DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Granny Glam

Heklaður kimono úr DROPS Big Delight. Stykkið er heklað með stuðlahópum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-33
DROPS Design: Mynstur db-096
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-800-900 g litur 11, skógarberja múffa

HEKLFESTA:
4 mynstureiningar A.4b á breidd og 8 umferðir af A.4b á hæð = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KIMONO – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hlutum. Fyrst er hægra fram- og bakstykkið heklað í hring eins og sexhyrningur. Síðan er axla- og hliðarsaumur heklað saman áður en heklað er áfram fram og til baka við miðju að aftan. Síðan er vinstra fram- og bakstykkið heklað alveg eins áður en haldið er áfram fram og til baka niður á fram- og bakstykki. Að lokum er sjalkraginn heklaður og kantar að framan.

HÆGRA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið með heklunál 5,5 og Big Delight og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar allt A.1 hefur verið heklað til loka er heklað þannig: A.2 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og kemur í stað fyrsta stuðuls í umferð), A.3 alls 6 sinnum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram hringinn svona þar til A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka. Endurtakið síðan 2 síðustu umferðirnar í A.2 og A.3 þar til stykkið mælist 28 cm frá miðju og út (þ.e.a.s. í hvert skipti sem 2 síðustu umferðirnar hafa verið heklaðar er pláss fyrir 2 stuðlahópa fleiri á milli hverra útaukninga í hverju og einu af 6 hornum í sexkanti) – stillið af að endað sé eftir umferð með 3 stuðlum + 1 loftlykkju. Klippið frá.
Sexhyrningurinn myndar nú fyrri hluta af hægri ermi, öxl og fram- og bakstykki: Miðja á A.1 = mitt undir ermi. Brjótið hægra fram- og bakstykki þannig að réttan liggi að réttu og öll hornin mæta öðru horni – sjá teikningu: Strikuðu línurnar sýna hvar útaukning í sexhyrningi er og sexhyrningurinn er brotinn undir ermar og hliðarsauma.
Heklið nú axla- og hliðarsaum saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Byrjið neðst niðri á ermi og heklið 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* upp að öxl, en endið með 1 fastalykkju í loftlykkjuboga í horni. Klippið frá og festið enda. Heklið nú í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
Heklið nú fram og til baka á bakstykki þannig:
Byrjið í horni neðst niðri á búk á bakstykki, heklið mynstur fram og til baka að miðju að aftan frá röngu þannig: Heklið A.4a, A.4b upp að næsta horni á undan þar sem brotið var saman mitt ofan á öxl, heklið A.4e um loftlykkjuboga í horni. Snúið og heklið fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina (= 4 umferðir).

STÆRÐ L/XL og XXL/XXXL:
Byrjið í horni neðst niðri á búk á bakstykki og heklið mynstur fram og til baka yfir öxl og niður að horni neðst niðri á framstykki frá röngu þannig: Heklið A.4a, A.4b upp þar sem brotið var saman mitt ofan á öxl, heklið A.4c yfir þar sem brotið var saman á öxl og haldið síðan áfram með A.4b eins og áður niður að næsta horni, heklið A.4e um loftlykkjuboga í horni. Snúið og heklið 2. umferð í A.4 til baka (= alls 2 umferðir frá sexhyrningi).
Stærð L/XL er nú lokið. Í stærð XXL/XXXL heklið nú 2 umferðir til viðbótar á hæðina (= alls 4 umferðir frá sexhyrningi). Klippið ekki frá! Heklið nú áfram fram og til baka á bakstykki þannig:
Snúið og heklið A.4a, A.4b upp að loftlykkju í A.4c á öxl, heklið A.4d um loftlykkju, snúið og heklið fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 4-6 umferðir á hæðina á bakstykki (= alls 6-10 umferðir frá ferhyrning). Klippið frá.

VINSTRA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið alveg eins og hægra fram- og bakstykki. Heklið saman axla- og hliðarauma – sjá svarta stjörnu í teikningu! ATH: Þegar heklað er fram og til baka, passið uppá að umferð með stuðlum sé hekluð frá réttu og umferð með loftlykkjubogum sé hekluð frá röngu! ATH: þegar heklað er fram og til baka er byrjað neðst niðri á framstykki í stað á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Heklið saman bakstykkin við miðju að aftan þannig:
Leggið stykkin tvö með réttuna að réttu og heklið í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju neðst í hornið, * heklið 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* upp að hnakka á kimono og endið með 1 fastalykkju í síðustu lykkjuna í umferð. Klippið frá og festið enda.

KANTUR NEÐST Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið nú kant neðst á kimono þannig:
Byrjið neðst í horninu á hægra framstykki og heklið frá röngu þannig:
Heklið A.4a, A.4b fram að næsta horni (= á bakstykki), haldið áfram með 6-8-10 mynstureiningar A.4b yfir stykkin sem hekluð voru fram og til baka að miðju að aftan, heklið síðan A.4b fram að horni að framan á vinstra framstykki, endið með A.4e. haldið áfram fram og til baka þar til allt stykkið mælist ca 16-22-28 cm. Klippið frá og festið enda.

KANTUR AÐ FRAMAN OG SJALKRAGI:
Byrjið neðst í horninu að miðju að framan á vinstra framstykki og heklið frá röngu þannig:
Heklið A.4a í hornið, heklið A.4b upp meðfram kanti neðst á kimono og hoppið yfir ca 2½ cm fyrir hverja mynstureiningu (= ca 6-9-11 mynstureiningar), haldið síðan áfram með A.4b upp að öxl, heklið A.5 alls 7-7-9 sinnum meðfram kanti í hnakka og haldið áfram með A.4b niður meðfram kanti á hægra framstykki alveg eins, endið með A.4d neðst á hægra framstykki. Heklið svona fram og til baka þar til allt A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina. Þegar A.4a, A.4b og A.4d hefur verið heklað til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu endurteknar. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.12.2018
Leiðrétting á efnismagni: DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)700-800-900 g litur 11, skógarberja múffa

Mynstur

symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur er byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = í byrjun á umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð og heklið 1 keðjulykkju í hverja lykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga í umferð
symbols = byrjið á þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur
symbols = axla- og hliðarsaumur heklaður saman á hægra fram- og bakstykki – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = axla- og hliðarsaumur heklaður saman á vinstra fram- og bakstykki – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Katerina wrote:

It’s not possible to fold according to the diagram. The shape is different. There is not enough material in the hexagon . There is a mistake in the pattern.

15.09.2021 - 23:05

DROPS Design answered:

Dear Katerina, look at the 3rd picture on the top of the pattern, you will see 3 of the corners from the hexagon (= the dotted lines in the chart), this might help you to fold piece. For any individual assistance, bring your piece to your store or send them a picture per mail, they will be able to help you better. You can also try to ask other crocheters in our DROPS Worskhop. Happy crocheting!

16.09.2021 - 07:40

country flag Kimberly wrote:

I asked for row by row written instructions and was given a guide to the illustrated pattern, which as an older crocheter, makes no sense to me. Are there written instructions, for example, " ch 2 at beg of row and make 2dc in each stitch across to end of row" I am afraid to purchase the yarn from you and not be able to make the sweater.

04.04.2021 - 15:26

DROPS Design answered:

Dear Kimberly, there is no written out pattern, only the diagrams (for the pattern itself). Not only because the patterns are available in a number of languages, but also because we believe that with the diagrams you not only see the very next step, but also the "bigger picture" as how stitches and rows relate to each other en large. We do have a lesson on how to read crochet diagrams here, and if you are still stuck, you can always ask for help (either in person or over the phone) in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!

04.04.2021 - 21:19

country flag Kimberly wrote:

Is an old fashioned written version of this pattern available in U.S. English? I find diagrams very difficult. If so can you please post a link. Thank you.

30.03.2021 - 20:55

DROPS Design answered:

Hi Kimberly, yes, please check HERE. Happy crocheting!

30.03.2021 - 22:44

country flag Jane wrote:

Hoi, Ik kom er niet aan uit hoe het rechter voor en achterpand wordt gemaakt. A2 en A3 worden in de rondte gehaakt om een 6hoek te maken maar A2 vervangt een stokje met losse. Dan haak je de toer toch helemaal niet vast? Er staat geen halve vaste oid.

23.12.2020 - 12:34

country flag Ich wrote:

Die Anleitung ist verwirrend. Aber das Resultat ist toll. Habe allerdings oft nach dem Bild gearbeitet

01.03.2020 - 17:48

country flag Ivonne Flores wrote:

Quisiera las instrucciones en español Mexico. Gracias

25.12.2019 - 20:08

country flag Robinne wrote:

Je ne comprends pas :(

19.09.2019 - 08:19

DROPS Design answered:

Bonjour Robinne, pouvez-vous être plus précise? Que ne comprenez-vous pas? Quelle partie du modèle, quelle taille faites-vous? Rappelez-vous également que pour toute assistance individuelle à la réalisation d'un modèle, vous pouvez contacter le magasin où vous avez acheté votre laine, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

19.09.2019 - 09:57

country flag Janine wrote:

You have written on the diagram a- 1 around chain stitch - Is this a table or dc? The symbol is a treble symbol but instructions talk og double crochet. Help?

20.06.2019 - 05:17

DROPS Design answered:

Dear Janine, the 5th symbol under diagram key is a treble crochet (UK-English) / a double crochet (US- English) worked around the chain ring in A.1. Make sure you are reading the correct language, you can edit the language by scroling down the menu under picture. Happy crocheting!

20.06.2019 - 09:00

country flag Maureen wrote:

For those of us who don't understand the diagrams, how about doing it old-fashioned way and printing instructions. I was going t o make this sweater until I saw there were no written instructions

12.06.2019 - 01:02

DROPS Design answered:

Dear Maureen, you will find here how to read diagrams - remember to follow the written pattern at the same time. Happy crocheting!

12.06.2019 - 07:41

country flag Kristine wrote:

KORTE SAMENVATTING VAN HET WERK: in de rondte als een achthoek achthoek moet ZESHOEK zijn zie versie English : in the round as a hexagon

07.06.2019 - 11:41