DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 197-29
DROPS Design: Mynstur z-837
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð (á húfu): S/M – M/L
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 3800, bleikfjólublár
50 g litur 2020, ljós kamel
50 g litur 3770, dökk bleikur
50 g litur 100, natur

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 3800, bleikfjólublár
50-50 g litur 100, natur

SJAL:
Mál: Lengd efst: ca 138 cm, hæð fyrir miðju: ca 26 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 2020, ljós kame
50 g litur 3770, dökk bleikur
50 g litur 3800, bleikfjólublár
50 g litur 100, natur

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kanta með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

SJAL:

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Sjal: Sjá mynsturteikningu A.3 til A.6.

MOSAIK MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 fyrir húfu og A.3 og A.6 fyrir sjal og sjá útskýringu á aðferð að neðan.
Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni.
Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki!

Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga.

Mynstrið er prjónað í garðaprjóni.
A.1/A.3 = sýnir hvaða lit á að prjóna umferðina með.
Í hverri mynsturumferð sem byrjar og endar með svartri rúðu í A.1/A.3 (litur B), eiga allar lykkjur með lit B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A er lyft af prjóni.
Í hverri mynsturumferð sem byrjar og endar með auðri rúðu í A.1/A.3 (litur A), eiga allar lykkjur með lit A að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni.

ÚRTAKA (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), mínus kantlykkjur (= 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 10. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 9. og 10. hverja lykkju saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.

HÚFA:
Fitjið upp 112-122 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið mynstur – sjá MOSAIK MYNSTUR, þannig:
Prjónið A.1 (= 1 lykkja), prjónið A.2 (= 11-12 lykkjur) yfir næstu 110-120 lykkjur (= 10-10 sinnum á breidd) og A.1 yfir síðustu lykkju.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 17-18 cm. Stykkið er síðan prjónað í garðaprjóni með litnum bleikfjólublár. Fækkið nú lykkjum þannig:
Fækkið 11-12 lykkjur jafnt yfir í 4. hverri umferð – sjá ÚRTAKA, alls 9 sinnum = 13-14 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, dragið saman og festið vel. Húfan mælist ca 25-26 cm. Saumið húfuna saman innan við 1 kantlykkju með litnum bleikfjólublár.

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, á ská frá horni að horni í stykkjum í garðaprjóni, röndum og mosaik mynstri.

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós kamel. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

STYKKI-1 (garðaprjón í litnum ljós kamel):
UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri).
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið bilið á undan næstu lykkju á vinstri prjón snúið slétt (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri).
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til 63 lykkjur eru á prjóni (= alls 122 umferðir með garðaprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 56 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu.

STYKKI-2 (rendur):
Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónaðar eru rendur þannig:
Klippið þráðinn frá þegar það verða meira en 4 umferðir garðaprjón áður en sami litur er notaður aftur.
Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 18 umferðir garðaprjón) = 72 lykkjur á prjóni.
Prjónið rendur þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 40 umferðir garðaprjón) = 92 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 88 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu.

STYKKI-3 (mosaik mynstur með dökk bleikur og ljós kamel):
Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið mynstur þannig:
Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur = 93 lykkjur. Prjónið síðan MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með litnum dökk bleikur og litnum ljós kamel þannig: Prjónið A.3 (= 1 lykkja), A.4 (= 18 lykkjur), prjónið A.5 (= 12 lykkjur) yfir næstu 72 lykkjur (= 6 sinnum á breidd), A.6 (= 1 lykkja) og A.3 yfir síðustu lykkju (þetta er lykkjan sem prjónaðar eru 2 lykkjur í frá réttu. Frá röngu er fyrri lykkjan prjónuð eins og A.3 og 2. lykkjan er prjónuð inn í mynstur A.6). Bilið sem er prjónað upp á milli 2 lykkja í hverri umferð frá röngu er prjónað inn í A.6.
Þegar A.3 til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 24 umferðir garðaprjón) eru 105 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 100 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu.

STYKKI-4 (rendur):
Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið rendur þannig:
Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár, 4 umferðir með garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár (= 22 umferðir garðaprjón) = 116 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 110 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu.

STYKKI-5 (mosaik mynstur með litnum bleikfjólublár og natur):
Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið mynstur þannig:
Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár = 117 lykkjur.
Prjónið síðan mosaik mynstur með litnum bleikfjólublár og natur þannig:
Prjónið A.3 yfir fyrstu lykkju, A.4 yfir næstu 18 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 96 lykkjur (= 8 sinnum á breidd), A.6 yfir 1 lykkju og A.1 yfir síðust lykkju (þetta er lykkjan sem prjónaðar eru 2 lykkjur í frá réttu. Frá röngu er fyrri lykkjan prjónuð eins og A.3 og 2. lykkjan er prjónuð inn í mynstur A.6). Bilið sem prjónað er upp á milli 2 lykkja í hverri umferð frá röngu er prjónað inn í A.6.
Þegar A.3 til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstrið endurtekið á hæðina, í hvert skipti sem mynstrið er endurtekið er prjónuð 1 fleiri mynstureining af A.5 á breiddina.
Þegar A.3 til A.6 hefur verið prjóna 2 sinnum á hæðina (= 96 umferðir garðaprjón) eru 165 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 135 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu (nú eru eftir ca 3 cm). Ef óskað er eftir að hafa sjalið stærra er hægt að endurtaka mynstur A.3 til A.6 á hæðina að óskuðu máli.

STYKKI-6 (rendur):
Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið rendur þannig:
Prjónið 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár og fellið síðan af með litnum bleikfjólublár. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, felli e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.11.2018
Leiðrétting HÚFA: Prjónið A.1 (= 1 lykkja), prjónið A.2 (= 11-12 lykkjur) yfir næstu 110-120 lykkjurnar (= 10-10 sinnum á breidd) og A.1 yfir síðustu lykkju.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Mynstur

symbols = litur A - natur /ljós kamel
symbols = litur B - bleikfjólublár/dökk bleikur
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag CAMILLA wrote:

HVORDAN TAGER MAN IND I OPSKRIFTEN PÅ SJAL. I SKRIVER KUN HVOR MAN TAGER UD OG IKKE HVORNÅR MAN SKAL BEGYNDE AT TAGE IND IGEN.

04.10.2022 - 11:40

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Du øker og feller i hvert parti, men det det økes hele tiden flere masker enn det felles. Du feller alle maskene til slutt samtidig når du feller av. mvh DROPS Design

09.10.2022 - 13:34

country flag Diane wrote:

Bonjour, à la section 5, si je tricote 2 fois A3 à A6 en hauteur, je me retrouve avec 141 mailles et non 165 ? Ou je dois tricoter 2 autres fois A3 à A6 pour avoir 165 mailles ? Le châle sera alors plus long que 135 cm !!! Merci beaucoup.

17.08.2022 - 02:53

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, vous allez tricoter un total de 48 côtes mousse et augmenter 1 maille par côte mousse (= 1 m tous les 2 rangs), autrement dit vous allez passer de 117 mailles + 48 mailles = 165 mailles. Bon tricot!

17.08.2022 - 08:22

country flag Anette wrote:

Hvad har jeg gjort forkert, når jeg mangler 25 masker, når jeg har strikket parti 5 ???

19.12.2021 - 20:34

DROPS Design answered:

Hej Anette, det er svært at gætte sig til... har du alle udtagner med ifølge A.6 ?

21.12.2021 - 08:13

country flag Heike wrote:

Wow ! Tolles Tuch - lassen sich die Bereiche auch erweitern , sodass das Tuch grösser wird ?

31.10.2021 - 11:14

DROPS Design answered:

Liebe Heike, wahrscheinlich kann man das Tuch vergrössern aber leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, gerne hilft Ihnen Ihr DROPS Laden damit weiter - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2021 - 07:25

country flag Ewa Dulat wrote:

Errata: chodzi oczywiście nie o schemat A1 lecz A2 11 S/M

10.12.2020 - 21:03

country flag Ewa Dulat wrote:

Dziękuję, video znam, stwierdzam jednak, że wzór jest dostosowany do schematu A 2-12-M/L i owszem, powtarzanie tego układu daje w efekcie opracowany wzór. Natomiast powtarzanie rzędów ze schematu A1 -11-S/M niestety nie. Dopasowałam więc ilość oczek, przerabiam schemat A 2 i nie mam zastrzeżeń. Pozdrawiam

10.12.2020 - 20:57

country flag Ewa wrote:

Dzień dobry, schemat A2 dla rozmiaru S/M przy powtarzaniu nie daje pożądanego wzoru. Ponawiałam próbę dwa razy sądząc, że się pomyliłam, jednak musi być jakiś błąd, bo nie wychodzą "zygzaki"symetrycznie. Pozdrawiam

09.12.2020 - 20:55

DROPS Design answered:

Witaj Ewo, może pomocne będzie video TUTAJ. Powodzenia!

10.12.2020 - 09:19

country flag Toril wrote:

Hei igjen. Da har det gått opp et lys og er i gang med diagrammet av mosaikkmønsteret i parti 5. Takk for hjelpa:)

22.11.2020 - 23:22

country flag Toril Aakerholm wrote:

Hei og takk for svar. Enda et spørsmål: når jeg har strikket A3 (1maske)A4(18masker) A5(12masker) På gjentakelse av rapport skal jeg da starte med A3, A4 og A5 .... og til slutt på pinnen A6 og A3 i samme maske. Litt usikker på hva jeg starter med på vrangsida, men ser ut som fargene skal være over hverandre . Kan det stemme at på rad 3 blir det 5 masker med mørk rosa mellom rapportene? Mvh Toril

21.11.2020 - 12:10

DROPS Design answered:

Hej Toril. Så fint att du kommit vidare! Mvh DROPS Design

24.11.2020 - 11:23

country flag Toril Aakerholm wrote:

Purple Way sjal..... har lest og sett video mange ganger på mosaikkmønstret, men får det ikke til å stemme. Teknikken har jeg. Ønsker å få hjelp til å komme i gang så det stemmer... har prøvd med start av 1 A3, videre A5 og A4... ( tre rapporter) skal jeg ha med A6 også . ? Har litt problemer med start og slutt på hver omgang. Håper på svar. Mvh Toril

19.11.2020 - 16:25

DROPS Design answered:

Hei Toril, Du har 92 masker på pinnen før du begynner mosaikkmønstret. Du skal strikke: A.3 (1 maske) A.4 (18 masker), A.5 ( 72 masker), A.6 (1 maske), og A.3 (1 maske). De siste 2 (A.6 og A.3) skal strikkes i samme masken. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

20.11.2020 - 10:41