DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lamb Dance

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með kindum, litamynstri, stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 34-1
DROPS Design: Mynstur me-054-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm.
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-250-300 g litur 26, pistasía
50-50-100-100-100 g litur 19, ljós gráblár
50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50 g litur 02, svartur
50-50-50-50-50 g litur 17, kirsuberjarauður

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-250-300 g litur 7219, pistasía
50-50-100-100-100 g litur 8112, ísblár
50-50-50-50-50 g litur 0100, natur
50-50-50-50-50 g litur 8903, svartur
50-50-50-50-50 g litur 6273, kirsuberjarauður

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, NR: 513: 6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prð frajónam og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan á framstykkjum (= 10 lykkjur) = 74 og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 10,5.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju/10. og 11. hverja lykkju saman. Ef auka á út þá er notaður sami útreikningur, en slegið er þá uppá prjóninn til skiptis á eftir 10. og 11. hverja lykkju. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjurnar með sléttprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 2 cm frá kanti í hálsi, síðan er fellt af fyrir næstu 5-5-6-6-6 hnappagötum með 6 -7-6½-7-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður, prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-100-112-116 lykkjur á hringprjón 3 með ljós gráblár. Prjónið 4 umferðir umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum slétt og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= hægri kantur að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= kantur í hálsi). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 7-5-5-10-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-95-102-109 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11-12-12-13-14 mynstureiningar með 6-6-7-7-7 lykkjum), prjónið A.2 yfir 1 lykkju og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 209-227-251-271-291 lykkjur í umferð. Haldið áfram með pistasía, í næstu umferð frá réttu er prjónað sléttprjón (garðaprjón yfir kanta að farman) og aukið er út um 13-11-5-1-1 lykkjur í umferð = 222-238-256-272-292 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón (garðaprjón yfir kanta að framan) þar til stykkið mælist ca 18-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN, prjónið 31-33-36-36-37 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-72-82-84 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-54-62 lykkjur á nýjan þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið 31-33-36-36-37 lykkjur (= framstykki) og prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 146-154-166-176-180 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) SJÁ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4-5-6-7 cm millibili alls 3 sinnum = 158-166-178-188-192 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 12-16-19-22-25 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka).
Prjónið 1 umferð sléttprjón frá réttu þar sem aukið er út um 10-6-6-8-12 lykkjur jafnt yfir (ekki auka út yfir kanta að framan) = 168-172-184-196-204 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *. Prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Í næstu umferð frá réttu, fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. SJÁ ÚRTAKA-2.
Haldið áfram með sléttprjón og endurtakið úrtöku með 4-3½-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-7-7-8-10 sinnum = 40-40-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 21-26-29-33-36 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út jafnt yfir 4-4-5-4-4 lykkjur í umferð = 44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.04.2019
Leiðrétting á efninsmagni: Merino Extra Fine litur 26 og 19, Lima litur nr 7219 og 8112 + leiðrétting á BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón (garðaprjón yfir kantlykkjur) þar til stykkið mælist ca 18-18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Yfirfarið á vefsvæði: 17.06.2019
Leiðrétting - mynsturteikning: A.1 í stærð 7-12 ára hefur verið leiðrétt: Uppslátturinn hefur verið færður úr umferð 15 yfir í umferð 14
Yfirfarið á vefsvæði: 25.09.2020
Leiðrétting: Fjöldi lykkja sem er fitjaður upp í 3 stærri stærðunum hefur verið leiðréttur.
Yfirfarið á vefsvæði: 09.02.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning A.1 stærð 7-12 ára hefur verið leiðrétt umferð 29, 35 og 36

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með ljós gráblár
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með natur
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með svörtum
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með pistasía
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu með kirsuberjarauður
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Drops Lamb dance

Simone, Netherlands

Lamb Dance Cardigan

Katka, Czech Republic

Lamb Dance

Debra, United States

Lamb Dance

Åsa, Sweden

Lamb dance

annasuz, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Richtje Wijnen wrote:

Wat voegt telpatroon A2 toe? Ik snap dat niet.

14.04.2024 - 11:41

DROPS Design answered:

Dag Richtje,

Patroon A.2 is toegevoegd om het patroon symmetrisch te maken bij de sluiting voor.

15.04.2024 - 21:22

country flag Yvonne Johansson wrote:

Kan man sticka denna kofta i något av era bomullsgarn?

02.01.2024 - 18:30

DROPS Design answered:

Hej Yvonne, ja, du kan sticka den i DROPS Muskat och DROPS Cotton Light och DROPS Cotton Merino - testa garnkalkulatorn för att se hur mycket du behöver i din storlek :)

03.01.2024 - 07:58

country flag Margriet Sijm wrote:

Patroon Lambs Dance, Wat betekent een omstreek verhouding? Ik brei nu het pasje, ik kom niet uit het aantal steken, ik ben nu bij pen 31, patroon A1,maat 146/152 , ik heb nu 222 steken, nog 2 x meerderen, dan kom ik aan het einde van de pas niet aan het 292 steken. Wat gaat er verkeerd? Graag reactie. Vriendelijke groet, Margriet S.

15.11.2023 - 16:20

DROPS Design answered:

Dag Margriet,

A.1 heeft op het eind 20 steken in de breedte en omdat je A.1 14 keer in de breedte herhaalt heb je 280 steken, plus de steek van A.2 en de 5 voorbiessteken aan elke kant = 299 steken. Wanneer je nog 2 keer meerderingen moet maken zou je 263 steken op de naald moeten hebben. Waarschijnlijk is er ergens iets mis gegaan... Het is jammer dat ik niet mee kan kijken vanaf hier. Misschien heb je een ander aantal herhalingen?

18.11.2023 - 15:03

country flag Jaroslava Hudrlíková wrote:

Nerozumím tomu pletení vzoru dle nákresu. Mezi jednotlivými 7 oky je kolik ok než pokračuji znova 7mi okami. Děkuji.

03.07.2023 - 17:31

country flag Marianne Verduin wrote:

Bij het telpatroon: zijn daar alleen de naalden aan de goede kant aangegeven of de heen en weer naalden?

27.10.2022 - 09:24

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

In de telpatronen zijn altijd alle naalden weergegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden.

27.10.2022 - 20:47

country flag Marianne Verduin wrote:

Waar vind ik telpatroon A2?

25.10.2022 - 20:04

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Deze staat naast telpatroon A.1 en is 1 steek breed.

26.10.2022 - 08:39

country flag Cathy Dicharrry wrote:

J'ai fait le même modèle 3 fois, 1fois en taille 9/10 et 2 fois en taille 5/6 ans. Je trouve que les augmentations ne sont pas bien réparties, pas régulières donc l'allure du gilet est un peu bizarre... Dommage ! Je joins une photo de l'un d'entre eux...

14.10.2022 - 12:44

country flag Mary Levine wrote:

If with the larger sizes, you start chart A2 on row 1 of A1, then should realign the charts correctly on the printout. Currently it shows chart A2 starting on row 2 of chart A1.

13.09.2022 - 12:35

country flag Mary Levine wrote:

Lamb Dance - In the larger sizes - 7 and up - does the chart A2 start on row 1 or row 2 of chart A1? Thank you -

11.09.2022 - 22:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Levine, start diagrams from RS as follows: 5 front band sts, repeat the 7 sts of A.1 (increasing 1 stitch = knit 7 with light grey blue, YO) until 8 sts remain, work A.2 (1 stitch) and 5 front band stitches. From WS read diagrams from the left towards the right starting with A.2 then repeat A.1. Happy knitting!

12.09.2022 - 11:38

country flag VARAIN Evelyne wrote:

Bonjour, lorsque vous signalez des corrections sur ce modèle, est ce que les explications sont changées ou bien faut-il corriger nous mêmes ? En vous remerciant pour la réponse

06.04.2022 - 23:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Varain, si vous avez imprimé les explications après la date des corrections, alors le modèle est juste, sinon, il peut être de sage de l'imprimer à nouveau. Bon tricot!

07.04.2022 - 09:49