DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Red Nose Jumper

Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og hreindýri. Stærð S - XXXL. Þema: jól.

DROPS 194-38
DROPS Design: Mynstur ne-275
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 3620, rauður
(þú þarft 50 g aukalega af lit 3620, rauður ef þú prjónar ekki hreindýr á baki)
100-150-150-150-150-200 g litur 0100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 0206, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 0300, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 0612, millibrúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 2923, gulur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – fyrir hálsól á hreindýri.

FYLGIHLUTIR: Eitt lítið hjarta til skrauts ca 2 cm að þvermáli eða álíka sem hægt er að nota á hálsól á hreindýri (hjartað verður að hafa gat til að þræða loftlykkjuröðina í gegn).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning A.3 sýnir hnút (= augu og snjókorn).
Mynsturteikning A.1 og A.2 (hreindýr): Öll mynsturteikning er prjónuð í sléttprjóni. Prjónið með 3/5 dokkur í umferð, þannig að þú þurfir ekki að hafa löng hopp á röngu. Þ.e.a.s. prjónað er með 1 dokku í litnum rauður/natur í hvorri hlið á peysunni og 1 dokku með mynsturlit mitt í peysu. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina utan um hvorn annan þegar skipt er um lit.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Framstykki, bakstykki (með eða án hreindýrs á bakstykki) og ermar er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Þetta er gert til auðveldara sé að prjóna mynstur. Síðan eru stykkin prjónuð saman lykkju fyrir lykkju meðfram útaukningu fyrir laskalínu í hliðum. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring og peysan er skreytt með snoppu, augum, hári, snjókornum og ól í hálsi á hreindýri.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með litnum rauður.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útaukning að ofan, í hvorri hlið. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir laskalínu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-21-23-25-27-29 sinum = 68-72-78-84-90-96 lykkjur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!Þegar aukið hefur verið út 7-7-8-9-10-10 sinnum í hvorri hlið og það eru 42-44-48-52-56-58 lykkjur í umferð er mynstur prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 0-1-3-5-7-8 lykkjur slétt, A.1A (= 38 lykkjur) – sjá MYNSTUR að ofan, prjónið 0-1-3-5-7-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44-46-50-54-58-60 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu mælist stykkið 20-21-23-25-27-29 cm. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 4-5-5-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið á stykki = 76-82-88-94-104-114 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1A hefur verið prjónað til loka prjónið A.1B yfir A.1A. Í umferð með ör í A.1B er skipt um grunnlit til litinn natur í stað rauður og mynstrið nær nú yfir 42 lykkjur. Þegar A.1B er lokið á hæðina er haldið áfram með litnum natur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm. Aukið nú um 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-116-128-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá kanti í hálsi og niður. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI – MEÐ HREINDÝRI:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og á framstykki nema prjónið mynstur A.2A í stað A.1A og mynstur A.2B í stað A.1B. Þegar A.2B hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum natur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir framstykki. Aukið nú út um 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-116-128-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Bakstykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá kanti í hálsmáli og niður. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI – ÁN HREINDÝRS:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með litnum rauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Jafnframt í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir laskalínu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-21-23-25-27-29 sinnum = 68-72-78-84-90-96 lykkjur.Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu mælist stykkið 20-21-23-25-27-29 cm. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 4-5-5-5-7-9 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið á stykki = 76-82-88-94-104-114 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 18-17-16-15-14-12 cm – stillið af eftir skipti á grunnlit á framstykki, prjónið áfram með litinn natur til loka. Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir framstykki, aukið nú um 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 92-100-108-116-128-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til eftir eru 3 lykkjur á prjóni, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm frá kanti í hálsi og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Fitjið upp 14 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5,5 með litnum rauður.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 19-21-23-24-24-25 sinnum = 52-56-60-62-62-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 20-21-23-25-27-29 cm. Fitjið nú upp 4-5-5-5-7-9 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok næstu 2 umferða = 60-66-70-72-76-82 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2-2-2-1-1-1 cm millibili 4-13-15-7-12-14 sinnum og síðan með 3-3-3-2-2-2 cm millibili 9-2-1-10-6-6 sinnum = 34-36-38-38-40-42 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 40-39-38-36-34-33 cm. Aukið nú út um 4-6-4-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 38-42-42-42-46-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH! Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Saumið sauminn undir ermum og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu 1 lykkju í hverja lykkju (en ekki í kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkjum) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum rauður = 76-80-84-88-92-96 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir = 80-84-88-92-96-100 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

NEF:
Gerið einn dúsk með litnum rauður ca 7 cm að þvermáli. Klippið dúskinn þannig að hann fái sporöskjulaga form, þannig að það verða ca 7 cm í aðra áttina og ca 5 cm í hina áttina, en munið að skilja eftir 2 þræði til að festa dúskinn með.
Festið dúskinn framan á höfuðið á hreindýri ca mitt í eininguna með litnum ljós beige – sjá mynd. Þræðið í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið endana saman á röngunni.

AUGU:
Gerið 2 augu með litnum millibrúnn þannig:
1 auga. Klippið 3 þræði ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5 – sjá mynsturteikningu A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 auga til viðbótar. Staðsetjið augun framan á höfuðið á hreindýri, nákvæmlega yfir einingu í litnum ljós beige – sjá mynd. Þræðið í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju á peysu og hnýtið þræðina á röngu.

HÁR:
Festið 4 kögur fyrir hár framan á höfuðið og 4 kögur aftan á höfði.
1 kögur = klippið 2 þræði í litnum millibrúnn ca 8-9 cm. Leggið 2 þræðina saman, þræðið utan um lykkju efst á höfði á hreindýri á milli einingu með litnum beige á höfði og litnum millibrúnn í horni – mitt á sjálfu höfðinu. Hnýtið tvöfaldan hnút. Festið alveg eins kögur hvoru megin við miðju kögrið – sjá mynd.

HÁLSÓL AÐ FRAMAN:
Heklið loftlykkjuröð ca 16-18 cm með heklunál 4 með litnum gulur. Þræðið rautt hjarta eða svipað sem skraut á loftlykkjuröðina og hnýtið hnút þannig að hjartað haldist mitt í loftlykkjuröðinni. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýri á framstykki. Festið enda á röngu á stykki.

HÁLSÓL AÐ AFTAN:
Heklið loftlykkjuröð ca 18-19 cm með heklunál 4 með litnum gulur. Staðsetjið hálsólina þvert yfir hálsinn á hreindýrinu á bakstykki. Festið enda á röngu á stykki.

SNJÓKORN:
Gerið ca 16 hnúta með litnum natur fyrir snjókorn: Klippið 1 þráð ca 40 cm. Gerið 4 hnúta utan um prjón 5,5 – sjá A.3 (þ.e.a.s. gerið 3 LAUSA hnúta, gerið 1 hnút til viðbótar og herðið á þræði á þessum hnút = 1 hnútur). Staðsetjið snjókorn á efri hluta á berustykki, t.d. 4 snjókorn á framstykki, 5 snjókorn á bakstykki, 4 snjókorn á vinstri ermi og 3 snjókorn á hægri ermi. Þræðið þráðar enda í gegnum stykkið hvoru megin við lykkju í peysu og hnýtið þráðar endana saman á röngu.

Mynstur

symbols = rauður
symbols = natur
symbols = ljós beige
symbols = beige
symbols = millibrúnn
symbols = þegar umferð með ör í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka á hæðina er grunnlitur í peysu skipt frá rauður yfir í natur
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Red Nose Jumper

@knits_by_hada, Norway

Red Nose Jumper

Lotte, Denmark

Christmas 2018

Maud Dubuisson, Belgium

Christmas 2018

Dina Pirnay, Netherlands

Christmas 2018

@diewollecke.at, Austria

Christmas 2018

christhalinette, France

Christmas 2018

christhalinette, France

Christmas 2018

Bianca Rademakers‎, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Orlidolette wrote:

Bonjour, Pourquoi ne pas pouvoir le faire en circulaire ? J’ai peut être raté un épisode qui explique pourquoi le faire en aller-retours obligatoirement ? Merci d’avance !

07.08.2022 - 18:12

DROPS Design answered:

Bonjour Orlidolette, on tricote le devant et le dos séparément en allers et retours parce que le jacquard est de type "intarsia" et que ce type de jacquard se tricote est plus facilement en rangs qu'en rond (on peut ainsi tricoter plusieurs couleurs en même temps avec plusieurs pelotes, sans avoir à faire suivre le fil - cf vidéo). Bon tricot!

08.08.2022 - 07:43

country flag Nora wrote:

Hola como tejo este sueter con agujas del No. 4 talla chica? Con 22 puntos me dan 10 cm

10.10.2021 - 18:25

DROPS Design answered:

Hola Nora, no hacemos patrones personalizados. En el caso de tener 22 puntos en 10 cm, se puede usar una aguja más grande, para tener menos puntos en 10 cm. En otro caso, tienes que hacer tú los cálculos de los puntos necesarios en cada paso, teniendo en cuenta el patrón y la tensión indicada ( 16 puntos en 10 cm).

10.10.2021 - 23:35

country flag FLORINE BIHLER wrote:

Avec le modèle de motif une rangée de petits carreaux est-elle considérée comme endroit et envers ? Merci de votre réponse.

06.02.2021 - 10:12

DROPS Design answered:

Bonjour Florine, ces symboles montrent les couleurs du jacquard. Le pull est tricote en jersey endroit (a l’endroit sur l’endroit et a l’envers sur l’envers de l’ouvrage) avec 1 maille lisière au point mousse. Bon tricot!

06.02.2021 - 19:25

country flag Sima wrote:

Bonsoir quand vous dites mesurer l’ouvrage désormais à partir d’ici après les augmentations des emmanchures et que vous dites continuez en jersey les A.1a et À.1b et continuez jusqu’à ce que l’ouvrage mesure 25 cm. Pour faire les augmentations est ce que les 25 cm à partir des augmentations des emmanchures ou bien à partir du début 2) qcq Vs voulez dire faire des augmentations à intervalles réguliers merci beaucoup pour votre aide

29.12.2020 - 19:33

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, vous mesurez pour le devant à partir des mailles montées pour les emmanchures de chaque côté - cf schéma: le bas du pull mesure 25 cm dans toutes les tailles à partir des emmanchures + les côtes du bas. Après ces 25 cm, vous tricotez 1 rang en augmentant à intervalles réguliers puis continuez en côtes pendant 6 cm. Bon tricot!

04.01.2021 - 11:57

country flag Sara wrote:

Buonasera, X la misura xxl a che ferro comincia il disegno marrone. .. (le corna? )grazie Sara

24.11.2020 - 17:34

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, il motivo sono A.1A e A.1B sul davanti e A.2A e A.2B sul dietro per tutte le taglie. Le corna iniziano sul 1° ferro. Buon lavoro!

24.11.2020 - 21:31

country flag Lafarida wrote:

Wieso weicht die Anzahl der Zunahmen bei den Ärmeln von der an Vorder- und Rückseite ab? Bei S z.B. geht die Raglanschrägung auf der Vorderseite über 40 Maschen (20 Zunahmen), bei den Ärmeln aber nur über 38 (19 Zunahmen). Dadurch kann man hier doch überhaupt nicht mehr Masche mit Masche vernähen. Oder habe ich hier etwas falsch verstanden?

18.11.2020 - 21:30

DROPS Design answered:

Liebe Lafarida, es wird unterschiedlich für Vorder- /Rückenseite und Ärmel zugenommen damit die Ärmel nicht so breit sind, aber Länge wird schon stimmen, so können Sie die Ärmel zusammennähen. Viel Spaß beim stricken!

19.11.2020 - 10:05

country flag Lis Snedevig Steenberg wrote:

Hvorfor fremstår munden på drops 194-38 på modellen som hvid mens opskriften siger lys beige

16.10.2020 - 17:22

DROPS Design answered:

Hei Lis. På bildet av reinsdyret ser partiet under snuten som lys beige. Snøen er laget i natur og den nederste delen er strikket i natur og man ser forskjell på fargene. Men ta en titt på fargeinstillingene dine, kanskje de trengs å justeres. mvh DROPS design

19.10.2020 - 12:48

country flag Tora Christophersen wrote:

Jeg strikker 16 masker på 10 cm, men det bliver til 24 pinde i stedet for 20 pinde i højden, før jeg har strikket 10 cm. Kan I give mig vejledning til, hvordan/hvad jeg skal ændre, for at få opskriften til at passe?

26.11.2019 - 22:00

DROPS Design answered:

Hej Tora, Strikker du i DROPS Nepal? Du kan evt prøve at strikke med en pind som er et halvt nummer tykkere. Hvis det bliver et problem til den anden side, så prøve at strikke vrangpinden (eller den side du normalt strikker lidt strammere) med en tykkere pind. God fornøjelse!

03.12.2019 - 14:04

country flag Corinne wrote:

Merci de m'avoir rendu réponse ça va beaucoup m'aider. Cordialement Corinne

26.11.2019 - 11:10

country flag Corinne wrote:

Pour ce modèle est-ce que les aiguilles circulaires sont obligatoires Merci

25.11.2019 - 21:16

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, seul le col se tricotera en rond dans ce modèle; vous pouvez voir les différentes étapes de ce modèles sous le DROPS-Along Christmas 2018. Bon tricot!

26.11.2019 - 09:38