwei Fäden und Wish nur mit einem. Benötige ich dennoch, wenn die Anleitung vom 100g Air spricht, auch 100g Wish? Vielen Dank!

30.01.2024 - 15:48

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, benutzen Sie den Garnumrechner um die Garnmenge für eine Alternative zu finden; Viel Spaß beim stricken!

31.01.2024 - 08:15

country flag Marianne wrote:

For å få det rett når man skal dele arbeidet opp til armene må man begynne med å sette 12 masker på en tråd, så strikke de 48 maskene til bakstykket, sette 30 masker på en tråd, legge opp 4 nye masker, strikke 48 masker rett, tre de siste 18 maskene på samme tråd som de 12 første, å så legge opp 4 nye masker. Da stemmer det på genseren. Så man kan ikke begynne rett på bakstykket. Dette er på str small.

21.01.2024 - 21:42

country flag Marianne wrote:

Enig med Benedicte, man kan ikke starte rett med å strikke 48 masker til bakstykket. Har akkurat strikket ferdig genseren, å fulgt oppskriften akkurat slik det sto, å det endte opp med en skjev genser! Ene økingen havner nærmest oppå armen, mens den andre foran armen. Genseren kan ikke brukes, da det vises alt for godt. Man må telle seg tilbake før man kan sette av ermene… Å det burde endres i oppskriften.

20.01.2024 - 21:13

country flag Benedicte wrote:

Takk for svar, men ikke helt det jeg lurte på. Prøver igjen: Ved uttak til ermer, hvordan kan man begynne rett på 48 masker (S) til bakstykket når pinnen nå starter midt på ermet? Ved oppstart etter halskant hører de to første maskene til ermet, så når det økes 12 ganger (S) før de to maskene, starter omgangen etter hvert midt på ermet hos meg. Derfor blir alt skjevt når jeg går rett på de 48 maskene til rygg før jeg tar ut ermehull. Hva er det jeg misforstår her? :)

10.01.2024 - 10:26

DROPS Design answered:

Hei Benedicte. Ser at det er en rettelse fra juni 2019, der begynnelsen på omgangen er overgangen mellom venstre erme og bakstykket. Men litt av teksten under GENSER - KORT OVERSIKT OVER ARBEIDET er ikke fjernet (Halskant og bærestykke strikkes rundt på rundpinne fra midt bak, ovenfra..... ). Når starten på omgangen er ved 1. merketråd vil man da etter 12 økeomganger ha 12+20+12 masker på bakstykket og når man skal strikke 48 masker av bakstykket før man setter 30 masker på en tråd, "tar" man 2 masker av hvert erme til bruk på bakstykket = 48 masker. Regner man at starten er 2 masker før 1. merketråd vil starten være midt oppå ermet. mvh DROPS Design

15.01.2024 - 13:15

country flag Benedicte wrote:

Hei. Hvordan kan starten av omgangen være mellom venstre erme og bak, da første merketråd etter kun to masker tilhører ermet, for så å gå over til bakstykket? Hver gang man øker før første merketråd, blir det jo flere masker i ermet, ergo forflytter starten seg mot høyre, og skjøten blir midt på ermet. Jeg ser at det er flere som meg som har endt opp med å forskyve hull til ermene da man skal ta ut masker til rygg fra start av pinnen, men da er jeg midt på ermet?

30.12.2023 - 12:36

DROPS Design answered:

Hei Benedicte. Starten er 2 masker før overgangen mellom venstre erme og bakstykket, altså første gang du skal øke til raglan starter du med 1 kast, strikk 4 rett (1. merketråd sitter midt mellom disse 4 maskene) og 1 kast. Strikk ut omgangen der det økes til raglan 2 masker før og 2 masker etter hver av de neste 3 merketrådene. Nå har du 2 masker mer mellom hver merketråd. Neste gang det skal økes, strikk 1 maske, det er 2 masker til 1. merketråd, øk. strikk 4 masker (1. merketråd sitter midt mellom disse 4 maskene) og øk. Strikk frem til 2 masker før 2. merketråd, og øk på samme måte. Forsett å øke slik det står i oppskriften. mvh DROPS Design

08.01.2024 - 14:15

country flag ROUSSEAU Anne wrote:

Merci, c'est compris. AR

02.10.2023 - 16:29

country flag ROUSSEAU Anne wrote:

Je ne comprends pas votre réponse; c'est à dire que je prends les deux extrémités de la pelote que je tricote ensemble ( 2 fils) ou la laine est-t-elle constituée déjà de deux fils par pelote?

28.09.2023 - 16:32

DROPS Design answered:

Bonjour, Vous pouvez prendre les 2 extremités de la pelote ou la diviser en 2 pelotes plus petites. Bon tricot!

29.09.2023 - 09:48

country flag ROUSSEAU ANNE wrote:

Bonjour, Pour ce modèle, j'ai commandé la laine en respectant les quantités et couleurs données dans le chapitre Fournitures. Pour 5 coloris de rayures, il n'y a besoin que d'une pelote de 50g. Comment dois-je procéder pour tricoter avec 2fils? Merci pour votre réponse. Cordialement. AR

28.09.2023 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour, Chaque rayure du diagramme se tricote avec 2 fils Air de la même couleur (donc, de la même pelote) Bon tricot!

28.09.2023 - 15:10

country flag Jette wrote:

Jeg vil strikke på pinde nr.4 med merino cotton. Kan jeg få opskriften lavet om så vil det være dejligt.

18.09.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Hei Jette. Vi har dessverre ikke muligheten til å omregne en allerede publisert oppskrift til en annen pinnestr. og garn. Det vil bli et helt annet design/målskisse/garnmengde osv osv. Men bruk vår søkemotor og søk på damegenser, striper og garn i garngruppe B. Mange oppskrifter vil dukke opp. mvh DROPS Design

18.09.2023 - 11:02

country flag Claudine Deman wrote:

Par quelle qualité peut-on remplacer la Drops Air please? Merci

14.08.2023 - 11:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Deman, vous pouvez remplacer 1 fil DROPS Air par une autre laine du groupe de fils C ou bien 2 fils du groupe de fils A ou bien 2 fils DROPS Air par une laine du groupe de fils E - utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives et les quantités correspondantes, pensez à bien sélectionner "1 fil" ou "2 fils" au choix. Bon tricot!

14.08.2023 - 13:11