DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5698.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Echo Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað með gatamynstri og áferðamynstri. Stærð S – XXXL.

DROPS 196-27
DROPS Design: Mynstur no-011
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 19, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
32 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með áferðamynstri í A.1 til A.3 = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir ermar.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5: fyrir stroff
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir áferðamynstur/garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5698.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við hvert prjónamerki = alls 4 lykkjur færri í umferð).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 10, 19, 28, 37, 45 og 53 cm
M: 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm
L: 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm
XL: 10, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm
XXL: 9, 17, 25, 33, 40, 47, 54 og 61 cm
XXXL: 10, 18, 26, 34, 42, 49, 56 og 63 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fyrst fram og til baka á hringprjón. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Ermar og fram- og bakstykki er sett á sama hringprjón og prjónað er fram og til baka með áferðarmynstri yfir berustykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 266-285-297-327-348-385 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Setjið 1 prjónamerki 69-74-77-84-89-99 lykkjur inn frá hvorri hlið (prjónamerki merkja hliðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 10 sinnum = 226-245-257-287-308-345 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm fellið af fyrir handveg í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 50-55-57-64-68-78 lykkjur slétt, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, 100-110-114-129-138-156 lykkjur slétt, fellið af næstu 8-8-10-10-12-12 lykkjur, 50-54-56-64-68-77 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 210-229-237-267-284-321 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 57-60-63-66-66-69 lykkjur á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 12-11-13-13-10-11 lykkjur jafnt yfir = 45-49-50-53-56-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Þegar ermin mælist 8-10-6-12-12-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 2-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 16-19-23-24-25-26 sinnum = 77-87-96-101-106-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm, fellið af fyrstu 4-4-5-5-6-6 lykkjurnar og síðustu 4-4-5-5-6-6 lykkjur fyrir handveg = 69-79-86-91-94-98 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 348-387-409-449-472-517 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í 0-0-1-0-2-0 cm. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1a (= 1-2-2-1-1-2 lykkjur), endurtakið A.2a (= 21-22-22-23-23-24 lykkjur) yfir næstu 336-37-396-437-460-504 lykkjur (= 16-17-18-19-20-21 sinnum á breidd), A.3a (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATH! Í 2. umferð í mynsturteikningu A.2a eru lykkjur auknar út frá röngu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1a til A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 316-353-373-411-432-517 lykkjur í umferð. Nú er prjónað A.1b til A.3b yfir A.1a til A.3a. Þegar A.1b til A.3b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 124-132-139-145-152-160 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Berustykki mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman undir ermum, kant í kant í ysta boga á ystu lykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2018
Leiðrétting. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman undir ermum, kant í kant í ysta boga á ystu lykkju.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu og brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu og slétt frá röngu
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = prjónstefna
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Marie Boyd wrote:

Finally finished! The charts were very difficult to learn, and the first 4 lines caused me untold grief. Finally I studied them carefully, and saw my errors. I would have loved the first 4 lines to be written out, would have set up the pattern correctly from the outset. Happily, it looks lovely now, and I am very pleased with it. I have been knitting for over 50 years, and this is one of the most challenging projects I have ever done.

15.04.2024 - 00:23

country flag Linda wrote:

I am knitting the green echo jacket could you please help me on the York you slip two then knit one then pass the two stitches over the knit stitch do you drop these or put them back on the left needle, can't get the next row to work out.

09.06.2022 - 21:43

DROPS Design answered:

Dear Linda, could this video explain you how to work the 3rd symbol = "slip 2 stitches onto right needle as if to knit together, knit 1, pass the 2 slipped stitches over the knitted stitch". Hope it will help. Happy knitting!

10.06.2022 - 08:52

country flag Lone Pedersen wrote:

Mit problem er at når jeg skal strikke pind nr. 34. Der skal jeg starte med at strikke 1vr og så 2 r. Og mønstre skal forskydes dette gør det ikke, da pind 33 slutter med 2 vr og 1 r.

13.05.2022 - 09:16

DROPS Design answered:

Hej Lone, de ribstrikkede striber bliver automatisk trukket mod midten, når du tager ind i midten af diagrammet, du behøver ikke selv forskyde maskerne. Du kan se at de midterste 3 retmasker bliver til 1 retmaske og så fortsætter ribben med 2vr, 1r, som tidligere (set fra retsiden)

13.05.2022 - 10:15

country flag Lone Pedersen wrote:

Jeg strikker str. XXXL, er nået til indtagninger i diagram A2a. Jeg kan ikke få mønstret til at passe.

12.05.2022 - 13:35

DROPS Design answered:

Hej Lone, jo det bliver automatisk indtagninger på de pinde hvor der ikke er omslag i diagrammet. Det vil sige i XXXL skal du først tage ind når du kommer til pind 33 i A2a. God fornøjelse!

13.05.2022 - 08:09

country flag Janne Feldstedt wrote:

196-27. Er nået til bærestykket str xl hvor der på vrangpind laves 3 omslag i start og 3 i slut af rapport, det er jeg med på. På næste pind skal omslagsmaskerne strikkes drejet, er det korrekt at det bliver både drejet ret og drejet vrang?

09.03.2021 - 21:04

DROPS Design answered:

Hej Janne, ja det stemmer, de 3 nye masker i hver side strikkes drejet ret eller vang ifølge 3.pind i diagrammet :)

11.03.2021 - 10:20

country flag Linda wrote:

Just wondering if you could give me a hand I am knitting the green echo jacket and just started the yoke do I knit the first two stitches before each repeat. I have looked at the tutorials

09.03.2021 - 16:24

DROPS Design answered:

Dear Linda, the row starts with5 K, then A.1a, then repeat A.2a and finishes with A.3a and 5 K. (If you look closely, A.2a starts and finishes with 2 Purl (from the RS), and there are no other stitches between repeats. Happy Knitting!

09.03.2021 - 18:00

country flag Valentina wrote:

Vorrei chiedere una cosa sulle asole: la vostra spiegazione dice di lavorare la terza e la quarta maglia dal bordo e di fare un gettato. Così però il buco che si forma con il ferro di ritorno non è al centro, ma spostato a sinistra del bordo di cinque maglie. Il buco verrebbe invece al centro se si facesse prima il gettato e poi le due maglie insieme. C'è una ragione per questo oppure non ho capito bene qualcosa? Grazie in anticipo per la risposta.

29.11.2020 - 13:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Valentina, può spostare l'asola di una maglia se preferisce. Buon lavoro!

29.11.2020 - 14:42

country flag Vinnie wrote:

Det er str. XL, udtagning på 2.pind på vrangen, hvordan når mønstret skal passe. OG På 5. Mønsterpind, strikkes to masker løs af en ret træk de to over, det er minus en maske i hver rapport, men mønstret er rykket ind med to masker. A1a, A2a,A3a

30.06.2020 - 20:25

DROPS Design answered:

Hej Vinnie, jo start med at sætte et mærke på hver side af de 23 masker hele vejen rundt (så er det lettere at se hvor du tager ud). Du tager 3 masker ud i hver side af rapporten, det vil sige at du tager ialt 6 masker ud imellem hver mærke. På pind 3 har du så 29 masker imellem hver mærke. Og dem strikker du nøjagtig som du kan læse i diagrammet. Det samme gælder på første mønster pind, her tager du 2 masker ind, så du har 27 masker imellem hver mærke, som strikkes ifølge diagrammet. God fornøjelse!

02.07.2020 - 11:23

country flag Vinnie wrote:

Jeg savner svar på mit spørgsmål af 20/6! Og så kommer det næste, man mindsker mønstret med en maske, men på næste pind er mønstret rykket ind med 2masker!!!!!! Man skulle ikke tro den viste trøje er strikket efter det mønster i viser. Det er den dårligste opskrift jeg har oplevet. Jeg afventer stadig et svar og en forklaring!!!! Hilsen Vinnie

27.06.2020 - 10:04

DROPS Design answered:

Hej Vinnie, For at vi skal kunne svare på dit spørgsmål, er vi nødt til at få at vide, hvilken størrelse du strikker, hvor er du i opskriften, hvilket diagram du vil have hjælp med og hvilken pind i diagrammet du ikke kan få til at stemme! Husk at markere din kommentar som et spørgsmål. God dag :)

30.06.2020 - 13:51

country flag Vinnie wrote:

Undskyld jeg forstyrre igen. Som skemaet vise laver man et omslag mellem ret og vrang masker: Ret omslag vrang omslag ret omslag hvordan får jeg det til at passe med det allerede strikkede?

20.06.2020 - 20:04